Morgunblaðið - 04.08.2001, Blaðsíða 52
FÓLK Í FRÉTTUM
52 LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Einsöngstónleikar
Sigrún Pálmadóttir, sópran og
Iwona Ösp Jagla píanóleikari
halda tónleika í safnaðar-
heimilinu í Bolungarvík
miðvikud. 8. ágúst nk. kl. 20.30.
Á efnisskránni eru m.a. verk eftir
Mozart, Schubert, R. Strauss, Jón
Ásgeirsson, Sigvalda Kaldalóns
og Donizetti.
GIMLI Film Festival er yfirskrift
kvikmyndahátíðar sem haldin er í
Gimli í Kanada í fyrsta sinn í ár.
Hófst hún í gær og er stjórnandi
hennar Jón Einarsson Gústafsson,
kvikmyndargerðarmaður, sem bú-
settur er í Kanada. Á hátíðinni
verða sýndar bíómyndir sem tengj-
ast Íslandi á einn eða annan hátt.
Þar verða meðal annars sýndar ís-
lensku kvikmyndirnar Englar al-
heimsins, 101 Reykjavík og Ikingut,
auk kvikmynda annarra höfunda og
leikstjóra sem eiga rætur að rekja
til Íslands. Morgunblaðið hafði sam-
band við Jón vegna málsins. „Upp-
haflega var farið af stað með Gimli
Film Festival á vegum ræðismanns-
skrifstofunnar í Kanada. Íslendinga-
dagurinn er hinn aðilinn og utanrík-
isráðuneyti Íslands tekur einnig
þátt í henni,“ segir Jón. „Á hátíðinni
verða sýndar þrjár íslenskar bíó-
myndir, fjórar kanadískar bíómynd-
ir og þrjár heimildarmyndir auk þó
nokkurra stuttmynda. Allar mynd-
irnar sem sýndar verða tengjast Ís-
landi á einhvern hátt, þar sem leik-
stjórinn er frá Íslandi eða annað
slíkt. Heimildarmyndirnar tengjast
annað hvort samfélaginu á Íslandi
eða íslenska samfélaginu í Mani-
toba.“
Sýningartjald úti á vatni
Á kvikmyndahátíðinni er meðal
annars mynd eftir Jón sjálfan, sem
nefnist The Importance of Being
Icelandic. „Hún fjallar um þrjá
Manitoba-búa sem fara til Íslands í
eitt ár til að finna Íslendinginn í
sér,“ útskýrir hann. „Svo verður
Friðrik Þór Friðriksson heiðurs-
gestur hátíðarinnar ásamt Sturlu
Gunnarssyni. Hann er fæddur á Ís-
landi en hefur búið í Kanada frá
barnsaldri. Um þessar mundir þykir
hann einn af merkilegustu kvik-
myndaleikstjórum Kanada. Á hátíð-
inni verður hann með bíómynd sem
nefnist Such a Long Journey, sem
hefur fengið frábæra dóma. Roger
Ebert, sem er mjög þekktur kvik-
myndagagnrýnandi í Bandaríkjun-
um, valdi hana eina af bestu mynd-
um ársins 2000. Hann var tilnefndur
til Óskarsverðlauna fyrir nokkrum
árum.“
Bærinn Gimli er við Winnipeg-
vatn, og til stendur að nokkrar kvik-
myndanna verði sýndar á sýning-
artjaldi, sem er úti í vatninu. Aðrar
kvikmyndir verða sýndar í bíóhús-
inu í Gimli. „Ég held að útisýning-
arnar geti skapað hátíðinni nokkra
sérstöðu,“ segir Jón.
Íslendingadagurinn svokallaði,
sem nefnist The Icelandic Festival
of Manitoba, er haldinn árlega í
Gimli og stendur frá 3. til 6. ágúst í
ár. „Það koma um 50.000 manns til
Gimli og taka þátt í Íslendingadeg-
inum,“ útskýrir Jón. „Margt af því
fólki er af íslenskum ættum, en ekk-
ert endilega allir, heldur fólk sem
hefur áhuga á Íslandi. Það eru alls
konar hátíðahöld sem fara fram og
hafa margir áhrifamenn á Íslandi
komið til að taka þátt. Í ár verður
Markús Örn Antonsson ræðumaður
og einnig aðalræðismaður Íslands í
Winnipeg.“
Stefnt að fleiri sýningum
Aðspurður segist Jón halda að há-
tíðin muni hafa nokkra þýðingu fyrir
íslenska og kanadíska kvikmynda-
gerð. „Það á auðvitað eftir að koma í
ljós, þar sem þetta er í fyrsta sinn
sem hátíðin er haldin,“ segir hann.
