Morgunblaðið - 16.09.2001, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 31
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINS
Styrkir til bifreiðakaupa
Tryggingastofnun ríkisins veitir viðtöku umsóknum um styrki sem veittir eru
hreyfihömluðum til bifreiðakaupa og framfærendum barna sem fá umönnunargreiðslur.
Helstu skilyrði úthlutunar:
· Nauðsyn bifreiðar vegna hreyfihömlunar sé ótvíræð.
· Umsækjandi má elstur verða 70 ára á umsóknarári.
· Umsækjandi hafi ökuréttindi. Þó er heimilt að víkja frá því skilyrði tilnefni
umsækjandi ökumann.
· Kaup á bifreið eigi sér stað á umsóknarári eða fyrir 1. júlí 2002.
· Árstekjur séu undir kr. 2.205.060 (hjón kr. 4.410.120).
· Eignir í peningum og verðbréfum séu undir kr. 4.000.000 (hjón kr. 8.000.000).
Fjögur ár þurfa að líða á milli styrkveitinga og undirritar styrkhafi kvöð um eignarhald
bifreiðar á þeim tíma.
Umsóknareyðublöð vegna úthlutunar árið 2002 eru afhent í þjónustumiðstöð
Tryggingastofnunar ríkisins og hjá umboðsmönnum hennar um land allt. Einnig er hægt
að fá eyðublöð send.
Læknisvottorð á þar til gerðu eyðublaði skal fylgja umsókn.
Umsóknarfrestur er til 1. október 2001.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 560 4460 og á heimasíðu
Tryggingastofnunar www.tr.is.
AFGREIÐSLUNEFND BIFREIÐAKAUPASTYRKJA
Haustferðir Heimsferða
hafa fengið ótrúlegar und-
irtektir og nú eru margar
ferðir uppseldar í október og nóvember til þessarar fögru borgar. Beint
flug í október og nóvember og nú kynnum við nýja frábæra gistivalkosti
í hjarta Prag, góð 3 og 4 stjörnu hótel og spennandi kynnisferðir um
kastalann og gamla bæinn með íslenskum fararstjórum Heimsferða, þar
sem þú kynnist alveg ótrúlega heillandi mannlífi þessarar einstöku
borgar sem á engan sinn líka í Evrópu. Fáðu bæklinginn sendan.
Verð kr. 32.100
Flugsæti til Prag, 11. október,
skattar kr. 2.870, ekki innifaldir.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 39.970
M.v. 2 í herbergi, Pyramida, 11.
október, 4 nætur, m.v. 2 í herbergi
með morgunmat. Skattar innifaldir.
Viðbótargisting
Aðeins 10 herbergi í boði
Helgarferð til
Prag
11. október
frá kr. 32.100
með Heimsferðum
Nýbýlavegi 12, Kóp., sími 554 4433.
Haustlínan er komin
Munið buxurnar
á kr. 1.990
Ekki er mjög langt síðan ég var
beðinn að skrifa um það fyrirbæri í
íslensku máli sem kallast aukafalls-
liður, en það er eftir skilgreiningu
dr. Björns Guðfinnssonar „fallorð í
aukafalli sem stýrist ekki af neinu“.
Ég reyndi eftir bestu getu að
gera það sem ég var beðinn. Brátt
kom á daginn að miklu fleiri höfðu
gaman og fróðleik af þessu heldur
en mig hafði órað fyrir. Hvað eftir
annað hef ég verið beðinn að end-
urtaka þetta, og mun nú gera það,
lítið eitt breytt.
Svo segja bækur að mikla hæfi-
leika þurfi til að skipta öllu í þrennt,
sbr. heilaga þrenningu, en hér kem-
ur þrískiptingin af sjálfu sér: í þol-
falli, þágufalli og eignarfalli.
Aukafallsliðir í þolfalli („rægi-
legu falli“).
a) Tímaþolfall (lat. accusativus
temporis). Það táknar bæði hvenær
eitthvað gerist og hversu lengi eitt-
hvað varir. Eftir beiðni hef ég dæm-
in bæði á íslensku og latínu: Hann
kom laugardaginn fyrir páska.
Hún var hér vikutíma. Milites tres
annos in Gallia manebant. (Her-
mennirnir dvöldust þrjú ár í Gallíu.)
Athuga: Mjög færist í vöxt að
setja forsetningarnar í, á og um á
undan tímaþolfalli. Oftast er það
óþarft og ósjaldan til lýta: ?Hann
kom á laugardaginn fyrir páska.
Verst er þegar sagt er „á 17. júní“,
eða „á sautjándanum“ sem sumum
misheyrist „á sitjandanum“, eða „á
1. des.“ eða „á desinum“ sem sumir
misskilja. [Sjá og um þetta hjá JAJ
hér í blaðinu 12. ágúst sl.]
b) Leiðarþolfall (lat. acc. viae).
Það táknar auðvitað leiðina sem far-
in er: Hún fór sjóveg norður. Þau
óku Víkurskarð. Í fyrra dæminu er
ekki mikil „hætta“ á forsetningu.
En í síðara dæminu myndu margir
setja um á undan „Víkurskarð“, Ca-
esar tridui viam processit (þrídegis
hélt Caesar áfram veginn).
