Morgunblaðið - 16.09.2001, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 11
rileg við nasismann“
VLADÍMÍR PÚTÍN RÚSSLANDSFORSETI Í RÆÐU Í JEREVAN Í ARMENÍU
ÞEGAR seinni farþegaþotan
skall á syðri turni World Trade
Center var Dick Cheney varafor-
seti límdur við sjónvarpið á skrif-
stofu sinni í Hvíta húsinu. Klukk-
an var 9.03 að staðartíma.
Öryggisvörður hans reif í hand-
legg honum og leiddi hann í
miklum flýti niður í kjallarann
þar sem er að finna neyð-
arstjórnstöð Bandaríkjaforseta,
hert byrgi sem á að geta staðist
kjarnorkuárás.
Þessi lýsing kemur fram í dálki
sem William Safire, dálkahöf-
undur við bandaríska dagblaðið
New York Times, ritaði í blaðið á
föstudag. Safire hefur löngum
verið vinsæll meðal bandarískra
repúblikana og hefur þótt eiga
góðan aðgang að valdamönnum
úr þeim flokki vestra. Var hann
m.a. einn af ræðuhöfundum Rich-
ards Nixons Bandaríkjaforseta.
Í byrginu bættust þau Condol-
eezza Rice öryggisráðgjafi og
Norman Mineta samgönguráð-
herra í hópinn. Þeim var sagt að
sex farþegaflugvéla væri saknað
og væri hugsanlegt að þeim yrði
öllum beitt til árása.
Klukkan 9.45 að staðartíma var
þriðju þotunni flogið á varnar-
málaráðuneytið í Washington.
Safire segir í dálki sínum að
leyniþjónustan hafi náð að hlera
leynileg samskipti hryðjuverka-
mannanna þar sem sagt hefði
verið: „Air Force One er næst.“
Þota sú sem Bandaríkjaforseti er
í hverju sinni nefnist á ensku „Air
Force One“ en forsetaembættið
ræður yfir nokkrum flugvélum.
Þegar upplýsingar um þessi sam-
skipti bárust var Bush forseti við
það að fara um borð í flugvél sína
í Flórída. Cheney hringdi í hann
og hvatti hann til þess að snúa
ekki til Washington. Að sögn Saf-
ire sagði forsetinn þá að hann
vildi ekki láta „einhverja hryðju-
verkamenn“ komast upp með að
halda forseta Bandaríkjanna ut-
an höfuðborgarinnar á hættutím-
um. Þá tjáði leyniþjónustan for-
setanum að hótun hefði borist og
orðalagið „benti til þess að
hryðjuverkamennirnir hefðu
upplýsingar um ferðir hans og
dvalarstað“. Ákveðið var að orr-
ustuþotur skyldu fylgja flugvél
forsetans.
Safire segir í dálki sínum í New
York Times að menn hljóti að
hafa af því áhyggjur að hryðju-
verkamennirnir hafi búið yfir
þessum upplýsingum. Það gefi til
kynna að „moldvarpa“, flugu-
maður, sé á kreiki í Hvíta húsinu,
innan öryggissveita forsetans, Al-
ríkislögreglunnar (FBI) eða
leyniþjónustunnar, CIA. Stríð
Bandaríkjanna gegn hryðju-
verkamönnum kunni því að þurfa
að hefjast á heimavelli.
„Moldvarpa“ í
Hvíta húsinu?
Bandaríski dálkahöfundurinn William Saf-
ire segir í New York Times að grunsemdir
hljóti að vakna um að hryðjuverkamenn-
irnir hafi átt samstarfsmann innan banda-
rískra leyniþjónustu- og öryggisstofnana,
jafnvel í sjálfu Hvíta húsinu.
KRÖNUM og jarðýtum er beitt til
að fjarlægja stærstu og þyngstu
rústahlutana en sjálft starfið fer
fram með öðrum og ekki jafn
stórtækum hætti; björgunarmenn
með stikur úr plasti feta sig var-
lega í gegnum rústir World
Trade Center í New York í þeirri
von að enn sé einhvern að finna á
lífi í þessu jarðneska víti. Vonin
verður sífellt veikari en áfram er
haldið í leðjunni, rigningunni og
fnyknum.
