Morgunblaðið - 04.08.2001, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2001 9
SUMAR veiðisögur eru fremur ótrú-
legar, en veiðimenn telja sig fyrir
löngu hafa sannað að bestu sönnu
sögurnar slá þeim lognu við.
Um síðustu helgi var veiðimaður
að veiða í Veiðivötnum. Notaði sá
beitu og skyndilega kom eitthvað við
agnið. Hann lyfti stönginni og eitt-
hvað þungt lá í línunni. Hann gat þó
dregið línuna til sín og þegar á þurrt
var komið reyndist maðurinn hafa
slætt upp veiðistöng. En ekki er öll
sagan sögð, því um leið og maðurinn
fór að handleika stöngina fann hann
fyrir lífi á línuenda hennar sem lá
langt út í vatn. Tók hann nú til við að
þreyta vænan fisk sem var spólvit-
laus og náðist ekki fyrr en í fulla
hnefana. Reyndist það sjö punda
urriði. Við eftirgrennslan kom í ljós
að viku áður hafði veiðimaður tapað
stönginni sinni þarna.
Ofangreinda veiðisögu sagði okk-
ur Ingólfur Kolbeinsson, verslunar-
maður í Vesturröst, sem var á svæð-
inu. Hann sagði svona uppákomur
ekki með öllu óþekktar, því urriðarn-
ir væru sterkir og veiðimenn stund-
um værukærir með stangir sínar
festar við letingja. „Ég var þarna
einu sinni nokkuð úti í vatni með
flugustöngina mína og sá þá stöng
koma þjótandi fram hjá mér. Mér
tókst að grípa stöngina og veiðimað-
urinn fékk aftur stöngina sína og
urriðann sem hafði tekið. Um
helgina lentum við veiðifélagi minn
einnig í því að gult flotholt var á ferð
og flugi í vatninu, en lengst af utan
kastfæris. Það var greinilega fiskur
á ferðinni. Skyndilega kom flotholtið
í færi og félagi minn náði að festa
flugunni sinni í línuna. Hann náði
flotholtinu og á línuendanum var
þriggja punda urriði.“ sagði Ingólf-
ur.
Mikil brögð hafa verið að því við
Þingvallavatn í sumar, að fólk veiði
annað hvort leyfislaust, eða er með
leyfi upp á vasann, en fer annað en
leyfið hljóðar upp á, að sögn Ómars
Jónssonar, forsvarsmanns Veiði-
félags Þingvallavatns. „Þetta hefur
verið hálfgert ófremdarástand í
sumar, svo mjög að landeigendur
héldu fund nú í vikunni til að leita úr-
bóta. Það hefur verið mikil aðsókn að
vatninu í sumar, það vill verða þegar
veiðin er góð og þessir stóru urriðar
trekkja vissulega að. En eftirlit verð-
ur hert og veiðieftirlitsmaður mun
fylgjast með öllu vatninu,“ sagði Óm-
ar.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Urriðinn
náðist
eftir viku
Morgunblaðið/Arnaldur
Mjög stórar bleikjur hafa veiðst í Soginu í sumar, allt að 8 punda fiskar.
Þessi veiddist nýverið í Bíldsfelli og var 5,5 pund.
SIGURÐUR Jóhannsson, deildar-
stjóri framkvæmda hjá Vegagerð-
inni á Selfossi, segir gagnrýni Sig-
urðar Hjálmarssonar, umferðar-
öryggisfulltrúa Suðurlands ekki
réttmæta.
Í Morgunblaðinu í gær gagnrýndi
Sigurður Hjálmarsson Vegagerðina
á Selfossi fyrir að taka lítið mark á
ábendingum hans, og að fátt eitt af
því sem hann hefði komið með
ábendingar um hefði verið lagfært.
„Hann er mjög duglegur að koma
með ábendingar og við höfum oft
tekið tillit til þeirra þegar hægt er,“
segir Sigurður Jóhannsson.
Hann segir jafnframt að öll gagn-
rýni sé tekin til greina og hann segir
að það sé ekki rétt að þeir taki lítið
mark á ábendingum umferðarörygg-
isfulltrúans. Hver ábending sé metin
og það geti verið að sumir hverjir séu
óánægðir, ef allt það sem þeir gagn-
rýna er ekki tekið til greina.
„Mér finnst hann taka frekar
djúpt í árinni og þetta er frekar hörð
gagnrýni og ekki réttmæt. Þá finnst
mér að hann hefði frekar átt að ræða
við okkur heldur en að hlaupa með
þetta í blöðin. Hann er nú einu sinni
fulltrúi sem á að snúa sér til okkar
frekar en til blaðanna.“
Vegagerðin á Selfossi
um gagnrýni umferðar-
öryggisfulltrúa
Óréttmæt
gagnrýni
Lokað í dag
Eigum öll góða helgi
Kveðja, starfsfólk Rítu
Antik bara batnar,
batnar og batnar
UPPBOÐSHÚS JES ZIMSEN,
Hafnarstræti 21,
sími 511 2227, gsm 897 4589, fax 511 2228.
Húsgögn, listmunir, málverk og skrýtnir og skemmtilegir munir.
Bjóðum upp, seljum, kaupum og skiptum.
Gullsmiðir
Útsalan
Kringlunni
(við hliðina á Nýkaup)
í fullum gangi
SKÓVERSLUN
KÓPAVOGS
HAMRABORG 3 SÍMI 554 1754
Þjónusta í 35 ár
ÚTSALAN
HEFS
T KL.
9.00
Í DA
G
Mæður með börn á brjósti
Medela brjóstadælur,
frystipokar,
hjálparbrjóst,
mexikanahattar,
hlífar fyrir sárar
geirvörtur o.fl.
og apótek um land allt. http://ymus.vefurinn.is
Arnheiður hjúkrunar-
fræðingur og brjósta-
ráðgjafaleiðbeinandi
mælir með medela
brjóstagjafa-
hjálpartækjum
Þumalína
Heimsferðir bjóða nú síðustu sætin í haust í sólina á
hreint frábærum kjörum. Nú getur þú notið besta
veðurs í Evrópu og skotist í sólina í 1, 2 eða 3 vikur
og fengið sumarauka á einstöku verði um leið og þú
nýtur traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða og
getur valið um fjölda spennandi kynnisferða á meðan
á dvölinni stendur.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 39.985
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára,
vikuferð 6. sept, Timor Sol, íbúð
m/1 svefnherbergi.
Verð kr. 49.990
M.v. 2 í stúdíó, vikuferð 6. sept.,
Timor Sol.
Haustævintýri
Heimsferða til
Costa del Sol
og Benidorm
frá kr. 39.985
Benidorm
24. ágúst 15 sæti
31. ágúst 21 sæti
7. sept. 18 sæti
14. sept. 11 sæti
21. sept. 28 sæti
28. sept. 31 sæti
Costa del Sol
23. ágúst 11 sæti
30. ágúst uppselt
6. sept. 28 sæti
13. sept. 18 sæti
20. sept. 31 sæti
27. sept. 36 sæti
Laust í haust
Costa del Sol
Verð kr. 39.985
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára,
vikuferð 7. sept, El Faro, íbúð
m/1 svefnherbergi.
Verð kr. 52.990
M.v. 2 í íbúð, vikuferð 7. sept.,
El Faro.
Benidorm