Morgunblaðið - 09.08.2001, Page 15
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001 15
FÉLAG myndlistarmanna í
Reykjanesbæ stendur fyrir „Sum-
ar gallerí“ í Svarta pakkhúsinu í
Hafnargötu 2 í Keflavík. Um 20
félagsmenn taka þátt í verkefninu
og selja myndir sínar í galleríinu
sem verður opnað í dag.
Þegar blaðamann og ljósmynd-
ara bar að garði voru félagsmenn
önnum kafnir við að hengja upp
myndir sínar fyrir opnun gallerís-
ins og var létt yfir myndlistarfólk-
inu. Að sögn Eiríks Árna Sig-
tryggssonar, varaformanns
félagsins, er hér um tilraunaverk-
efni að ræða en galleríið verður
opið dag hvern, frá klukkan 14 til
17, út ágústmánuð og jafnvel leng-
ur ef mannskapur fæst til að
standa vaktir í pakkhúsinu.
Gestir geta búist við því að hitta
fyrir myndlistarmenn að störfum
þegar þeir líta inn í galleríinu.
Vinnuaðstaða í
gamalli frystigeymslu
„Það eru milli 40 og 50 manns í
félaginu en það hefur verið starf-
rækt síðastliðin þrjú ár. Það er
töluvert margt fólk sem hefur
gaman af að búa til myndir hér í
Reykjanesbæ og var myndlist-
arhópur sem nefnist Baðstofan
stofnaður hér fyrir um 30 árum af
Erlingi Jónssyni. Það má segja að
þetta félag hafi sprottið upp úr
þeim félagsskap,“ segir Eiríkur
Árni.
Svarta pakkhúsið sem félagið
hefur til afnota er í eigu bæjaryf-
irvalda. „Nú fer í hönd þriðji vet-
urinn síðan við fengum húsið en
félagið hefur útbúið sýningarsal í
því þar sem áður var frysti-
geymsla. Þetta er vinnusvæði
félagsmanna og félagið stendur
einnig fyrir kvöldnámskeiðum í
myndlist sem fara fram hérna á
veturna. Sýningarhald hefur verið
allfjörugt hér þau ár sem salurinn
hefur verið starfræktur og hér
hafa meðal annars sýnt lands-
þekktir listamenn. Við viljum auka
þá starfsemi eins og hægt er og
hyggjumst sjálf setja hér upp sýn-
ingu fyrir Ljósanótt sem verður 1.
september,“ segir Eiríkur Árni.
Fimm myndir yfir veturinn
Jófríður Jóna Jónsdóttir er ein
þeirra myndlistarmanna sem eiga
verk í galleríinu sem verið er að
setja upp. Auk þess að vera í
Félagi myndlistarmanna í Reykja-
nesbæ er hún meðlimur í myndlist-
arhópnum Baðstofunni.
„Við hittumst reglulega hér í
Pakkhúsinu og málum saman. Ég
mála ekkert voðalega mikið en ég
geri þó örugglega fjórar til fimm
olíumyndir yfir veturinn og svo
teiknum við módel og fleira slíkt
og höfum gaman af,“ segir Jófríð-
ur Jóna.
Félag myndlistarmanna opnar í dag gallerí í Svarta pakkhúsinu í Keflavík
Höfum
gaman af
Morgunblaðið/Sverrir
Nokkrir myndlistarmannanna sem starfa í galleríinu, hver með eitt verka sinna í höndunum.
Morgunblaðið/Sverrir
Jófríður Jóna Jónsdóttir hengir upp verk sín, en þau verða til sölu í
galleríinu í Svarta pakkhúsinu.
Reykjanesbær
VEGAGERÐIN hefur boðið út loka-
hönnun og gerð útboðslýsingar fyrir
breikkun Reykjanesbrautar. Unnið
er að skýrslu um mat á umhverfis-
áhrifum og verður hún kynnt í haust.
