Morgunblaðið - 21.08.2001, Blaðsíða 26
Marion Herrera galdraði fram ljúfa hörputóna í Sundhöllinni.
MENNINGARNÓTTIN fór af stað
með skothvelli er Reykjavíkur-
maraþonið var ræst að loknu setn-
ingarávarpi Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur borgarstjóra. Fylgdist
blaðamaður grannt með ávarpinu
en lét sig síðan hverfa í hádegismat
og dagskráryfirlegu þegar hinir
tæplega þrjúþúsund þátttakendur
maraþonsins stukku af stað. Um
tvöleytið voru borgarbúar þegar
farnir að streyma niður í bæ, búnir
regnkápum og regnhlífum, greini-
lega við öllu búnir eftir hrakspár
veðurfréttamanna. Lá leið margra
niður í Ráðhús þar sem opnun
menningardagskrár Hafnar í
Hornafirði, gestabæjar menning-
arnætur 2001, fór fram. Þar mátti
hlýða á söng karlakórsins Jökuls
og upplestur á verkum Þórbergs
Þórðarsonar auk þess sem horn-
firsk myndlist og handverk var til
sýnis. Útskorinn Ingólfur Arnarson
landnámsmaður, gjöf Hornfirðinga
til Reykvíkinga á menningarnótt,
beið síðan afhjúpunar í einu horn-
inu.
Miðja Reykjavíkur
Blaðamaður hélt för sinni áfram
og ákvað að koma við á Hafn-
arbakkanum þar sem fjörmikil fjöl-
skyldudagskrá Bylgjulestarinnar
hafði verið auglýst, en reyndist
fremur dapurleg, svona í hráslaga-
legu regninu, a.m.k. í augum und-
irritaðrar. Það var gott að flýja inn
í hlýjuna í Grófarhúsinu, fá sér
kaffibolla og skoða sýnishorn af
borgarlífsmyndum úr safni Ljós-
myndasafns Reykjavíkur og sýn-
ingu Borgarskjalasafns á plöggum
í sinni vörslu. Þar mátti meðal ann-
ars sjá ljósrit af skjali Danakon-
ungs sem veitti Reykjavík formleg
kaupstaðarréttindi árið 1786. Á
annarri hæð sátu börn og biðu þess
að sögustund hæfist og á norð-
urvegg hússins voru nokkrir
graffitílistamenn að undirbúa um-
fangsmikla veggskreytingu sem
fór fram um daginn.
Stór hópur fólks fylgdi Guðnýju
Gerði Gunnarsdóttur borg-
arminjaverði eftir í ferð um elsta
hluta borgarinnar. Lýsti hún því
hvernig borgin byggðist upp milli
hafnar og tjarnar og var m.a.
staldrað við Vesturgötu 2, gamla
borgarhliðið sem markar miðju
Reykjavíkur. Síðar um daginn af-
hjúpaði Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir borgarstjóri steinhellu sem auð-
kenna mun þessa sögulegu miðju
borgarinnar um ókomna tíð.
Myndlist í búðargluggum
Lífið og listin í miðborginni
færðist jafnt og þétt í aukana eftir
því sem leið á daginn. Sama var að
segja um rigninguna. Eftirmiðdag-
urinn reyndist þó hæfileg blanda af
inni- og útiveru þar sem blaðamað-
ur notaði tækifærið til að skoða
myndlistarsýningar, m.a. verk
Svavars Guðnasonar í Grófarhús-
inu, samsýningu ungra myndlist-
armanna í Listasafni ASÍ, ljós-
myndir Ljósálfa í Stöðlakoti og
skúlptúra Guðrúnar Veru Hjart-
ardóttur í galleríi@hlemmur.is.
Leiðin milli Lækjargötu og Hlemm-
torgs var jafnframt vörðuð list og
uppákomum. Í Bankastrætinu fóru
fallnir englar berfættir hjá, fyrir
utan Bónus lék þvottabalasveit
djass fyrir brosandi áhorfendur, og
sérstaka athygli vakti torfklætt og
blómvaxið gólf í gullsmíðaverslun.
Þá höfðu listamenn í tengslum
við gallerí Hlemm átt samstarf við
kaupmenn á Laugaveginum um
„öðruvísi“ útstillingar í nokkrum
verslunargluggum og var sú sýn-
ing ekki síður áhugaverð.
Kvöldstemmning og tónlist
Það var einkar ljúf stemmning í
miðborginni eftir kvöldmat og
fram að lokum dagskrárinnar.
Hvarvetna var fólk á ferli og víða
hafði verið efnt til vinafunda í
heimahúsum kringum miðbæinn. Á
Skólavörðustígnum og í Grófinni
ríkti mikil stemmning þar sem
njóta mátti handverks, hönnunar
og tónlistar. Í Listasafni Einars
Jónssonar hlýddi blaðamaður á fal-
lega og hugvekjandi flaututónleika
þeirra Berglindar Maríu Tóm-
asdóttur og Kristjönu Helgadóttur,
og í bakgarði Gallerís Meistara
Jakobs hélt hljómsveitin Úlpa
magnaða tónleika.
Mikil ásókn var á ýmsa staði og
mynduðust langar biðraðir við Ís-
lensku óperuna og Hafnarhúsið. Á
áhugaverðan leikgjörning Völu
Þórsdóttur og Dean Ferrel í Iðnó
komust færri að en vildu og var
sama að segja um marga aðra við-
burði kvöldsins. Þegar klukkan
nálgaðist ellefu var kominn tími til
að slíta sig frá stemmningunni á
Skólavörðustígnum og koma sér í
sjónfæri fyrir flugeldasýninguna.
Stundarfjórðungarnir þrír sem
blaðamaður stóð í Bankastrætinu
og beið ásamt um fimmtíu þúsund
borgarbúum eftir flugeldasýning-
unni voru allt að því ankannalegir.
Undir daufum ómi fjöldasöngsins
stóðu blautir, þöglir og þolinmóðir
borgarbúar og biðu ljósadýrð-
arinnar í himninum, sem reyndist
heldur ómarkviss þegar stundin
loks rann upp. Eftir hin óumflýj-
anlegu flugeldavonbrigði ypptu
menn þó öxlum og brostu, enda
flestir í góðu skapi að viðburða-
ríkum degi loknum.
Viðburðarík
menningarnótt
Götur miðborgarinnar iðuðu af lífi á menningarnótt.
Borgarbúar og aðrir gestir menningar-
nætur létu hrakspár veðurfréttamanna
hvergi á sig fá og hópuðust í miðborgina til
að njóta menningarviðburða af fjöl-
breyttasta tagi síðastliðinn laugardag.
Heiða Jóhannsdóttir tók þátt í gleðinni. Hér má sjá listamennina sem hlutu starfslaun Reykjavíkurborgar á menningarnótt.
Morgunblaðið/Golli
Í nokkrum búðargluggum á Laugavegi mátti sjá myndlistarverk. Út-
stilling Valgerðar Guðlaugsdóttur prýddi gluggann hjá Jóni og Óskari.
heida@mbl.is
LISTIR
26 ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÖKUMENN
Gerum fimmtudaginn 23.ágúst að
slysalausum degi í umferðinni.
Lögreglustjórinn í Reykjavík
Reykjavíkurborg
Mosfellsbær
Seltjarnarnesbær