Morgunblaðið - 09.08.2001, Síða 12
SKIPULAGSSTOFNUN
hefur fallist á lagningu
tveggja akreina Hallsvegar
frá Fjallkonuvegi að Víkur-
vegi.
Þetta er í annað sinn sem
Skipulagsstofnun tekur fram-
kvæmdina til athugunar en
þá var einnig fallist á hana.
Sá úrskurður var hins vegar
kærður til umhverfisráðherra
sem felldi hann úr gildi. Var
þá kveðið á um frekara mat á
umhverfisáhrifum og m.a.
lagt til að kannað yrði frekar
þörf á breikkun Hallsvegar í
fjórar akreinar, gerð yrði
grein fyrir hljóðstigi á hverri
hæð fyrir sig og kannaðir
yrðu möguleikar á því að
leggja Hallsveg í stokk.
Fram kemur í úrskurði
Skipulagsstofnunar að fyrir-
hugaður Hallsvegur muni
liggja í jaðri íbúðarhverfis
sem er að langmestu leyti
fullbyggt og við jaðar Gufu-
neskirkjugarðs og mun því
óhjákvæmilega hafa áhrif á
hljóðvist í nágrenni við fram-
kvæmdasvæðið. Þá segir að
þær mótvægisaðgerðir sem
kynntar hafi verið til að
draga úr áhrifum á hljóðvist
muni verða áberandi og
skerða útsýni úr íbúðarhús-
um við Garðhús.
Áfangi sem staðið
getur einn og sér
Að mati Skipulagsstofnun-
ar hefur framkvæmdaaðili,
þ.e. Vegagerðin og Reykja-
víkurborg, sýnt fram á að
lagning Hallsvegar frá Fjall-
konuvegi að Víkurvegi sé
áfangi sem geti staðið einn og
sér verði ekki af áformum um
aðra áfanga Hallsvegar. Seg-
ir í matsskýrslu að ekki verði
ráðist í breikkun Hallsvegar í
fjórar akreinar fyrr en
Sundabraut verði komin. Þá
telur stofnunin að lagning
Hallsvegar í stokk muni
draga verulega úr hljóðmeng-
un vegna umferðar og skerð-
ingu á útsýni. Hins vegar sé
sá kostur vart raunhæfur
vegna kostnaðar.
Í athugasemdum Íbúasam-
taka Grafarvogs annars veg-
ar og LOGOS lögmannsþjón-
ustu fyrir hönd fasteignaeig-
enda við Garðhús hins vegar
er gerð sú aðalkrafa að
Skipulagsstofnun hafni fram-
kvæmdum við Hallsveg. Með-
al annars er farið fram á mat
á fyrirhugaðri fjögurra ak-
reina stofnbraut þannig að
ljóst sé hvort grundvöllur sé
fyrir henni. Segir að breyttar
forsendur varðandi byggða-
þróun, byggðamynstur og
umferðarþunga sem fram
komi í drögum að Aðalskipu-
lagi Reykjavíkur 2001–2024
séu í ósamræmi við þær for-
sendur sem gengið sé út frá í
matsskýrslu. Jafnframt er
dregið í efa að fjögurra ak-
reina Hallsvegur komist fyrir
á svæði frá lóðarmörkum við
Garðhús að Gufuneskirkju-
garði. Tekið er fram að nauð-
synlegt sé að fram fari úttekt
óháðra sérfræðinga á þeim
möguleika að leggja Hallsveg
í stokk.
Samkvæmt 14. gr. laga nr.
63/1993 má kæra úrskurð
Skipulagsstofnunar til um-
hverfisráðherra. Kærufrestur
er til 12. september 2001.
Skipulagsstofnun hefur úrskurðað um lagningu Hallsvegar í annað sinn
Fallist á lagningu
tveggja akreina
Grafarvogur
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
12 FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VEGNA framkvæmda við
mislæg gatnamót Breið-
holtsbrautar og Reykjanes-
brautar verður, fram til 9.
september, lokað fyrir um-
ferð á Nýbýlavegi sunnan
Smiðjuvegar að Reykjanes-
braut og á Dalvegi austan
Hlíðarhjalla að Nýbýlavegi.
