Morgunblaðið - 04.08.2001, Page 50

Morgunblaðið - 04.08.2001, Page 50
DAGBÓK 50 LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Funchal kemur og fer í dag, Kristrún og Hák- on, koma í dag, Snorri Sturluson fer í dag. Clipper kemur og fer á þriðjudag, Haukur og Kristrún koma á þriðju- dag. Hafnarfjarðarhöfn: Sel- foss kemur á mánudag, Ozherelye kemur á þriðjudag, Hvítanes fór í gær. Mannamót Árskógar 4. Á þriðju- dag kl. 9–12 bókband og öskjugerð, kl. 13–16.30 opin smíðastofa, kl. 10– 16 púttvöllur opinn. Bólstaðarhlíð 43. Á þriðjudag kl. 8 hár- greiðsla, kl. 8.30 böðun, kl. 9–16 almenn handa- vinna og fótaaðgerð, kl. 9.30 morgunkaffi/ dagblöð, kl. 11.15 matur, kl. 15 kaffi. Skoð- unarferð fimmutdaginn 23. ágúst Hraun- eyjafossvirkjun og ná- grenni. Heimsækjum þjóðveldisbæinn, Vatns- fellssvæðið, Hraun- eyjafossvirkjun og Sult- artangastöð, komið við hjá Hjálparfossi. Há- degisverður, kjöt og kjötsúpa, snæddur í Há- lendismiðstöðinni. Hlýr klæðnaður og nesti. Upplýsingar og skrán- ing í síma 568-5052 eigi síðar en mánudaginn 20. ágúst. Vegna mikillar þátttöku verður önnur borgarferð farin fimmtudaginn 16. ágúst. Ekið um borgina og nýju hverfin skoðuð. Kaffi í Golfskála Reykjavíkur, Graf- arholti. Lagt af stað kl. 13. Skráning í síma 568- 5052 í síðasta lagi fyrir 13. ágúst. Allir velkomn- ir. Félag eldri borgara, Kópavogi. Púttað verð- ur á Listatúni í dag, laugardag, kl. 11. Mæt- um öll og reynum með okkur. Félagsstarf aldraðra, Dalbraut 18–20. Á þriðjudag kl. 9 böðun og hárgreiðslustofan opin. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Á þriðju- dag kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 11.30 matur, kl. 13 föndur og handavinna, kl. 15 kaffi- veitingar. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Morgungangan verður í dag, rúta frá Firðinum kl. 9:50 og kl. 10 frá Hraunseli. Púttæfingar á Hrafnistuvelli þriðju- daginn kl. 14–16. Félagsheimilið Hraun- sel verður lokað vegna sumarleyfa starfsfólks til 12. ágúst. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Mánudag: brids kl. 13. Nk. fimmtu- dag: brids kl. 13 og verð- launaafhending fyrir stigamótið. Dagsferð 18. ágúst. Fjallabaksleið syðri í samvinnu við FEB og Ferðaklúbbinn Flækifót. Brottför frá Glæsibæ kl. 8. Leiðsögn Pálína Jónsdóttir o.fl. Dagsferð 28. ágúst. Veiðivötn – Hrauneyjar. Brottför frá Glæsibæ kl. 8. Leiðsögn Tómas Ein- arsson. Skráning hafin. Silfurlínan er opin á mánudögum og mið- vikudögum frá kl. 10–12 f.h. í síma 588-2111. Upplýsingar á skrifstofu FEB kl. 10–16 í síma 588-2111. Félagsstarf aldraðra á Suðurnesjum. Miðviku- daginn 8. ágúst dagsferð í Þórsmörk, lagt af stað kl. 8 frá SBK, fólk taki með sér nesti. Dagana 27.–29. ágúst, ferð í Skagafjörð, lagt að stað frá SBK kl. 9, gist á Hól- um í Hjaltadal, tvær nætur með fæði. Þriðju- daginn 4. sept. hálfs- dagsferð í Borgarfjörð, m.a. að Hvanneyri, Borg á Mýrum, í Borgarnes, lagt af stað frá SBK kl. 12.30. Þeir sem áhuga hafi á ferð til Kanaríeyja hafi samband sem fyrst, dvalið verður á íbúðar- hótelinu Los Tilos, farið verður um mánaðamótin janúar-febrúar. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Á þriðjudag kl. 9–12 hárgreiðsla, sjúkraböðun kl. 9–14.30, morgunkaffi kl. 9–11, hádegisverður kl. 11.30– 13, kl. 12.45 Bónusferð, eftirmiðdagskaffi kl. 15– 16. Gerðuberg, félagsstarf. Sund- og leikfimiæf- ingar á vegum ÍTR í Breiðholtslaug á þriðju- dögum og fimmtudögum kl. 9.30. Púttvöllurinn er opinn virka daga kl. 9– 18, Kylfur og boltar í af- greiðslu sundlaug- arinnar til leigu. Allir velkomnir. Veitingabúð Gerðubergs er opin mánudaga til föstudaga kl. 10–16. Félagsstarfið lokað vegna sumarleyfa frá 2. júlí–14. ágúst. Gjábakki, Fannborg 8. Á þriðjudag kl. 9.30 handavinnustofa opin, leiðbeinandi á staðnum frá kl. 10–17, þriðju- dagsganga fer frá Gjá- bakka kl. 14. Gullsmári Gullsmára 13. Lokað vegna sum- arleyfa til 7. ágúst. Hvassaleiti 56–58. Á þriðjudag kl. 9 böðun, fótaaðgerðir og leikfimi, kl. 9.45 bankaþjónusta, kl. 13 handavinna og hárgreiðsla. Hraunbær 105. Á þriðjudag kl. 9–17 fóta- aðgerðir, kl. 9.45 boccia, kl. 12.15 verslunarferð í Bónus, kl. 13–17 hár- greiðsla. Mosfellingar – Kjalnes- ingar og Kjósverjar 60 ára og eldri. Komið og takið þátt í góðri og hollri hreyfingu. Hall- dóra Björnsdóttir íþróttakennari er með gönguferðir á mið- vikudögum, lagt af stað frá Hlaðhömrum: Ganga 1 létt ganga kl. 16 til 16.30. Gönguhópur 2 kl. 16.30. Norðurbrún 1. Hár- greiðslustofan verður lokuð frá 10. júlí til 14. ágúst. Á þriðjudag kl. 10–11 ganga. Vesturgata 7. Á þriðju- dag kl. 9 fótaaðgerðir og hárgreiðsla, dagblöð og kaffi, kl. 9.15–15.30 al- menn handavinna, kl. 11 leikfimi, kl. 11.45 matur, kl. 13 frjáls spila- mennska, kl. 14.30 kaffi. Hálfsdagsferð miðviku- daginn 15. ágúst, lagt af stað kl. 13, ekið um Hellisheiði og Grímsnes að Ljósafossvirkjun. Þar verður skoðuð tréútskurðarsýning á vegum Þjóðminjasafns Íslands. Ekið um Grafn- ing til Þingvalla að Hót- el Valhöll. Glæsilegt kaffihlaðborð. Fræðslu- fulltrúi þjóðgarðsins, Einar A. E. Sæmunds- son, tekur á móti hópn- um. Fræðsla um stað- hætti og Þingvallakirkja skoðuð. Leiðsögumaður Nanna Kaaber. Upplýs- ingar og skráning í síma 562-7077. Ath. Tak- markaður sætafjöldi. Vitatorg. Á þriðjudag kl. 9 smiðjan og hár- greiðsla, kl. 9.30 morg- unstund og almenn handmennt, kl. 10 fóta- aðgerðir og almenn leik- fimi, kl. 11 boccia, kl. 11.45 matur, kl. 14 félagsvist, kl. 14.30 kaffi. Félag ábyrgra feðra. Fundur í Shell-húsinu, Skerjafirði, á mið- vikudögum kl. 20, svar- að í síma 552 6644 á fundartíma. Eineltissamtökin. Fundir á Túngötu 7 á þriðjudögum kl. 20. GA-fundir spilafíkla eru kl. 18.15 á mánudögum í Seltjarnarneskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðslu- deild SÁA, Síðumúla 3–5, og í Kirkju Óháða safnaðarins við Háteigs- veg á laugardögum kl. 10.30. