Morgunblaðið - 09.08.2001, Síða 40
40 FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Í LESBÓK Morgunblaðsins 4. ágúst
sl. er þörf hugvekja í kvæði eftir Pét-
ur Sigurgeirsson, fv. biskup Íslands,
um skaðsemi áfengis með yfirskrift-
inni: „Skerum upp herör gegn
áfengi“. Um leið og höfundi eru hér
fluttar þakkir fyrir sönn og tímabær
varnaðarorð gagnvart þeim mikla
voða, sem þjóðinni stafar af sívaxandi
áfengisdýrkun, eru aðrir þjónar
kirkjunnar hvattir til þess að láta
meira að sér kveða en verið hefur í
baráttunni gegn bölvaldinum mesta.
Megi ábyrg og heilsteypt afstaða hins
einlæga kirkjuleiðtoga, sem kemur
fram í nefndu ljóði hans, vera öðrum
til eftirbreytni.
Fáum á að vera betur ljóst en
prestum landsins hversu alvarleg ógn
áfengið er oft velferð heimilanna og
heilbrigðu fjölskyldulífi. Það er því
kristileg og siðferðileg skylda og í
góðu samræmi við kærleiksboðorð
kristindómsins að reyna að hindra út-
breiðslu þess illgresis, sem áfengið er
á akri þjóðlífsins.
Að skerða eigin dómgreind og per-
sónuleika með áfengi ættu sem flestir
að forðast og setja á minnið eftirfar-
andi orð hins mikla efna- og lífeðlis-
fræðings Bunge um áhrif áfengis-
drykkju: „Áfengið gerir manninn
ónæman fyrir unaðssemdum lífsins.
Það gerir manninn sljóan bæði líkam-
lega og andlega.“
Í afstöðu til áfengis ættu menn ekki
að svæfa samvisku og samábyrgð
með því að gera mun á hófdrykkju og
annarri meðferð áfengis. Engin skörp
skil eru þar á milli. Tjónið og önnur
ógæfa af völdum áfengis fer ekki allt-
af eftir því, hvernig notkun þess er
háttað eða víntegundum. Virkasta
forvörnin er því að gefa gott fordæmi
með því að hafna allri notkun áfengis
og veita það ekki öðrum.
Þótt hvatning um að fólk og þá
hvað helst ráðamenn þjóðarinnar
hverfi frá fylgispekt við Bakkus og
drykkjutískuna kunni að hafa tak-
mörkuð áhrif, er öllum hollt að hafa
hugföst eftirfarandi sannleiksorð í
framangreindu kvæði Péturs Sigur-
geirssonar, biskups.
„Hvar vínið fagurt freyðir
er fíknin hættu mest.
Það siðferðinu eyðir
og afbrot gerast flest.“
ÁRNI GUNNLAUGSSON,
lögmaður í Hafnarfirði.
Þakkir til Péturs
Sigurgeirssonar
Frá Árna Gunnlaugssyni:
ÉG var alveg gáttaður þegar ég las í
einhverju dagblaðanna, að allir
þingmenn – já allir – hefðu sam-
þykkt lög, sem banna reykingar á
veitingastöðum. Að vísu máttu reyk-
ingamenn „púa“ að uppfylltum skil-
yrðum, sem nær ógjörlegt var að
verða við. Mér þótti þetta svo fárán-
legt að mér datt fyrst í hug að for-
vitnilegt væri að fá að vita hver yrðu
meðalstig alþingismanna ef þeir
væru látnir ganga undir gáfnapróf.
Það fáum við víst aldrei að vita.
Gott ráð er þó til við þessari upp-
ákomu. Þið skuluð bara setja hóf-
lega stórt spjald út í glugga eða á
hurðina á veitingastöðunum með
áletrun, sem gæti verið á þessa leið:
„Aðeins fyrir reykingamenn! Þó
geta þeir sem ekki reykja, fengið af-
greiðslu – á eigin ábyrgð.“
Með þessu eru engin lög brotin
og yfirvöld hljóta að skilja það að
einhvers staðar þurfa „vondir“ að
vera.
Haldi stjórnvöld áfram að jagast í
ykkur er áreiðanlega auðvelt að
kæra til Mannréttindadómstólsins
hvar sem hann nú er staddur.
Sjálfur reyki ég ekki, svo þetta
mál snertir mig ekki persónulega.
Að lokum vil ég þó benda reyk-
ingamönnum á að það væri gáfulegt
að skipta yfir í neftóbak. Það er
hollt, gott og tiltölulega ódýrt.
Með baráttukveðjum,
GUÐMUNDUR JÓNSSON,
söngvari,
Fornhaga 17, Reykjavík.
Kæru vinir á
Múlakaffi, Mokka
Frá Guðmundi Jónssyni:
Í DAGSKRÁRÞÆTTI Ríkisútvarps-
ins „Samfélagið í nærmynd“ 27. júlí
sl. var talað við markaðsstjóra Hús-
dýragarðsins í Reykjavík. Markaðs-
stjórinn sagði að búið væri að sækja
um leyfi fyrir áfengissölu í Húsdýra-
garðinum. Hann taldi líklegt og æski-
legt að þetta leyfi fengist, þá gætu
foreldrar, sem koma með börnin sín í
garðinn, sest niður og fengið sér vín-
sopa á meðan börnin skoðuðu dýrin.
Markaðsstjórinn tók reyndar fram að
það stæði ekki til að selja nema veik-
ari tegundir af víni þarna.
Nú vil ég spyrja þennan ágæta
mann: Telur þú það æskilegra fyrir
börn að foreldrar þeirra setjist að vín-
drykkju frekar en að þeir fylgi börn-
um sínum í skoðunarferðinni og upp-
lýsi þau um það sem fyrir augu ber?
Við vitum það að langflestir for-
eldrar, sem koma með börn sín í Hús-
dýragarðinn, eru á eigin bíl. Önnur
spurning: Þegar foreldrarnir standa
upp frá víndrykkjunni og fjölskyldan
fer í bílinn sinn, hvort á þá faðirinn
eða móðirin að setjast undir stýri?
Ég vona svo sannarlega að þeir
sem hafa valdið og eiga að fjalla um
áðurnefnda umsókn hugsi mál þetta
gaumgæfilega og komist að þeirri nið-
urstöðu að þessari beiðni beri að
hafna.
KRISTJÁN GUÐMUNDSSON,
Kópavogsbraut 1a, Kópavogi.
Áfengissala
í Húsdýragarðinum?
Frá Kristjáni Guðmundssyni: