Morgunblaðið - 04.08.2001, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
FRÉTTAÞJÓNUSTA verður
veitt um verslunarmannahelg-
ina á vef Morgunblaðsins,
mbl.is, frá klukkan 9 til 19 laug-
ardag til mánudags. Hægt er að
koma upplýsingum til ritstjórn-
ar mbl.is með því að senda tölvu-
póst á netfangið netfrett-
@mbl.is eða hringja í síma
861-7970. Morgunblaðið kemur
næst út miðvikudaginn 8. ágúst.
Fréttaþjón-
usta á mbl.is
STARFSHÓPUR sem landbúnað-
arráðherra skipaði til að fjalla um
rekstrarerfiðleika sumra sláturleyf-
ishafa mun skila bráðabirgða-
skýrslu eftir helgina. Að sögn Þór-
ólfs Gíslasonar, kaupfélagsstjóra á
Sauðárkróki og formanns hópsins,
hefur nefndin átt einn fund. Hann
sagðist ekki geta greint frá tillög-
unum í einstökum liðum en nefndin
myndi gera tillögur um almenn
rekstrarskilyrði í atvinnugreininni.
Ekki liggur fyrir hvað slátrað
verður í mörgum sláturhúsum í
haust. Goði áformaði að loka slát-
urhúsunum í Búðardal, á Hólmavík,
í Breiðdalsvík og Þykkvabæ. Mikil
andstaða er meðal heimamanna í
Búðardal og Breiðdalsvík við lokun
og þykir ljóst að hart verði tekist á
um framtíð sláturhúsanna þar.
Kristinn Geirsson, framkvæmda-
stjóri Goða hf., segir að fyrirtækið
sé ekki tilbúið að fórna þeirri hag-
ræðingu sem það er búið að gjald-
færa í vegna þess að við það myndu
verðmætin í efnahagsreikningi Goða
rýrna mikið.
Ein af ástæðum fyrir fjárhagserf-
iðleikum Goða er að staða Þríhyrn-
ings, sem rann inn í Goða, var mun
verri en gert hafði verið ráð fyrir.
Fyrirtækið skuldaði um 472 millj-
ónir króna og þar af voru 356 millj-
ónir skammtímaskuldir.
Tillagna
um slátrun
að vænta
eftir helgi
Of seint/10
ÚTLIT er fyrir að í gærdag hafi
verið sett met hvað varðar fjölda
bíla sem fóru um Hvalfjarðargöng.
Vilhjálmur Birgisson, starfsmaður í
gjaldskýlinu, sagði í samtali við
Morgunblaðið seint í gærkvöld að
líklega hefðu aldrei jafnmargir
bílar farið um göngin á einum degi.
Þeir hefðu verið á bilinu átta til tíu
þúsund talsins en jafnframt sagði
hann að endanlegar tölur kæmu
ekki í ljós fyrr en eftir helgi. Vil-
hjálmur tók fram að þrátt fyrir
þennan gríðarlega fjölda bíla hefði
umferð um göngin gengið afar vel
og greiðlega.
Metdagur í Hvalfjarðargöngunum
8 til 10 þúsund bílar
í gegnum göngin
VELTA nokkurra íslenskra kvik-
mynda- og auglýsingaframleiðenda
fyrir erlenda aðila verður í ár nærri
600 milljónir króna en alls verða
unnin hér hátt í 50 verkefni. Síðustu
daga hafa staðið yfir tökur vegna
þriggja auglýsingamynda og við
þær hafa starfað tugir Íslendinga
undir stjórn erlendra framleiðenda.
Pétur H. Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri On ehf., segir að ís-
lensku fyrirtækin hafi lagt í mark-
aðssetningu erlendis fyrir milljónir
króna mörg undanfarin ár og verk-
efnum hafi fjölgað talsvert síðustu
tvö til þrjú árin. Auk On eru Saga
Film og Pan Arctica umfangsmikil á
þessu sviði og er Saga Film þeirra
elst og með flest verkefni. Þau voru
15 í fyrra og segir Leifur Dagfinns-
son, deildarstjóri erlendrar deildar
fyrirtækisins, að þau verði álíka
mörg í ár. Hann segir mikla vinnu
fólgna í því að ná hingað erlendum
verkefnum og yfirleitt skili sér ekki
nema eitt af hverjum tíu sem boðið
er í.
Snorri Þórisson, framkvæmda-
stjóri Pan Arctica, segir að umfang
erlendra verkefni fyrirtækisins geti
verið á bilinu 10 til 60 milljónir
króna. Fyrirtækið sinnir 10–12
verkefnum á ári og segir Snorri
stærri verkefnin yfirleitt krefjast 40
til 50 íslenskra starfsmanna. Auk
verkefna á Íslandi hefur fyrirtækið
unnið að tökum á Grænlandi. Snorri
segir samkeppni um erlendu verk-
efnin nokkra milli íslensku fyrir-
tækjanna en hún sé einnig við fyr-
irtæki erlendis, m.a. í Kanada og
löndum í Austur-Evrópu.
Í gær og í dag lauk stórum verk-
efnum hjá Pan Arctica og On og
segir Pétur H. Bjarnason að síðustu
daga hafi þrjú verkefni staðið yfir
hér á sama tíma. Hafi hann því orð-
ið að flytja inn erlent vinnuafl.
