Morgunblaðið - 04.08.2001, Blaðsíða 20
ÚR VERINU
20 LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Á hluthafafundi Almenna hlutabréfasjóðsins hf. þann 28. júní 2001 var samþykktur samruni sjóðsins við
Hlutabréfasjóðinn Auðlind hf. sem svo var samþykktur hjá félaginu þann 16. júlí 2001. Sameiningin miðast við
31. desember 2001 og eru skiptihlutföll jafnframt miðuð við þann tíma. Þá eignast hluthafar í Almenna
hlutabréfasjóðnum hlutabréf í Hlutabréfasjóðnum Auðlind hf. sem nema 0,72211% af nafnverðseign.
Hér með er skorað á alla eigendur hlutabréfa í Almenna hlutabréfasjóðnum hf. sem telja nokkurn vafa leika á
að eignarhald þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá Almenna Hlutabréfasjóðsins m.v. 28. júní 2001, að sannreyna
skráninguna innan 4 vikna frá birtingu tilkynningar þessarar, með fyrirspurn til hlutaskrár Hlutabréfasjóðsins
Auðlindar hf. að Ármúla 13, Reykjavík, í síma 515 1500 eða í netfangi helgaae@kaupthing.net. Komi í ljós við
slíka könnun að eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu fyrir
nefnd tímamörk.
Ennfremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma
þeim á framfæri við hlutaskrá eða fullgilda reikningsstofnun, þ.e. banka, verðbréfafyrirtæki eða sparisjóð sem
hefur gert aðildarsamning við Verðbréfaskráningu Íslands hf.
Athygli hluthafa er vakin á því að hlutabréf í Almenna hlutabréfasjóðnum verða sjálfkrafa ógild við samrunann
og því er ekki þörf á að skila þeim til félagsins. Jafnframt er hluthöfum bent á að hlutir í Hlutabréfasjóðnum
Auðlind hf. sem hluthafar í Almenna hlutabréfasjóðnum fá í stað hlutabréfa sinna eru rafrænt skráð. Hluthafar
þurfa því að fela reikningsstofnun umsjón með eignarhlut sínum í félaginu til að geta framselt hluti sína, svo
sem vegna sölu eða skipta. Sú reikningsstofnun sem hluthafi leitar til mun í þessu skyni stofna VS-
reikning í nafni viðkomandi hluthafa.
Hluthöfum sem skráðir eru í hlutaskrá félagsins verður tilkynnt þetta bréfleiðis.
f.h. stjórnar Hlutabréfasjóðsins Auðlindar hf.
Tilkynning til hluthafa Almenna hlutabréfasjóðsins hf.
vegna sameiningar Almenna hlutabréfasjóðsins hf. og
Hlutabréfasjóðsins Auðlindar hf.
LÍNUSKIPIÐ Byr VE frá Vest-
mannaeyjum landaði um 21 tonni
af hausaðri lúðu í vikunni. Aflinn
fékkst á 20 dögum, í 17 lögnum.
Að sögn Sveins Valgeirssonar
skipstjóri fékkst lúðan á Reykja-
neshrygg, á Fjöllunum svoköll-
uðu. Meðalvigtin á lúðunni var um
50 kíló en Sveinn segir margar
hafa verið vel yfir 100 kíló. Gott
verð fæst fyrir lúðuna, 650 krón-
ur fyrir kílóið að sögn Sveins, en
lúðan er aðallega seld til Noregs
og til Englands. Aflaverðmæti
veiðiferðarinnar er því um 14
milljónir króna. „Þetta er skásti
túrinn sem við höfum gert á lúðu
til þessa. Við höfum alltaf verið á
lúðu á þessum árstíma, að und-
anskildum síðustu tveimur árum,
þegar við vorum í túnfiskinum
eingöngu. Ég er samt sem áður
ekki viss um að það sé meira af
lúðu á slóðinni en áður, við höfum
áður fengið ágæta veiði á þessum
slóðum. Það hefur samt verulega
dregið úr lúðuveiði á grunnslóð.“
Sveinn segir stefnt að því að
fara á túnfiskveiðar í september.
