Morgunblaðið - 02.10.2001, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.10.2001, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Vegna þessa varð ekkert úr þeim fyrirætlunum Jórvíkur að hefja áætlunarflug til Vestmannaeyja í gær og segir Einar Örn Einarsson, rekstrarstjóri Jórvíkur, að tekju- tap fyrirtækisins nemi einni til tveimur milljónum króna vegna þessa. „Við sátum fund með samgöngu- ráðherra í gær þar sem farið var yfir stöðuna og hvaða lausn væri í stöðunni. Það er unnið baki brotnu niðri í Flugmálastjórn við að leysa málið og starfsfólki þar er mikið í mun að vinna hratt og vel. Það mætir okkur bara velvilji þar og við eigum von á að fá flugrekstr- arleyfið eins fljótt og unnt er,“ seg- ir Einar. Aðspurður segir hann fjögur sem fastur rekstrarkostnaður væri viss upphæð á hverjum degi. Tilkynnt um breyttar reglur fyrir hálfu ári Heimir Már Pétursson, upplýs- ingafulltrúi Flugmálastjórnar, seg- ir ástæðu þess að ekki tókst að endurnýja flugrekstrarskírteini flugfélagannna áður en nýjar regl- ur um flugreksturinn tóku gildi vera að flugfélögin hafi skilað nauðsynlegum upplýsingum of seint inn til Flugmálastjórnar. 28. mars sl. tilkynnti Flugmálastjórn með auglýsingu að reglur þessar tækju gildi fyrir smærri flugrek- endur 1. október og segir Flug- málastjórn flugrekendum því hafa verið kunnugt um breytingarnar í um hálft ár. Í fréttatilkynningu frá Flug- málastjórn segir að 22. ágúst sl. hafi stjórnendum fjögurra flug- félaga verið sent bréf þar sem minnt var á gildistöku reglnanna en þar hafi einnig verið tekið fram að ef tiltekin gögn bærust stofn- uninni ekki fyrir 1. september ann- ars vegar og 10. september hins vegar, gæti Flugmálastjórn ekki tryggt að hægt yrði að afgreiða umsóknir í flugrekstrarskírteini fyrir 1. október. „Misjafnt var hvenær og hversu fullnægjandi gögn bárust frá flug- félögunum, en dæmi voru um að upplýsingar bærust Flugmála- stjórn um nýliðna helgi, eða rúm- um sólarhring fyrir gildistöku reglnanna. Önnur gögn höfðu bor- ist fyrr þótt almennt hafi þau bor- ist of seint,“ segir í fréttatilkynn- ingu Flugmálastjórnar. Íslandsflug til Eyja Sautján farþegar voru bókaðir í fyrsta flug Íslandsflugs til Vest- mannaeyja í fyrsta flugi flugfélags- ins sem farið var til Eyja í hádeg- inu í gær. Þessa vikuna mun Íslandsflug sinna fluginu með skrúfuþotu af gerðinni ATR-42 sem tekur tæp- lega 50 í sæti. Um og upp úr næstu helgi verður Dornier-flugvél hins vegar notuð til flugsins en ráðgert er að þriggja vikna stórskoðun á henni, sem framkvæmd er í við- haldsstöð Íslandsflugs, ljúki í viku- lok. Íslandsflug ráðgerir að fljúga tvisvar á dag milli lands og Eyja mánudaga, þriðjudaga, laugardaga og sunnudaga, en þrjár ferðir mið- vikudaga, fimmtudaga og föstu- daga. Bókun í flugið er í höndum afgreiðslu Flugfélags Íslands og Flugfélags Vestmannaeyja í Eyjum og fara farþegar sömuleiðis um stöð Flugfélagsins á Reykjavíkur- flugvelli. Flugrekstrarskírteini fjögurra félaga felld úr gildi um mánaðamótin Upplýsingar bárust of seint til Flugmálastjórnar Í GÆR var síðasti hefðbundni af- greiðsludagur Hagkaups í Smára- torgi í Kópavogi því verslunin er að flytja sig um set yfir í Smára- lind þar sem opnuð verður 10.000 fermetra verslun 10. október næstkomandi. Af þessu tilefni hefst í dag kl. 14 lagerútsala í verslun Hagkaups á Smáratorgi. Vörur sem eftir eru í versluninni verða seldar með verulegum afslætti auk þess sem vörur á lager verða seldar með allt að 75% afslætti. 