Morgunblaðið - 04.08.2001, Side 6

Morgunblaðið - 04.08.2001, Side 6
FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ ALMENNAN mótbyr gegn virkjun- aráformum við Villinganes í Skaga- firði mátti greina á fundi sem hags- munaaðilar í ferðaþjónustunni boðuðu til sl. fimmtudag. Finnst þeim almennt verið að fórna meiri hagsmunum fyrir minni nái virkjun- aráformin fram að ganga. Forsvarsmenn Ævintýraferða boðuðu til fundarins til að koma að sjónarmiðum sínum um áhrif hugs- anlegrar virkjunar á ferðaþjón- ustuna og starfsemi fljótasiglinga í Jökulsánum. Samkvæmt mats- skýrslu framkvæmdaaðila er fyrir- hugað að virkja rennsli Vestari- og Austari-Jökulsár í Skagafirði skammt neðan ármóta þeirra. Mark- mið virkjunaraðila, Héraðsvatna ehf., er að auka eigin raforkufram- leiðslu og bæta við núverandi raf- orkukerfi til þess að geta annað al- mennum markaði og minni iðjuverum með stuttum fyrirvara. Einnig er stefnt að því að stuðla að meiri dreifingu á orkuvinnslu á land- inu auk þess sem virkjunin myndi nýtast til að framleiða varaafl fyrir svæðið ef bilanir verða í raforkukerf- inu. Um er að ræða 33MW virkjun og 132 kw háspennulínu frá virkjun- inni fjögurra km leið að byggðalínu í Norðurárdal. Fyrir 8. ágúst eiga athugasemdir við virkjunaráformin að hafa borist Skipulagsstofnun, en að mati Magn- úsar Sigmundssonar, forstjóra Æv- intýraferða, mun virkjun við Vill- inganes hafa ófyrirsjáanleg áhrif á ferðaþjónustu í Skagafirði. „Á síðustu árum hefur komið í ljós að fljótasiglingar á Austari- og Vest- ari-Jökulsá eru fyllilega samkeppn- ishæfar við það sem boðið er upp á annars staðar í heiminum. Jökuls- árnar hafa skapað Skagfirðingum dýrmæta náttúrufarslega sérstöðu í ferðaþjónustu þar sem þessar ár uppfylla öll grundvallarskilyrði til fljótasiglinga, þægilegt aðgengi, stöðugt vatnsmagn, hæfilega langar ferðir og stórbrotna náttúrufegurð,“ segir Magnús og bætir við að fljóta- siglingar komi til með að leggjast af í Vestari-Jökulsá komi til virkjunar og aðeins verði hægt að stunda þær í hluta af Austari-Jökulsánni. „Það vantar stefnumörkun í ferðaþjónust- unni. Við upplifum það svo oft að það er eyðilagt sem búið er að byggja upp.“ Annar kosturinn útilokar hinn Í erindi sem Þorleifur Þór Jóns- son, hagfræðingur Samtaka ferða- þjónustunnar, flutti á fundinum og fjallaði um efnahagsleg áhrif fljóta- siglinga kom fram að engum dylst að hér er verið að takast á um mismun- andi nýtingu á sömu auðlindinni og í reynd útilokar annar kosturinn hinn. Ferðaþjónustu eru gerð fremur lítil skil í skýrslu um mat á umhverfis- áhrifum og þörf er á að gera betur grein fyrir stöðunni með sérstöku til- liti til fljótasiglinga. „Fljótasiglingar hafa notið vax- andi vinsælda og það er mjög al- mennur vöxtur í þeirri tegund ferða- mennsku sem byggist á virkri þátttöku ferðamanna,“ segir Þorleif- ur Þór og bendir á að farþegum í fljótasiglingum hafi fjölgað úr 200 árið 1994 í 4.500 árið 2000. Hann seg- ir enn fremur að gera megi ráð fyrir 5.500 farþegum í ár. Aðeins í einni annarri grein ferðaþjónustunnar hafi orðið vart svipaðrar aukningar frá ári til árs og það sé í hvalaskoðun. Í máli Þorleifs kom fram að meg- instarfstími fljótasiglinga væri frá maí til spetember og á þeim tíma störfuðu um 25 manns hjá fyrirtækj- unum tveimur sem byðu slíka vöru. Það samsvaraði um 0,48% af vinnu- afli á Norðurlandi vestra eða 430 störfum á höfuðborgarsvæðinu. Bein velta við fljótasiglingar hefði sl. sum- ar numið um 25 milljónum og ætti þá eftir að taka tillit til margfeldisá- hrifa, sem ekki mætti vanmeta. „Falli siglingarnar út má búast við a.m.k. 50 milljón króna samdrætti af 250 milljóna króna árlegri veltu. Ég leyfi mér að velta því upp að ef sigl- ingarnar fá að þróast áfram sé hægt að gera ráð fyrir að vöxtur verði álíka og hann hefur verið undanfarin ár eða um 8%. Falli siglingarnar út sé líklegt að almennur vöxtur í ferða- þjónustu á svæðinu verði ekki nema 6%. Miðað við 8% árlegan vöxt á 250 milljóna veltu yrði umfang ferða- þjónustu í Skagafirði rúmlega 1,7 milljarðar árið 2025. Verði vöxturinn aftur á móti ekki nema 6% og fljóta- siglingar falli niður árið 2004 yrði umfangið einungis 974 milljónir. Þar munar rúmlega 738 milljónum árið 2025 eða 6,3 milljörðum samanlagt,“ segir Þorleifur Þór. Skólabókardæmi um nýsköpun Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, deildarstjóri ferðamálabrautar við Hólaskóla, sagði að án afþreyingar hefði ferðaþjónusta ekki möguleika á því að styrkja byggð að neinu marki. „Hérna í Skagafirði höfum við skóla- bókardæmi um þetta þar sem ný- sköpun á tveimur ólíkum sviðum af- þreyingar hefur orðið til þess að draga þúsundir ferðamanna á staði sem fáir komu á áður. Hér á ég ann- ars vegar við Vesturfarasetrið á Hofsósi og hins vegar fljótasiglingar á jökulsánum. Þróunin hefur verið bæði mikil og hröð hvað varðar af- þreyingu fyrir ferðamenn en hana ber alla að sama brunni. Gerðar eru meiri og ákveðnari kröfur til ferða- þjónustuaðila og það þarf sífellt að krydda þá rétti sem fyrir eru.“ Með aukinni tækni og framförum í búnaði er nú hægt að bjóða almenn- ingi ferðir, sem áður voru aðeins á sviði einstakra ævintýramanna og flestum þeim, sem fylgjast með straumum og stefnum í ferða- mennsku, ber saman um að dreifbýl- ið sé í tísku meðal efnaðs fólks, sem er kröfuharður neytendahópur, að sögn Guðrúnar Þóru. „Vatn hefur gríðarlegt aðdrátt- arafl í ferðaþjónustu sem m.a. hefur kristallast í ævintýralegum vexti ferðamanna í fljótasiglingum á jökul- ánum tveimur á síðustu árum. Mis- munandi erfiðleikastig ánna hefur mikið að segja í þessu sambandi en sérstaðan er þó einkum fólgin í gljúfrunum sjálfum. Hrikalegar náttúrumyndanir þeirra gefa upplif- uninni í fljótasiglingunum ómetan- legt gildi,“ segir Guðrún Þóra og bætir við að það sé nokkuð ljóst að komi til virkjunarframkvæmda við Villinganes séu forsendur fljótasigl- inganna brostnar. „Þrátt fyrir að stórfelldar breyt- ingar hafi orðið til hins betra á stór- umhverfi ferðaþjónustunnar síðustu fimm árin er enn ríkjandi ákveðin ringulreið. Það er eins og við hikum við að gera það upp við okkur hvert skuli stefna. Við reynum dálítið mik- ið að halda öllum möguleikum opn- um, en ef ferðaþjónustan á að vera tæki til að snúa byggðaröskun við, þá verða stjórnvöld að gera upp við sig hvaða stefnu beri að taka og vinna samkvæmt því. Það er ekki hægt að ætlast til þess að ferðaþjónustuað- ilar leggi fjármagn og orku í þróun og uppbyggingu nýrra tækifæra ef forsendu þeirrar vinnu er síðan kippt í burtu í einu vetfangi.