Morgunblaðið - 04.08.2001, Side 14

Morgunblaðið - 04.08.2001, Side 14
AKUREYRI 14 LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ BÆJARRÁÐ Kópavogs hefur sam- þykkt að fram fari endurnýjun á Digranesheiði milli Digranesvegar og Skálaheiði og verða tilboð í verkið opnuð um miðjan ágúst. Samkvæmt upplýsingum frá Þór- arni Hjaltasyni, bæjarverkfræðingi Kópavogs, er fjárveiting til verksins 30 mkr. á árinu og munu framkvæmd- ir væntanlega hefjast í september- byrjun. Verkið er liður í endurnýjun á gömlum götum í bænum sem hefur- staðið yfir undanfarinn áratug og sér nú brátt fyrir endann á henni. Endurnýjun á Digranesheiði Kópavogur VINNA við gerð bílastæða við Sala- skóla og leikskóla við Rjúpnasali mun hefjast á næstunni og er stefnt að því að henni verði lokið áður en skólastarf hefst í Salaskóla í haust, að sögn Þórarins Hjaltasonar, bæj- arverkfræðings Kópavogs. Tilboð í verkið hafa verið opnuð og átti JVJ hf. lægsta tilboðið en það hljóðaði upp á rúmar níu milljónir króna. Kostnaðaráætlun Kópavogsbæjar vegna verksins er 12,3 milljónir króna og hefur bæjarráð samþykkt að leitað verði samninga við lægst- bjóðanda, JVJ hf., um framkvæmd verksins. Jarðvinna við bíla- stæði Salaskóla Kópavogur HRANNAR B. Arnarsson, formað- ur umhverfis- og heilbrigðisnefndar Reykjavíkurborgar, efast stórlega um að rétt sé að stefna á að fjölga dísilbílum í umferð þrátt fyrir að slík fjölgun yrði til þess að draga úr los- un gróðurhúsalofttegunda. Í frétt Morgunblaðsins kom nýlega fram aðmeðal tillagna, sem starfshópur á vegum samgönguráðuneytisins og Vegagerðarinnar hefur sett fram til að draga úr losun gróðurhúsaloftteg- unda frá samgöngum, er að auka á næstu árum hlut dísilfólksbíla í um- ferðinni og jafna skatthlutfall milli slíkra bíla og bensínbíla. Fram kem- ur að losun gróðurhúsalofttegunda frá dísilvélum sé talin 25–30% minni en frá bensínbílum miðað við jafn- þunga bíla. Hrannar telur að þó að hugmyndin sé vel til þess fallin að draga úr losun gróðurhúsaloftteg- unda og fullgild sem slík, gangi hún þvert á helsta loftmengunarvanda- mál höfuðborgarsvæðisins og eitt al- varlegasta heilsufarsvandamálið tengt loftmengun sem sé aukning svifryks. Dísilbílar valdi talsvert meira svifryki heldur en bensínbílar og ef stórauka eigi hlut þeirra í um- ferðinni þýði það meira magn svif- ryks og aukið heilsufarstjón og skaða af völdum þess. „Þetta gengur þvert á helstu verkefni í loftgæða- málum á höfuðborgarsvæðinu, sem hafa verið að minnka svifryk í um- ferðinni, en nái þessar tillögur fram að ganga mun svifryksvandinn á höf- uðborgarsvæðinu klárlega aukast. Mér finnst nauðsynlegt að sam- gönguráðuneytið gefi upp hvaða leið- ir það hefur til að bregðast við þeim vanda, sérstaklega þegar fram koma tillögur sem ganga út á að auka hann,“ segir Hrannar. Hrannar bendir á að Reykjavík- urborg hafi lagt fram ítarlegar til- lögur um hvernig mögulegt sé að draga úr svifryksvandanum. Sú til- laga sem Reykjavíkurlistanum finnst helst að komi til greina er að setja gjald á nagladekk en sjálfstæð- ismenn í borgarstjórn hafa haft efa- semdir um hana. „Á síðasta borgar- ráðsfundi var málið sett í þann farveg að kallað verður eftir afstöðu ríkisvaldsins og í ljósi þessara til- lagna finnst mér fróðlegt að sjá hvaða leiðir ríkið hefur til að draga úr svifryksmengun. Ég vara stór- lega við því að menn líti á dísilbíla sem töfralausn.