Morgunblaðið - 16.09.2001, Page 24
24 SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SÓLIN hefur sent geisla sínayfir austurborgina þegarVilhjálmur skýst inn úrdyrunum í höfuðstöðvumSambands íslenskra sveit-
arfélaga á Háaleitisbrautinni í morg-
unsárið. Hann er með þykkan blaða-
bunka undir öðrum handleggnum og
afsakar kurteislega að hafa látið bíða
eftir sér. Helgin hjá formanni Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga hefur
verið erilsöm. Hann hefur þeyst
landshluta á milli til að halda erindi
og kynna sér sveitarstjórnarmál á
breiðum grundvelli. Eftir aðeins
nokkra klukkutíma taka við skyldur
borgarfulltrúans á erfiðum stjórnar-
fundi í Landsvirkjun.
Ekki er samt annað að sjá en Vil-
hjálmur hafi alla þræði í hendi sér og
áhuginn á málefninu leynir sér ekki.
Augun glampa þegar hann lýsir því
að ríki og sveitarfélög eigi að vera
samherjar og sjá til þess að þau verk-
efni, sem hið opinbera á annað borð
annast, verði svo sem frekast er kost-
ur á hendi þess stjórnstigs sem nær
er íbúunum.
„Þessi stefna tengist beint helsta
viðfangsefni Sambandsins á síðustu
árum, þ.e. sameinginu sveitarfélag-
anna,“ segir hann. „Sveitarfélögun-
um hefur verið að fækka um 80 á að-
eins 10 árum. Ferlið heldur áfram og
væntanlega verða sveitarfélögin orð-
in 40 til 60 í staðinn fyrir 120 eftir 10
ár. Meginmarkmiðið með sameining-
unni er að styrkja og efla sveitar-
stjórnarstigið, m.a. til að sveitar-
stjórnirnar eigi auðveldara með að
takast á við vandasamari stjórnsýslu
og viðameiri verkefni eins og rekstur
grunnskólanna.
Hefur ekki hægt á sameiningar-
ferlinu á síðustu árum?
Eins og gengur eru ekki allir jafn
sáttir við þróunina. Hingað til hafa
ákvarðanir verið teknar í frjálsum
kosningum. Nú verða sveitarstjórn-
armenn að fara að gera upp við sig
hvort að ástæða er til að fara aðrar
leiðir. Annars er í sjálfu sér ekki um
margar leiðir að ræða. Lagasetning
væri trúlega hinn kosturinn.
Hvað finnst þér sjálfum?
Ég hef áður lýst því yfir að ef ekki
gangi nægilega vel að stuðla að sam-
einingu sveitarfélaganna með frjáls-
um kosningum þurfi að huga að öðr-
um leiðum. Á hinn bóginn er jafn
ljóst að takmarkaður árangur næst í
sameiningu sveitarfélaga nema í
sæmilegri sátt við íbúana og sveit-
arstjórnirnar í hverju sveitarfélagi.
Grunnskólinn vaxið og dafnað
Hvernig hefur sveitarfélögunum
gengið að ráða við rekstur grunn-
skólanna?
Fyrst ætla ég að taka fram hversu
þýðingarmikið var að gott samkomu-
leg náðist á milli ríkisins og sveitarfé-
laganna um flutninginn á sínum tíma.
Aldrei áður hefur jafn stórt verkefni
verið flutt með svipuðum hætti til
sveitarfélaganna. Óhætt er að segja
að foreldrar, kennarar og sveitar-
stjórnarmenn séu sammála um að
flutningurinn og reksturinn hafi
gengið ákaflega vel fyrir sig. Ekki
aðeins hefur skólahaldið fengið yfir
sig yfirbragð friður og festu á nýjan
leik. Skólastarfið hefur vaxið og
dafnað undir handarjaðri sveitarfé-
laganna um landið allt.
Metnaðurinn sést best á því að
flest sveitarfélaganna hafa látið
meira fé af hendi rakna til rekstr-
arins heldur en tekjustofnarnir
gerðu ráð fyrir í upphafi. Með síðasta
kjarasamningi fara spennandi tímar í
hönd. Samningurinn er tímamóta-
samningur að því leyti að hann felur í
sér margvíslega möguleika til að
bæta og efla skólastarfið. Sveitar-
félögin hugsa sér því gott til glóð-
arinnar að brydda upp á frekari nýj-
ungum í því skyni að halda áfram að
efla skólastarfið. Ekki er því hægt að
segja annað en hvert sem litið er hafi
verkefnið tekist vel.
Þú nefnir síðustu kjarasamninga.
Hvernig hefur sveitarfélögunum
gengið að fjármagna umtalsverðar
launahækkanir til stórra hópa á borð
við kennara og leikskólakennara?
Ég sagði við samningagerðina og
segi enn að sveitarfélögin hafi teygt
sig út á ystu nöf miðað við fjárhags-
getu sína. Ekki hvað síst til að ná
þessum tímamótasamningi við kenn-
arana og svo leikskólakennara. Núna
hafa sveitarfélögin þurft að draga úr
framkvæmdum og hagræða í rekstri
til að mæta kostnaðaraukanum.
