Morgunblaðið - 21.08.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Til sölu VW Bjalla, 2000, ný-
skráður 12,04,2000, ekinn
12,000 km, 5 gíra, 3 dyra. Ásett
verð 1,970,000.
17 tommu álfelgur, geislaspilari
GUNNAR Eyþórsson
blaðamaður lést á
heimili sínu í Reykjavík
sl. laugardag, 61 árs að
aldri.
Hann var fæddur í
Reykjavík, 23. júní
1940, næstelstur fjög-
urra barna hjónanna
Valgerðar Evu Vil-
hjálmsdóttur og Ey-
þórs Gunnarssonar
læknis.
Gunnar lauk stúd-
entsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík
árið 1960 og stundaði
að því loknu nám við læknadeild og
heimspekideild Háskóla Íslands en
hvarf frá námi. Frá 1964–1970
starfaði hann sem kennari við Voga-
skóla, Kópavogsskóla
og Matreiðslu- og
veitingaþjónaskólann
en réðst til starfa á
fréttastofu Ríkisút-
varpsins árið 1970 og
starfaði þar til ársloka
1980. Þá starfaði hann
um nokkurra ára
skeið hjá Menningar-
sjóði. Síðustu ár
stundaði hann ýmiss
konar ritstörf og
textagerð á eigin veg-
um, auk þess að skrifa
reglulega um erlend
málefni í DV.
Sambýliskona Gunnars er Hjör-
dís Guðbjartsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur. Hann lætur eftir sig þrjú
uppkomin börn af fyrra hjónabandi.
Andlát
GUNNAR
EYÞÓRSSON
ÚTFÖR Ásgríms Hartmannssonar
fyrrverandi bæjarstjóra í Ólafsfirði
fór fram frá Ólafsfjarðarkirkju sl.
laugardag. Ásgrímur lést aðfara-
nótt mánudagsins 12. ágúst, níræð-
ur að aldri.
Að lokinni athöfn í kirkjunni var
gengið með kistu Ásgríms í gegn-
um bæinn og í kirkjugarðinn. Bæj-
arfulltrúar í bæjarstjórn Ólafsfjarð-
ar báru kistuna úr kirkju en þá
tóku við Rotary-félagar en Ásgrím-
ur var einn af stofnfélögum Rot-
aryklúbbs Ólafsfjarðar. Síðan tóku
við kistunni barnabörn, tengdasynir
og sonur, í alls sex hópum. Á leið-
inni að kirkjugarðinum var stað-
næmst við Kolku, einbýlishús Ás-
gríms og Helgu Jónínu Sigurðar-
dóttur konu hans, þar sem fram fór
húskveðja.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Útför Ásgríms Hartmannssonar. Kistuberar eru t.v. Sæmundur Kristjánsson, Helga Kristjánsdóttir og Illugi
Hartmannsson, hægra megin eru Ásgeir Örn Þorsteinsson, Ásta Þorsteinsdóttir og Sveinn Þórir Guðmundsson.
Fremst á myndinni með kransinn eru Lilja og Reynir Helgi, barnabörn Ásgríms.
Útför Ás-
gríms Hart-
mannssonar
VAKNAÐ hafa spurningar um ör-
yggi körtubíla eftir að banaslys varð í
lokaumferð Íslandsmótsins í körtu-
kappakstri á Alexandersflugvelli á
Sauðárkróki á laugardag. Forsvars-
menn akstursíþróttafélaga harma
slysið og segja að úrbætur verði skoð-
aðar í kjölfar rannsóknar.
Í slysinu fórst Brynjar Örn Hlíð-
berg, en Ólafur Kr. Guðmundsson,
formaður Landssambands íslenskra
akstursfélaga, segir að hann hafi ver-
ið vanur ökumaður og í þriðja sæti í
stigakeppni ökumanna til Íslands-
meistaratitils.
