Morgunblaðið - 04.08.2001, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2001 39
Styrktarfélag vangefinna
Hæfingarstöðin
Bjarkarás
Þroskaþjálfar og stuðningsfulltrúar
óskast nú þegar til starfa. Um er að ræða
heilar stöður og hlutastörf. Í Bjarkarás,
Stjörnugróf 9, sækja um 50 manns vinnu
og þjálfun milli kl. 9.00 og 17.00.
Þjónustan felst í starfs- og félagsþjálfun
ásamt ýmsu sem tengist athöfnum dag-
legs lífs.
Nánari upplýsingar veita Guðrún
Eyjólfsdóttir og Margrét Oddgeirsdóttir í
síma 568 5330 alla virka daga.
Sambýlin
Víðihlíð 7 og 11
Þroskaþjálfar og stuðningsfulltrúar
óskast til starfa. Um er að ræða hluta-
störf í vaktavinnu. Starfsmaður sinnir
báðum sambýlunum á vakt. Starfið felur
í sér stuðning við fatlað fólk þannig að
það geti lifað sjálfsstæðu og innihalds-
ríku lífi.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Brodda-
dóttir og Unnur Fríða Halldórsdóttir í
síma 568 8185 milli kl. 9.00 og 12.00 á
virkum dögum.
Í ofangreindum störfum eru launakjör
miðuð við gildandi kjarasamninga
hverju sinni.
Bent er á heimasíðu félagsins sem er
styrktarfelag@styrktarfelag.is .
Einnig eru veittar upplýsingar um
auglýstar stöður í síma 551 5941 á skrif-
stofu félagsins, Skipholti 50c.
! " #
$$$ %
&'
(
!"
# $
% &
%
Laus störf í grunn-
skólum Reykjavíkur
skólaárið 2001-2002
Borgaskóli, sími 577 2900
Bókasafnsfræðingur, 75-100% starf.
Skólaliðar til að sinna nemendum í leik og
starfi, gangavörslu o.fl.
Breiðagerðisskóli, sími 510 2600 og 899
8652
Skólaliðar til að sinna nemendum í leik og
starfi, gangavörslu o.fl.
Matráður í mötuneyti kennara.
Fossvogsskóli, sími 568 0200
Starfsfólk til að sinna nemendum í leik og
starfi og í skóladagvist.
Grandaskóli, sími 561 1400 og 898 4936
Stuðningsfulltrúi til að aðstoða nemendur
í bekk, 1/2 starf.
Starfsfólk til almennra starfa og í skóladag-
vist. Starfið felst m.a. í gangavörslu, umsjón
með nemendum í leik og starfi, gæslu úti o.fl.
Matráður í mötuneyti nemenda og kennara.
Háteigsskóli, sími 530 4300
Ritari í 50-100% starf.
Skólaliðar til að sinna nemendum í leik og
starfi, gangavörslu o.fl., 50-100% störf.
Starfsfólk til að sinna ýmsum störfum, s.s.
ræstingum o.fl.
Húsaskóli, 898 6312 og 567 6100,
Kaffiumsjón, starfsmaður í mötuneyti kenn-
ara.
Atferlisþjálfi, til að fylgja eftir einhverfum
nemenda 60% staða.
Skólaliði, til að sinna nemendum í leik og
starfi, gangavörslu o.fl. 60—100%.
Starfsmaður, í lengda viðveru (dagv.) e.h.
Klébergsskóli, sími 566 6083
Skólaliðar til að sinna nemendum í leik og
starfi, gangavörslu o.fl.
Laugarnesskóli, sími 588 9500
Umsjónarmaður skóladagvistar, 1/1 starf.
Starfið felst í að skipulegga og stýra starfi í
Laugaseli og krefst því skipulags-, samskipta-
og leiðtogahæfileika. Leitað er eftir einstaklingi
með uppeldismenntun og mikinn áhuga á
starfi með börnum. Í starfi Laugasels er lögð
áhersla á gott samspil skóladagvistar, almenns
skólastarfs og umhverfis Laugarnesskóla.
