Morgunblaðið - 21.08.2001, Qupperneq 37
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2001 37
Reiðfatnaður í
miklu úrvali frá
FREMSTIR FYRIR GÆÐI
AÐ venju var það töltkeppnin sem
var hápunktur heimsmeistaramóts-
ins í Stadl Paura í Austurríki og þótt
oft hafi þau verið æsileg töltúrslitin
á þessum mótum er ljóst að nú varð
toppnum náð hvað það varðar þótt
endir keppninnar hafi verið hörmu-
legur. Hafliði Halldórsson sem
keppti á Valíant frá Heggsstöðum
hafði látið stór orð falla. Það væri
enginn vafi hvar sigurinn myndi
lenda! Þegar svo keppnin hófst var
ljóst strax á fyrsta atriði úrslita-
keppninnar, hæga töltinu, að þetta
yrði erfiður róður fyrir þá félaga því
Karly Zingsheim og Dökkvi voru í
feiknastuði og ljóst að þeir myndu
klóra sig býsna hátt upp skalann. Og
þær létu ekki sér standa háu töl-
urnar, fjórar níur á lofti og einn
dómari með 8,5 og þar sem hæsta og
lægsta tala fellur út voru þeir með
9,0 fyrir hægt tölt meðan Hafliði og
Valíant fengu 8,0 og útlitið ekki gott.
Báðum tókst þeim vel upp á hraða-
breytingu þar sem riðið er hægt tölt
á skammhliðum og upp í góða milli-
ferð á langhliðum vallarins. Hafliði
hafði vinninginn þar, var með 9,0 en
Karly var með 8,83 og munurinn
þarna ekki nægilega mikill á þeim
félögum því þegar þeir fara í yfir-
ferðartöltið sem er að vísu sterkasti
þáttur Valíants var staðan sú að
Karly var með 8,91 og Hafliði 8,50 og
mjög á brattann að sækja.
Uppgjafareið og útafstökk
Ónefndur sérfræðingur hafði á
orði þegar hér var komið sögu að nú
væri eina von Íslendinga og Hafliða
að Dökkvi stykki út af vellinum því
munurinn væri það mikill að erfitt
gæti reynst vinna upp þetta forskot.
Mátti ætla að Karly þyrfti aðeins að
gæta sín á að sprengja ekki klárinn
upp á yfirferðinni en þess í stað að
reyna að sigla lygnan sjó í gegnum
síðasta atriðið. Hafliði og Valíant
fóru mikinn á yfirferðinni og virtist
allt ganga vel þar til á næst síðasta
hring þegar hann missti Valíant upp
á annarri skammhliðinni smá spotta
en í sama mund og þetta gerist fer
Dökkvi inn á hina skammhliðina og
beint á meters hátt grindverk og út
af vellinum. Skömmu áður en þetta
gerist var töltkeppnin hætt að vera
fögur og spennandi sýning en hafði
snúist upp í afskræmda mynd sína
þar sem fimm glæstir töltarar voru
við það að gefast upp og knaparnir
farnir að hrópa til dómara óskir um
að þessu yrði hætt. Ástæðan fyrir
því hvers vegna Dökkvi fór út úr
braut var augljós; hann var uppgef-
inn og athyglisvert var að hann fer
út úr brautinni þar sem eiginkona
Karlys, Rúna Einarsdóttir stendur
við völlinn en ekki þar sem hliðið var
inn á völlinn. Má ætla að hann hafi
vænst lausnar frá þessari níðslu hjá
fóstru sinni. En með þessum atburði
var ljóst hvar sigurinn myndi lenda,
Karly reið reyndar aftur inn í braut
og fékk einkunn hjá tveimur dóm-
urum sem ekki sáu atvikið.