Þeir eru að niðurlotum komnir
en andinn er óbugaður. Hundruð
sjálfboðaliða dreifa sér um rúst-
irnar og ekki hafa aðstæður batn-
að eftir úrhellið á föstudag.
„Hér er öllum kalt, allir ör-
þreyttir og hér er hættulegt að
vera,“ segir einn sjálfboðalið-
anna, Jim Roberts, sem hefur
fleygt sér á dýnu í nokkrar mín-
útur. „En þetta er borgin okkar,“
bætir hann við um leið og hann
rís á fætur til að hefja störf á ný.
Enn einn dagurinn hefur liðið
og fá tilefni hafa gefist til að
gleðjast fremur en aðra. Engir
hafa fundist á lífi síðustu dagana.
Búið er að ná 124 líkum úr rúst-
unum, staðfest hefur verið að 184
fórust og enn er meira en 4.700
manns saknað. Aðeins fimm
manns hafa fundist á lífi í rústum
World Trade Center frá því á
þriðjudag. Og tekist hefur að
safna saman 400 líkamsleifum.
Á meðal þeirra sem saknað er
eru 23 lögreglumenn frá New
York og hundruð slökkviliðs-
manna. Aðeins 13 þeirra eru
fundnir.
En vonir vöknuðu í gær – þótt
á öðru sviði væru. Yfirvöld
skýrðu frá því að fyrsta hand-
takan hefði farið fram – maður
var í haldi í New York og talinn
„sérlega mikilvægt vitni“ sem
væntanlega þýðir að talið er að
hann búi yfir upplýsingum, sem
bent geti til þeirra sem frömdu
þetta lygilega ódæðisverk.
Og George Bush forseta lán-
aðist að lyfta anda björg-
unarmannanna á föstudag þegar
hann kom til New York. Með
brunahjálm á höfði sér og gjall-
arhorn í hendi þakkaði hann
björgunarmönnum fyrir störf
þeirra og kvað þjóðina alla stolta
af þeim. Þeir svöruðu með því að
hrópa „USA, USA“ í kór.
En þrátt fyrir samhug og sam-
stöðu þjóðarinnar allrar er þeim
sem fara um rústirnar þar sem
World Trade Center stóð forðum
á Manhattan-eyju að verða ljóst
að þetta starf á eftir að standa
lengi, lengi yfir. Leitin að fórn-
arlömbunum gengur svo hægt og
ekki að undra; treysta þarf á
handaflið eitt við leitina.
Mynduð er mannleg keðja –
slökkviliðsmenn, lögreglumenn,
þjóðvarðliðar, byggingaverka-
menn, læknar – tómar fötur eru
látnar ganga inn í holur, hella og
göt í rústunum. Einhvers staðar
þarna inni eru björgunarmenn
með ljós og hunda að leita að
fórnarlömbum, líkum og líkams-
hlutum. Nú þegar hafa tíu þús-
und tonn af því sem áður voru
byggingar verið flutt á brott, gíf-
urlegt magn en aðeins örlítið
brot af því sem áður var ein
hæsta bygging í heimi þar sem
samtals voru 220 hæðir, 1,25
milljónir tonna af stáli.
Þeir vinna á 12 tíma vöktum en
oftast er ekkert hugsað um hvað
tímanum líður. En ekki neita þeir
því; á föstudaginn var þetta veru-
lega erfitt. „Manni er kalt, hend-
urnar dofna og stálið er sleipt,“
segir hinn fertugi Jesus Agosto,
sjálfboðaliði frá New Jersey.
„Maður verður að fara hægar yf-
ir,“ segir félagi hans, Jerry Shike
frá Connecticut.
En þótt vindurinn og regnið
geri lífið erfitt er vonin enn til
staðar. „Ég var að segja við sjálf-
an mig: „Svona, svona, nú vil ég
heyra hljóð, ég vil hljóð,“ segir
Fred Medins. En í hvert skipti
sem þeir telja sig heyra veikt
hróp eða hreyfingu hefur það
reynst rangt.
Yfirvöld í New York hafa hafn-
að aðstoð hundruða manna sem
boðið hafa fram krafta sína. Á
svæðinu eru nú eins margir og
komið verður við þar. En samt
bíða margir við miðstöðina þar
sem skráning sjálfboðaliða fer
fram í þeirri von að kallið komi.
Vonin veikari
í leðjunni
og fnyknum
New York. Associated Press.
