Morgunblaðið - 21.08.2001, Blaðsíða 19
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2001 19
RANNSÓKN vegna eldsvoðans í
frystihúsi Samherja, Fiskimjöli og
lýsi, við Ægisgötu í Grindavík að-
faranótt sunnudags miðar ágæt-
lega. Sveinbjörn Halldórsson,
rannsóknarlögreglumaður hjá lög-
reglunni í Keflavík, segir að grun-
ur leiki á að um íkveikju hafi verið
að ræða. Þó sé enginn grunaður
sem stendur. Reiknað er með að
tjónið nemi um 20–30 milljónum
króna.
Tilkynnt var um eldinn laust eft-
ir miðnættið og var slökkvilið
Grindavíkur kallað út auk varaliðs
frá Keflavíkurflugvelli og Keflavík.
Þá voru björgunarsveitir kallaðar
út. Mjög hvasst var í Grindavík og
voru aðstæður til slökkvistarfs
ekki góðar.
Auðvelt fyrir hvern sem er
að komast inn í húsið
Húsið er þriggja hæða. Á efstu
hæðinni voru unglingar með að-
stöðu til hljómsveitaræfinga.
Sveinbjörn segir að þó svo að húsið
hafi verið læst niðri hafi það verið
algjört gatasigti. Það hafi verið
fjórir eða fimm staðir þar sem
hægt hafi verið að komast inn.
„Eldurinn kom upp á þriðju hæð
í suðurenda hússins þar sem kveikt
hafði verið í símaskrám og teppum
fyrr um kvöldið. Það virðist hafa
verið glóð í því nema einhver hafi
komið aftur og kveikt í.“
Óskar Ævarsson rekstrarstjóri
segir að verið sé að meta tjónið en
það hlaupi jafnvel á 20–30 millj-
ónum króna. Húsið hefur verið not-
að sem geymsla og voru um 250
tonn af afurðum í frystigeymslu í
húsinu sem skemmdust ekki. Segir
Óskar að þó þurfi jafnvel að skipta
um eitthvað af umbúðum. Hann
segir að þetta muni hafa lítil áhrif á
starfsemi fyrirtækisins þar sem
fyrirtækið sé með aðrar frysti-
geymslur í bænum. „Það fór betur
en á horfðist. Vindáttin var rétt
þar sem hún stóð frá frystiklef-
anum. Annars hefði hann farið og
allar afurðirnar í honum.“
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Mjög hvasst var í Grindavík og aðstæður til slökkvistarfs ekki góðar.
Grunur um íkveikju í húsnæði Fiskimjöls og lýsis sem skemmdist í bruna aðfaranótt sunnudags
Tjón áætlað 20–30 milljónir
Grindavík
UNGIR piltar í Grindavík, sem
stunduðu hljómsveitaræfingar á
efstu hæð í húsnæði Fiskimjöls og
lýsis í Grindavík, sem skemmdist
mikið í eldsvoða aðfaranótt sunnu-
dags, urðu varir við mikinn reyk þar
um áttaleytið. Þeir loftuðu út og yf-
irgáfu húsið tæpum þremur klukku-
stundum áður en eldsins varð vart.
Óskar Gunnarsson sagði í samtali
við fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is,
að kveikt hafi verið í símaskrám og
ýmsu lauslegu í húsnæðinu en eld-
urinn virtist hafa verið slokknaður
þegar hann kom inn í húsið um
kvöldið, ásamt félaga sínum, Aroni
Ómarssyni. Mikill reykur var þó og
loftuðu þeir út og yfirgáfu húsið
klukkustund síðar, um níuleytið.
Öll tæki hljómsveitar þeirra félaga
eyðilögðust í eldinum. Þeir meta tjón
sitt á um 600 þúsund krónur.
Aron Ómarsson og Óskar Gunn-
arsson á brunastað.
Reynt var
að kveikja í
símaskrám
Á MILLI 200–300 manns hafa
stundað nám við öldungadeild Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja (FS) í
Reykjanesbæ undanfarin ár en
kennsla við deildina hefst 27. ágúst.
Innritun verður 23., 24. og 25. ágúst.
Oddný Harðardóttir, aðstoðar-
skólameistari FS, segir að það sé
helst tvennt sem skýri þennan mikla
fjölda nemenda í kvöldskólanum.
„Í fyrsta lagi erum við með frá-
bæra kennara með langa reynslu af
kennslu fullorðinna. Í öðru lagi er
stjórn nemendafélags öldungadeild-
ar mjög virk og starfar með okkur
við að skipuleggja námið. Stjórnin
tekur þátt í innritun nemenda og
jafnframt gefur hún nýnemum góð
ráð og hvatningu. Auk þess er mikill
áhugi fólks á Suðurnesjum fyrir sí-
menntun.“
Konur fleiri en körlum fjölgar
Hún segir að í kvöldskólanum sé
boðið upp á ýmsa áfanga sem kennd-
ir séu í dagskólanum en einnig sé
boðið upp meistaranám fyrir iðnað-
armenn.
„Nú í haust er boðið upp á fyrstu
áfanga í almennum hluta meistara-
námsins. Áfangar í öldungadeild og
meistaraskóla eru kenndir ef næg
þátttaka fæst.“
Flestir nemendur í kvöldskóla FS
eru á aldrinum 20–50 ára en þó eru
nokkrir nemendur komnir á sjötugs-
aldurinn. Segir Oddný að fleiri konur
stundi nám við deildina en körlum
hafi þó fjölgað undanfarin ár. Um
tveir þriðju hluti nemenda séu konur
en þriðjungur karlar. Nemendur eru
flestir úr Reykjanesbæ og sveitar-
félögunum í kring, Garði, Sandgerði,
Vogum og Grindavík.
„Öldungadeildin er mikilvæg fyrir
atvinnulíf og þjónustu á Suðurnesj-
um. Til dæmis hafa allmargar konur
hafið sjúkraliðanám við deildina og
lokið síðar sérgreinum brautarinnar
í dagskólanum. Þannig höfum við átt
þátt í að manna heilbrigðisstofnanir
á svæðinu og erum við ansi stolt af
því. Þessar konur hefðu fæstar keyrt
til Reykjavíkur til að stunda þetta
nám.“
Síðastliðið haust gerði skólinn
skoðanakönnun á meðal 300 Suður-
nesjamanna á aldrinum 18–65 ára.
„Þar kom fram að þeir þátttakendur
sem höfðu stundað nám við deildina
voru ánægðastir með kennara deild-
arinnar og gátu fátt nefnt sem þeim
fyndist að betur mætti fara. Um 40%
þátttakenda sem ekki höfðu stundað
nám við deildina höfðu íhugað það,
en það getur verið erfitt að fara í
skóla á ný eftir mörg ár. Svo menn
láti verða af því þarf stuðning og
hvatningu, bæði frá fjölskyldu og
skólanum.“
Oddný segir að grunnmenntun
nemenda deildarinnar sé mismikil
og komi þeir úr ýmsum starfsgrein-
um.
Morgunblaðið/Þorkell
Oddný Harðardóttir, aðstoðarskólameistari FS.
Mikil aðsókn í nám
við öldungadeild
Reykjanesbær