Enn einu sinni verða hestaáhuga-
menn vitni að slíkri hörmung sem
þarna átti sér stað á stórmóti. Svipað
hefur áður gerst á heimsmeistara-
mótum og landsmótum og virðist
ljóst að sú umræða sem átt hefur sér
stað eftir slíkar uppákomur hafa
ekki leitt til lausnar á þessu. Það er
margt sem spilar inn í þegar svona
gerist og ekki hægt að finna neinn
ákveðinn sökudólg en vísast eru allir
sammála um að tímabært sé að
dýraníðslu sem þessari linni.
Orkumiklir áhorfendur
Að frátöldu þessu atviki var mótið
býsna gott og órækur vitnisburður
um stöðugar framfarir í ræktun og
reiðmennsku. Á margan hátt var
þetta mót skemmtilegra breytinga
og má þar nefna þátt áhorfenda sem
voru virkari en áður hefur þekkst á
hestamótum og á það við um mót
bæði á Íslandi og erlendis. Engar
hömlur voru settar á hvatningar-
hróp áhorfenda og oft á tíðum var
líkast því sem menn væru staddir á
kappleik í ensku úrvalsdeildinni.
Hestakostur mótsins var betri en
nokkru sinni fyrr og sama hvar tekið
er niður. Þótt Íslendingar hafi unnið
fjögur gullverðlaun þá má glöggt
greina að breiddin er mjög að aukast
og öll verðlaun mun harðsóttari.
Íslenska liðið stóð sig með miklum
ágætum og hér að ofan var getið
frækilegrar frammistöðu Hafliða við
að tryggja heimför tölthornsins
fræga. En stórtækastur allra var
Vignir Jónasson sem vann tvenn
gullverðlaun í fimmgangi og saman-
lögðu á sínum mikla gæðingi Klakki
frá Búlandi. Þeirra undirbúningur
hefur staðið í ein þrjú fjögur ár og er
það eitt og sér efni í langa tölu. En
hér var sem sagt hápunkturinn á
ferli þeirra því auk tveggja gullverð-
launa hlutu þeir bronsverðlaun í
gæðingaskeiði, voru í tíunda sæti í
250 metra skeiði og fimmtánda sæti í
tölti. Þarna voru miklir afreksgarp-
ar á ferð sem hafa átt saman bæði
súra og sæta daga þar sem sætleik-
inn hefur verið ofan á síðustu árin.
Styrmir Árnason hlaut nú sinn ann-
an heimsmeistaratitil í fjórgangi nú
á Farsæli frá Arnarholti en einnig
unnu þeir gott verk í töltinu, þegar
þeir fyrst unnu í B-úrslitum og síðan
upp í þriðja sæti í hinum sögulegu
töltúrslitum. Hugrún Jóhannsdóttir
og Sveinn Ragnarsson reru á sömu
miðum í gegnum allt mótið, voru oft
nálægt hvort öðru í stigum í ýmsum
greinum. Stóðu þau sig með mikilli
prýði, fylgdu á hæla Vignis í keppn-
inni um gullið í samanlögðu, Sveinn
með silfrið og Hugrún bronsið. Þá
voru þau á svipuðum tíma í 250
metrunum og fylgdust að í röð í 100
metra skeiðinu sem var kynningar-
grein að þessu sinni. Reynir Aðal-
steinsson varð þriðji í skeiðinu á
Sprengi-Hvelli og fjórði í 100 metr-
unum. Hlynur Arnarsson á Braga
frá Allenbach fór vel af stað í fjór-
gangi náði öðru sætinu eftir for-
keppni en hafnaði í fimmta sæti í úr-
slitum og varð að draga sig út úr
töltúrslitum þar sem klárinn hafði
slegið sig í olnbogann í fjórgangin-
um. Dæmið gekk ekki alveg upp hjá
Sigurbirni hann vann þó í 100 metra
skeiðinu en hlaut silfrið í 250 metr-
unum en eins og komið hefur fram
átti sér mikið klúður í framkvæmd
þeirrar greinar því ef rétt hefði verið
dæmt átti hann sigurinn þar með
réttu og verður fjallað meir um það
síðar.
