Morgunblaðið - 04.08.2001, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 04.08.2001, Qupperneq 16
SUÐURNES 16 LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ MINJASAFN Slysavarnafélagsins Landsbjargar er í Þorsteinsbúð í Garði. Safnið er það eina sinnar tegundar á landinu en ekki koma margir gestir þangað, að sögn umsjónarmanns þess, enda er það ekki mikið kynnt. Minjasafn Slysavarnafélags Ís- lands var opnað á ársþingi félagsins 29. maí 1998, en það var haldið í Sandgerði í tilefni af 70 ára afmæli þess. Unnar Guð- mundsson, umsjónarmaður safns- ins, segir að það hafi verið draumur forráðamanna Slysa- varnafélagsins að koma upp safni til að varðveita og sýna muni úr eigu þess. Björgunarsveitin Ægir í Garði hafði þá eignast mikil mannvirki, Þorsteinsbúð, sem sveitin hafði ekki þörf fyrir til eigin starfsemi og ákvað stjórn Slysavarnafélags- ins að leigja hluta þess fyrir safn og geymslur. Ýmsir merkir munir Sett var upp fjölbreytt sýning þar sem saga og starfsemi Slysa- varnafélags Íslands er rakin með munum, myndum og sviðsetn- ingum og ýmsir merkir gripir hafðir til skoðunar. Utan við safnhúsið er björg- unarbáturinn Gísli J. Johnsen sem þjónaði félaginu frá árinu 1956, lengst af í Reykjavík, en síðar einnig um tíma í Hafn- arfirði og á Rifi, þangað til hann hafði lokið hlutverki sínu og var komið fyrir við safnið haustið 1999. Meðal annarra muna í safn- inu má nefna nokkrar gerðir af gömlum og nýjum fluglínutækj- um, stækkaða mynd úr kvikmynd Óskars Gíslasonar af björguninni við Látrabjarg, ýmis björg- unartæki, björgunarbáta og loft- skeytaklefa af togaranum Geir. Dregur úr aðsókn Safnið er opið alla daga vik- unnar á sumrin, frá klukkan 13 til 17, og yfir vetrarmánuðina er það aðeins opið um helgar. Að sögn Unnars er safnið allt of lítið sótt. Hann segir að það hafi ekki komist inn í áætlanir ferðaskrif- stofanna. Aðsókn var nokkur fyrst eftir að safnið var opnað. Fyrsta árið komu um eitt þúsund gestir en síðan hefur smám saman dregið úr aðsókninni. Á síðasta ári komu aðeins um 500 gestir í safnið. Unnar segir að mest sé um að slysavarnafólk komi þar við, ekki síst eldra fólk. Þá hafi stundum komið starfsmannahópar og skólabörn fyrstu árin. Almennir ferðamenn komi lítið og fáir út- lendingar. „Við erum ekki nógu duglegir að kynna safnið. Það virðist vera að þjóðfélagið bygg- ist á því,“ segir umsjónarmað- urinn. Vantar að gera Landsbjörgu skil Sýningin hefur að mestu verið óbreytt frá opnun safnsins. Unnar segir að farið sé að huga að breytingum. Nefnir hann sem dæmi að miklar breytingar hafi orðið með sameiningu björg- unarsamtakanna í Slysavarna- félagið Landsbjörgu en engir munir séu frá Landsbjörgu á sýn- ingunni. Brýnt sé að gera þeirri sögu betri skil. Safn um sögu Slysavarnafélags Íslands – eina sinnar tegundar á landinu Þurfum að kynna safnið betur Morgunblaðið/Helgi BjarnasonUnnar Guðmundsson, umsjónarmaður Slysavarnafélagssafnsins, við bás sem komið hefur verið fyrir um björgunina við Látrabjarg. Gamli björgunarbáturinn Gísli J. Johnsen er til sýnis fyrir utan safnið. Garður ÍBÚAR við Suðurgarð hafa óskað eftir heimild bæjaryfirvalda til að setja upp hraðahindrun í götunni. Kostnaður við framkvæmd verksins yrði greiddur af íbúum götunnar úr svokölluðum götusjóði sem íbúarnir greiða árlega í. Málið var tekið fyrir á fundi bæj- arráðs sl. fimmtudag og óskaði ráðið eftir umsögn skipulags- og bygging- arnefndar bæjarins. Gatan er vistgata og var á sínum tíma kostuð af íbúunum sjálfum en hámarkshraði þar er 15 kílómetrar á klukkustund. Hugmynd íbúanna er að setja upp hraðahindrun í miðja götuna þar sem mikið er um ung börn við leik í götunni. Að sögn eins íbúa við Suðurgarð hafa íbúarnir orðið varir við að ungir ökumenn komi inn götuna á miklum hraða og af því stafi oft á tíðum hætta. Óskað eftir hraðahindrun Reykjanesbær HUGSANLEGT er að í heildina verði 15–20 starfsmönnum sagt upp störfum í Myllubakkaskóla og Njarðvíkurskóla. Um er að ræða starfsfólk, fyrst og fremst konur í 50–80% vinnu, sem sinnir ræstingum og gangavörslu í skólunum tveimur. Reykjanesbær bauð út ræstingu í skólunum tveimur fyrir um hálfum mánuði og bárust þrjú tilboð. Hins vegar var ákveðið að fresta málinu á fundi bæjarráðs á fimmtudag um viku þar sem óskað var eftir því að fjármálastjóri bæjarins aflaði nánari upplýsinga. Hjörtur Zakaríasson, bæjarritari og staðgengill bæjarstjóra, segir að ekki sé búið að tilkynna neinar upp- sagnir og ekki sé víst að til þess komi. „Menn voru aðeins of fljótir á sér og fóru í útboð en það er almenn kurteisi að vera ekki að gera þessa hluti nema búið sé að ræða við starfsfólkið áður.“ Segir hann enn fremur að það eigi eftir að bera saman tilboðin þrjú við þann kostnað sem farið hefur í ræst- ingar í skólunum. Því sé alls ekki bú- ið að afgreiða málið og ekki sé víst að lægsta tilboðið verði tekið. „Við vorum á sínum tíma með út- boð vegna ræstinga í Heiðaskóla og Holtaskóla og það verður óbreytt að því frátöldu að um nýtt útboð verður að ræða.“ Hugsanleg- ar uppsagnir Reykjanesbær Myllubakkaskóli og Njarðvíkurskóli ♦ ♦ ♦ Mörkinni 3, sími 588 0640 G læ si le g hú sg ög n Sérpantanir Opið virka daga frá kl. 12-18. mbl.is VIÐSKIPTI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.