Morgunblaðið - 04.08.2001, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 04.08.2001, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Í REYKJAVÍKURBRÉFI er fjallað um þá stöðu sem samtímamyndlist er stödd í á Íslandi. Er þar meðal annars bent á að ef litið er til þess hve hefð á sviði myndlistar eigi sér stutta sögu á Íslandi hafi margt áunnist, en þó sé ljóst að ef miðað er við þróun erlendis sé komið að þáttaskilum í stefnumótun á þessu sviði. Hingað til hafi fyrst og fremst verið lögð áhersla á að safna list eftir íslenska myndlistarmenn en horft fram hjá mik- ilvægi þess að safna einnig lykilverkum eftir er- lenda aðila sem vel væru til þess fallin að af- hjúpa íslenska list í alþjóðlegu samhengi. Einnig er bent á þá möguleika sem felast í sam- starfi við erlendar stofnanir og sýningarstjóra, sem bæði gætu haft áhugaverða sýn á íslenska list auk þess sem þeir geta þjónað lykilhlutverki við að koma henni á framfæri erlendis eftir að hafa kynnst henni af eigin raun. Í Reykjavík- urbréfinu kemur fram að ýmsir hafa orðið til þess að benda á að fræðslustarfi í listum og listasögu sé nokkuð ábótavant, sérstaklega á sviði samtímamyndlistar, en í greininni kemur fram að samtímalistir eru að margra mati það skapandi frumafl sem knýr áfram mikilsverðar framfarir í hverju samfélagi fyrir sig. Eigum lítið af erlendri list Pétur Arason, verslunarmaður í Reykjavík, hefur verið einn helsti safnari samtímalistar á Íslandi um árabil. „Umræða um þessi mál er þörf og ég held að hún hljóti að hrista upp í mörgum,“ segir Pétur. „Við erum að verða eina landið í Evrópu sem á lítið af list eftir útlend- inga, en samt ætlumst við til að íslenskir mynd- listarmenn séu að sýna og selja erlendis. Það er kannski ekki hægt að kvarta yfir sýningum hérna, en listaverkaeign safnanna þarf að sam- anstanda af erlendri og innlendri myndlist. Jafnvel litlar þjóðir í Evrópu hafa tekið sig á síð- astliðin ár og eiga nú mjög fín söfn. Við erum langt á eftir í því.“ Pétur minnist einnig á skóla- kerfið og bendir á að fölsunarmál undanfarinna ára séu angi af því hvernig málum er háttað þar. „Það er með ólíkindum hvernig það hefur geng- ið, að hægt sé að selja fleiri hundruð fölsuð lista- verk í tíu til tólf ár án þess að enginn segi neitt,“ segir hann. Upphefðin komi að innan Gunnar J. Árnason er listheimspekingur og gagnrýnandi. „Það er lífsnauðsynlegt fyrir ís- lenska myndlistarmenn og aðra þá sem starfa í myndlistarlífinu að vera í virku sambandi við kollega sína annars staðar. Í fyrsta lagi er þetta nauðsynlegt fyrir þá ef það á að vera einhver von til þess að þeir geti helgað sig list sinni og haft af henni fjárhagslegan ávinning. Í raun er gróskunni í íslensku myndlistarlífi að verulegu leyti haldið gangandi með meðgjöf listamanna og annarra sem starfa á þessu sviði. En þegar kemur að alþjóðlegu samstarfi gengur þetta vinnulag náttúrlega ekki upp, þar er staðið að hlutunum á allt annan hátt.“ Gunnar segir að það skipti ekki síður máli að líta til þess að raun- verulega viðurkenningu og upphefð íslenskrar myndlistar sé að finna þar sem hinir bestu koma saman. „Þá erum við ekki að tala um að upp- hefðin komi að utan, heldur þvert á móti að hún komi að innan, frá þeim sem best þekkja til á þessu sviði, hvar sem þeir annars kunna að búa. Engum dettur í hug að íslenskir vísindamenn Ópera og myn þröskuldi brey Í Morgunblaðinu sl. sunnudag birtust tvær greinar um myndlist og óperu sem vakið hafa talsverða athygli og umtal undanfarna daga. Inga María Leifsdóttir ræddi við fólk sem málin snerta á einn eða annan hátt. Í GREIN sinni Af listum um framtíðarstefnu í stjórn óperuhúsa hefur Bergþóra Jónsdóttir eftir Lucas Pairon, óperu- og hljómsveit- arstjóra sem starfað hefur í Evrópu um ára- bil, að óperumenning í dag sé í alltof föstum skorðum og að í raun megi líkja mörgum óp- eruhúsum við söfn, þar sem lítil gróska eigi sér stað, heldur sé áhersla lögð á að draga fram sömu safngripina ár eftir ár. Bendir hann á að ópera eigi, líkt og aðrar listgreinar, að vera í stöðugri þróun og endursköpun. Breytingar taka tíma Bjarni Daníelsson, óperustjóri Íslensku óp- erunnar, fagnar