“ Í stefnumörkun samgönguráðu- neytisins í ferðamálum segir: „Tryggt verði að skipulag í byggð og á óbyggðum svæðum taki mið af þörfum ferðaþjónustunnar og að við skipulagningu sé tekið mið af hags- munum ólíkra tegunda afþreyingar.“ Guðrún Þóra segist ekki geta séð að þessi markmið hafi verið ofarlega á blaði í skýrslu um mat á umhverfis- áhrifum Villinganesvirkjunar. Ásta Þorsteinsdóttir jarðfræðing- ur flutti hugvekju um samspil nátt- úru og ferðaþjónustu og sagði að jök- ulárnar hefðu sérstöðu sem ekki mætti hrófla við. Virkjunarfram- kvæmdir við Villinganes væru óaft- urkræfar. „Við þurfum að hugsa um framtíð barnanna okkar og upp á síð- kastið hefur töluvert verið uppi á teningnum að nota fortíðarhyggju, sem í mínum huga eru stóriðju- draumar einstaklinga í valdastöðum en fortíðarhyggjan skapar framtíð- arvanda. Að sjálfsögðu þarf að virkja og byggja upp iðnað en það þarf að vega og meta hagsmunina á hverjum tíma og velta upp nýjum möguleik- um.“ Óbreytt afstaða uppi „Það verður ekki bæði sleppt og haldið,“ sagði Páll Pétursson félags- málaráðherra í samtali við Morgun- blaðið að afloknum fundi. „Ég er að hlusta á málflutning þeirra sem standa að fljótasiglingunum, sem segja má að sé ný atvinnugrein. Í henni virðist vera verulegur vaxtar- broddur og þeir, sem hafa verið brautryðjendur á því sviði, eiga allt gott skilið. Varðandi hitt, þá held ég að það sé of djúpt í árinni tekið að fljótasiglingar leggist af við hugsan- lega virkjun þótt vafalaust bíði þessi nýja atvinnugrein hnekki. Eins ligg- ur fyrir að um veiði á sjógengnum fiski verður ekki að ræða ofan virkj- unar en gera má ráð fyrir að Hofsá eyðileggist við þessi áform. Ég flutti sjálfur tillögu fyrir rúmum 20 árum um það að virkja við Villinganes og sú afstaða mín hefur ekkert breyst. Ég tel að það væri mjög mikilvægt fyrir Skagafjörð að þar risi virkjun. Ég viðurkenni að það eru nokkrir annmarkar á því en ég tel að það hefði átt að fara í Villinganesvirkjun á undan Blönduvirkjun enda yrðu umhverfisáhrif hennar sáralítil mið- að við aðra staði þar sem við höfum verið að virkja,“ segir Páll. Sérstaðan kortlögð Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra sagði að mörg sjónarmið væru uppi þegar lögð væru á ráðin um að nýta vatnsaflið annars vegar og styrkja ferðaþjónustuna hins vegar. „Ég held að það fari ekkert á milli mála að við þurfum að stíga afskap- lega varlega til jarðar þegar við velj- um virkjun vatnsfallanna en sem betur fer eigum við orðið mikið af góðum sérfræðingum til að fara ofan í saumana á þessu fyrir okkur án þess að láta tilfinningarnar flækjast of mikið fyrir,“ sagði samgönguráð- herra. Forsendur fljótasiglinga brostnar verði virkjað við Villinganes, að mati ferðaþjónustuaðila „Meiri hags- munum fórnað fyrir minni“ Fljótasiglingar á jökulánum í Skagafirði verða svipur hjá sjón komi virkjunaráform við Vill- inganes til framkvæmda, að mati hagsmunaaðila í ferðaþjónustu. Jóhanna Ingvarsdóttir kynnti sér málið og fór í fljótasiglingu á Austari-Jökulsá. Morgunblaðið/Jóhanna Mikill og ör vöxtur hefur verið í fljótasiglingum á undanförnum árum. join@mbl.is RÚNASTEINN sem stendur yfir leiði Sigurðar Vigfússonar forn- fræðings í gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu hefur nú verið hreinsaður upp og málaður en það eru rúnafræðingurinn Þórgunnur Snædal og sagnfræðingurinn Gunn- ar