Morgunblaðið - 21.08.2001, Side 50
GÆÐALEIKARINN Alec Baldwin
hefur verið mikið í sviðsljósinu í sum-
ar. Er ein aðalröddin í Cats & Dogs,
sem nýlega hóf göngu sína í bíóunum;
einn fárra sem komast skammlaust
frá Pearl Harbor, sem enn er verið að
sýna frá því snemma í sumar, og þá
fer hann með aðalhlutverkið í State
and Maine, nýjustu mynd Davids
Mamet, sem sýnd var fyrr í sumar og
er nýkomin út á myndbandi. Næst
fáum við aðeins að heyra í honum, í
tölvuteiknimyndinni Final Fantasy,
sem kemur í bíóin síðar á árinu.
Baldwin er manna reffilegastur,
enda valinn ein af kynþokkafyllstu
kvikmyndastjörnum samtímans í
breska kvikmyndatímaritinu Empire
á síðasta áratug. Sú guðsgjöf vinnur
oftar en ekki á móti viðkomandi,
a.m.k. afneita margir Baldwin sem
gæðaleikara á þeim fölsku forsendum
að hann sé aðeins enn einn sæta-
brauðsdrengurinn. Þeim hinum sömu
er einfaldlega bent á frammistöðu
hans í Glengarry Glen Cross. Það ætti
að nægja.
Baldwin lætur jafnlétt að leika lítil
og áríðandi skapgerðarhlutverk sem
aðalhlutverk, og greinin (genre)
skiptir litlu máli. Hann er jafnvel
heima í spennumyndum sem dröm-
um, gamanmyndum og hrollvekjum.
Fæddur á Long Island 1958 og næst-
elstur sex systkina (þrír bræður hans,
William, Daniel og Stephen, hafa
einnig reynt fyrir sér á hvíta tjaldinu
en komast ekki með tærnar þar sem
Alec hefur hælana).
Baldwin útskrifaðist með próf í
stjórnmálafræði frá George Wash-
ington-háskóla áður en leikbakterían
heltók hann og hann hóf nám í leiklist
við New York-háskóla. Þaðan útskrif-
aðist leikarinn með BA-próf árið 1983
og flutti sig um set og nam við Lee
Strasberg-leiklistarskólann. Frá upp-
hafi hefur hann verið afkastamikill og
umsetinn, hóf leikferilinn í hlutverki í
sjónvarpsþáttunum The Doctors, sem
hann vann við á daginn, en á kvöldin
fór hann á sviðið í Shakespeare-verk-
inu Draumur á Jónsmessunótt – A
Midsummer Night’s Dream. Fáein-
um árum eftir að hann kom fyrst fram
á Broadway árið 1980 fluttist hann til
Los Angeles og fékk í fyrstu hlutverk
í sjónvarpsþáttunum Knott’s Land-
ing. Fyrsta kvikmyndahlutverkið var
í hinni fáséðu Forever Lulu (’86), sem
leiddi þó til áframhaldandi vinnu í
nokkrum stórmyndum. Á árunum
1988 –89 lék Baldwin í hvorki fleiri né
færri en sjö myndum, þ. á m. Beetle-
juice, Working Girl, Married to the
Mob og Talk Radio.
Árið 1988 var tímamótaár á ferli
Baldwin. Þá fékk hann aðalhlutverk
njósnarans Jack Ryan, hjá CIA, í
kvikmyndagerð metsölubókarinnar
The Hunt For Red October, e. Tom
Clancy. Úr varð fokdýr stórmynd
sem malaði gull um allar jarðir og
hlaut óspart lof gagnrýnenda og var
Baldwin ekki undanskilinn.
Á þessum tíma blómstraði Baldwin
í kvikmyndaborginni þar sem hann
var kominn í hóp bestu og eftirsótt-
ustu leikara af yngri kynslóðinni. En
valt er veraldargengið. Það vakti
mikla athygli er hann neitaði hlut-
verkinu í framhaldsmyndinni, Patriot
Games, kaus frekar metnaðarfullt
hlutverk Stanleys Kowalski í nýrri
Broadway-uppsetningu Sporvagns-
ins Girndar, sem beðið var með mikilli
eftirvæntingu. Baldwin var að vísu til-
nefndur til Tony-verðlaunanna fyrir
frammistöðuna en gengi hans féll á
hvíta tjaldinu. Baldwin var að gera sín
afdrifaríkustu mistök á ferlinum.
Hlutverk Ryans skipti hinsvegar
sköpum fyrir Harrison Ford, sem við
því tók og treysti hann í sessi sem
eina hæstlaunuðu ofurstjörnu kvik-
myndanna, á meðan frægðarsól
Baldwin lækkaði að sama skapi á
stjörnuhimninum.
Árið 1991 lék Baldwin í gaman-
myndinni The Marrying Man, sem
gerði fátt fyrir hann annað en að hann
kynntist mótleikara sínum, Kim Bas-
inger. Þau giftu sig skömmu síðar og
eignuðust dótturina Ireland Eliesse,
á þeim ágæta degi 23. október 1995.