Flutningur málefna
fatlaðra í undirbúningi
Hvernig standa viðræður um
flutning málefna fatlaðra til sveitar-
félaganna?
Eins og fram hefur komið staðfesti
fulltrúaráð Sambands íslenskra
sveitarfélaga samhljóða vilja sveitar-
félaganna til að taka yfir málefni fatl-
aðra 1. janúar árið 2003 á fulltrúa-
ráðsfundi sínum í vor. Á hinn bóginn
var mælt með því að viðeigandi frum-
vörp um breytingu á félagsþjónustu-
lögum og tekjustofnum sveitarfélaga
yrðu afgreidd samtímis á næsta
haust- eða vorþingi. Félagsmálaráð-
herra hafði ætlað að afgreiða fyrra
frumvarpið í vor og hitt í haust. Eftir
samþykkt fulltrúaráðsins ákvað rík-
isstjórnin að draga frumvörpin til
baka. Samband íslenskra sveitarfé-
laga hefur átt í viðræðum við félags-
málaráðuneytið um framhald máls-
ins í sumar. Bréf hafa farið á milli
stofnana og þar hefur komið fram
skýr vilji sveitarfélaganna til að taka
við verkefninu. Í mínum huga leikur
enginn vafi á því að sveitarfélögin
eru fullfær um að sinna þjónustunni.
Sveitarfélögin hafa verið að sinna
annars konar félagslegri þjónustu.
Þessa þjónustu mætti samþætta
annarri félagslegri þjónustu á vegum
sveitarfélaganna. Ótalið er að vafa-
laust væri hægt að gera þjónustuna
markvissari og hagræða á ýmsum
sviðum. Hins vegar er algjört grund-
vallaratriði að tekjustofnar vegna
verkefnisins taki ekki aðeins mið af
núverandi þörf heldur óhjákvæmi-
legri aukningu á næstu árum. Ríki og
sveitarfélög hafa látið gera kostnað-
aráætlun vegna verkefnisins og ríkir
í meginatriðum sátt um niðurstöð-
una.
Hvað erum við að tala um háa upp-
hæð á ári?
Um 5 milljarða á ári miðað við nú-
verandi þörf. Kostnaðurinn við
grunnskólann nemur til samanburð-
ar um 11 milljörðum á ári.
Ertu bjartsýnn á að samkomulag
náist um flutninginn?
Já, það er ég. Öll undirbúnings-
vinna hefur staðfest hversu skyn-
samlegt sé að færa málefni fatlaðra
yfir til sveitarfélaganna. Spurning-
inn snýst frekar um hvort allt verði
orðið klappað og klárt fyrir 1. janúar
árið 2003.
Eins og allir vita starfa ýmis öflug
félagasamtök og sjálfseignarstofnan-
ir við málaflokkinn. Ég vil sérstak-
lega taka fram að gert er ráð fyrir því
að hlutverk þeirra verði í meginatrið-
um það sama eftir flutninginn.
Löggæsla í föstum skorðum
Verður haldið áfram að færa verk-
efni frá ríki til sveitarfélaganna, t.d.
heilsugæsluna?
Ég er enn ósáttur við að heilsu-
gæslan skyldi vera færð yfir til rík-
isins árið 1990. Ég tel að heilsugæsl-
an og hluti sjúkrahússþjónustunnar
eigi að vera í höndum sveitarstjórn-
anna. Vonandi getur orðið af því í
framtíðinni.
Hvað um staðbundna löggæslu?
Skiptar skoðanir eru á því meðal
sveitarstjórnarmanna. Áhuginn virð-
ist vera mestur í fjölmennasta þétt-
býlinu. Ég hef sjálfur ekki verið sér-
stakur talsmaður þess að
sveitarfélögin taki að sér staðbundna
löggæslu. Engu að síður er alveg
sjálfsagt að fara í gegnum rök með
og á móti og taka ákvörðun í fram-
Ríki og sveitarfélög
eiga að vera samherjar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir að flest hafi sveitarfélögin látið meira fé af hendi rakna til rekstrar
grunnskólanna en tekjustofnar hafi gert ráð fyrir í upphafi.
Mikið vatn hefur runnið til
sjávar frá því stofnþing
Sambands íslenskra sveitar-
félaga var sett í sal neðri
deildar Alþingis hinn 11.
júní árið 1945. Sameinuð
hafa sveitarfélögin lyft
grettistaki í ýmsum þjóð-
þrifamálum á rúmlega
hálfrar aldar vegferð sinni
innan sambandsins. Anna
G. Ólafsdóttir áttaði sig á
því í spjalli við Vilhjálm Þ.
Vilhjálmsson, borgarfull-
trúa og formann Sambands
íslenskra sveitarfélaga, að
aldrei hefðu verkefni sam-
bandsins verið jafnnátengd
þeirri grundvallarhugmynd
að nýta sveitarstjórnarstigið
til að gefa fólkinu í landinu
tækifæri til að hafa áhrif á
nánasta umhverfi sitt.