Kynbótahrossin stóðu sig einnig
með mikilli prýði, fjögur þeirra
stóðu efst í sínum flokki og tvö voru í
öðru sæti þannig að liðið heldur
heim á leið með alls átta gull og sig-
ur í aukagreininni. Íslenska liðið
stóð sig framúrskarandi vel og er
það nú eitthvað til að gleðjast yfir.
Heimsmeistaramótið í Stadl Paura
Fjögur gull á báð-
um vígstöðvum og
einn sigur að auki
Heimsmeistaramótin bjóða upp á spennu og
gleði og víst er gleði í herbúðum Íslendinga.
Valdimar Kristinsson varð vitni að góðri
frammistöðu Íslendinganna.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Hið sigursæla lið Íslands var ánægt með árangurinn að lokinni harðri keppni við vinaþjóðir innan FEIF.
Tölt
1. Hafliði Halldórsson, Íslandi, á Valíant
frá Heggsstöðum 8,37/8.78
2. Jolly Schrenk, Þýskal., á Laxnesi vom
Störtal, 8,27/8,38
3. Styrmir Árnason, Íslandi, á Farsæli
frá Arnarhóli, 7,50/8,50/7.83
4. Stian Pedersen, Noregi, á Jarli frá
Miðkrika 7,63/6.61
5. Hlynur Arnarson, Íslandi, á Braga von
Allenbach, 7,67/-
6. Karly Zingsheim, Þýskal., á Dökkva
frá Mosfelli, 8,20/-
7. Irene Reber, Þýskal., á Kappa frá
Álftagerði, 7,33/7,89
8. Mette Logan, Danmörku, á Austra frá
Austurkoti, 7,50/7,83
9. Saskia Heumann, Þýskal., á Þyti frá
Krossum, 7,20/7,56
10. Lene Wenaas, Noregi, á Heklu frá
Þóreyjarnúpi, 7,27/7,22
11. Christine Lund, Noregi, á Galsa frá
Stokkseyri, 7,20/7,06
Fjórgangur
1. Styrmir Árnason, Ísland, á Farsæli frá
Arnarholti, 7,53/8,33
2. Jolly Schrenk, Þýskal., á Laxnesi frá
Störtal, 7,30/7,83
3. Saskia Heumann, Þýskal., á Þyti frá
Krossum, 7,23/7,73
4.Stian Pedersen, Noregi, á Jarli frá
Miðkrika, 6,93/7,83/7,63
5. Irene Reber, Þýskal., á Kappa frá
Álftagerði, 6,97/7,41
6. Hlynur Arnarsson, Íslandi, á Braga
frá Allenbach, 7,37/7,00
7. Karly Zingsheim, Þýskal., á Dökkva
frá Mosfelli, 6,93/7,47
8. Christine Lund, Noregi, á Galsa frá
Stokkhólmi, 6,63/7,07
9. Mette Logan, Danmörku, á Austra frá
Austurkoti, 6,63/7,00
10. Juliet ten Bokum, Holl., á Gróttu frá
Litlu-Tungu, 6,63/6,93
11. NicoleBergmann, Finnl., á Brunni frá
Súluholti, 6,73/6,87
12. Isebelle Felsum, Danmörku, á Garpi
frá Hemlu, 6,77/6,83
Fimmgangur
1. Vignir Jónasson, Íslandi, á Klakki frá
Búlandi, 7,57/7,74
2. Magnús Skúlason, Svíþjóð, á Dug frá
Minni-Borg, 6,93/7,50
3. Samantha Leidesdorf, Danmörku, á
Depli frá Votmúla, 7,13/7,24
4.-5. Ralf Wohlaib, Þýskal., á Nælu frá
Skarði, 6,73/7,07
4.–5. Rune Svendsen, Noregi, á Hug frá
Stóra-Hofi, 6,70/7,17/7,07
6. Elke Schafer, Austurríki, á Blæ frá
Minni-Borg, 6,90/
7. Thomas Haag, Sviss, á Frama frá