“ Fjölgunin eykur á svifryksvandann Reykjavíkurlistinn um tillögur um fjölgun dísilbíla SKÁKKLÚBBUR fatlaðra, Brögð í tafli, sem starfræktur er í Hinu hús- inu stendur fyrir skákeinvígi þriðju- daginn 7. ágúst, en þar munu etja kappi þeir Björgvin Kristbergsson og Pétur Jóhannesson, sem hlutu flesta vinninga á móti sem klúbburinn hélt nýlega. Að sögn Einars Jóns Erlings- sonar, umsjónarmanns klúbbsins, er hann ætlaður fötluðu fólki og eru meðlimir hans þroskaheft fólk sem hittist á þriðjudagskvöldum í Hinu húsinu. „Við hittumst þar og förum svo í heimsóknir til einhvers meðlima klúbbsins. Við reynum svo að æfa upp skákina með því að tefla en einnig æf- ast meðlimirnir í því að taka á móti gestum. Við höfum fengið Helga Ólafsson og Guðfríði Lilju Grétars- dóttur til að kenna klúbbmeðlimum að tefla,“ segir Einar Jón. Félagar í Brögð í tafli eru níu tals- ins, ein kona og átta karlar, en klúbb- urinn hefur nú starfað í rúm tvö ár. Einar Jón segir að frumkvæðið að stofnun klúbbsins hafi komið frá fólk- inu sjálfu. „Kunnátta meðlima í tafl- mennsku var misjöfn í upphafi, sumir kunnu að tefla en aðrir ekki, en fram- farir hjá hópnum hafa verið nokkrar,“ segir hann. Brögð í tafli er starfræktur á veg- um Félagsmiðstöðvar fatlaðra, Tipp- topp í Hinu húsinu en Félagsþjónust- an í Reykjavík styrkir einnig starf- semina með því að greiða laun umsjónarmanns klúbbsins. Á vegum Félagsmiðstöðvarinnar eru svo starf- ræktir ýmsir aðrir klúbbar, meðal annars söng- og leikhópur. Brögð í tafli í Hinu húsinu Reykjavík GALLERÍ Sól heitir handverks- húsið í Grímsey. Þar hefur verið mikið líf og mikil starfsgleði í sum- ar. Tólf konur opnuðu Gallerí Sól 5. júlí 1998 með handverki sínu og að auki lítilli kaffistofu í Sólbergi, einu elsta húsinu í Grímsey sem stendur á stórfallegum stað beint upp af höfninni. Strax árið eftir færði handverkshópurinn út kví- arnar og opnaði lykilgistiheimili á tveimur efri hæðum Sólbergs og er það opið allan ársins hring. Þessa dagana er langþráður draumur að rætast því Sólberg, þetta gamla hús, er að færast í nýjan og glæsi- legan búning með klæðningu að ut- an, endurnýjuðu þaki og gluggum. Handverkshópurinn hóf und- irbúning að framkvæmdunum í vetur og með dyggum stuðningi Vinnumálastofnunar, Smáverk- efnasjóðs bænda og fleiri aðila er þetta að takast. Handverkskon- urnar horfa því björtum augum til framtíðar með ferðamennsku hér í jaðarbyggð norðursins á heim- skautsbaug. Morgunblaðið/Helga Mattína Miklar framkvæmdir standa yfir á handverkshúsi Gallerís Sólar. Ketill, Guðjón og Stefán glaðbeittir á þaki hússins. Stórframkvæmdir handverkskvenna Grímsey KRISTJÁN Þór Júlíusson, bæjar- stjóri á Akureyri, sagði að þær töl- ur sem verktakar buðu í byggingu fjölnota íþróttahúss á félagssvæði Þórs við Hamar væru mun hærri en menn hefðu vonast eftir að fá. „Það virðist sem væntingar manna með verð í þessa framkvæmd gangi ekki eftir. Við verðum því að fara yfir málið að nýju og þegar við höfum ekki fjármagn til að tryggja framkvæmdina verðum við að vega og meta það yfirvegað og kalt hvort ráðast eigi í þetta verk.“ Kristján Þór sagði stefnt að því að ljúka yfirferð og samanburði til- boðanna í lok næstu viku og að ákvörðun um framhaldið yrði von- andi tekin í kringum miðjan þenn- an mánuð. Eins og komið hefur fram var lægsta tilboð í alútboði í byggingu fjölnotahússins um 70 milljónum króna hærra en bæj- arstjórn hafði samþykkt að leggja í fyrirhugaða framkvæmd á þessu og næstu tveimur árum. Tréverk ehf. átti lægsta tilboðið en það hljóðaði upp á 447,5 milljónir króna. Fjögur fyrirtæki sendu inn samtals 8 tilboð en þar af sendu Katla hf. og Tréverk í Dalvíkur- byggð þrjú tilboð hvort fyrirtæki. Hin tilboðin komu frá Íslenskum aðalverktökum hf., upp á 449 millj- ónir króna og Ístaki hf. upp á rúma 531 milljón króna. Lægsta tilboð Kötlu hljóðaði upp á um 486 milljónir króna, það næsta upp á um 490 milljónir króna og það hæsta upp á um 547 milljónir króna. Hin tvö tilboð Tréverks hljóðuðu upp á um 490 og 518 milljónir króna. Ekki er hægt að horfa eingöngu á tilboðsfjárhæðirnar, þar sem þær gilda aðeins 45% af heildareinkunn tilboðanna. Tilboðin