Morgunblaðið - 09.08.2001, Side 8

Morgunblaðið - 09.08.2001, Side 8
FRÉTTIR 8 FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ Forsætisráðherra er kominn til að segja álit sitt á úrskurðinum hr. stjóri. Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull Fyrsti þjóðgarð- urinn við sjó Nýlega var GuðbjörgGunnarsdóttirráðin þjóðgarðs- vörður Snæfellsjökls, hins nýja þjóðgarðs á Snæfells- nesi. Hún var spurð hvað hið nýja starf fæli í sér? „Þjóðgarðsvörður sér um daglegan rekstur þjóð- garðsins. Það felur í sér hin margvíslegustu störf, mér er þó ekki beinlínis ætlað að vera að staðaldri leiðsögumaður um garðinn en slíkt getur þó komið til. Landverðir munu starfa með mér, einkum þó á sumrin. Þjóðgarðsvörður á líka að gera tillögur til Náttúruverndar ríkisins um rekstur garðsins í sam- ræmi við verndaráætlun og staðfest skipulag.“ – Hvenær var Snæfellsjökull, hinn nýi þjóðgarður, opnaður fyr- ir almenning? „Umhverfisráðherra Siv Frið- leifsdóttir opnaði garðinn hinn 28. júní sl. Frá því um 1970, eftir setningu laga um náttúruvernd, hefur verið talað um að friðlýsa svæðið á utanverðu Snæfellsnesi. Árið 1994 tók til starfa undirbún- ingsnefnd um þetta málefni undir forystu Sturlu Böðvarssonar, nú- verandi samgönguráðherra. Nefndin skilaði lokaskýrslu 1997. Sú skýrsla er grunnur að þeirri vinnu um stofnun þjóðgarðsins sem fram hefur farið síðan. Haustið 2000 lýsti umhverfisráð- herra því svo yfir það þjóðgarð- urinn Snæfellsjökull yrði stofnað- ur í ár. Síðan í vor hefur starfshópur unnið að undirbún- ingi þess.“ – Hver eru helstu verkefni þeg- ar komið er á fót þjóðgarði af þessu tagi? „Samkvæmt lögum um nátt- úruvernd eiga þjóðgarðar m.a. að stuðla að samskiptum manns og náttúru og í hinum nýja þjóðgarði eru ákjósanlegar aðstæður til þess að fræða almenning um menningarminjar og náttúrufar á þessu svæði. Snæfellsnes er sögu- svið margar fornsagna og einnig t.d. sagna Halldórs Laxness og Jules Verne. Auk upplýsinga um þessi atriði verður lögð áhersla á ferðaþjónustu og útivist. Ætlunin er að koma á fót þjónustumiðstöð á norðanverðu Nesinu. Vegna ná- lægðarinnar við þéttbýliskjarn- ana gefst gott tækifæri til þess að taka á móti skólanemendum.“ – Hvað er það í náttúru þessa svæðis sem er svo sérstakt? „Það er nálægðin við Snæfells- jökul og hraunmyndanir. Gróður- far er sérstakt og þetta er fyrsti þjóðgarðurinn sem er við sjó. Ná- lægðin við sjóinn skapar mögu- leika á að fræða fólk um sjóinn, líf- ið í honum og við strendur hans. Sögulegu minjarnar hér á þessu svæði tengjast einkum útræði fyrr á tímum.“ – Hver eru mörk þjóðgarðsins? „Í suðri er það austurjaðar Háahrauns í landi Dag- verðarár, í norðri eru mörkin vestan Gufu- skála. Stærð garðsins er alls 16.705 hektar- ar.“ – Hvernig er aðstaða fyrir starfsfólk? „Ég tek formlega til starfa í haust og það er ekki búið að ganga alveg frá húsnæðismál- um. Ég veit þó að ég verð með að- setur á Hellissandi. Ég er eini starfsmaður garðsins yfir vetrar- tímann enn sem komið er að minnsta kosti.“ – Hvar verður þjónustumiðstöð fyrir almenning? „Hún verður líka við Hellissand og ætlunin er að koma þar upp gestastofu.“ – Geta menn nú þegar fengið fylgd um svæði þjóðgarðsins? „Í sumar hafa verði starfandi tveir landverðir og hafa þeir fylgt fólki um svæðið. Í vetur hefst starfið með því að vinna að vernd- aráætlun fyrir svæðið. Hún er unnin í samvinnu við Náttúru- vernd ríkisins og fleiri aðila og er stefnumörkun fyrir svæðið næstu fimm árin.“ – Er þetta starf mjög ólíkt þín- um fyrri störfum? „Margt af því sem ég hef verið að fást við undanfarið tengist þessu starfi, svo sem kennsla, leiðsögn og útgáfustarfsemi. Í hinu nýja starfi verður einn þátt- urinn að útbúa fræðsluefni. Ég tel að besta leiðin til að vekja áhuga fólks á landinu og sögu þess sé að fræða það um umhverfi sitt, bæði munnlega og einnig í rituðu máli.“ – Hvað um gistingu fyrir al- menning? „Ólíkt því sem er í hinum þjóð- görðunum þremur verður ekki gistiaðstaða innan þjóðgarðsins en í jaðri hans eru bæði tjaldstæði og hótelgisting.“ – Hvers vegna ekki innan garðsins sjálfs? „Landfræðilegar aðstæður eru ekki heppilegar til þess arna og gistiaðstaða er nú þegar fyrir hendi.“ – Er mikill áhugi fyr- ir málefnum þjóðgarðs- ins heima í héraði? „Já, þegar er búið að vinna talsvert mikið undirbúningsstarf við t.d. merkingar innan þjóðgarðsins. Heima- menn hafa verið mjög áhugasamir undanfarin ár við að sinna slíku. Þess má geta að ráðgjafarnefnd er mér til ráðuneytis um málefni þjóðgarðsins og meðal fulltrúa í henni eru menn frá Snæfellsbæ og ferðamálasamtökum Snæfells- ness auk Fornleifaverndar ríkis- ins og Náttúruverndar ríkisins. Guðbjörg Gunnarsdóttir  Guðbjörg Gunnarsdóttir fædd- ist 7. desember 1957. Hún lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum við Hamrahlíð 1977 og BS-prófi í landafræði frá Há- skóla Íslands og prófi í uppeldis- og kennslufræðum til kennslu- réttinda frá sama skóla. Einnig lauk hún námi frá HÍ í hagnýtri fjölmiðlun og hefur aflað sér réttinda til leiðsögumannastarfa. Hún starfaði við kennslu um ára- bil og undanfarin sex ár hefur hún starfað við upplýsinga- og kynningarmál hjá Lands- símanum. Nú er hún að taka við starfi þjóðgarðsvarðar í nýja þjóðarðinum á Snæfellsnesi. Sögulegar minjar tengj- ast einkum útræði fyrr á tímum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.