Svanavatni, 6,73/7,07
8. Hugrún Jóhannsdóttir, Íslandi, á Súlu
frá Bjarnastöðum, 6,60/7,07
9. Anne S. Nielsen, Danmörku, á Dem-
anti frá Bólstað, 6,60/6,86
10. Piet Hoyos, Austurr., á Heljari frá
Brautartungu, 6,67/6,76
11. Nicole Kempf, Þýskal., á Kóngi frá
Wetsinghe, 6,63/6,69
13.Sveinn Ragnarsson, Íslandi, á Brynj-
ari frá Árgerði, 6,47
23. Sigurbjörn Bárðarson, Íslandi, á
Gordon frá Stóru-Ásgeirsá, 5,87
Slaktaumatölt
1. Anne Balslev, Danmörku, á Hrammi
frá Þóreyjarnúpi, 7,33
2. Nicole Kempf, Þýskalandi, á Kóngi frá
Wetsinghe, 7,50
3. Magnús Skúlason, Svíþjóð, á Dug frá
Minni-Borg, 7,27
4. Piet Hoyos, Austurríki, á Heljari frá
Brautartungu, 7,00
5. Fredric Rydström, Svíþjóð, á Gesti frá
Stallgarden, 6,83
6. Sveinn Ragnarsson, Íslandi, á Brynj-
ari frá Árgerði, 6,73/7,50
7. Hugrún Jóhannsdóttir, Íslandi, á Súlu
frá Bjarnastöðum, 6,67/7,17
8. Michaela Aðalsteinsson, Austurríki, á
Goða frá Arnarsstöðum, 6,70/6,54
9. Samantha Leidesdorf, Danmörku, á
Depli frá Votmúla, 6,73/6,50
10. Flurina Barandum, Sviss, á Frigg frá
Auas Sparsas, 6,63/6,37
11. Sigurbjörn Bárðarson, Íslandi, á
Gordon frá Stóru-Ásgeirsá, 5,37
Gæðingaskeið
1. Johan Haggberg, Svíþjóð, á Aski frá
Hakansgarden, 8,34
2. Höskuldur Aðalsteinsson, Austurr., á
Katli frá Glæsibæ II, 8,05
3. Vignir Jónasson, Íslandi, á Klakki frá
Búlandi, 7,96
4. Anna Skúlason, Svíþjóð, á Mjölni frá
Dalbæ, 7,63
5. Marianne Tscappu, Sviss, á Gammi frá
Ingveldarstöðum, 7,09
6.–7. Uschi H. Voight, Sviss, á Hrafn-
tinnu frá Ási, 6,59
6.–7. Elke Schafer, Austurr., á Blæ frá
Minni-Borg, 6,59
9. Samantha Leidesdorff, Danmörku, á
Depli frá Votmúla, 6,25
10. Gestur Júlíusson, Austurr., á Erni frá
Efri-Brú, 5,09
250 metra skeið
1. Anna Skúlason, Svíþjóð, á Mjölni frá
Dalbæ, 21,60 sek./9,40
2. Sigurbjörn Bárðarson, Íslandi, á
Gordon frá Stóru-Ásgeirsá, 21,70
sek./9,30
3. Reynir Aðalsteinsson, Íslandi, á
Sprengi-Hvelli frá Efstadal, 22,0
sek./9,00
4. Höskuldur Aðalsteinsson, Austurr., á
Katli frá Glæsibæ II, 22,10 sek., 8,90
5. Sveinn Ragnarsson, Íslandi, á Brynj-
ari frá Árgerði, 22,30 sek., 8,70
6. Kirstine Segall, Danmörku, á Kjarna
frá Tyrevoldsdal, 22,30 sek./8,70
7. Hugrún Jóhannsdóttir, Íslandi, á Súlu
frá Bjarnastöðum, 22,40 sek./8,60
8. Sandra M. Knips, Þýskal., á Lippu frá
Svignaskarði, 22,40 sek./8,60
9. Gestur Júlíusson, Austurr., á Erni frá
Efri-Brú, 22,80 sek./8,20
10. Vignir Jónasson, Íslandi, á Klakki frá
Búlandi, 22,90 sek./8,10
100 metra flugskeið
1. Sigurbjörn Bárðarson, Íslandi, á
Gordon frá Stóru-Ásgeirsá, 7,71/7,68 sek.