Bollason sem eiga veg og vanda af verkinu. Sigurður Vigfússon var for- stöðumaður Forngripasafnsins en hann lést árið 1892 og er grafinn í kirkjugarðinum við Suðurgötu ásamt konu sinni. Gunnar segir að Matthías Þórðarson þjóðminjavörð- ur hafi ákveðið að láta reisa Sigurði varanlegt minnismerki en 1917 var safnað fé til þessa. Voldugur bauta- steinn var svo fluttur úr Öskjuhlíð í kirkjugarðinn og Matthías Geir Guðnason steinsmiður meitlaði rún- ir í steininn. „Handverkið er allt mjög haganlega unnið og fínt,“ seg- ir Gunnar. Á steininum stendur á rúnaletri: „Reykvíkingar reistu stein þennan yfir Sigurð son Vig- fúsar, forstöðumann Forn- gripasafnsins, og Ólínu eiginkonu konu hans.“ Kirkjugarðurinn við Suðurgötu Gamall rúnasteinn hreinsaður Morgunblaðið/Þorkell Þórgunnur Snædal rúnafræð- ingur vinnur að því að hreinsa upp rúnasteininn yfir leiði Sig- urðar Vigfússonar í gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu. PÉTUR Rafnsson, formaður Ferða- málasamtaka Íslands og nefndar um reglur vegna rekstrarleyfa og ör- yggis fyrirtækja í afþreyingarþjón- ustu, segir að ekki sé rétt að engar sérstakar reglur séu til um afþrey- ingarferðir eins og Erna Hauksdótt- ir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, sagði í Morgun- blaðinu í gær. Sagði Erna að engar sérstakar reglur væru til um fyrirtæki sem selja afþreyingarferðir, sbr. flúða- siglingar, hestaferðir, jöklaferðir o.fl, og reglubundið eftirlit með þeim væri ekki fyrir hendi. „Þetta er alls ekki rétt þar sem það eru til alls konar reglur um af- þreyingarferðir og þá er eftirlit með þeim.“ Í blaðinu í gær kom auk þess fram að flúðasiglingar eru háðar leyfum Siglingamálastofnunar. Gilda þar reglur um báta sem eru styttri en sex metrar að lengd þegar þeir eru notaðir í atvinnuskyni. Þá veitir Siglingamálastofnun siglingaklúbb- um og bátaleigum sem stunda far- þegaflutninga starfsleyfi. „Menn hafa verið mjög óánægðir með þessa yfirlýsingu um að engar reglur séu til um afþreyingarferðir þar sem þeir líta svo á að þetta hræði fólk frá að eiga viðskipti við þessi fyrirtæki. Ég hef líka á tilfinning- unni að það hafi verið fljótfærni eða ókunnugleiki hjá Ernu sem veldur þessu.“ Pétur segir að nefndin sem Erna minnist einnig á og hann er formað- ur í hafi verið skipuð af samgöngu- ráðherra í fyrrahaust og heyri ein- göngu undir ráðuneytið en ekki undir Samtök ferðaþjónustunnar. „Nefndin var skipuð til þess að koma með drög að reglugerð um rekstrarleyfi og öryggisreglur til handa fyrirtækjum í afþreyingar- þjónustu. Nefndin hefur starfað í vetur og hefur ekki enn lokið störf- um þar sem vinnan var flóknari en menn gerðu sér grein fyrir.“ Eru þá til sérstakar reglur um fyr- irtæki í afþreyingarþjónustu? „Við erum að gera reglurnar full- komnari. Í lögum um skipulag ferða- mála frá 1994 segir m.a. í 10. grein að ferðaskipuleggjandi þurfi að hafa rekstrarleyfi en það vantar mikið upp á að allir séu komnir með þessi leyfi. Meðal annars þess vegna og ör- yggisins var þessi nefnd skipuð.“ Pétur segir að reglunum muni fjölga, þær munu verða strangari og að reiknað sé með að skila endanleg- um niðurstöðum til ráðherra í októ- ber nk. Formaður Ferðamálasamtaka Íslands Reglur um afþreying- ariðnaðinn eru til

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.