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis eru með fundi alla mánu- daga kl. 20 á Sól- vallagötu 12, Reykjavík. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. Norðurbrún 1, Furu- gerði 1 og Hæð- argarður 31. Fimmtu- daginn 9. ágúst nk. verður farið í ferð til Borgarfjarðar um Kaldadal að Húsafelli. Ekið verður að Barna- fossum og Hraunfossum að Reykholti þar sem snæddur verður léttur hádegisverður. Þaðan verður svo ekið um Geldingadraga og Hval- fjörð til Reykjavíkur. Lagt verður af stað frá Norðurbrún 1 kl. 8.30 og síðan teknir farþegar í Furugerði og Hæð- argarði. Skráning í Norðurbrún í síma 568- 6960, í Furugerði í síma 553-6040 og í Hæð- argarði í síma 568-3132. Í dag er laugardagur 4. ágúst, 216 dagur ársins 2001. Orð dagsins: Sérhver ritning er innblásin af Guði og nytsöm til fræðslu, til um- vöndunar, til leiðréttingar, til menntunar í réttlæti. (II. Tím. 3, 16.) LÁRÉTT: 1 tölum, 4 fær, 7 kvendýr- ið, 8 lagarmál, 9 munir, 11 kyrrir, 13 döpur, 14 hélt, 15 fíkniefni, 17 nöld- ur, 20 skelfing, 22 sjó- ferð, 23 unglingsárin, 24 mannsnafn, 25 geta neytt. LÓÐRÉTT: 1 merkur, 2 ginna, 3 hönd, 4 hæð, 5 snauð, 6 byggt, 10 hugrökk, 12 hlaup, 13 títt, 15 líta, 16 byrðingurinn, 18 nói, 19 toppa, 20 hugarburður, 21 gnótt. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 hörmungar, 8 sekks, 9 góðan, 10 kol, 11 kerfi, 13 innar, 15 hross, 18 hirta, 21 val, 22 ramma, 23 arfur, 24 hrakfarar. Lóðrétt: 2 öskur, 3 miski, 4 nagli, 5 auðan, 6 ósek, 7 snar, 12 fis, 14 nei, 15 harm, 16 ormur, 17 svark, 18 hlaða, 19 rifja, 20 akra. K r o s s g á t a ALVEG blöskra mér bréfin í Velvakanda hinn 19. júlí sl. þar sem Sigrún Þorsteins- dóttir og Grímur Karlsson í Keflavík eru að reyna að af- saka hátterni Árna John- sens, fyrrverandi fyrsta þingmanns Suðurlands. Hvernig í ósköpunum dett- ur ykkur slíkt í hug? Af hverju á ekki þessi þing- maður að fá sömu umfjöllun í fjölmiðlum og aðrir lands- menn? Hann er formaður einhverrar nefndar og kjör- inn til þings af sínum um- bjóðendum og ætti að mínu viti að skammast sín fyrir hátterni sitt og láta vera að tjá sig opinberlega á meðan rannsókn á athæfi hans er rétt að byrja. Sigrún og Grímur virðast hafa gleymt því, að þessi fyrrum þing- maður hefur orðið uppvís að mjög svo alvarlegu athæfi, sem má alveg kallast sið- laust athæfi, í skjóli sinnar stöðu í þjóðfélaginu. Ég ætla ekkert að reyna að réttlæta þetta. Og mér finnst með fádæmum neyð- arlegt þegar aðrir þjóð- félagsþegnar ætla að fara að réttlæta afbrot vissra þjóðfélagsþegna, bara vegna þess að þeir heita Árni Johnsen og hafa ein- hverra hluta vegna orðið al- þingismenn. Þar með er þeim í sjálfsvald sett að haga sér eins og þeim sýnist og svíkja út peninga á kostnað hins almenna borg- ara. Mér finnst persónulega þetta hátterni þingmanns- ins vera svo dapurlegt og ræfilslegt að engar máls- bætur geti réttlætt það. Sigrún Þorsteinsdóttir segir að Árni verði dæmdur og er þá þar með búið