Komið hefur verið upp útibúi á
vegum On í Havana á Kúbu og seg-
ir Pétur það gert til þess að geta
boðið fram þjónustu allt árið en
verkefnin hérlendis segir hann
einkum unnin á sumrin. Þegar hef-
ur verið framleidd þar ein auglýsing
fyrir íslenskt fyrirtæki og eitt tón-
listarmyndband.
Erlend fyrirtæki sækja í íslensk kvikmyndafyrirtæki
Verkefni fyrir nærri
600 milljónir á árinu
FJÓRIR íslenskir frjálsíþróttamenn
verða í sviðsljósinu á heimsmeist-
aramótinu í frjálsíþróttum í Ed-
monton í Kanada, sem er hafið. Hér
bregður íslenski hópurinn á leik í
gær. Vala Flosadóttir, Kristján
Gissurarson þjálfari, Einar Karl
Hjartarson, Þórey Edda Elísdóttir,
Vésteinn Hafsteinsson landsliðs-
þjálfari og Jón Arnar Magnússon.
Morgunblaðið/Ásdís
Í sviðsljósinu á HM
Vala og Þórey.../B1
FJÖLDI gesta streymdi á útihátíðir
í gær. Talið er að milli 5 og 6.000
manns hafi verið samankomin á
Kántrýhátíð á Skagaströnd undir
kvöldmatarleytið í gær. Um 9.000
manns voru í Dalnum í Vest-
mannaeyjum, á annað þúsund
manns í Galtalæk og á Akureyri,
þar sem hátíðin „Ein með öllu“ er
haldin, var fullur miðbær af fólki
og mikil umferð í bænum.
Fyrstu gestir mættu á Kántrýhá-
tíðina á miðvikudag og tóku frá
tjaldstæði. Talsverður straumur
fólks var á hátíðina í gær, mest-
megnis fjölskyldufólk, og var um-
ferð mikil, að sögn lögreglu.
Í Galtalæk var á annað þúsund
manns, en á sama tíma í fyrra
komu þangað um 3.000 manns. Þar
var ágætt veður, að sögn skipu-
leggjenda, og útlit fyrir gott veður
um helgina.
Á fjórða þúsund manns voru
samankomin á tónlistarhátíðinni í
Eldborg á Snæfellsnesi seint í gær-
kvöldi. Umferð um þjóðveginn var
þó nokkur en heldur virtist hafa
dregið úr henni þegar nær dró
kveldi. Svo virðist sem fólk hafi
ákveðið að nota veðurblíðuna sem
gætt hefur undanfarna daga og
farið snemma úr bænum um
helgina. Töluverður fjöldi var þeg-
ar mættur á svæðið í fyrradag og
gekk allt stóraáfallalaust fyrir sig
þó eitthvað hefði verið um pústra
og ryskingar í fyrrinótt eins og
greint var frá í fjölmiðlum í gær.
Ungmennum sem Morgunblaðið
ræddi við á Eldborg kom þó saman
um að hátíðin hefði farið vel fram
þótt skipulögð dagskrá hefði ekki
hafist fyrr en í gær. Gola var í lofti
og fremur kalt sem þó virtist ekki
setja gesti út af laginu.
Talið er að milli 8.500 og 9.000
manns hafi verið samankomin á
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í gær-
kvöldi. Lögreglan í Eyjum segir að
5-6.000 manns hafi komið með flugi
eða sjóleiðina en nærri þrjú þúsund
gesta séu heimamenn. Fleiri gesta
er að vænta í dag svo búast má við
nærri 10 þúsund manns á Þjóðhátíð
í Eyjum. 24 lögreglumenn sinna
löggæslu í Vestmannaeyjum um
helgina og sinna bæði einkenn-
isklæddir og óeinkennisklæddir
lögreglumenn ströngu fíkniefnaeft-
irliti. Auk þess eru björgunarsveit-
armenn og neyðarvakt til taks.
Verslunarmannahelgin hefur
verið annasöm en hefur að sama
skapi gengið vel og aðeins hafa
orðið minniháttar umferðaróhöpp.
Viðbúnaður vegna umferðareft-
irlits er mikill á þjóðvegum lands-
ins. Mikil umferð var á Suðurlandi
og Vesturlandi í gær. Samkvæmt
upplýsingum frá Vegagerðinni
höfðu um 8.400 bílar farið í gegn-
um Borgarnes á tíunda tímanum í
gærkvöldi og rúmlega 9.000 farið
yfir Hellisheiði. Umferðin gekk að
mestu leyti stórslysalaust fyrir sig
en tilkynnt var um tvö óhöpp til
lögreglunnar í Borgarnesi. Þriggja
bíla árekstur varð í Norðurárdal og
ekið var á kind. Þá valt bifreið við
Grundartanga. Engin slys urðu á
fólki í þessum óhöppum.
Mannfjöldi streymir á útihátíðirnar víða um land um helgina
Þung
umferð
en lítið
um slys
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Góð stemmning var fyrir framan sviðið á Eldborg í gærkvöldi. Hér er það hljómsveitin Útrás sem leikur.