eru mjög mis- munandi enda eru verktakarnir að bjóða mismunandi gerðir húsa. Áð- ur en verðtilboðin voru opnuð hafði sérstök matsnefnd gert mat á teikningum og greinargerðum með innsendum tilboðum og gefið þeim einkunn með bókstöfum. Við yf- irferð tilboðanna verða þessir bók- stafir svo umreiknaðir í tölur. Tilboð í fjölnota húsið mun hærri en áætlað var Óvissa um framhaldið AKUREYRARKIRKJA: Helgistund kl. 11:00 sunnudaginn 5. ágúst, sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Manuela Wiesler leikur á flautu. Forsöngvari Sigrún Arna Arngrímsdóttir, organ- isti Eyþór Jónsson. Sumartónleikar kl. 17:00. Manuela Wiesler, flauta, að- gangur er ókeypis og allir velkomnir. Þriðjudagur 7. ágúst, morgunsöngur kl. 9. Fimmtudagur 9. ágúst, kyrrð- ar- og fyrirbænastund kl. 12. Bæna- efnum má koma til prestanna. Eftir stundina er unnt að kaupa léttan há- degisverð í safnaðarheimili. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Sunnu- daginn 5. ágúst kl. 20:00 verður vitn- isburðarsamkoma í umsjón Önnu og Bjarna. Fjölbreytt lofgjörðartónlist og fyrirbænaþjónusta. Allir hjartan- lega velkomnir. PÉTURSKIRKJA, Hrafnagilsstræti 2. Messa laugardag kl. 18 og sunnu- dag kl. 11. Kirkjustarf AÐSÓKNARMET var sett í Sund- laug Akureyrar í júlímánuði sl. en þá komu um 32 þúsund gestir í laugina, sem er 12% aukning frá sama mán- uði í fyrra. Fyrstu sjö mánuði ársins hafa 232 þúsund gestir sótt laugina, sem er tæplega 14% aukning frá sama tíma- bili í fyrra. Árið 1996 voru sundlaug- argestir 148 þúsund fyrstu sjö mán- uði ársins og hefur þeim því fjölgað um 57%. Frá þeim tíma hafa verið gerðar miklar endurbætur á Sundlaug Ak- ureyrar og sagði Gísli Kristinn Lór- enzson forstöðumaður að þær fram- kvæmdir skiluðu sér nú með aukinni aðsókn. Aðsóknarmet í Sundlaug Akureyrar Í FYRRASUMAR gerðu bændur á Grænavatni samning við Þjóðminja- safn Íslands um varðveislu fram- húss þess sem byggt var úr timbri 1913 við eldri torfbæ; í þessum hús- um var búið fram undir 1970. Torf- bærinn er nú allur fallinn fyrir all- mörgum árum en tóttir hans tengjast timburhúsinu bakatil. Í framhaldi af fyrrnefndum samningi var hafin viðgerð og end- urnýjun á þaki hússins á síðastliðnu hausti. Í sumar hefur áfram verið unnið nokkuð að lagfæringum á þakinu og nú þessa dagana er ein- mitt verið að tyrfa það með nýristu torfi. Þórhallur Hólmgeirsson ann- ast þessar viðgerðir. Á næsta sumri verða vonandi bæjarþilin hvítmáluð og verður þá staðarlegt heim að líta að þessum virðulega gamla bæ sem á það skilið að honum sé sómi sýnd- ur. Fleiri byggingar í Mývatnssveit eru það merkilegar að ástæða væri til að halda þeim við. Má nefna Kálfastrandarbæ og Syðri Neslönd í því samhengi en á báðum þeim jörðum eru að grotna niður ein- stakar samstæður bæjarhúsa þar sem saman fer torfbær frá 19. öld og timburhús frá því um 1915. Bæði mun þó skorta áhuga og fé til að eitthvað verði gert þeim til bjargar. Hlúð að Græna- vatnsbænum Mývatnssveit UMHVERFISRÁÐ Akureyrar frestaði því á fundi sínum nýlega að taka afstöðu til staðsetningar nýs leikskóla í bænum. Áður hafi stjórn Fasteigna Akur- eyrarbæjar tekið undir tillögu verk- efnisliðs um staðsetningu nýs leik- skóla og vísað henni til umfjöllunar í umhverfisráði og skólanefnd. Tillaga verkefnisliðsins er sú að næsti leik- skóli verði byggður á horninu norðan Hrafnagilsstrætis og vestan Þórunn- arstrætis og hafði bókun meirahluta stjórnarinnar verið samþykkt í bæj- arráði. Umhverfisráð frestaði því að taka afstöðu til erindisins en fól umhverf- isdeild að athuga möguleika til bygg- ingar leikskóla í norðausturhorni Hamarkotstúns eða á lóð FSA. Staðsetning nýs leik- skóla á Akureyri Umhverfisráð frestar afgreiðslu ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.