að hreinsa þetta þjóðfélag? Ég skil ekki þetta hugtak hjá Sigrúnu. Ég hef aldrei séð eða skilið að þetta þjóðfélag þyrfti á einhverri hreinsun að halda, svo mér þætti mjög vænt um að Sigrún gæfi þjóð sinni nánari skýr- ingu á þessu orðalagi. Sig- rún skrifar einnig í dálk sín- um um allt svindlið og svínaríið, sem stundað hafi verið í okkar þjóðfélagi um aldir. Á þá að vera tímabært að skrifa um það í málgagn- inu 19. júlí árið 2001? Grímur skipstjóri í Kefla- vík hefur getað gefið sér tíma til þess að afsaka sið- leysi þingmannsins úr Vest- mannaeyjum með því að hafa orð á öllu því góða sem hann telur að þingmaðurinn hafi áunnið þjóð sinni til handa og ef til vill málsbóta. Grímur Karlsson ætlar með þessum orðum sínum að réttlæta allt það sem miður er gjört í þjóðfélaginu og jafnvel hinu þjóðfélaginu, Grænlandi. Ég er alveg orð- laus yfir því að menn ætli með svona bullskrifum að fá fólk til þess að trúa því að verið sé að hengja bakara fyrir smið með því að fjöl- miðlar skýri rétt og satt frá þeirri vitleysu sem nefndur þingmaður er búinn að koma sér í og honum ætti að vera einum lagið, án aðstoð- ar ykkar, að koma sér úr og það sem fyrst. Mér finnst persónulega að þetta sé makalaust klúður af hálfu þingmannsins og óskiljan- legt að kaupa ekki bara sín- ar vörur eins og við hin. Ingvar R. Valdimarsson, Aðalstræti 23, Patreksfirði. Tapað/fundið Eldrautt hjól týndist NÝTT reiðhjól hvarf frá Ljósheimum 3. júní sl. Um er að ræða 26 tommu karl- mannsreiðhjól af gerðinni GT, hárautt að lit. Skilvís finnandi hringi í síma 568- 2453 eða gsm 898-0026. Myndavél týndist EINFÖLD svört myndavél í gráu hulstri týndist 23. eða 24. júní á svæðinu í kringum Eldgjá. Finnandi vinsam- legast hringi í síma 892- 6361. Barnahálsmen í óskilum BARNAHÁLSMEN úr gulli (höfrungur) fannst fyr- ir utan Sóltún 20. Hægt er að vitja mensins þar eða í síma 695-2843 eða 551-0230. Dýrahald Páfagaukur í óskilum LJÓSBLÁR páfagaukur (gári) týndist í Hvömmun- um í Kópavogi 31. júlí. Uppl. í síma 554-0056 og 896-2722. Páfagaukur í óskilum BLÁR páfagaukur er í óskilum í Árbænum frá 25. júlí. Uppl. í síma 567-3919. Læða týndist GRÁ læða með hvítan kraga, hvíta sokka og hvítt trýni týndist úr Smáíbúða- hverfinu. Hún er eyrna- merkt og með rautt háls- band. Uppl. í síma 847-2329 og 588-3429. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Hátterni afsakað Víkverji skrifar... VÍKVERJI viðurkennir fyrsturmanna að hann er sælkeri mik- ill og veit fátt betra en að borða góð- an mat. Eins og gefur að skilja freist- ar því mjög að lyfta sér upp endrum og sinnum og bregða sér út að borða ásamt ektamakanum og jafnvel fleiri góðum vinum á eitthvert af veitinga- húsum landsins. Sá galli er hins veg- ar á gjöf Njarðar að slíkur munaður kostar skildinginn. x x x ÞVÍ hugsaði Víkverji sér gott tilglóðarinnar fyrir ári eða svo þegar hann komst í kynni við sér- stakan vildarklúbb, alþjóðlegan, sem ber engilsaxneskt