Morgunblaðið - 16.09.2001, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 16.09.2001, Qupperneq 23
Hvað veldur? Það kann að vera freistandi að álykta sem svo af samanburði á fjöl- miðlaumræðu um þá þrjá gagna- grunna, sem hér hafa verið gerðir að umtalsefni, að yfirvöld á Bretlandi og í Svíþjóð hafi einfaldlega sneitt hjá þeim vanköntum sem gagnrýnendum íslenska grunnsins hefur orðið star- sýnt á. Tiltæk gögn gefa þó ekki til- efni til slíkrar ályktunar. Hvað varðar samanburð á lagaumhverfi gagna- grunna Breta og Íslendinga staðhæfa þau Kaye og Martin, sem áður voru nefnd, að „skipan þessara mála í Bretlandi sé ófullnægjandi í saman- burði við Ísland“ og bresku ríkis- stjórninni „beri að kanna hvernig lög- um megi breyta“ svo að viðunandi verði“. „Ólíkt því sem gerist á Ís- landi,“ segja þau, „hafa Bretar yfir- leitt látið heilbrigðisstéttirnar sjálfar um að hafa eftirlit með rannsóknum, án tilkomu þingsins. Sem dæmi má nefna að engin löggjöf er til í Bret- landi um sjúklinga en á Íslandi voru sett lög árið 1997 þar sem kveðið er á um reglur um rannsóknir á heilsu manna.“ Frá erfðafræðinefnd til miðlægs gagnagrunns Athyglin sem beinst hefur að ís- lenska gagnagrunninum heima fyrir er þeim mun áhugaverðari ef haft er í huga að fyrirrennari hans, gagnasafn erfðafræðinefndar Háskóla Íslands, sem að miklu leyti var fjármögnuð af kjarnorkunefnd Bandaríkjanna, hef- ur legið í þagnargildi nánast frá upp- hafi. Hugmyndir þær sem erfðafræði- nefnd kynnti á sínum tíma og lögð voru drög að á sjöunda áratugnum eru furðu líkar áformum um miðlæg- an gagnagrunn á heilbrigðissviði. Í greinargerð nefndarinnar frá árinu 1974 segir:  „Meginstarfsemi nefndarinnar … hefur verið fólgin í því að skrá á vél- kort og safna á einn stað ýmsum erfðafræðilegum upplýsingum um Íslendinga. Skráð hafa verið al- menn lýðfræðileg (demografisk) atriði, og við þá skrá tengdar upp- lýsingar um sjúkdóma, blóðflokka og ýmis önnur einkenni eðlisfars einstaklinga. … Á vegum nefndar- innar er nú að verða til spjaldskrá, þar sem í eru upplýsingar skráðar á vélkort um íslensku þjóðina. … Þetta safn má nýta til ýmissa erfða- fræðilegra, læknisfræðilegra, ætt- fræðilegra og þjóðfélagsfræðilegra rannsókna“.(6) Augljóslega hefur margt breyst frá því að erfðafræðinefnd var sett á laggirnar árið 1966: Líf- og upplýs- ingatækni hefur tekið stakkaskiptum, vitneskju um erfðamengi mannsins hefur fleygt fram og nýjar hugmyndir um persónuvernd hafa rutt sér til rúms, svo að nokkuð sé nefnt. Engu að síður vekur þögnin um starfsemi erfðafræðinefndar nokkra furðu ef hafðar eru í huga ákafar deilur um gagnagrunn á heilbrigðissviði. Um- fangsmikil gagnasöfnun hefur farið fram á vegum nefndarinnar og margs konar rannsóknir hafa verið stundað- ar í skjóli hennar þar sem tengdar hafa verið saman erfðaupplýsingar og gögn um heilsufar og ættartengsl. Ólík viðbrögð við áformum um gerð miðlægra gagnagrunna á heilbrigðis- sviði hér á landi annars vegar og í Bretlandi og Svíþjóð hins vegar verða varla skýrð með því einu að þessir gagnagrunnar séu ólíkir að umfangi eða uppbyggingu. Eins og fram hefur komið er ekki um stórkostlegan mun að ræða á umræddum gagnagrunn- um. Ástæður þess að umræðan er jafnbreytileg og raun ber vitni eru ef- laust margar og flóknar. Hér eru ekki tök á ræða þær nánar, en þó má nefna ólíka sögu þeirra heilbrigðisstofnana sem um er að ræða, mismunandi hug- myndir um lífvísindi og mismunandi hefðir í samstarfi rannsóknafólks, heilbrigðisstétta og almennings. Svonefnd „ný erfðafræði“ og nýleg- ar framfarir í líftækni hafa það óhjá- kvæmilega í för með sér að rannsókn- ir í lífvísindum og heilsugæsla snýst í æ ríkari mæli um félagslegar stærðir – um fjölskyldur, ættir og heilu sam- félögin.(7) Gagnagrunnar af því tagi sem hér hafa verið til umræðu undir- strika þetta. Ef til vill er það einmitt togstreitan milli einstaklings og sam- félags sem er hvað athyglisverðust í íslensku gagnagrunnsumræðunni – og um leið erfiðasta úrlausnarefnið. Heimildir: (1) Athugun þessi er hluti af stærra verkefni á vegum Mannfræðistofnunar Háskóla Íslands, sem styrkt hefur verið m.a. af rannsóknaráði, Rannsóknasjóði háskólans og verkefni Rann- sóknaþjónustu HÍ og Nýsköpunarsjóðs at- vinnulífsins „Upp úr skúffunum“. Nánari upp- lýsingar um verkefnið og efni þessarar greinar verða birtar í væntanlegri grein okkar „For whom the cells toll: debates about biomedicine“ í tímaritinu Current Anthropology. (2) Klaus Höyer 2001, „Gen-etik og sam- tykke: om en ‘etisk model’ for genetisk for- skning i Västerbotten“. Kulturella Perspektiv 2: 1–9. (3) Jane Kaye og Paul Martin 2000, „Safegu- ards for research using large-scale DNA collec- tions“. British Medical Journal 321(4): 1146–49. (4) Sjá t.d. „Sweden sets ethical standards for use of genetic ‘biobanks’“, Nature (1999, 400: 3. (5) Ef til vill má þó vænta opinberrar um- ræðu í Bretlandi í kjölfar yfirlýsingar Gene- Watch UK frá 9. maí sl., þar sem segir að vegna þess að nauðsynlegt lagaumhverfi hafi ekki verið tryggt skuli „leggja áform um gagna- grunn á hilluna“. (6) Greinargerð um erfðafræðirannsóknir á Íslandi 1974. Erfðafræðinefnd Háskóla Ís- lands. (7) Sjá t.d. Kaja Finkler 2000, Experiencing the New Genetics: Family and Kinship on the New Medical Frontier. Philadelphia: Univers- ity of Pennsylvania Press. Morgunblaðið/RAX inu hjá Íslenskri erfðagreiningu. gnagrunninn Gísli Pálsson er forstöðumaður Mannfræðistofnunar Háskóla Ís- lands. Kristín Erla Harðardóttir er verk- efnisstjóri við sömu stofnun. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 23
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.