Morgunblaðið - 04.08.2001, Síða 23

Morgunblaðið - 04.08.2001, Síða 23
NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2001 23 ALGENGT er að hjálmar úr þunnu plasti, svokallaðar skeljar, séu not- aðir sem reiðhjálmar, en þeir veita falska öryggiskennd, þar sem höfuð- ið er ekki varið nægilega, t.d.ef dott- ið er af hestbaki, að sögn Birnu Hreiðarsdóttur deildarstjóra mark- aðsgæsludeildar Löggildingarstofu. „Við könnun Löggildingarstofu á reiðhjálmum kom í ljós að í versl- unum sem selja vörur fyrir hesta- menn er verið að selja þessar skeljar af LAS -tegund sem eru úr þunnu plasti. Skeljar þessar eru hins vegar aðeins framleiddar til verndar gegn léttum höggum í iðnaði.“ Birna segir slys við reiðmennsku vera tíð hérlendis. Á slysa og bráða- sviði Sjúkrahúss Reykjavíkur eru skráðir um 105 áverkar á höfði hjá reiðfólki, á árunum 1998-2000. Upp- lýsingar um hjálmanotkun eru þar ekki tiltækar, þar sem slík skráning hefur ekki enn verið tekin upp, þótt það hafi staðið til í nokkurn tíma, að sögn Jóns Baldurssonar yfirlæknis á slysadeild. Ekki er fest í lög hér að skylda fólk til að nota öryggishjálma á hest- baki en seldir eru í verslunum hjálm- ar sem teljast öruggir samkvæmt evrópskum staðli og Birna mælir einungis með þeim. Ekki er æskilegt að setja reglur um öryggishjálma í reiðmennsku, að hennar mati, heldur ætti að höfða meira til ábyrgðarkenndar fólks, m.a. þar sem erfitt er að hafa eftirlit með að slíkum lögum sé framfylgt. Undir kúrekahatta „Skeljarnar eru vinsælar hjá hestamönnum, því unnt er að nota þær undir kúrekahatta og slæður en þá á kostnað öryggisins. Við beinum því þeim tilmælum til verslana sem sérhæfa sig í búnaði fyrir hestamenn að hætta sölu á umræddum hjálmi á þeim forsendum að hann veitir hestamönnum falska öryggiskennd og ekki þá nauðsynlegu vörn sem sérhannaðir reiðhjálmar gera. Hestamönnum er bent á að hjálmar sem uppfylla kröfur samkvæmt staðlinum ÍST EN 1384:1996 og hafa verið prófaðir samkvæmt prófunar- aðferðum sem þar eru tilgreindar, uppfylla samevrópskar kröfur sem gerðar eru til reiðhjálma.“ Skeljarnar skárri en ekkert Vignir Jónasson verslunarstjóri í Töltheimum staðfestir að svokallað- ar skeljar af LAS tegund séu seldar í versluninni og séu í sumum tilfellum notaðar til reiðmennsku. „Við bend- um kaupendum á að þessi tegund veiti ekki nægilega vörn en þó sé skárra að nota hana en ekki neitt. Menn setja síðan alls kyns hatta yfir skeljarnar sem eru úr trefjaplasti, en það er ómögulegt þegar notast er við þykku nýju einangrunarplast- hjálmana.“ Vignir segir skeljarnar vera seldar hjá sér á svipuðu verði og nýjustu öryggishjálma. Vantar leiðbeiningar Í febrúar sl. framkvæmdi mark- aðsgæsludeild Löggildingarstofu markaðskönnun á nokkrum tegund- um öryggishjálma. Alls voru 34 mis- munandi tegundir skoðaðar í níu verslunum. Tilgangur var m.a. að skoða hvort hjálmar á markaði upp- fylltu kröfur um CE merkingu og hvort íslenskar notkunarleiðbeining- ar fylgdu vörunni. Könnunin leiddi m.a. í ljós að í fjórum tilvikum vant- aði CE merki á hjálma og að 33 hjálmum fylgdu ekki íslenskar notk- unarleiðbeiningar. Rangir hjálmar eru not- aðir við reiðmennsku Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Samevrópskar kröfur eru gerðar til reiðhjálma. GRÁ slikja sem inniheldur bakterí- ur og sveppi hefur fundist í þvotta- vélum, rakaþéttiþurrkurum og upp- þvottavélum og valdið einstaka notendum vandræðum. Undanfarin ár hefur slikjan orðið algengari í öll- um tegundum véla, og jafnvel stíflað leiðslur, að sögn viðgerðamanna hjá Eirvík. „Ekkert skemmist samt í raun- inni“ segir Stefán Hermannsson, þjónustustjóri hjá Eirvík. „Slæm lykt getur myndast og sé fatnaður þveginn í slíkum vélum getur slikjan valdið exemi, útbrotum, kláða og öðru slíku, þó að rétt sé að taka fram að það hefur ekki verið rann- sakað sérstaklega. Einnig getur slikjan valdið blettum í fötum ef þvottavél er ekki notuð lengi og er svo tekin í notkun án þess að hún sé þrifin fyrst.“ Fólk getur hreinsað sjálft Ekki er algengt að sveppurinn stífli frárennslisrör en Stefán segir að einstöku sinnum stíflist loftslöng- ur sem geti haft áhrif á frárennsli og ruglað vélina. Slikjan færist svo í aukana ef vélin er ekki notuð reglu- lega. Fólk geta hreinsað slikjuna að mestu leyti sjálft nema á einstaka stöðum en í Eirvík til dæmis fæst nýtt umhverfisvænt efni, sveppa- eyðir sem Stefán mælir með að not- aður sé reglulega til varnar svepp- um af þessu tagi. Einnig er hægt að nota klór, en hann er mun vara- samari í meðferð, enda eitraður, auk þess sem hann getur haft slæm áhrif á vélarnar ef hann er notaður oft. Rannsókn á sýnum af slikju þess- ari, stendur nú yfir hjá Heilbrigð- iseftirliti Reykjavíkur, að sögn Stef- áns og er henni ekki lokið. Ekki búið að rannsaka nægjanlega Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, sveppafræðingur á Náttúrurfræði- stofnun Íslands, hefur framkvæmt forrannsókn á sýni af slikjunni gráu og segir hana ekki hættulega. „Ég skoðaði sýnið í smásjá, það var sam- ansett af sveppun, bakteríum og amöbum. Sveppirnir eru vatna- sveppir sem finnast í fersku vatni. Ég treysti mér ekki til að tegund- argreina þá, en eftir snögga skoðun sýnist mér hér vera um að ræða sveppi af Aphanomyces ættkvísl- inni. Þetta þyrfti að rannsaka betur áður en hægt er að tegundagreina sýnið svo fullvíst sé enda mín athug- un í raun bara frumrannsókn.“ Aðspurð um þörfina á að losa sig við skánina segir Guðríður Gyða: „Ég er ekki viss um að það sé nein þörf á því nema hún sé farin að stífla einhverjar leiðslur. Ég get hins veg- ar ekkert fullyrt um neitt annað í sýninu en sveppina. Þar voru bakt- eríur og annað sem ekki hefur verið rannsakað. Einnig var sýnið senni- lega aðeins tekið úr einni vél og því ekkert sem segir að aðrir vatna- sveppir gætu ekki verið í öðrum vél- um.“ Sveppa- og bakteríuslikja getur haft slæm áhrif á þvottavélar Leiðslur hafa jafnvel stíflast

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.