Melaskóli, sími 535 7500 og skólastjóri í síma
897 9176 og aðstoðarskólastjóri í síma 897
8264.
Stuðningsfulltrúi til að aðstoða nemendur
í bekk.
Starfsfólk til almennra starfa og í skóladag-
vist. Starfið felst m.a. í gangavörslu, gæslu
og umsjón með nemendum í starfi og leik,
gæslu úti o.fl.
Rimaskóli, sími 567 6464 og 897 9491
Kaffiumsjónarmaður á kennarastofu.
Safamýrarskóli, sími 568 6262 og 864 6807
Stuðningsfulltrúar. Um er að ræða 100%
störf inni í bekk og í skóladagvist. Einnig 50%
störf eftir hádegi í skóladagvist.
Seljaskóli, sími 557 7411 og 899 4448
Skólaliðar til að sinna nemendum í leik og
starfi, gangavörslu o.fl.
Vogaskóli, sími 553 2600
Starfsfólk til ýmsum störfum, s.s. ganga-
vörslu, þrifum o.fl.
Ölduselsskóli, sími 557 5522
Skólaliðar til að sinna nemendum í leik og
starfi, gangavörslu o.fl.
Upplýsingar veita skólastjórar og aðstoðarskó-
lastjórar.Umsóknir ber að senda í skólana.
Laun skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar
við viðkomandi stéttarfélög.
Nánari upplýsingar um laus störf og grunn-
skóla Reykjavíkur er að finna á netinu undir
job.is
Leikskólakennara og leið-
beinendur athugið
Námskeið í kennsluaðferðum og hugmyndafræði Montessori og Global Education verður
haldið 13.-14. ágúst, 2001. Öll Montessori náms- og kennslugögn tiltæk á staðnum. Verð 6000
kr. með morgunverði, hádegisverði og kaffi. Kennari: Gale Keppler frá Bandaríkjunum. Tak-
markaður fjöldi þátttakenda – hafið samband strax!
Lausar stöður við leikskólann í Áslandi. Enn eru nokkrar lausar stöður við leikskólann.
Áhugasamir hafið samband sem fyrst. Starfsfólk leikskólans getur án endurgjalds fengið
bandaríska vottun eftir tveggja ára reynslu af ofangreindum aðferðum.
Íslensku menntasamtökin ses
Tilkynnið skráningu eða leitið frekari upplýsinga í síma
565 9711 eða 891 9088
Upplýsingar einnig veittar á heimasíðu okkar: www.ims.is
IÐNSKÓLINN Í HAFNARFIRÐI,
Flatahrauni 12, 220 Hafnarfirði,
sími 585 3600, fax 585 3601.
Kennara vantar!
Vegna mikillar fjölgunar nemenda vantar kenn-
ara í eftirfarandi greinar á haustönn:
● Trésmíði og byggingagreinar 2 stöður.
● Íþróttir ½ staða.
Launakjör samkvæmt kjarasamningum KÍ.
Nánari upplýsingar í síma 585 3600 eða á net-
fangi johanein@ismennt.is og skulu umsóknir
hafa borist undirrituðum fyrir 13. ágúst nk.
Jóhannes Einarsson,
skólameistari.
Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja,
Mánagötu 9,
230 Reykjanesbæ
sími 422 0580
fax 421 3471
Matreiðslumaður
Laus er til umsóknar staða matreiðslumanns
við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Staðan er afleysing frá 1. sept. 2001 til
1. sept. 2002.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi félags mat-
reiðslumanna og fjármálaráðuneytis.
Nánari upplýsingar um starfið veitir fram-
kvæmdastjóri í síma 422 0580.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er reyklaus
vinnustaður.
Framkvæmdastjóri.