umræðu Bergþóru. „Ég held að umræðan sé tímabær og passi ágætlega þegar Íslenska óperan berst harðri baráttu fyrir framtíð sinni,“ segir hann. „Frumkvæði annara aðila sýnir að það er áhugi á óperulist og að hann er engan veginn einskorðaður við Íslensku óperuna. Ég er algjörlega sammála þessum boðskap sem kemur fram í skrifum Lucasar Pairon um þörfina á endurnýjun óp- erulistarinnar. Ég hef reynt að fylgja þessu sjónarmiði í orði og verki. Hins vegar verður að horfast í augu við þá staðreynd, að rekstur óperuhúss er háður nokkuð flóknum efna- hagslegum veruleika og ef að á breyta starf- semi þá þarf líka að breyta honum. Það er ekki nóg að segja að það verði að færa óp- eruna til nútímans með því að semja og flytja ný verk, maður verður líka að gera sér grein fyrir því hvert eðli óperulistarinnar sé og hvernig hún hefur höfðað til áheyrenda, hvernig hún gerir það og hvernig hún mun gera það í framtíðinni. Óperulistin er samspil margra listgreina, en ég held samt að kjarni hennar sé mannsröddin og möguleikar hennar til að túlka mannlegar tilfinningar og sam- skipti. Nútímaóperuhöfundar verða að virða þennan kjarna, en ef þeir gera það, þá held ég að þeir eigi hiklaust erindi í óperuhús sam- tímans til að endurnýja þetta listform.“ Nú segir Pairon að margir telji að erfitt sé að fá styrki einkaaðila ef ekki sé haldið í hefð- bundna formið –heldurðu að það sé rétt og raunin á Íslandi? „Já, ég held það, eins og er. Við höfum í Íslensku óperunni gert könnun á afstöðu styrktarfyrirtækja okkar sem stað- festir það að þau vilja gjarnan styrkja það sem er þekkt og menn eru nokkuð vissir um að hafa gaman af. Ég hef hins vegar góða reynslu af viðræðum og samskiptum við fyr- irtæki um stuðning við menningarstarfsemi. Ég held ekki að fyrirtæki muni kippa að sér hendinni þó að einhver tilraunastarfsemi sé í gangi.“ Pairon segir ennfremur að í dag séu nær öll óperuhús söfn – hvað finnst þér um Íslensku óperuna í því samhengi? „Það sem ég tel að hann eigi við er að alltaf sé verið að sýna sömu óperurnar. Safn þarf auðvitað ekki að vera skammaryrði, en það sem felst í þessu er að nýsköpunin eigi sér ekki stað. Það er bæði rétt og rangt. Það á sér alltaf stað viss ný- sköpun með enduruppfærslu gamalla verka og Íslenska óperan hefur núna tekið þá ákvörðun að flytja vinsæl, þekkt verk, en við hikum ekki við að endurskapa þau að ein- hverju leyti. Og þá ekki síst með því að gefa ungu fólki tækifæri til að túlka þau upp á nýtt og leggja nýja sýn inn í þessar uppfærslur.“ Nauðsynlegt að vera vakandi fyrir því sem áhorfandinn vill Að sögn Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur, söngkonu og fyrrverandi framkvæmdastjóra Íslensku óperunnar, hafa vangaveltur Lucasar Pairon sem Bergþóra kynnir verið lengi til umræðu innan óperuheimsins. „Það er einmitt Óperuhúsin líkari söfnum FÍKNIEFNIN Fengin reynsla hefur kennt okk-ur Íslendingum að um þessahelgi er margt að varast. Um- ferðaryfirvöld halda uppi linnulaus- um áróðri fyrir verzlunarmannahelg- ina og um hana til þess að hvetja ökumenn til varúðar í umferðinni. Það gerist allt of oft um þessa helgi að dauðaslys verða á þjóðvegum vegna óvarkárni í akstri. Jafnframt er það orðin föst venja að efnt er til víðtæks átaks gegn nauðg- unum. Líf of margra ungmenna og annarra einstaklinga hafa verið eyði- lögð vegna þeirra ofbeldisverka. En það er því miður svo komið að það er full ástæða til að efna til sér- stakrar herferðar gegn fíkniefnum, reyndar öllum stundum en ekki sízt um þessa helgi. Sölumenn fíkniefna eru alls staðar á ferðinni þar sem fólk kemur saman. Þeir ná aftur og aftur þeim árangri að ungt fólk neytir fíkniefna í fyrsta sinn um þessa helgi og aðrar slíkar og þar með er vegferðin til glötunar hafin. Þetta vandamál hefur orðið til á Ís- landi á rúmum þremur áratugum. Jó- hann Hafstein, sem þá var dómsmála- ráðherra, varð fyrstur íslenzkra ráðamanna til þess að beita sér fyrir ákveðnum aðgerðum gegn fíkniefn- um. Það er þyngra en tárum taki að horfa upp á þær hörmungar sem fíkni- efnaneyzla leiðir af sér. Líf margra fjölskyldna hefur verið lagt í rúst. Feður og mæður kveljast yfir örlög- um barna sinna