„En við vonumst til þess að hún nái
að öðlast virðingu og mikla þýðingu
í framtíðinni. Það eru mjög sérstak-
ar aðstæður hér í Gimli, sem gætu
aðstoðað við þá þróun. Hér er verið
að setja upp listastofnun og þessi
hátíð mun heyra undir hana. Svo eru
hér líka tækifæri til að nýta mark-
aðinn sem er fyrir hendi í sambandi
við Íslendingadaginn, þegar allt
þetta fólk kemur til Gimli. Þannig að
það eru tækifæri fyrir okkur, sem
erum kvikmyndargerðarmenn hér í
Manitoba, og íslenskar myndir að ná
til fjölda fólks. Auk þess eru fáir
staðir betri til að koma kvikmyndum
tengdum Íslandi á framfæri við
samfélag Vestur-Íslendinga.“
Jón segist stefna að því að ferðast
víðar um Kanada með kvik-
myndahátíðina að loknum sýningum
í Gimli. „Fyrst við höfum fengið
myndirnar til Kanada frá Íslandi, og
sett upp dagskrána, er kjörið að
sýna þær víðar. Sendiráð Íslands í
Ottawa ætlar að sýna hluta mynd-
anna þegar hátíðinni í Gimli lýkur
nú í ár og í framtíðinni stefnum við á
fleiri borgir.“
Íslands-tengdar
kvikmyndir í Gimli
Ljósmynd/Trevor Percy
Jón E. Gústafsson hjá vatnssýningartjaldinu góða.
RISAEÐLURNAR í Júragarðinum
hafa öðlast fastan sess í kvik-
myndasögunni. Það er því gleði-
efni fyrir marga er þær snúa aft-
ur á hvíta tjaldið, grimmari og
gáfaðri en áður. Í þessari þriðju
mynd um endurlífgaða forvera
okkar á jörðinni fer Alessandro
Nivola með hlutverk Billy Brenn-
ans, sérlegs aðstoðarmanns risa-
eðlugúrúsins góðkunna Alans
Grant, sem leikinn er af Sam
Neill.
Nivola er langt frá því að vera
óreyndur þegar kemur að kvik-
myndaleik, þó svo að þetta sé
hans fyrsta hlutverk í stórmynd
eins og hann segir sjálfur.
Það liggur beinast við að spyrja
hina upprennandi stjörnu hvernig
hann hafi það í dag.
„Ég hef það bara mjög gott,
takk fyrir.“
Í myndinni ferðu með hlutverk
Billy Brennan sem er ungur hug-
djarfur vísindamaður. Er hann
líkur þér í raunveruleikanum?
„Nei, við erum ekki mjög líkir.
Ég er ekki mikið fyrir að fórna
lífi mínu. Ég er frekar varkár,
sérstaklega þegar kemur að því
að stökkva fyrir björg eða annað
því um líkt! Ég er heldur ekki
mikill vísindamaður í
mér. Mér gekk aldrei
vel í raungreinum í
skóla.“
Beið í röð til að sjá
fyrstu myndina
Nú hlaut myndin
gífurlega góðar við-
tökur í kvikmynda-
húsum í Bandaríkj-
unum. Bjóst þú við
svona góðum við-
brögðum?
„Ég held að flestir
hafi búist við ágætum
viðbrögðum því risa-
eðlurnar hafa verið
svo vinsælar í fyrri myndunum og
krakkarnir elska þær. En það
bjóst þó enginn við svona góðum
viðbrögðum, þetta er langt um-
fram vonir. Þetta kom okkur öll-
um skemmtilega á óvart. Ég held
að ástæðan fyrir velgengninni sé
að miklum hluta vegna þess að
mikið var lagt í skemmtanagildi
myndarinnar. Það var ekki bara
reynt að auglýsa hana á for-
sendum fyrri myndanna.“
Ég las um daginn viðtal við
Sam Neill þar sem hann sagði að
Júragarðurinn 3 væri besta mynd
þríeykisins. Ertu
sammála því?
„Já, ég er sammála
því að mörgu leyti.
Það sem þessi mynd
hefur umfram hinar
er að hún er meiri
spennumynd, áhorf-
endur standa á önd-
inni allan tímann.
Hún kemur sér beint
að efninu og er mjög
hröð. Hún er full af
orku og spennu,
meira en hinar tvær
að mínu mati.“
Varstu aðdáandi
fyrri myndanna?