„Það er von á fyrstu japönsku
túnfiskveiðiskipunum um miðjan
ágúst og við munum fylgjast með
hvernig þeim gengur. Ef þeir eru
að fiska getum við byrjað veið-
arnar án mikillar fyrirhafnar,“
segir Sveinn.
21 tonn af stórlúðu
Vænum stórlúðum landað úr línuskipinu Byr VE í Vestmannaeyjum.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
NÚ ER gósentíð í saltfiskverkun í
Noregi. Stór þurrkaður saltfiskur,
yfir 6 kíló og gallalaus, hefur selzt
fyrir meira 1.000 krónur kílóið til
Portúgals en svo hátt hefur verðið
aldrei farið áður. Það liggur við að
norsku framleiðendurnir hafi
áhyggjur af því hve verðið er hátt því
það getur bæði dregið úr eftirspurn
og neyzlu.
Munaðarvara
Gífurleg veiði var við Finnmörku í
Noregi í vor og gæði þorsksins voru
óvenju mikil, þrátt fyrir að fiskurinn
lægi í loðnunni. Því var framleitt
mun meira en áður og útflutningur
jókst með hækkandi verði.
Metverði var náð fyrir blautverk-
aðan saltfisk yfir 6 kíló, þegar um 620
krónur fengust fyrir kílóið til fram-
leiðenda. Lakari flokkar eins og cres-
ido hefur verið seldur fyrir meira en
400 krónur á kílóið allt árið. Fyrir
vikið er saltfiskurinn orðinn munað-
arvara í Portúgal, sem almenningur
ræður ekki við að kaupa í matinn.
Í fyrra náði Ísland að komast fram
úr Norðmönnum í útflutningi á
blautverkuðum þorski til Portúgals
enda var framboð frá Noregi með
minnsta móti. Nú bendir margt til
þess að Norðmenn komist aftur fram
úr okkur. Á fyrri helmingi þessa árs
hafa Norðmenn aukið útflutning á
blautverkuðum fiski til Portúgals um
2.600 tonn og 1.900 tonn af þurrk-
uðum fiski, en lítils háttar samdrátt-
ur hefur verið í útflutningi frá Íslandi
samkvæmt heimildum norska blaðs-
ins Fiskeribladet. Það segir að ekki
liggi fyrir tölur fyrir fyrstu 6 mán-
uðina hér á landi, en fyrstu þrjá mán-
uðina hafi Íslendingar selt 4.800 tonn
af saltfiski til Portúgals, en Norð-
menn 3.700. Í aprílmánuði einum hafi
Norðmenn selt 4.000 tonn til Portú-
gals en því hafi Íslendingar tæpast
náð enda verkfall á fiskiskipaflotan-
um í apríl. Hins vegar er ljóst að hafi
Norðmenn náð forystunni nú mun-
um við sækja á þá í haust en þá hefst
nýtt kvótaár hér. Mjög lítið verður
eftir að veiða hjá Norðmönnum sem
miða sína fiskveiðistjórn við alman-
aksárið.
Yfirleitt fá Íslendingar hærra verð
fyrir sinn saltfisk en Norðmenn
vegna meiri gæða og flokkunar, en
þegar eftirspurnin er mikil minnkar
þessi mismunur eða hvefur. Hlutfall
stórs fisk í útflutningi Íslendinga er
einnig mun hærra en hjá Norðmönn-
um og fyrir hann fæst mun hærra
verð en fyrir smærri fiskinn. Skýr-
ingin á hærra hlutfalli af stórum fiski
er meðal annars aukin sókn með
stærri möskva í netum, en einnig það
að smærri fiskurinn fer í frost en sá
stærri í salt.