Þau hjónakornin hafa víst sótt um
skilnað nú nýverið. Þannig ganga
kaupin fyrir sig á Hollywood-eyrinni.
Baldwin fékk mikið lof fyrir næstu
myndir, A Prelude to a Kiss (’92) og
Glengarry Glen Cross (’92), það féll
engu síður í skuggann af röð mistaka
á borð við Malice (’93), The Getaway
(’94) og The Juror (’96).
Leikarinn fékk uppreisn æru í
hinni rómuðu heimildarmynd Als
Pacino, Looking For Richard (’96), en
brotlenti samstundis í spennumynd-
inni Mercury Rising (’97), þar sem
hann lék á móti Bruce Willis. Sama ár
fór leikarinn með aðalhlutverkið á
móti Sir Anthony Hopkins í öræfa-
tryllinum The Edge, vanmetinni
gæðamynd gerðri af Lee Tamahori
(Once Were Warriors) eftir handriti
Davids Mamet. Baldwin gerði síðan
góðlátlegt grín að ímynd sinni í gam-
anmynd Juliu Roberts, Notting Hill
(’99).
Baldwin og hið virta og vandfúsa
leikritaskáld og leikstjóri David
Mamet fengu ljómandi góða dóma
fyrir State and Maine (’00). Þar fer
Baldwin með hlutverk Hollywood-
stjörnu sem er veik fyrir ungum
stúlkum og gerir það vitaskuld vel.
Um þessar mundir er leikarinn upp-
tekinn við að leikstýra The Devil and
Daniel Webster þar sem hann leikur
Webster, útbrunnið leikritaskáld sem
selur djöflinum sál sína fyrir fé og
frama. Með hlutverk djöfsa fer eng-
inn annar en Sir Anthony.
ALEC
BALDWIN
Stjörnurkvikmyndanna
eftir Sæbjörn Valdimarsson
FÓLK Í FRÉTTUM
50 ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
GLENGARRY GLEN CROSS (1992)
½ Leiðir Baldwin og
Davids Mamet liggja oftlega
saman, sem er ótvíræð við-
urkenning á hæfileikum leik-
arans því að leikritaskáldið og
leikstjórinn er kröfuharður og
velur aðeins bestu menn sér til
fulltingis. Myndin er byggð á
Tony-verðlaunuðu Broadway-
verki hans en í kvikmynda-
handritinu bætti Mamet við eitt
hlutverkið með vin sinn í huga.
Með þeim árangri að Baldwin,
sem yfirmaður fasteignasöl-
unnar sem verkið gerist á,
skyggir á sína virtu meðleikara í
stuttri en kynngimagnaðri inn-
komu þar sem hann tekur blæk-
urnar eftirminnilega á beinið.
Atriðið er með þeim minnis-
stæðari í áraraðir hvað leik
snertir. Blækurnar eru ekki
túlkaðar af neinum aukvisum; Al
Pacino, Jack Lemmon, Ed Harr-
is, Jonathan Pryce, Alan Arkin
og Kevin Spacey. Grimm mynd
um óvægið umhverfi sjúskaðrar
fasteignasölu þar sem tauga-
strekktir, kokhraustir sölumenn,
lafhræddir við að fá pokann sinn
hjá yfirmanninum (Baldwin),
ramba á barmi taugaáfalls.
THE HUNT FOR RED OCTOBER
(1990) ½ Kafbátaforingi
nr. 1. (Sean Connery) í Rauða
hernum er að prófa helstu víg-
vél flotans, kafbát búinn öllum
hugsanlegum tækni- og dráps-
útbúnaði. Meðal annars á ekki
að vera hægt að finna hann.
Notar tækifærið og hyggst
brúka skipið sem reisupassa til
Bandaríkjanna. Sovétmenn
reyna allar kúnstir til að hafa
uppá skipinu, telja jafnvel Kön-
um trú um að kafteinninn sé
genginn af vitinu og hyggist
gera sprengjuárás á New York.
En CIA-maðurinn Jack Ryan
(Alec Baldwin) kemur til skjal-
anna og hefst nú kapphlaup um
menn og tækni. Mikill hæga-
gangur, en ráðning leikstjórans
John McTiernans (Die Hard)
bendir til að mikið hafi átt að
leggja uppúr spennunni, enda
fer lítið fyrir kjarnorkuádeilu
bókarinnar. Sviðsmyndin er
vönduð. Jafnan skemmtun,
Baldwin og Connery í fínu
formi, en gallinn sá að það ligg-
ur í loftinu að allt fari vel að
lokum.
LOOKING FOR RICHARD (1996)
Forvitnilegt, fyndið og í
alla staði merkilegt innlegg í
verk Shakespeare á hvíta tjald-
inu.
Leikarinn Al Pacino leitar
hófanna með uppsetningu á Rík-
harði III í Bandaríkjunum og
kvikmyndar verkið að hluta.
