Morgunblaðið - 04.08.2001, Blaðsíða 53
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2001 53
Í SUMAR hefur Morgunblaðið stað-
ið fyrir blaðberakapphlaupi sem felst
í því að blaðberar á höfuðborgar-
svæðinu safna stigum. Fá þeir
ákveðin stig við upphaf og lok blað-
burðar en einnig fá þeir aukastig ef
þeir ljúka burðinum fyrir kl. sjö. Þeir
sem safna flestum stigum og standa
sig best í starfi lenda svo í lukku-
potti, sem dregið er úr mánaðarlega.
Aðalvinningshafi í blaðberakapp-
hlaupi júlímánaðar er Sólveig
Tryggvadóttir sem hlaut ferða-
geislaspilara frá Sony og fjóra
geisladiska frá Skífunni. Auk þess
fengu tuttugu aðrir blaðberar bíó-
miða fyrir tvo á myndina Jurassic
Park III frá Háskólabíói.
„Dóttir mín byrjaði að bera út árið
1963 og svo hljóp ég í skarðið fyrir
hana þegar hún var í skóla. Þetta
hefur verið samvinna innan fjöl-
skyldunnar og allir eru búnir að taka
þátt í þessu. Nú berum við út saman
hjónin,“ segir Sólveig sem ber út á
Seltjarnarnesi vestan Lindarbraut-
ar.
„Það var lengra farið í gamla daga,
allt niður í Bollagarða, og að Skuld
sem var bær ansi langt í burtu. Það
var ekki búið að byggja svona mikið
þá,“ segir Sólveig, sem man tímana
tvenna. „Þetta voru nokkrir bæir þá
og fyrst bárum við bara út þrettán
blöð, en þetta hefur þést mjög mik-
ið.“
Margir ímynda sér að erfitt sé að
fara á snemma á fætur á hverjum
degi og í hvað veðri sem er. Sólveig
segir hins vegar veðrið alltaf vera
gott fyrst á morgnana og ef óveður
skellur á gerist það um áttaleytið.
Hún er ánægð með starfið, henni
finnst bara hressandi að fara út
snemma á morgnana og hún ætlar að
halda áfram svo lengi sem hún getur.
Hún viðurkennir þó að það sé oft gott
að sofa út á mánudagsmorgnum.
Sólveig segist ánægð með vinning-
inn enda geti hún notað geislaspil-
arann við vinnuna en hingað til hefur
hún haft útvarp á hjólinu sem hún
hefur notað við blaðburðinn. „Í
gamla daga hringsnerist allt þegar
ég var á hjólinu, fólk var svo óvant að
sjá konu á hjóli. Nú vita allir hversu
holl hreyfing þetta er,“ segir Sólveig
að lokum.
Blaðberakapphlaupið heldur
áfram og í ágúst er aðalvinningurinn
einnig ferðageislaspilari og auka-
vinningar eru bíómiðar á kvikmynd-
ina The Fast and the Furious sem
Háskólabíó mun taka til sýninga.
Blaðberakapphlaupið heldur áfram
Samvinna innan
fjölskyldunnar
Örn Þórisson í áskriftardeild
Morgunblaðsins afhenti Sól-
veigu vinninginn.
Morgunblaðið/Þorkell