Söltun gengur vel
FULLTRÚAR Samtaka atvinnu-
lífsins og Alþýðusambands Íslands
telja ýmislegt jákvætt við verð-
bólguspá Seðlabanka Íslands og
eru sammála um að forsendur til
vaxtalækkunar bankans muni skap-
ast fljótlega.
Að sögn Rannveigar Sigurðar-
dóttur, hagfræðings ASÍ, telur hún
spá Seðlabankans um 8% verðbólgu
innan ársins of háa, fyrst og fremst
vegna þess að draga muni hraðar
úr umsvifum í þjóðfélaginu en
bankinn gerir ráð fyrir. Einnig hef-
ur gengi krónunnar styrkst und-
anfarna daga og er nú hærra en
spáin gengur út frá. Það ætti að
skila sér í lægra vöruverði og þar
með lægri verðbólgu. „Það jákvæða
við spána er að gert er ráð fyrir
hraðari lækkun verðbólgu 2002 en í
síðustu spá bankans,“ segir Rann-
veig.
Samtök atvinnulífsins taka í
sama streng og telja ánægjulegt að
Seðlabankinn spái lækkandi verð-
bólgu á næsta ári. „Spáin gerir ráð
fyrir því að ef við berum gæfu til
þess að koma í veg fyrir víxlhækk-
un launa, verðlags og gjaldeyris þá
geti verðbólgan gengið mjög hratt
niður. Ég tel það vera mjög
ánægjulegar fréttir í þessari spá.
Með þeim fyrirvara að ekki verði
teknar óskynsamlegar ákvarðanir
um að hleypa af stað slíkri víxlverk-
un þá hef ég ekki áhyggjur af því
að verðbólga sé að grafa um sig. Ég
held að mesta verðbólgan sé gengin
yfir og það sé lítið eldsneyti fyrir
verðbólgu á haustmánuðum,“ segir
Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA.
Ari segir það valda samtökunum
miklum vonbrigðum að Seðlabank-
inn skuli hafa tekið ákvörðun um að
lækka ekki vexti. „Það hefur verið
okkar skoðun að of háir vextir hér á
landi og sú stefna að stuðla að
hækkun gengis krónunnar, umfram
það sem var raunhæft, hafi átt þátt
í að ýta undir miklar erlendar lán-
tökur, sem hafa stuðlað að þenslu.
Að því leyti hafi gengislækkunin átt
þátt í að draga úr þenslu í landinu,“
segir Ari.
ASÍ telur að forsendur til vaxta-
lækkunar muni skapast innan tíðar.
„Markmið Seðlabankans nú er að
hafa áhrif á verðlag með vaxta-
ákvörðunum sínum. Með því að
hafa mikinn vaxtamun á milli Ís-
lands og annarra landa verður hag-
stætt að eiga íslenskar krónur,
gengið styrkist, innflutningur verð-
ur ódýrari og verðbólga þar með
minni. Vægi innflutnings í neysl-
unni er verulegt hér á landi og því
skiptir gengið miklu máli við vaxta-
ákvarðanir bankans.“
Forsendur til vaxta-
lækkunar að skapast
Talsmenn ASÍ og SA um verðbólguspá Seðlabankans
VIÐSKIPTI
HAGNAÐUR Íslandsbanka á
fyrstu sex mánuðum ársins var
1.655 milljónir sem er talsvert betra
en búist var við. Á fyrstu sex mán-
uðum í fyrra var hagnaður bankans
750 milljónir.
Jónas Gauti Friðþjófsson, sér-
fræðingur hjá greiningardeild
Landsbankans, segir að helsta skýr-
ingin á að afkoman var betri en bú-
ist hafi verið við sé að hreinar vaxta-
tekjur Íslandsbanka séu talsvert
hærri en gert hafi verið ráð fyrir.