Ekki síst áhugavert að fylgjast
með undirbúningi stórleikarans
fyrir átökin við eina marg-
slungnustu persónu leikbók-
menntanna. Lítið síðri ánægja
að fylgjast með hágæðamann-
skap eins og Alec Baldwin,
Kevin Spacey, Harris Yulin og
Winonu Ryder.
Alec þykir
standa sig einna
best leikara í
Pearl Harbour.
Baldwin sem Jack Ryan í Leitinni að Rauðum október.
Baldwin í
hlutverki
sínu í kvik-
myndinni
The Edge
eftir vin sin
David Mam-
et.
ÞAÐ er með söknuði og trega
sem Davíð Þór Jónsson píanóleik-
ari og bassaleikarinn Valdimar
Kolbeinn Sigurjónsson sjá á eftir
félaga sínum úr djasstríóinu Flís,
trymblinum Helga Svavari Helga-
syni, í nám til Kaupmannahafnar.
Þar hyggst hann nema við hinn
rómaða skóla Rytmisk Musik-
konservatorium.
En í kvöld ætla þeir þurrka tár-
in af hvörmunum og halda sér-
staka kveðjutónleika í Húsi mál-
arans og hefjast þeir kl. 21.30.
Bannað að naga
sig í handarbakið
Flís var stofnað haustið 1998 og
hefur tríóið síðan verið mjög
virkt og fulltrúi Íslands á mörg-
um djasshátíðum ungliða, þar af
leiðandi hefur það oft verið nefnt
„verðlaunatríóið“. Þeim hefur lít-
ið tekist að spila saman í sumar
þar sem þeir hafa verið að spila
vítt og breitt í mörgum hljóm-
sveitum hver um sig en tríóið
spilaði þó opinberlega á þjóð-
lagahátíðinni á Siglufirði og fékk
fyrir rífandi dóma.
„Við verðum að nota tímann
þangað til Helgi fer svo að við
verðum ekki að naga okkur í
handarbakið í allan vetur,“ segir
Valdi Kolli.
„Við viljum halda góða tón-
leika, fylla húsið af fólki og óska
Helga góða ferð til Danmerkur.
Þannig að hann fær mörg sóló í
hverju lagi í kvöld,“ bætir Davíð
Þór við glottandi.
Þótt tríóið sé þekktast fyrir
snilldarlegan djassleik hafa
drengirnir gaman af að fikta við
aðrar tónlistartegundir og drepa
þá víða niður. Síðastliðinn
fimmtudag héldu þeir tónleika á
Vegamótum.
„Stemmningin var þannig að
við bara spiluðum af fingrum
fram og þetta var svona afslöpp-
uð kaffihúsatónlist með góðum
hrynhita,“ segir Valdi Kolli.
„Svo fór Helgi að væla að hann
vildi spila „sving“ en það passaði
ekki við og það gaus upp einhver
skrýtin lykt þannig að við hættum
því. Í kvöld spilum við hins vegar
góðan djass í Húsi málarans,“
segir Davíð Þór.
„Nei, við ætlum að spila sitt lít-
ið af öllu sem við höfum tekið fyr-
ir svona seinustu tvö árin,“ mót-
mælir Helgi sem er rétt í þessu
að koma úr bólusetningu. „Það
verður „sving“, eitthvað af raf-
magnaðri tónlist og jafnvel þjóð-
lagastemmning í sumum lögunum.
Þannig stiklum við á því helsta.“
– Þetta eru þó ekki loka-
tónleikar Flís?
„Nei, nei, nei,“ segir tríóið í
einum kór.
Valdi Kolli: „Við sendum efni
og nótur milli landa til að vinna
með og svo þegar Helgi kemur
heim um jólin verður haldið
áfram að spila.“
Helgi Svavar: „En ég veit ekki
hvort ég ætla að koma heim um
jólin.“
Davíð Þór: „Þú verður að gera
það. Ég er að fara að taka upp
plötu.“
Helgi Þór: „Allt í lagi. Þá kem
ég.“
Kveðjutónleikar í Húsi málarans
Stiklað á því helsta
Morgunblaðið/Golli
Djasstríóið Flís er búið að lofa hinu og þessu fyrir kvöldið í kvöld.
HEDWIG, Lofkastalinn, KL. 20.30
lau 25/8, lau 1/9
RÚM FYRIR EINN, Iðnó, KL. 12
fös 24/8, fös 31/8,
súpa og brauð innifalið
Miðsala kl. 11—16, sími 552 3000
-
11 * $
-
#
"
A
,
"
@ *
,
#
#
&
14 D *
7
9 * %*
3,$
,
.
4,$
WAKE ME UP e. Hallgrím Helgason
Stórsöngleikur Leikfélagsins WMU
VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA -
AUKASÝNINGAR
FIMMTUDAGINN 23. ÁGÚST KL. 20.00
SUNNUDAGINN 26. ÁGÚST KL. 20.00
ATH. ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
HEFST AFTUR EFTIR SUMARFRÍ
LAUGARDAGINN 25. ÁGÚST KL. 20.00
LAUGARDAGINN 01. SEPTEMBER KL. 20.00
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Stóra svið