það sem þau eiga eftir ólifað. Á bak við hræðileg örlög þessa fólks standa menn sem græða pen- inga á því að eyðileggja líf annarra. Víða um lönd hafa farið fram um- ræður um það hvort lögleiða eigi fíkniefni. Því er jafnvel haldið fram að sum fíkniefni séu ekki skaðlegri en þau vímuefni sem mest eru notuð. Hvergi hafa komið fram sannfærandi rök fyrir þessum sjónarmiðum. Þvert á móti sýnir reynsla þeirra, sem gert hafa tilraunir með slíkt, að vandinn eykst en minnkar ekki. Við eigum ekki annarra kosta völ en herða róðurinn mjög gegn fíkniefn- um. Lögreglan hefur verið að ná at- hyglisverðum árangri í þeim efnum og augljóst að hún er að ná meira og meira magni af fíkniefnum sem ætlað er á markaðinn hér. En jafnframt þarf að stórauka for- varnarstarf og þá ekki sízt á meðal unga fólksins. Það þarf að efla mjög upplýsingastarf í skólum og annars staðar þar sem æskufólk kemur sam- an. Það er líka full ástæða til að ræða þyngri refsingar vegna fíkniefnasölu og smygls á fíkniefnum. Því þyngri sem refsingar eru, þeim mun erfðara verðu fyrir þá, sem skipuleggja og fjármagna fíkniefnasölu, að fá fólk til liðs við sig. EINRÆKTUN Á STOFNFRUMUM ÚR FÓSTURVÍSUM Að undanförnu hefur umræðu umeinræktun stofnfruma borið hátt víða um heim. Svo virðist sem fram- farir á sviði vísinda stangist á við hugmyndir margra um þau siðferð- islegu mörk sem draga beri í tilraun- um með fósturvísa. Vísindamenn eru þó sannfærðir um að slíkar tilraunir muni gjörbylta rannsóknum á sviði læknisfræði, sem að lokum kunni að leiða til mikilla framfara fyrir sjúk- linga með alvarlega sjúkdóma á borð við parkinsons-veiki, alzheimer, syk- ursýki og hjartasjúkdóma. Það vakti nokkra athygli í þessari viku þegar Bandaríkjaþing sam- þykkti bann við allri einræktun mannsfruma, jafnvel í lækninga- skyni. Bretar hafa hins vegar nú þeg- ar leyft rannsóknir á þessu sviði og miklar líkur eru á að rannsóknir á vefjarækt út frá stofnfrumum úr fóst- urvísum hefjist í Japan fyrir árslok. Danskir stjórnmálamenn hafa verið jákvæðir gagnvart hugmyndum um að leyfa einræktun mannsfruma í lækningaskyni og danska siðferðis- ráðið lýsti sig í vor fylgjandi því. Við- horf þeirra er þó háð því skilyrði að ekki sé um að ræða einræktun manna. Árið 1998 tilkynntu vísindamenn fyrst að þeim hefði tekist að einangra og rækta stofnfrumur, en þær voru fengnar úr þeim fósturvísum sem gengu af við frjósemisaðgerðir sem og úr fóstrum sem hafði verið eytt. Það sem gerir einræktun stofnfruma svo umdeilda er auðvitað sú stað- reynd að til þess að nálgast frumurn- ar þarf að eyða mannlegum fóstur- vísi. Af þessum sökum höfnuðu fjölmargar hreyfingar og samtök sem eru á móti fóstureyðingum þessum rannsóknum, þar sem þær hverfast um sömu siðferðislegu álitaefnin. Kaþólska kirkjan lagðist gegn rann- sóknunum og Jóhannes Páll II páfi hvatti George W. Bush Bandaríkja- forseta til að banna tilraunir á mann- legum fósturvísum á fundi þeirra hinn 23. júlí sl. Samfélög sem hafa tekið frjálslyndari afstöðu til fóstur- eyðinga og telja þær val kvenna undir ákveðnum kringumstæðum, hafa hins vegar brugðist við á annan máta og sýnt jákvæð viðbrögð við þeim mögu- leikum sem slíkar rannsóknir geta leitt í ljós fyrir mannkynið. Málefnaleg umræða um þessi mál er nauðsynleg og til þess að hún geti átt sér stað er nauðsynlegt að greina á milli einræktunar á stofnfrumum í læknisfræðilegum tilgangi og ein- ræktun til að skapa nýjan einstak- ling, sem felur í sér mun veigameiri og flóknari siðferðislegar spurning- ar. Í þeim fjölmörgu tilfellum þar sem fósturvísar hafa verið búnir til í tilraunaglösum hafa fæstir haft áhyggjur af þeim sem umfram eru, en þeim er einfaldlega eytt. Það er því erfitt að færa siðferðisleg rök fyrir því að í samfélögum þar sem fóstur- eyðingar og glasafrjóvganir eru leyfðar, sé staðið gegn rannsóknum á stofnfrumum. Um leið er þó ljóst að tryggja verður með öllum tiltækum ráðum að rétt sé staðið að öflun og meðhöndlun fósturvísanna og strang- ar reglur settar til að fyrirbyggja misnotkun á þessu rannsóknarsviði sem vissulega snertir viðkvæma þætti mannlegrar tilvistar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.