„Það var engin keppni byrjuð held-
ur var verið að skoða brautina. Brynj-
ar var búinn að keyra fjóra til fimm
hringi þegar slysið átti sér stað í ein-
um hægasta kafla brautarinnar og
bíllinn því ekki á mikilli ferð. Vinstra
afturhjólið snerti brautarmerkingu,
sem er felgulaust fólksbíladekk í
plastpoka sem liggur laust á jörðinni,
en við það hálfvalt bíllinn eða enda-
stakkst þegar hann kastaðist upp að
aftan.“ Ólafur sagði þekkt að bílarnir
gætu oltið en það væri þó ekki algengt
vegna þess hve þyngdarpunktur
þeirra liggi lágt. „Fólk á að losna úr
bílunum án mikillar áhættu ef þeir
velta, en eins og í öðrum íþróttum
geta átt sér stað slys eins og raunin
varð í þessu hörmulega tilviki,“ sagði
hann en vildi þó ekki alhæfa of mikið
þar sem rannsókn væri enn í gangi.
„Svo verður lagst vandlega yfir nið-
urstöðu rannsóknar og reynt að læra
af slysinu. Við gerum allt sem hægt er
í þeirri von að svona lagað gerist ekki
aftur,“ sagði hann.
Fram kom í máli Ólafs að allur ör-
yggisbúnaður sem krafist er í svona
keppni hafi verið fyrir hendi. „Menn
voru í hlífðargöllum, með hálskraga,
hjálm og hanska. Þá voru sumir kepp-
endur búnir að láta smíða á sig plast-
brynjur, svipaðar og notaðar eru í
mótorkrossi, sem þeir voru í innan
undir gallanum og Brynjar var í einni
slíkri,“ sagði hann.
Þá áréttaði Ólafur að alvanalegt
væri að nota dekk til að afmarka
brautirnar líkt og gert var á flugvell-
inum, hvort heldur sem þau væru
höfð laus eða fest saman. Jafnframt
sagði hann að ómögulegt væri að
setja veltigrind á körtubíla. „Hugsun-
in er sú sama og með mótorhjól og
reiðhjól að maður eigi að losna við
þetta frá sér ef maður veltur.“
10 ára börn mega aka körtum
Til eru nokkrar tegundir körtubíla
og skiptast þær í flokka eftir vélarafli.
„Keppnisbílarnir eru með tvígengis-
vélar og í þeim eru mismunandi flokk-
ar. Sá sem við notum er 125 kúbika
flokkur, en svo eru til bæði aflmeiri og
aflminni flokkar. Þetta er svona miðl-
ungsflokkur og einn sá algengasti
víða um heim. Svo er til önnur gerð
karta sem eru svokallaðir „leigubíl-
ar,“ sem eru með svipaðar grindur en
miklu aflminni mótor sem er fjór-
gengisvél,“ sagði hann og bætti við að
bílar með 125 rúmsentimetra slag-
rými færu alla jafna ekki mikið yfir
100 kílómetra hraða á klukkustund en
bílarnir sem væru til leigu og hefðu
fjórgengisvélar færu ekki hraðar en á
60 til 70 kílómetra á klukkustund.
Í reglugerð nr. 275 frá árinu 2000
um akstursíþróttir og aksturskeppni
kemur fram að 10 ára börn megi aka
kraftminnstu körtunum, með allt að
250 rúmsentimetra slagrými í fjór-
gengisvél og allt að 80 rúmsentimetr-
um með tvígengisvél.
Banaslys á Alexandersflugvelli við Sauðárkrók
Valt eftir snertingu
við brautarmerkingu
TF-SÝN, Fokkerflugvél Landhelg-
isgæslunnar, lenti á einum hreyfli í
Keflavík um þrjúleytið í gær. Að
sögn Landhelgisgæslunnar var vél-
in í gæslu- og ísflugi i er áhöfnin
varð vör við bilun í öðrum hreyfl-
inum. Ákveðið var að slökkva á
honum og halda til Keflavíkur.