Meðan á lokunum stendur
verður um nokkrar aksturs-
leiðir að ræða að og frá
Smiðjuhverfi í Kópavogi.
Frá Smiðjuhverfi verður
áfram ekið um Nýbýlaveg til
vesturs, einnig verður eftir
sem áður opin leið niður
Smiðjuveg. Að Smiðjuhverfi
verður hægt að aka austur
Nýbýlaveg og upp Smiðju-
veg frá Reykjanesbraut en
auk þess um tímabundna af-
rein inn í Smiðjuhverfi við
Bláa götu.
Sérstakur upplýsingavef-
ur hefur verið settur upp
með kortum yfir akstursleið-
ir sem hægt er að velja með-
an á lokunum stendur. Slóð-
in er www.gatnamot.is.
Morgunblaðið/Sverrir
Nýbýlaveg hefur nú verið lokað á gatnamótum Skemmu-
vegar og Nýbýlavegar. Vegfarendur sem koma úr vestri
aka nú t.d. niður Smiðjuhverfi að Reykjanesbraut.
Lokað fyrir
umferð til
9. september
Kópavogur
Nýbýlavegur sunnan Smiðjuvegar
STEINUNN Valdís Óskars-
dóttir, borgarfulltrúi og for-
maður íþrótta- og tómstunda-
ráðs, segir að ekki sé ástæða
til að ætla að púttvellir í
borginni séu í ólagi. Í gær
benti lesandi Morgunblaðsins
m.a. á í blaðinu að púttvöll-
urinn í Laugardalnum væri
orðinn að óræktarskika. Seg-
ir Steinunn að þegar svona
ábendingar komi frá íbúum
borgarinnar sé sjálfsagt mál
að kanna þær og það verði
gert í þessu tilviki.
„Samkvæmt mínum upp-
lýsingum eru púttvellirnir í
borginni í þokkalegu ástandi.
Ef einhver völlur er ekki í
góðu standi þá viljum við fá
ábendingar um það svo hægt
sé að bregðast við því.“
Á vegum íþrótta- og tóm-
stundaráðs (ÍTR) eru nú tíu
púttvellir víðsvegar um borg-
ina. Þar af eru fimm vellir við
félagsmiðstöðvar aldraðra,
þ.e. við Hæðargarð, Sléttu-
veg, Hraunbæ, Bólstaðarhlíð
og Árskóga. Þá eru fimm al-
menningspúttvellir og eru
þeir við Ártúnsbrekku,
Breiðholtslaug, Sundlaug
Vesturbæjar, í Laugardaln-
um og við Miklatún. Taka
skal fram að ókeypis er á
vellina og eru þeir öllum opn-
ir.
Að sögn Steinunnar hafa
púttvellirnir verið mjög vin-
sælir, sérstaklega við þjón-
ustuíbúðir aldraðra. Hún
segir að Golfklúbbur Reykja-
víkur sjái um að slá og hirða
vellina.
„Maður myndi nú ætla að
það væru fagmenn sem sæju
um vellina en Þjónustumið-
stöð verklegra framkvæmda
hjá ÍTR hefur umsjón með ef
eitthvað kemur upp á.“
Púttvellir
sagðir í
þokkalegu
ástandi
Reykjavík
BJÖRGVIN Kristbergsson
bar sigur úr býtum í skákein-
vígi við Pétur Jóhannesson
sem haldið var af skákklúbbi
fatlaðra, Brögð í tafli, á Kakó-
barnum síðastliðið þriðju-
dagskvöld. Reglur einvígisins
voru á þann veg að sá sem
fyrr ynni tvær skákir stæði
uppi sem sigurvegari og vann
Björgvin tvær fyrstu skákirn-
ar en þær voru þó báðar mjög
tvísýnar. Að sögn Einars Jóns
Erlingssonar, umsjónar-
manns klúbbsins, fylgdust um
15 manns með keppninni, þar
á meðal Helgi Ólafsson, sem
var skákstjóri, og Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir, sem af-
henti verðlaunin, en þau hafa
bæði kennt klúbbmeðlimum
ýmis brögð í taflmennsku.