Leiðarþolfall getur hverfst yfir í
óeiginlega merkingu og orðið að því
sem kalla mætti háttarþolfall.
„Skjót annan veg, konungur.“ Þetta
fór annan veg en ég ætlaði. Í báðum
þessum dæmum er merkingarmun-
urinn óskýr, einkum hinu fyrra.
c) Mæliþolfall; ég veit svo sem
ekki hvað það kallast á latínu,
kannski acc. mensurae eða distanti-
ae. Þau voru fjóra kílómetra frá
mér. Hann stökk tólf álnir sléttar.
Smjörskakan vó tvö pund. Caesar
milia passuum tria ab Helvetiorum
castris castra ponit. (Caesar setur
niður herbúðir þrjú þúsund skrefa
frá herbúðum Helveta.) En þeir
„gulingjar“ myndu nú kannski vera
kallaðir Svissar eða Svisslendingar.
Athuga: Mörkin milli leiðar- og
mæliþolfalls geta verið óskýr, og
mér er kennt að distantia sé „very
rare“ = mjög sjaldgæft orð í klass-
ískri latínu.
d) Upphrópunarþolfall (acc. ex-
clamationis): „Augað mitt og augað
þitt/ó, þá fögru steina!“
(Ekki ?ó, þeir fögru steinar.) Al-
gengt í miðaldaritum: „Ó, mig aum-
an!“ Latínu: Heu, me miserum!
e) Þolfall með ópersónulegum
sögnum, svo sem mig langar, mig
iðrar. Sama fyrirbæri er í latínu:
paenitet me verborum = mig iðrar
orða minna, eða: miseret regem
hominis = konungurinn kennir í
brjósti um manninn.
Auðvitað gætu málrófsmenn
reynt að kalla þetta andlag með við-
komandi sögn, sbr. og ljóðlínurnar:
Sól gengur síð und múla/slíkt lang-
ar mig þangað. En í Fyrstu mál-
fræðiritgerðinni er m.a. þessi stór-
speki: „Contra verbosos noli
contendere verbis; sermo datur,
cunctis, animi sapientia paucis. Það
er svo að skilja: Hirð eigi þú að
þræta við málrófsmenn. Málróf er
gefið mörgum, en spekin fám.“
Og er nú mál að linni speki og
málrófi um sinn.
Áslákur austan kvað:
Ekki glúpnaði Skúli við goshvelli
eða guggnaði í neins konar voselli;
allar tennur í munni
og ennþá hann kunni
utanað Messuna á Mosfelli.
„Sannleikurinn er ekki í bókum, og
ekki einu sinni góðum bókum, held-
ur í mönnum, sem hafa gott hjarta-
lag.“
Þessi fleygu orð eru úr Alþýðu-
bókinni (1929) eftir Halldór Kiljan
Laxness. Í framhaldi af þessum
orðum má líka segja að fáar bækur
séu villulausar, jafnvel hinar vönd-
uðustu. Og svo er það spurningin
gamla: Hvað er sannleikur? (Þessu
hefur reynst erfitt að svara.) Og
einnig má spyrja: Hvað eru villur?
Það getur sannarlega verið ágrein-
ingur um hvað sé rétt og hvað sé
rangt í máli. Um það hef ég oftar en
einu sinni fjallað í þessum pistlum
og orðlengi ekki frekar um það í bili.
„Dissentiunt docti,“ sögðu Róm-
verjar. En það merkir: Hina lærðu
greinir á. Tökum t.d. beygingu
mannanafna. Hún er ekki alltaf ein
og söm í vönduðustu orðabókum,
enda kann hún að hafa breyst í ald-
anna rás.
Um þetta efni vitna ég til orða
próf. Baldurs Jónssonar í 1108
þætti og pistils JAJ (Jóns Aðal-
steins Jónssonar) hér í blaðinu 26.
ágúst síðastliðinn. En því nefni ég
þá til, að þeir eru helstu fyrirmynd-
ir mínar í beygingafræði, og af látn-
um málfræðingum nefni ég í heið-
urs skyni próf. Halldór
Halldórsson, meistara minn, og dr.
Valtý Guðmundsson. Ég er ekki frá
því, að hinn síðast nefndi sé ómak-
lega gleymdur sem málfræðingur,
líklega vegna hins pólitíska styrs
sem um hann stóð á sínum tíma.
Gott er svo að minnast orða Árna
Magnússonar handritasafnara:
„Það geingur svo til í heiminum,
að sumir hjálpa erroribus (villum) á
gáng, og aðrir leitast síðan við að út-
ryðja aptur þeim sömu erroribus.
Hafa svo hverir tveggja nockuð að
iðia.“
Athuga vel: Síðasti þáttur átti að
vera númer 1126.
ÍSLENSKT MÁL
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
1127. þáttur
NÁMSAÐSTOÐ
við þá sem vilja ná lengra í
grunnskóla
framhaldsskóla
háskóla
flestar námsgreinar
Innr i tun í s íma 557 9233 frá kl . 17-19
Nemendaþjónustan sf. Þangbakka 10, Mjódd.