Morgunblaðið - 16.09.2001, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 16.09.2001, Qupperneq 48
48 SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ                     BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Í GAMALLI bók segir á einum stað „svo miklir menn erum við Hrólfur minn“. Oft dettur mér ósjálfrátt í hug þessi umsögn þegar forsætis- ráðherra fær ofvirknisköstin sem gerist býsna oft, til dæmis út af hæstaréttardómi og Þjóðhagsstofn- un svo eitthvað sé nefnt. Ævinlega er það vegna þess að ráðherrann vill að þessar stofnanir vinni öðruvísi en þær gera, sem sé eftir hans eigin höfði. Ef það gerist ekki eru gildandi lög brotin ef farið er eftir þeim þótt hann hafi sjálfur staðið að því með öðrum á Alþingi að setja þessi lög. „Illa og hroðvirknislega unnin og standast ekki lög“ ef farið er eftir þeim, eins og fram kemur í síðasta reiðikasti gegn Skipulagsstofnun sem kemst að þeirri niðurstöðu að Kárahnjúkavirkjun komi ekki til greina eftir nákvæmt mat á öllum þáttum. En forsætisráðherra var ekki sáttur, þetta var sem sagt ekki eftir hans eigin höfði – það er margt skrýtið í kýrhausnum. Sjálfskaparvíti Skyldi ekki mega koma upp blóm- legum atvinnuvegi á Austurlandi ef notaðir væru til þess allir þeir tugir milljarða sem Kárahnjúkavirkjun og álver eiga að kosta. Álmennirnir hafa játað, skilst mér, að þetta sé langsamlega stærsta verkefni sem Íslendingar hafa nokkurn tímann ráðist í og virtir sérfræðingar á þessu sviði voru fengnir til að meta hver arðsemin gæti orðið. Ekki man ég hvort það var Náttúruverndarráð eða einhver önnur stofnun sem fékk þessa sérfræðinga til að skila áliti, nema ekki var það Landsvirkjun, en í stuttu máli sagt töldu þeir fram- kvæmdirnar ekki arðvænlegar. En álmennirnir vissu betur og sú nefnd sem Landsvirkjun setti í málið komst að gagnstæðri niðurstöðu. Að ráðast í slíka framkvæmd þrátt fyrir þessa sérfræðilegu álitsgerð er full- komlega ábyrgðarlaust, fyrir nú ut- an það að fórna dýrmætustu svæð- um hálendisins. Þó að Íslendingar ætli sér meirihlutaeign í álverinu fá þeir engu að ráða um aðföng eða sölu og trúlega fær Norsk Hydro miklu að ráða um orkuverð, ef að lík- um lætur. Álmenn Íslands hafa jafn- an gerst undirmálsmenn í samning- um við þessa höfðingja, þótt leiðinlegt sé að þurfa að segja það. Svo dapurlegt sem það er virðist ríkisstjórnin ekki geta hugsað nema í álverum og virkjunum, annað kemst ekki að í framkvæmdum nema hin rangláta ráðsmennska, sem þeir hafa stundað af kostgæfni, sem allir munu þekkja þótt á mis- munandi hátt sé. Þessi ríkisstjórn verður vissulega minnisstæð fyrir vinnubrögð sín. Þar á það við sem forsætisráðherra lét dynja á skipu- lagsstjóra að skýrslan væri illa unn- in og stæðist ekki lög. Skipulags- stjóri hefir reyndar skorað á forsætisráðherra að sanna framburð sinn ef hann geti, en það hefir hins- vegar vafist fyrir forsætisráðherra, því enn hefir hann ekkert getað sannað. Það er ekkert grín þegar forsætisráðherra fær ofvirknisköst- in og reiðin blossar upp svo að hann missir alla stjórn á sér, eins og fyrr- nefnd dæmi sanna, en foringjahæfi- leikarnir eru ótvíræðir því tveir ráð- herrar hafa gefið samskonar yfirlýsingar, þau Halldór Ásgríms- son og Siv Friðleifsdóttir. Það hlýt- ur að vera gott fyrir leiðtogann að hafa svona auðsveipa liðsmenn, en spurningin er; getum við kallað þetta lýðræðislegt þjóðskipulag? Er það ekki líkara einræði? En hvað sem um það má segja hefur þjóðin sjálf kallað þetta yfir sig. Kannski á hún eftir að læra af reynslunni þar sem hún hefur hvað eftir annað beðið um þennan óskapnað. Það ættu allir Íslendingar að geta verið sammála um að hér eru oft viðhöfð vægast sagt ólýðræð- isleg vinnubrögð. Kannski mættu fleiri en Árni Johnsen segja af sér? AÐALHEIÐUR JÓNSDÓTTIR, Furugerði 1, Reykjavík. Margt er skrýtið í kýrhausnum Frá Aðalheiði Jónsdóttur: Lið-a-mót FRÁ Apótekin Tvöfalt sterkara með GMP gæðaöryggi H á g æ ð a fra m le ið sla FRÍHÖFNIN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.