heiti. Nafn klúbbsins gefur til kynna eðli hans, þ.e. að með því að gerast meðlimur og gegn framvísun sérstaks klúbb- skírteinis fæst tvennt á verði hins dýrara – svona „tveir fyrir einn“ til- boð eins og orðin eru alþekkt í nú- tíma markaðsumhverfi. Umræddur vildarklúbbur er í samvinnu við ýmiss konar fyrirtæki í landinu, allt frá veitingastöðum og sólbaðsstofum til hjólbarðaverk- stæða og leikhúsa. Sælkerinn Vík- verji féll fyrir klúbbnum er hann leit yfir lista þeirra veitingastaða sem bjóða tvo rétti á verði hins dýrari gegn framvísun skírteinis klúbbsins og reiknaði út að árgjaldið fyrir að vera meðlimur, rúmar 3 þúsund krónur, hlyti að skila sér fljótt. Vík- verji hefur nokkrum sinnum náð að nýta sér vildarkjörin og sparnaður- inn eflaust svarað árgjaldinu. Sem er gott og blessað. Samt getur Víkverji ekki sagt farir sínar sléttar af við- skiptunum við umræddan vildar- klúbb. Allt of oft hefur hann nefni- lega lent í einhverju veseni þegar hann hefur framvísað skírteininu á viðkomandi veitingahúsum, þau sagst hafa slitið samstarfinu við klúbbinn eða hreinlega aldrei verið með. Svo oft hefur það reyndar kom- ið fyrir að Víkverji hefur gefist upp á því að eltast við nákvæmlega þá staði sem sagðir eru aðilar að klúbbnum og mun hugsa sig tvisvar um áður en hann framlengir aðildinni. En þá verður hann reyndar að fara fram á endurgreiðslu árgjalds því endur- nýjunin gengur sjálfkrafa um garð með aðstoð kreditkortafyrirtækj- anna, án þess að viðskiptavinurinn sé spurður álits. En það er önnur saga og lengri. x x x VÍKVERJI hefur oft velt því fyrirsér hvort rödd neytenda hér á landi sé ekki óvenju lágvær og áhrifalítil. Annars staðar á Vestur- löndum, a.m.k. á hinum Norðurlönd- unum og í Bandaríkjunum, virðist staða neytenda allavega vera mun sterkari og þar virðast gömlu kjör- orðin um að viðskiptavinurinn hafi ætíð rétt fyrir sér vera höfð í heiðri. Loforð um endurgreiðslu, ef varan uppfyllir ekki kröfur eða veldur von- brigðum, eru t.d. mun algengari. Það er einna helst að maður taki eftir slíku á sjónvarpsmörkuðunum, sem reyndar stunda viðskiptahætti að bandarískri fyrirmynd. Eitt besta dæmið um vanvirðingu gagnvart neytendum er viðmótið sem þeim er sýnt er þeir benda á að gallaður eða útrunninn varningur sé á boðstólum. Kunningi Víkverja var t.d. staddur í stórmarkaði og kom auga á vöru sem var komin langt fram yfir síðasta söludag. Þegar hann benti starfsmanni á það var einungis spurt hversu langt fram yf- ir og svo bent á að það hlyti að vera til annað eintak í hillunni sem enn væri löglega hæft til neyslu. Engar þakkir fyrir ábendinguna. Engar af- sakanir. Víkverji hefur fyrir víst að í sumum stórmörkuðum í Danmörku t.d. sé sú regla í gildi að þegar neyt- andi finnur gallaða eða útrunna vöru í búðarhillunni sé byrjað á því biðja hann afsökunar og síðan færð ríku- leg inneign í versluninni í sárabætur. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.