30% af- sláttur verður veittur af matvöru, 40–70% af fatnaði og 40% af- sláttur verður veittur af húsbún- aði, raftækjum og leikföngum. Út- sölunni lýkur á morgun. Lagerútsala í tilefni flutnings VEITINGASTAÐURINN TGI Friday’s í Smáralind hyggst bjóða um eitt þúsund manns ókeypis máltíð áður en staðurinn verður opnaður formlega 10. október nk. Friðjón Hólmbertsson, fram- kvæmdastjóri og eigandi TGI Friday’s á Íslandi, segir að þetta sé nokkurs konar lokaæfing fyrir veitingastaðinn, starfsfólk bæði í sal og eldhúsi fái með þessu tæki- færi til að æfa sig á því að veita matargestum þjónustu áður en staðurinn verður formlega opn- aður. Móðurfyrirtækið í Banda- ríkjunum gerir kröfu um að slíkt sé gert áður en nýr staður er opnaður. Alls hafa sjötíu starfsmenn ver- ið ráðnir til fyrirtækisins og hófst þjálfun þeirra nú um helgina. Þrettán manns komu frá höf- uðstöðvum TGI Friday’s í Banda- ríkjunum til að miðla af reynslu sinni og kenna þeim réttu hand- tökin. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Þær Katya Braginskaya og Rachel Greybar miðla starfsfólki TGI Friday’s af reynslu sinni. Þúsund manns boðið í mat MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Glámu/ Kím: „Í Morgunblaðinu hinn 19. sept- ember sl. birtust svohljóðandi um- mæli deildarstjóra umhverfisdeildar Akureyrarbæjar um athugasemdir Glámu/Kím arkitekta Laugavegi 164 ehf. við tillögu að deiliskipulagi svæðis Háskólans á Akureyri á Sól- borg: ,,Í gangi hefðu verið málaferli þar sem Gláma/Kím arkitektar teldu sig eiga höfundarrétt að öllum mann- virkjum og skipulagi á þessu svæði. Bjarni sagði að þar til niðurstaða lögmanns bæjarins lægi fyrir væri málið í hnút.“ Í tilefni af þessum ummælum þyk- ir nauðsynlegt að koma eftirfarandi á framfæri: Einn liður athugasemda Glámu/ Kím arkitekta snýr að vernd höf- undaréttar þeirra í samræmi við úr- skurð héraðsdóms Reykjavíkur sem staðfestur var í Hæstarétti Íslands hinn 18. júní sl. Með þeim lið athuga- semdanna er verið að vekja athygli á þeim höfundarétti sem er þeirra, en ekkert umfram það. Gláma/Kím arkitektar vilja ekki sitja undir ásökunum um að hafa stefnt málinu í hnút því að þeir hafa margoft lýst sig reiðubúna að koma að breytingum á skipulaginu með þarfir Háskólans á Akureyri í huga.“ Athugasemd frá Glámu/Kím MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá fyrrverandi ábúendum Uppsala í Hvolhreppi vegna kaupa og sölu á jörðinni: „Í framhaldi af þeirri langvinnu umræðu sem átt hefur sér stað vegna kaupa okkar og síðar sölu á jörðinni Uppsölum í Hvolhreppi finnum við okkur knúna til þess að gefa frá okkur eftirfarandi yfirlýsingu: Uppsalir í Hvolhreppi eru föðurleifð okkar og á þeirri jörð höfum við bræður búið alla okkar tíð og þar á undan foreldrar okkar og móðurforeldrar. Þar sem okkur var mikið í mun að hafa um það að segja hverjir tækju við jörðinni og að við bræður hefðum afnot af bæn- um og jörðinni eftir atvikum, nýttum við okkur 38. grein jarðalaga og keyptum jörðina. Við greiddum fyrir hana uppgefið verð Ríkiskaupa í sam- ræmi við reglur landbúnaðarráðu- neytisins. Síðar höfum við selt Ísólfi Gylfa Pálmasyni jörðina. Þau kaup fóru fram á fullkomlega eðlilegan og lög- legan hátt og voru samþykkt í hreppsnefnd Hvolhrepps, jarðanefnd Rangárvallasýslu og í landbúnaðar- ráðuneytinu. Það var og er vilji okkar að landið verði nýtt af heimamanni sem við þekkjum og treystum. Við munum ekki tjá okkur frekar um mál- ið í fjölmiðlum en teljum nauðsynlegt að vilji okkar í málinu komi skýrt fram.