Reuters
Björgunarmenn hvílast í rústum World Trade Center.
Björgunarmenn
með stikur úr plasti
feta sig varlega í
gegnum rústir
World Trade Center
í New York í þeirri
von að enn sé ein-
hvern að finna á lífi í
þessu jarðneska víti.
kenna Bandaríkjamönnum um allt
mótstreymi múhameðstrúar-
manna. Í Súdan stofnaði hann ým-
is fyrirtæki, þar á meðal sútunar-
stöð, tvo stóra búgarða og stórt
vegagerðarfyrirtæki. Í Súdan var
litið á hann sem hetju, en hjá CIA
fóru að vakna grunsemdir um að
hann væri farinn að senda fé til
herskárra múhameðstrúarmanna
um heim allan.
Lítum á hann
sem íslamska hetju
Eftir öldu hryðjuverka, þar sem
nafn Bins Ladens kom við sögu,
fóru Bandaríkjamenn og Sádi-
Arabar að þrýsta á Súdani að vísa
honum úr landi þannig að hann
hefði ekki lengur samastað til að
athafna sig. Omar Hassan Ahmed
Al-Bashir, forseti Súdans, sagði í
viðtali við Frontline að hann hefði
talið betra að Bin Laden yrði
áfram í Khartoum því að þá væri
hann upptekinn af fyrirtækjum
sínum og auðveldara að hafa auga
með honum. Bin Laden fór hins
vegar til Afganistans vorið 1996 og
með honum 200 fylgismenn og um
sumarið gaf hann út heilagan úr-
skurð um stríð á hendur Banda-
ríkjamönnum. 1998 voru framin
hryðjuverk í Nairobi í Kenýa og
Dar Es Salaam í Tansaníu og
sendiráð Bandaríkjamanna þar
sprengd í loft upp. Böndin beind-
ust að Bin Laden. Clinton-stjórnin
greip til aðgerða, réðst á búðir
Bins Ladens í Afganistan og skaut
sprengjum á lyfjaverksmiðju í
Súdan án þess að Bandaríkjamenn
gætu fært óyggjandi sönnur á að
verksmiðjan tengdist Bin Laden.
Í Frontline-þættinum er talað
við Ali Shee, formann ráðs ísl-
amskra bænapresta í Kenýa:
„Hann er hetja. Ekki aðeins í
Austur-Afríku, heldur alls staðar.
Við lítum á hann sem íslamska
hetju vegna þess að hann hefur
lýst yfir tryggð sinni við íslam. En
hann er ekki hryðjuverkamaður.
Hann er að verja íslam. Þegar
árásargirni beinist að íslam stend-
ur hann upp og ver íslam. Þegar
hann stendur upp og ver íslam er
hann kallaður hryðjuverkamaður.“
Fimm milljónir dollara hafa ver-
ið settar til höfuðs Osama Bin
Laden og Bandaríkjamenn segja
að líklegast sé að hann standi að
baki hryðjuverkunum, en enginn
hefur enn lýst ábyrgð á þeim á
hendur sér. Ekki er vitað hversu
mikið Bin Laden á eftir af arfinum
og ljóst að hann gengur ekki frek-
ar í kistur fjölskyldunnar. Í
Frontline-þættinum er haft eftir
fyrrverandi bókhaldara hans að
hann eigi í mesta lagi um 20 millj-
ónir dollara og það sé fásinna að
hann eigi 200 milljónir dollara eða
meira. Í nýjasta hefti tímaritsins
The Economist segir að það veki
nokkrar efasemdir um bolmagn
Bins Ladens að í réttarhöldunum,
sem haldin voru vegna sprenging-
anna í sendiráðunum í Austur-Afr-
íku, gáfu fyrrverandi samstarfs-
menn hans til kynna í vitnisburði
að sjóðir hans væru að renna til
þurrðar. Þeir sögðu einnig að í
röðum liðsmanna hans væri hver
höndin upp á móti annarri, þar
væru rifrildi og ringulreið daglegt
brauð. Bin Laden kann að vera
farið að skorta fé, en það eru eng-
ar vísbendingar um að hann sé
farið að skorta sannfæringu.
Reuters
hryðjuverkamannanna í Phnom
ginni. Bandaríkjamenn gerðu
hard Nixons Bandaríkjaforseta.