„Já, ég beið í marga klukku-
tíma í biðröð til að fá miða á
fyrstu myndina en þá datt mér
ekki í hug að ég ætti eftir að fara
með hlutverk í framhaldsmynd-
inni innan fárra ára.“
Ímyndaðir mótleikarar
Heldur þú að Júragarðurinn 4
muni líta dagsins ljós?
„Það er aldrei að vita. Það hafa
ekki verið teknar neinar ákvarð-
anir ennþá en þar sem þessi hefur
gengið svo vel er auðvitað freist-
andi fyrir aðstandendur mynd-
arinnar að halda áfram. En ég hef
samt ekki hugmynd um hvort það
verður önnur.“
Í fjölda atriða eru mótleikarar
þínir tölvugerðar risaeðlur. Er
ekki skrýtið að hafa ímyndaða
mótleikara?
„Þegar ég samþykkti að fara
með hlutverk í myndinni voru
margir sem vöruðu mig við því að
ég ætti eftir að eyða mestöllum
upptökutímanum í tómum her-
bergjum, með bláskjá að baki,
leikandi viðbrögð við einhverju
sem væri ekki að gerast. En í
rauninni voru þetta, í um helm-
ingi tilvika, rafrænar brúður sem
Stan Winston hannaði sem voru
svo raunverulegar að þær voru
meira að segja andfúlar!
Þær auðvelduðu mér starfið til
muna því ég gat túlkað viðbrögð
við einhverju sem var í raun að
gerast. Það voru þó nokkur atriði
þar sem ég lék á móti ímynduðum
risaeðlum. Það sem var gaman við
það var að ég fékk leyfi til að
stjórna því sem gerðist. Risaeðl-
urnar voru teiknaðar eftir á eftir
hreyfingum og viðbrögðum mín-
um.“
Hefur þú áhuga á risaeðlum
sjálfur?
„Þegar ég var yngri voru risa-
eðlur mikið áhugamál hjá mér og
ég vissi nöfnin á öllum tegund-
unum. Ég var þó búin að gleyma
þeim öllum þar til ég fór með litla
frænda minn á náttúrugripasafn
eftir að hafa fengið hlutverk í
myndinni. Ég keypti handa honum
barnabók um risaeðlur sem varð
svo minn helsti fróðleiksbrunnur á
meðan á tökunum stóð. Ég hafði
hana með mér á tökustað og ef
upp kom ágreiningur eða spurn-
ingar varðandi risaeðlurnar dró
ég fram litlu teiknimyndabókina
og leysti úr vandanum.“
Hlustar auðvitað á Björk
Er hlutverk þitt í myndinni þitt
stærsta á ferlinum?
„Nei, ég hef farið með aðal-
hlutverk í nokkrum myndum en
þetta er vissulega umfangsmesta
mynd sem ég hef leikið í. Ég hef
ekki leikið í svona stórmynd síðan
ég lék í Face/Off.“
[Alessandro fór þar með hlut-
verk Pollux Troy, bróður Castor
Troy sem leikinn var af Nicolas
Cage.]
Ertu að vinna að einhverri
kvikmynd í augnablikinu?
„Já, ég er að leika á móti Juliu
Stiles og Shirley MacLaine í róm-
antískri mynd. Þar leik ég rithöf-
und sem er ástfanginn af besta
vini sínum.“
Þá er það að lokum hin sígilda
spurning: Hvað veistu um Ísland?
„Ég veit ekki mikið um landið
en ég hef verið mikið í Englandi
og veit að þið eigið marga góða
knattspyrnumenn þar. Ég hef oft
horft á þá spila. Svo hlusta ég
auðvitað á Björk. Það kemur mér
líka alltaf á óvart hvað Íslend-
ingar tala góða ensku. Af hverju
er það?“
Ætli það sé ekki bara vegna
þess hver einangrað landið er.
Svo byrjum við ung að læra ensku
í skólanum.
„Já, ég skil. Þetta kemur mér
alltaf jafn mikið á óvart.“
Já, það er skemmtilegt. En
þakka þér kærlega fyrir spjallið
og gangi ykkur vel með myndina.
„Takk fyrir og takk sömuleiðis
fyrir spjallið.“
„Risaeðlurnar
meira að segja
andfúlar!“
Alessandro Nivola er einn þeirra leikara
sem prýða kvikmyndina Júragarðurinn
3. Birta Björnsdóttir sló á þráðinn til
hans og ræddi við hann um ímyndaða
mótleikara, íslenska knattspyrnumenn
og að sjálfsögðu risaeðlur. Nivola sem Billy Brennan í Júragarðinum 3.
birta@mbl.is
Alessandro Nivola