Björgvin Kristbergsson
til vinstri og Pétur Jó-
hannesson einbeita sér í
skákeinvíginu á Kakó-
barnum.
Teflt af
kappi á
Kakó-
barnum
Reykjavík
REIÐNÁMSKEIÐ fyrir fatl-
að fólk á vegum Reykjalund-
ar er haldið í Mosfellsbæ í
sumar en að sögn Berg-
lindar Ingu Árnadóttur,
stjórnanda námskeiðsins, er
rúmur aldarfjórðungur frá
því að fyrstu námskeið þess-
arar tegundar hófust, en
hún hefur unnið við þau
undanfarin 14 ár. Berglind
segir að þeir einstaklingar
sem taka þátt í námskeið-
unum séu mismikið fatlaðir.
„Það er misjafnt hversu
mikla aðstoð fólk þarf, fyrir
þá sem eru fjölfatlaðir er
þetta stundum spurning um
að komast aðeins upp úr
hjólastólnum og njóta nátt-
úrunnar. Sumir hreinlega
lifa fyrir það að koma hing-
að og fara dálítinn hring á
hestbaki. Framfarir hjá fólk-
inu eru nokkrar og reið-
námskeiðin veita mjög góða
jafnvægisþjálfun sem
gagnast gjarnan fólki sem
lent hefur í slysi eða lamast
að hluta til. Einnig eru nám-
skeiðin mjög góð teygjuæf-
ing fyrir spastísk börn svo
almennt hefur fólk bæði
gagn og gaman af námskeið-
unum, “ segir Berglind.
Yngstu þátttakendurnir á
námskeiðunum eru ungir að
aldri eða 4 og 5 ára, en ann-
ars eru þátttakendur bæði
börn og fullorðið fólk en
námskeiðin standa yfir allt
sumarið.
Reiðnámskeið fyrir fatlað fólk
Bæði til gagns og gamans
Þessi börn eru öll þátttakendur í reiðnámskeiði fyrir fatl-
aða í sumar og taka þau sig vel út á hestbaki.
Mosfellsbær
TJÖRNIN í Hafnarfirði hef-
ur verið þurrkuð upp að
hluta til og framkvæmdir
standa nú yfir við hana. Að
sögn Kristins Magnússonar,
bæjarverkfræðings Hafnar-
fjarðar, er verið að endur-
nýja brúna yfir Lækinn við
Hverfisgötu og lagnir þar og
einnig stendur til að setja
upp umferðarljós á gatna-
mótunum. Kristinn telur að
verkinu verði lokið í sept-
ember, hann segir reynt sé
eftir megni að flýta því svo
að það megi takast fyrir
skólabyrjun en þó sé það
enn óvíst.
Endurnýjun brúar-
innar við Lækinn
Morgunblaðið/Þorkell
Hér sést hvernig hluti Lækjarins í Hafnarfirði hefur verið
þurrkaður upp en verið er að laga brúna yfir lækinn.
Hafnarfjörður
ÚRSKURÐARNEFND
skipulags- og byggingamála
felldi í gær bráðabirgðaúr-
skurð þess efnis, að stöðva
skuli framkvæmdir við bygg-
inu húss Kára Stefánssonar,
forstjóra Íslenskrar erfða-
greiningar, á lóðinni nr. 9 við
Skeljatanga í Reykjavík, sam-
kvæmt byggingarleyfi sam-
þykktu af byggingarfulltrúan-
um í Reykjavík hinn 17. júlí
2001, á meðan kærumál um
lögmæti leyfisins er til með-
ferðar hjá úrskurðarnefndinni.
Í kæru sinni til úrskurðar-
nefndarinnar, dags. 23. júlí
2001, vísa kærendur m.a. til 8.
gr. skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997. Í úrskurði úr-
skurðarnefndarinnar segir
m.a. að athugasemdir kær-
enda lúti einkum að umfangi
og hæð fyrirhugaðs húss að
Skeljatanga 9, sem þeir telja
hvorki samræmast skipulags-
skilmálum né þeirri byggð sem
fyrir sé í nágrenni þeirra.
Fram-
kvæmdir
stöðvaðar
Reykjavík