Morgunblaðið - 09.08.2001, Side 16
LANDIÐ
16 FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FRÁGANGI við stórt land-
græðslusvæði, sem girt var af við
Sænautasel í Jökuldalsheiði, er nú
lokið á þessu sumri.
Svæðið er alls milli 80 og 90
hektarar að stærð, mest örfoka
melar síðan eru nokkrir mold-
argrafningar með tilheyrandi
rofabörðum innan girðingarinnar.
Áburði var dreift á alla melana
innan girðingar auk þess sem
dreift var áburði á svæði utan
girðingar til samanburðar. Sáð
var í rofabörðin og grafningana
og gróðursettur Loðvíðir og Blá-
mjalta frá Barra á Egilsstöðum í
svæðið í litlum mæli til að kanna
hvort sá gróður lifir svo hátt yfir
sjó, Sænautasel er í milli 400 og
500 metra hæð yfir sjávarmáli.
Blámjalta er belgjurt sem bindur
köfnunarefni og hefur líka hæfi-
leika og lúpína í uppgræðslustarfi.
Einnig var reynt í tilraunaskyni
að setja gróðurmottur í rofabörð
sem búnar eru til úr pappírsmassa
sem grasfræi er sáð í. Það er fyrir-
tækið Pappás á Egilsstöðum sem
er að gera tilraunir með að bleyta
pappír, hræra upp og sá grasfræi í
mottur sem eru búnar til úr
pappamassanum.
Melasvæðið er að mestu véltækt
en fræinu var sáð í rofabörðin með
höndum ásamt plöntuninni, að því
vann fjöldi fólks á öllum aldri og
var áhuginn ekki síður fyrir hendi
hjá yngstu kynslóðinni sem var vel
liðtæk við gróðursetninguna.
Það er nýstofnað Landgræðslu-
félag Fljótsdalshéraðs sem stend-
ur að þessu framkvæmdum með
fullþingi Landgræðslunnar og
styrk frá Umhverfissjóði versl-
unarinnar, Áburðarverksmiðjunni
og Barra á Egilsstöðum.
Uppgræðsla á Sænautaseli
Ljósmynd/Sigurður Aðalsteins
Það voru ekki allir háir í loftinu sem unnu að gróðursetningunni við Sæ-
nautasel, Helga Rún Steinarsdóttir, Díana Mjöll Ómarsdóttir og Gísli
Hauksson voru vel liðtæk og áhuginn leyndi sér ekki.
Landgræðslu-
menn á
öllum aldri
Norður-Hérað
„Hjartahringja“ um allan heim.
Á sunnudagskvöld var svo önnur
friðarathöfn þar sem mótsgestir
sameinuðust um að biðja fyrir friði
með bæninni: Megi friður ríkja á
jörð. Þetta er í sjöunda sinn sem
slík friðarathöfn fer fram fyrsta
sunnudag í ágúst og er hún liður í
vinnu World Peace Prayer-sam-
takanna að friði í heiminum með
þessari einföldu bæn.
MANNRÆKTARMÓTIÐ sem
haldið var í fimmtánda sinn á
Brekkubæ á Hellnum um versl-
unarmannahelgi fór friðsamlega
fram að venju. Skipulögð dagskrá
var frá föstudegi til sunnudags.
Aðgangseyrir var enginn og því
mikið um heimsóknir fólks á svæð-
ið, bæði á laugardag og sunnudag.
Fólk naut veðurblíðunnar og tók
þátt í ratleik eða eyddi deginum í
að láta lesa fyrir sig í spil eða fá
áruteikningu.
Stærsta athöfn mótsins fór fram
á laugardagskvöldið. Þá sameinuð-
ust allir mótsgestir, um hundrað
og þrjátíu manns, um að byggja
stóran „medicine“-hring undir
stjórn Roys Littlesuns. Roy hefur
staðið að byggingu slíkra hringja
um allan heim og hringurinn á
Brekkubæ er hluti af keðju
Friður í
fyrirrúmi
á Brekku-
bæ
Hellnar
Morgunblaðið/Guðrún Bergman
Á laugardagskvöldinu sameinuðust mótsgestir við Hjartahringinn.
NETVERSLUN Á mbl.is
Drykkjarbrúsi
aðeins kr. 400
GÓÐIR nágrannar úr Dalasýslu
komu í Árneshrepp um versl-
unarmannahelgina. Þetta var kór
sem nefnir sig Þorrakórinn. Kór-
inn söng lög og flutti gamanmál í
félagsheimilinu í Trékyllisvík.
Þessi kór kom hér síðast fyrir um
nítján árum. Þetta er hópur bænda
og annarra úr Dalasýslu sem
komu saman fyrst fyrir þorrablót í
sinni heimabyggð og var því gefið
nafnið Þorrakórinn. Kórinn velur
sér eitthvert sveitarfélag einu
sinni á ári og heldur þar skemmt-
anir. Að þessu sinni varð Árnes-
hreppur fyrir valinu. Spilað var á
fjórar til sex harmonikkur fram
eftir nóttu við góðar undirtektir
heimamanna og ferðafólks.
Morgunblaðið/Jón G. Guðjónsson
Kórinn flytur fjörugt lag.
Þorrakór-
inn söng
í Árnes-
hreppi
Árneshreppur
SIGURJÓN Sighvatsson segir
að staðið hafi til að ákveðinn
hópur keypti gamalt frystihús í
Flatey á Breiðafirði og hafi
m.a. verið rætt um að vera með
hótel í því. Hann segist ekki
geta tjáð sig um hvort til standi
að kaupa húsið á næstu miss-
erum.
Hafsteinn Guðmundsson,
bóndi í Flatey og eigandi húss-
ins, segir að salan á húsinu hafi
fyrst komið til tals fyrir um ári.
Segir hann að settar séu fjórar
til fimm milljónir króna á húsið
sem er á tveimur hæðum og um
200 - 300 fermetrar að stærð.
Um er að ræða hús sem byrj-
að var að reisa árið 1946 og
þarfnast það töluverðra lagfær-
inga.
„Ég hef notað húsið sem
geymslu og til að hreinsa dún
og fleira en það var aðeins rekið
sem frystihús í tvö ár,“ sagði
Hafsteinn.
Kanna
hótel-
rekstur í
Flatey
Flatey