“ „Landið verði nýtt af heimamanni“ VEGNA fréttar í Morgunblaðinu sunnudaginn 30. september um málefni Línu.Nets hf. vill Íslands- banki koma eftirfarandi á fram- færi: „Lánsskilmálar sem vísað er til í frétt Morgunblaðsins eru í raun eldri drög að skilmálum vegna lánsfjármögnunar Línu.Nets hf. sem nú er í undirbúningi. Um vinnuskjöl er að ræða og í þeim gætir ónákvæmni í orðalagi sem síðar hefur tekið breytingum. Jafnframt skal það tekið fram að ákvæði það úr drögunum sem er meginefni fréttar Morgunblaðsins hafði ekki verið borið undir stjórn- endur Línu.Nets hf. eða fulltrúa eigenda félagsins þar sem mikil- vægir skilmálar við fjárfesta voru enn ófrágengnir. Meðan á samn- ingum um fjármögnun stendur eru öll vinnuskjöl í tengslum við fjármögnunina eðli málsins sam- kvæmt trúnaðarmál m.a. vegna þess að líklegt er að þau taki breytingum í samningaferlinu. Er því miður að trúnaðarupplýsingar um málefni Línu.Nets hafi orðið tilefni opinberrar umfjöllunar.“ Athugasemd frá Íslandsbanka áætlunarflug og fjögur til fimm leiguflug hafa fallið niður. „Beint tekjutap okkar hleypur á bilinu einni til tveimur milljónum en það þarf þó að vera ljóst að það er ekk- ert stríðsástand hjá okkur, það eru allir að reyna að gera sitt besta og þegar svo er þá ganga hlutirnir.“ Jón Grétar Sigurðsson hjá Jór- vík sagði flugfélagið þurfa meiri tíma til að ganga inn í nýtt reglu- gerðaumhverfi sem samevrópskar flugreglur kalli á. „Við þurfum að aðlagast því starfsumhverfi.Við vorum búnir að fá frest til að leggja fram gögn og vegna und- irmönnunar hjá Flugmálastjórn tókst ekki að yfirfara þau í tæka tíð fyrir mánaðamót. Ég geng bara út frá því að skírteinið verði gefið til okkar og hinna flugfélaganna sem eru í sömu sporum, ef það er ekki stefna yfirvalda að gera útaf við litlu flugfélögin,“ sagði Jón Grétar. Ásamt því sem flugrekstrarskír- teini Jórvíkur rann út eru Mýflug og Flugfélag Vestmannaeyja í sömu stöðu, en þau flugfélög sjá einnig um sjúkraflug á Vestfjörð- um og í Vestmannaeyjum sam- kvæmt samningi við ríkið. Und- anþága er fyrir neyðarflugi svo heimild hefur verið fyrir sjúkra- flugi flugfélaganna. „Við féllum bara á tíma með um- sóknina okkar, nú erum við að vinna í okkar málum og það geng- ur vel,“ segir Valgeir Arnórsson hjá Flugfélagi Vestmannaeyja að- spurður um niðurfellingu flug- rekstrarskírteinis félagsins. Flug- félagið er með fjórar vélar í rekstri og lá allt áætlunarflug þeirra niðri í gær. Valgeir kvaðst ekki geta sagt til um hver tekjumissir yrði vegna þessa en það væri alltaf slæmt að missa farþega auk þess FLUGREKSTRARSKÍRTEINI flugfélaganna Jórvíkur, Mýflugs, Leigu- flugs Ísleifs Ottesen og Flugfélags Vestmannaeyja féllu úr gildi aðfaranótt mánudags þegar ný reglugerð um flugrekstur á Íslandi tók gildi. Reglugerð- in, sem byggist á reglum frá Flugöryggissamtökum Evrópu, felur í sér stór- breyttar vinnureglur sem m.a. miða að því að auka flugöryggi og gera eftirlit markvissara og skilvirkara. Þetta hefur í för með sér að flugfélög þurfa að gera breytingar á flugrekstrarhandbókum sem þau vinna eftir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.