Gerð hafa verið frumdrög að hönn-
un Reykjanesbrautar, frá mörkum
Hafnarfjarðar og Vatnsleysustrand-
arhrepps til Njarðvíkur. Útboðið
sem nú fer fram er í lokahönnun og
gerð útboðslýsingar fyrir verkið.
Forhönnun fyrir þá tvo kafla sem
næstir eru Hafnarfirði á að vera lok-
ið 17. desember næstkomandi og
verkhönnun fyrir kaflana tvo svo og
útboðslýsing fyrir fyrsta kaflann
sem liggur meðal annars um Kúa-
gerði skal lokið í byrjun júní í vor.
Forhönnun fyrir þá þrjá kafla sem
liggja sunnar skal lokið í lok apríl í
vetur og verkhönnun fyrir þá svo og
útboðslýsing fyrir allan veginn nema
fyrsta kaflann á að vera lokið 1. apríl
2003.
Unnið að umhverfismati
Samkvæmt þessu á undirbúningi
útboðs á fyrsta kaflanum að vera lok-
ið næsta vor þannig að framkvæmdir
geti hafist á því ári. Undirbúningi
annarra hluta vegarins á að vera lok-
ið vorið 2003.
Gert er ráð fyrir fjárveitingum til
breikkunar Reykjanesbrautar á ár-
unum fram til 2010. Hugmyndir hafa
verið uppi um að flýta verkinu en
ákvörðun um það verður tekin á Al-
þingi við endurskoðun vegaátlunar.
Jafnframt vinnur Hönnun hf. að
undirbúningi umhverfismats, fyrir
hönd Vegagerðarinnar, á grundvelli
matsáætlunar sem Skipulagsstofnun
samþykkti í febrúar síðastliðnum.
Stefnt er að því að matsskýrslan
verði tilbúin og kynnt í haust.
Kröpp veglína við Kúagerði
Í skýrslu um frumhönnun Reykja-
nesbrautarinnar voru bornir saman
ýmsir kostir. Vegagerðin leggur til
að brautin verði tvær akgreinar í
hvora átt, hvor um sig 7,5 metrar á
breidd, með 11 metra graseyju á
milli.
Breikkunin fer þannig fram að
lögð verður ný akbraut við hlið þeirr-
ar gömlu. Helstu vandræðin á þeirri
framkvæmd eru í Kúagerði. Þar er
veglínan kröpp, bæði hvað varðar
hæð og grunn, og þar hafa óhöpp
verið tíð. Niðurstaða Vegagerðarinn-
ar var að leggja til að núverandi veg-
línu yrði haldið að mestu leyti á þess-
um stað en þó reynt að sníða af
verstu agnúana.
Loka-
hönnun
vegarins
boðin út
Reykjanesbraut
EKKI hefur verið ákveðið hjá Vega-
gerðinni hvernig farið verður með til-
boð sem bárust í 2. áfanga Bláalóns-
vegar. Tilboðin voru 80–90% yfir
kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar.
Búið er að grófleggja veginn frá
baðstaðnum vestur fyrir Þorbjörn og
til Grindavíkur. Til stóð að ljúka verk-
inu í haust með því að leggja burð-
arlag og tvöfalda klæðningu á veginn.
Aðeins tvö tilboð bárust í útboði
Vegagerðarinnar, var tilboð Klæðn-
ingar ehf. lægra, tæplega 29 milljónir
sem er tæpum 13 milljónum yfir
kostnaðaráætlun. Hitt tilboðið var
30,5 milljónir.
Leita hagkvæmustu lausna
Að sögn Hilmars Finnssonar,
deildarstjóra í Reykjanesumdæmi,
tekur Vegagerðin venjulega ekki
svona háum tilboðum. Hann segir þó
að engar ákvarðanir hafi verið teknar
um þetta mál. Leitað verði hagkvæm-
ustu lausna.
Aðspurður telur hann koma til
greina að brjóta verkið upp og jafnvel
að fresta hluta þess. Það kunni að
vera óheppilegar aðstæður á mark-
aðnum til slíkra útboða nú.
Eftir er að taka
afstöðu til tilboða
Bláa lónið
textil.is
ATVINNA
mbl.is