Hjá Landhelgisgæslunni fengust
þær upplýsingar að fjögurra
manna áhöfn vélarinnar hafi strax
látið vita af biluninni og hafi því
mikill viðbúnaður verið í stjórn-
stöð og hjá Flugmálastjórn. Vélin
lenti heilu og höldnu í Keflavík um
tveimur tímum síðar og hófst við-
gerð á hreyflinum skömmu seinna.
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Viðgerð á hreyfli TF-SÝN í
Keflavík í gær.
Flugvél Land-
helgisgæsl-
unnar lenti á
einum hreyfli
GÍSLI Þorsteinsson, lögreglu-
fulltrúi hjá rannsóknardeild lögregl-
unnar í Hafnarfirði, segir ljóst að
mjög gott púður hafi verið notað í
rörasprengjuna sem sprakk á
Strandgötu í Hafnarfirði á laugar-
dagskvöld. Sprengjunni var kastað
að inngangi inn í verslunarhúsnæði
sem lokað var af með járnhliði.
Reyndist hún óvenjuöflug og flugu
sprengjubrot í allar áttir. Tvær
stúlkur, sem voru í bíl er ók fram hjá
húsasundinu þegar sprengingin
varð, tognuðu í hálsi þegar sprengi-
krafturinn henti bílnum til. Þær sak-
aði að öðru leyti ekki en bútur úr
sprengjunni lenti í bíl stúlknanna og
sprengdi gat á framhjólið bílstjóra-
megin. Unnið er að rannsókn máls-
ins.
„Rörasprengjur eru misjafnlega
öflugar eftir því hvernig púður er
notað og hversu mikið af því er not-
að. Í þessu tilviki hefur verið um að
ræða mjög gott púður. Það er ekki
spurning,“ segir Gísli.
Hann segir að oftast flettist röra-
sprengjur í sundur við sprengingu
án þess að tætast í sundur. Í um-
ræddu tilviki á Strandgötu hafi hún
hins vegar tæst í sundur ekki ósvip-
að og þegar handsprengja springur.
Hann segir efni í rörasprengjur
auðfengið en að sama skapi séu þær
stórhættulegar.
Sem fyrr segir var sprengjan
óvenjuöflug og meðal annars grófust
brot úr henni djúpt inn í álkant á
húsinu. Þá brotnuðu þrjár rúður í
verslunarhúsnæðinu auk þess sem
hurð þrýstist upp. Lögregla biður þá
sem hafa vísbendingar um tildrög
sprengingarinnar að hafa samband
við sig.
Tættist líkt og
handsprengja
Morgunblaðið/Billi
Bútar úr rörasprengjunni sem sprakk á Strandgötu á laugardagskvöld.
Mikil mildi að ekki fór verr
FISKISKIPIÐ Aðalvík SH-344 frá
Ólafsvík kom til hafnar á Þingeyri í
gær en skipverjar eru grunaðir um
ólöglegar veiðar. Fokkerflugvél
Landhelgisgæslunnar, TF-SÝN, kom
að skipinu um 12 mílur út af Önund-
arfirði um hádegið í gær og mældi
staðsetningu þess 0,7 mílur innan við
landhelgislínuna. Skipið var því of
nærri landi miðað við það sem leyfi-
legt er við togveiðar. Að sögn sýslu-
mannsins á Ísafirði, Ólafs Helga
Kjartanssonar, kom skipið til hafnar
um fjögurleytið í gær og fóru tveir
lögreglumenn um borð. Þeir lögðu
hald á skipsdagbækur, innsigluðu afla
og yfirheyrðu skipstjóra. Aðalvík hét
áður Jói Bjarna SF 16. Það er 234
brúttórúmlestir og var smíðað í Aust-
ur-Þýskalandi árið 1959.
Staðið að meintum
ólöglegum veiðum