2. Tanja Gundlach, Þýskal., á Hrönn frá
Godemoor, 7,68/- sek.
3. Sandra M. Knips, Þýskal., á Lippu frá
Svignaskarði, 7,73/7,72 sek.
4. Reynir Aðalsteinsson, Íslandi, á
Sprengi-Hvelli frá Efstadal, 7,73/7,73
sek.,
5. Magnus Lindquist, Svíþjóð, á Þór frá
Kalvsvik, 7,92/- sek.
6. Samantha Leidesdorff, Danmörku, á
Fáki frá Holti, 8,18/8,25 sek.
7. Anna Skúlason, Svíþjóð, á Mjölni frá
Dalbæ, 8,21/8,24 sek.
8. Hugrún Jóhannsdóttir, Íslandi, á Súlu
frá Bjarnastöðum, 8,68/8,29 sek.
9. Sveinn Ragnarsson, Íslandi, á Brynj-
ari frá Árgerði, 8,31/- sek.
10. Marjolein Strikkers, Hollandi, á Erró
frá Vallanesi, 8,42/8,65 sek.
Frjáls fimi
1. Karly Zingsheim, Þýskal., á Dökkva
frá Mosfelli, 7,28
2. Jolly Schrenk, Þýskal., á Laxnesi frá
Störtal, 7,10
3. Stian Pedersen, Noregi, á Jarli frá
Miðkrika, 6,96
4. Christine Lund, Noregi, á Galsa frá
Stokkhólmi, 6,77
5. Isebelle Felsum, Danmörku, á Garpi
frá Hemlu, 6,68
6. Dorothée Her, Luxemb., á Flossy frá
Hochvaldhof, 5,96
7. Lene Wenaas, Noregi, á Heklu frá
Þóreyjarnúpi, 5,78
8. Johanna Stabinger, Austurr., Sera frá
Reynisstað, 5,48
9. Mette Logan, Danmörku, á Austra frá
Austurkoti, 5,43
10. Janice Hutchinson, Bretlandi, á Bisk-
upi frá Skálholti, 5,33
Samanlagður sigurvegari mótsins
1. Vignir Jónasson, Íslandi, á Klakki frá
Búlandi, 8,42
2. Sveinn Ragnarsson, Íslandi, á Brynj-
ari frá Árgerði, 8,33
3. Hugrún Jóhannsdóttir, Íslandi, á Súlu
frá Bjarnastöðum, 8,31
4. Magnús Skúlason, Svíþjóð, á Dug frá
Minni-Borg, 8,18
5. Jolly Schrenk, Þýskal., á Laxnesi frá
Störtal, 8,05
6. Karly Zingsheim, Þýskal., á Dökkva
frá Mosfelli, 8,02
7. Anna Skúlason, Svíþjóð, á Mjölni frá
Dalbæ, 7,95
Sigurbjörn Bárðarson, Íslandi, á 8.