Það stafi aðallega af því að þar sem
verðtryggðar eignir bankans séu
meiri en verðtryggðar skuldir sé
aukin verðbólga að færa bankanum
auknar tekjur í formi verðbóta.
Einnig hafi vaxtaálag á viðskiptavini
aukist. Vaxtamunurinn sé þannig
3,1% og talsvert hærri en gert hafi
verið ráð fyrir og því sé almenn við-
skiptabankastarfsemi að skila betri
afkomu en ella að sögn Jónasar.
Aðspurður um hvort að uppgjör
Íslandsbanka veiti vísbendingu um
hvernig afkoma annarra banka
kemur til með að verða á fyrri hluta
ársins segir Jónas að áhrif hækk-
unar vaxtatekna vegna verðbóta
kunni einnig að koma fram í upp-
gjörum annarra banka, svo fremi
sem munurinn á milli verðtryggðra
eigna og skulda sé svipaður og hjá
Íslandsbanka. Almenn viðskipta-
bankastarfsemi ætti alla jafna að
skila góðri afkomu en meiri óvissa
ríkir um aðra þætti í rekstri bank-
anna, að sögn Jónasar Gauta Frið-
þjófssonar, sérfræðings hjá grein-
ingardeild Landsbankans.
Kominn tími til að lækka vexti
Bjarni Ármannsson, bankastjóri
Íslandsbanka, segir aðspurður um
hvort að góð afkoma bankans gefi
tilefni til lækkunar á þjónustugjöld-
um og vaxtamun að bankinn sé í
harðri samkeppni við aðrar banka-
stofnanir í landinu á þessu sviði og
gæti þess þar af leiðandi að verð-
lagning sé samkeppnishæf. Bjarni
segir að bankinn hafi lagt á það ríka
áherslu að gæta aðhalds í kostnaði
þannig að það þurfi ekki að velta
kostnaðarauka út til viðskiptavina.
Bjarni segir að meðalstaða efna-
hagsreiknings bankans frá fyrra ári
hafi vaxið um tæplega 20% sem sé
stærsti einstaki þátturinn sem út-
skýri meiri vaxtatekjur. Bjarni
bendir ennfremur á að aðrar rekstr-
artekjur séu um 23% minni en á
sama tíma í fyrra. Það eigi sér skýr-
ingar í minni gengishagnaði og
minni tekjum af verðbréfaviðskipt-
um og öðrum eignarhlutum bank-
ans. Þrátt fyrir þessa minnkun er
hún vegin upp á öðrum sviðum, að
sögn Bjarna.
Aðspurður um lækkun vaxta seg-
ir Bjarni að grunnvaxtastig sé
ákveðið af Seðlabankanum og Ís-
landsbanki þurfi að keppa við aðra
banka bæði á inn- og útlánahlið.
Bjarni segir að það sé hans skoðun
að mjög margt bendi til þess að
kominn sé sá tími til að lækka vexti
af hálfu Seðlabankans. „Þær að-
stæður hafa skapast í samfélaginu
að dregið hefur verulega úr á eft-
irspurnarhliðinni í hagkerfinu.
Lækki Seðlabankinn vexti mun Ís-
landsbanki að sjálfsögðu fylgja eftir
í lækkun vaxta. Sömuleiðis hefur
verið gætt aðhalds í útlánastarfsem-
inni og engin breyting fyrirhuguð
þar á. Því verður að teljast ólíklegt
að vaxtalækkun Seðlabankans nú
skilaði sér í aukinni neyslu almenn-
ings og auknum lántökum. Hvað
verð á þjónustu bankans að öðru
leyti tel ég að samkeppni við aðra
banka tryggi að við munum fylgjast
vel með hvenær og hvort tímabært
sé að endurskoða gjaldskrá bank-
ans. Slíkt gerum við reglulega,“ seg-
ir Bjarni Ármannsson, forstjóri Ís-
landsbanka.
Áfram gætt aðhalds í
útlánum Íslandsbanka