Morgunblaðið - 04.08.2001, Page 25

Morgunblaðið - 04.08.2001, Page 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2001 25 FLEST einleiks- og kammerverk klassísk-rómantíska tímans voru ætl- uð fyrir fiðlu og píanó enda mörg tón- skálda þessa tímabils snillingar á þessi hljóðfæri, og lögðu því fram margar leiktækninýjungar. Sam- hliða þessari þróun voru gerðar end- urbætur í smíði hljóðfæra, svo að þegar langt var liðið á tuttugustu öld- ina, hafði ákveðnum hápunkti verið náð og nýjungarnar fágaðar og staðl- aðar. Má segja að tíminn eftir 1945 hafi verið tími hinna „fullkomnu flytj- enda“, þar sem allt var „perfect“. Á tónleikum Hlífar Sigurjónsdótt- ur og Nínu Margrétar Grímsdóttur, í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar sl. þriðjudag, voru viðfangsefnin eigin- lega tengd þessari sögu í samleik fiðl- unnar og píanósins. Tónleikarnir hóf- ust á e-moll sónötunni K 304, eftir meistara Mozart og þar mátti heyra, að enn var píanóinu treyst fyrir ráð- andi tónmáli. Þessi fallega sónata, sem er eitt samfellt fallegt sönglag, var mjög vel flutt og þó finna megi að styrkleikahlutföllum á einstaka stað, var sónatan í heild vel mótuð og syngjandi tónmálið víða sérlega fal- lega útfært. G-dúr sónatan fjöruga, op. 30, nr. 3, eftir Beethoven var í heild nokkuð hratt flutt, sérstaklega lokakaflinn. Þrátt fyrir ágætan leik á köflum, bæði hjá fiðlara og píanista, vantaði nokkuð á yfirvegun í samspili, svo að í heild var sónatan nokkuð keyrð áfram. Meiri yfirvegun hefði gefið tónhendingunum annan líftíma. Þetta hefur ekkert með tæknina að gera, heldur hina listrænu nálgun, sem þarf að koma fram í fleiru en spennutökum hraðans. Menúettinn, sem er langur og syngjandi fallegur, og er gefinn upp að vera molto mod- erato e grazioso, hefði mátt vera ögn hægari og lokakaflinn, sem ber yf- irskriftina Allegro vivace, var tölu- vert glæsilega fluttur hvað snertir leiktæknilega útfærslu, en sem mús- ík allt of hratt leikinn. Í verki Beethovens er jafnræði hljóðfæranna ríkjandi, en í næsta viðfangsefni, Glaðlegum inngangi og rondói, op. 28, eftir Saint-Saëns, er fiðlan í algeru forustuhlutverki og markmiðið að nýta sem best tækni- möguleika hljóðfærisins. Varðandi flutning slíkra verka þarf útfærslan að vera yfirmáta glæsileg, fullkomin, því til þess leiks er stofnað í gerð verka, eins og þessu fræga rondói Saint Saëns. Þrátt fyrir að ekki væri allt „fullkomið“ var leikur Hlífar í heild nokkuð örugglega útfærður. Í húmoreskunni eftir Þórarin Jónsson var allt of hratt farið með tónmálið svo að það vantaði sveifluna og t.d sinkópurnar í upphafi verks- ins, í undirleiknum, urðu flausturs- legar. Þarna vantaði jafnvægi og ró í þessa fallegu og litlu húmoresku. Tónleikunum lauk með tæknileik- verkinu Perpetuum Mobile eftir ung- verska fiðlusnillinginn Ottokar Eu- gen Novásek, sem m.a. starfaði með kennara sínum, Brodsky, í strengja- kvartett hans og samdi nokkur verk, t.a.m. píanókonsert, 3 strengjakvar- tetta og sönglög við kvæði eftir Tol- stoj. Það var margt vel gert í þessu einhæfa en göldrótta verki og ljóst að Hlín er tæknilega á góðri leið, þó enn vanti hana þá yfirvegun og ró í leik og túlkun, sem hefur mikið að segja, bæði í leiktækniverkum en þó sér- staklega í verkum klassísku meist- aranna, jafnvel þar sem hratt skal fara yfir. Nína Margrét Grímsdóttir hefur sannað sig sem frábær píanó- leikari og sýndi það með góðum leik sínum í verki Mozarts en þó sérstak- lega í galsafenginni sónötunni eftir Beethoven. Jón Ásgeirsson Hratt farið yfir TÓNLIST L i s t a s a f n S i g u r j ó n s Ó l a f s s o n a r Hlíf Sigurjónsdóttir og Nína Margrét Grímsdóttir. Þriðjudagurinn 31. júlí 2001. SAMLEIKUR Á FIÐLU OG PÍANÓ UNGUR básúnuleikari, Helgi Hrafn Jónsson og Hörður Áskelsson leika á tvennum tónleikum undir merkjum tónleikaraðarinnar Sumarkvöld við orgelið í Hallgrímskirkju um helgina. Fyrri tónleikarnir eru kl. 12:00 í dag en hinir síðari annað kvöld kl. 20:00. Á efnisskrá er bæði gömul og ný tónlist. Verk barokkmeistaranna Pergolesis, Loeillets og Bachs verða leikin í umritunum fyrir básúnu og orgel. Á tónleikunum sunnudaginn 5. ágúst leikur Helgi Hrafn sellósvítu nr. 2 eftir Bach á básúnu. Einleiks- verk Harðar er orgelsvíta eftir franska tónskáldið Clérambault. Á tónleikunum í dag munu Hörður og Helgi Hrafn spinna saman á hljóð- færi sín spuna um sálmalag eftir Hörð. Í lok tónleikanna annað kvöld verður frumflutt verkið Signing eftir ungt tónskáld, Huga Guðmundsson. „Við Helgi Hrafn sungum saman í Röddum Evrópu, og undir lok ferð- arinnar, kom hann til mín og spurði hvort ég vildi semja verk fyrir hann og Hörð til að flytja á þessum tón- leikum,“ segir Hugi. „Upphafsmótíf- ið í verkinu er fyrir mér signingar- stef. Þetta er áreynslulausasta verk sem ég hef samið; þegar þetta þriggja nótna stef var komið, kom restin af sjálfu sér. Signingin hefur alltaf haft sérstaka merkingu fyrir mig, mér finnst hún falleg, og áminn- ing um krossinn.“ Helgi Hrafn segir það þægilegt að takast á við verk vin- ar síns. „Þetta er stemmningsverk og mjög hreint og klárt.“ En svo ætlarðu að leika sellósvítu eftir Bach.„Sellóið er eitt af mínum uppáhaldshljóðfærum, og þetta verk hefur alltaf verið mér hugleikið, en þetta er geysilega erfitt tæknilega fyrir básúnuna.“ Um spuna þeirra Helga Hrafns segir Hörður að hann megi ekki vera of mikið undirbúinn. „Þetta er lítið lag, sem við ætlum að spinna yfir. Við erum búnir að prófa nokkrum sinnum, og það hefur verið eitthvað nýtt í hvert sinn. Ef við héldum þó áfram lengi gætum við lent í klisjum, og það viljum við ekki. Vandinn í spuna er að kunna sér hóf, flytjendur vilja gleyma sér í því hvað þetta er gaman.“ „Vandinn að kunna sér hóf“ Morgunblaðið/Sigurður Jökull Hörður Áskelsson, Helgi Hrafn Jónsson og Hugi Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.