Gordon frá Stóru-Ásgeirsá, 7,82
9. Stian Pedersen, Noregi, á Jarli frá
Miðkrika, 7,68
10. Sandra M. Knips, Þýskal., Nælu frá
Skarði, 7,52
Stóðhestar 7 vetra og eldri
1. Stefnir frá Sandhólferju, Íslandi,
knapi Guðmundur Björgvinsson, sköpu-
lag: 8,38, hæfileikar: 8,46, aðaleink.: 8,43
2. Frami frá Haringe, Svíþjóð, knapi
Denni Hauksson, s.: 7,93, h.: 8,49, a.: 8,26
3. Eldjárn, Þýskal., knapi Birgir Gunn-
arsson, s.: 7,73, h.: 8,38, a.: 8,12
4. Farsæll frá Fitjum, Hollandi, knapi
Maaike Burggrafer, s.: 7,80, h.: 7,96, a.:
7,90
Stóðhestar 6 vetra
1. Skarði frá Vindstöðum, Austurr.,
knapi Piet Hoyos, s.: 8,05, h.: 8,34, a.:
8,22
2. Gnýr frá Stokkseyri, Íslandi, knapi
Vignir Siggeirsson, s.: 8,03, h.: 8,35, a.:
8,05
3. Burkni frá Skarholti, Noregi, knapi
Svein Sortehaug, s.: 7,90, h.: 8,15, a.: 8,05
4. Hrannar frá Svaða-Kol-Kir, knapi
Samantha Leidesdorff, s.: 8,05, h.: 7,95,
a.: 7,99
Stóðhestar 5 vetra
1. Ægir frá Ketilsstöðum, Íslandi, knapi
Bergur Jónsson, s.: 8,13, h.: 8,20, a.: 8,17
2. Lárus frá Birkenlund, Þýskal., knapi
Susan Beuk, s.: 7,98, h.: 8,26, a.: 8,14
Hryssur 7 vetra og eldri
1. Hrönn frá Godemoor, Þýskalandi.,
knapi Tanja Gundlach, s.: 7,63, h.: 8,72,
a.: 8,28
2. Góa frá Hjarðarhaga, Íslandi, knapi
Bjarni Jónasson, s.: 8,13, h.: 8,18, a.: 8,16
3. Dimma frá Vinnes, Noregi, knapi
Mona Fjeld, s.: 7,95, h.: 8,22, a.: 8,11
4. Ljónslöpp frá Krahenweide, Austurr.,
knapi Valdimar Auðunsson, s.: 7,80, h.:
8,23, a.: 8,06
5. Sóley frá Aldenghoor, Hollandi, knapi
Sigurður Marínusson, s.: 7,50, h.: 8,16, a.:
7,90
Hryssur 6 vetra
1. Hlín frá Feti, Íslandi, knapi Erlingur
Erlingsson, s.: 7,98, h.: 8,36, a.: 8,21
2. Náttfaradís frá Wreta, Svíþjóð, knapi
Magnús Skúlason, s.: 7,80, h.: 8,35, a.:
8,13
3. Nótt frá Knutshyttan, Svíþjóð, knapi,
Garðar Gíslason, s.: 8,10, h.: 8,00, a.: 8,04
4. Katla frá Ryethöj, Danmörku, knapi
Anna S. Níelsen, s.: 7,75, h.: 8,22, a.: 8,03
5. Svarta frá Krahenweide, knapi Valdi-
mar Auðunsson, s.: 7,55, h.: 8,34, a.: 8,02
Hryssur 5 vetra
1. Blá frá Úlfsstöðum, Íslandi, knapi Atli
Guðmundsson, s.: 7,90, h.: 8,54, a.: 8,28
2. Snotra, Þýskal., knapi Angantýr Þórð-
arson, s.: 8,13, h.: 8,03, a.: 8,07
3. Gleði frá Dal, Danmörk, knapi Jóhann
Skúlason, s.: 7,55, h.: 8,04, a.: 7,84
4. Völva frá Rosenlund, Danmörku,
knapi Guðmundur Björgvinsson, s.: 7,45,
h.: 8,01, a.: 7,79
5. Skella frá Helms Hill, Bandaríkin,
knapi Birga Wild, s.: 7,78, h.: 7,58, a.:
7,66
Úrslit í Stadl Paura