Morgunblaðið - 02.10.2001, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 02.10.2001, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTÓBER 2001 31 a ríkja sé að senda iða. ar þjóðir heimfæra ða draga ríki muni fiskveiði- ara þjóða andi auð- rnað með staðar í egt sam- iðar ætti mvinnu á vísinda. msmark- uðlaði að Jafnframt ðning við um. Enn- ng stjórn- mhverfis- gs um ýtingar á tvegsráð- nnig ráð- nar í gær. purn eftir æknifram- iri sókn í ns. Hann unni öðl- kilning á g nýtingu tjórnað. na athafnar- arar, sem kra hags- munahópa, grein fyrir sýn sinni á efni ráðstefnunnar. Þar sagði m.a. Serge Garcia, forstöðumaður fisk- veiðideildar FAO, að mistekist hefði að vernda fiskistofnana og einkum væri um að kenna skorti á veiði- stjórnun á úthöfunum. Hann sagði að þrátt fyrir að sumstaðar hafi tek- ist vel til, hafi fiskveiðistjórn brugð- ist því hlutverki sínu að tryggja sjálfbærar veiðar. Höfuðorsök þessa væri almennt talin frjáls og opinn aðgangur að auðlindum hafs- ins og skortur á tilgreindum fisk- veiðiréttindum. Í máli Garcia kom fram að sam- kvæmt gögnum FAO er um fjórð- ungur allra fiskistofna í hafinu of- nýttur. Að auki er um fjórðungi aflans hent í sjóinn vegna kvóta- kerfa og annarra fiskveiðireglna. Fiskframleiðsla í heiminum hefur aukist úr 19 milljónum tonna árið 1950 í um 130 milljónir tonna árið 2000. Þar af koma um 36 milljónir tonna úr fiskeldi. Samkvæmt upplýsingum FAO hefur sjávarafli dregist saman eða nokkurn veginn staðið í stað í Norð- austur-Atlantshafi, Vestur-Atlants- hafi, Norðaustur-Kyrrahafi, Mið- jarðarhafi og Svartahafi, austur– hluta Kyrrahafs og suðvestur- hluta Kyrrahafs. Hins vegar er sam- drátturinn mestur í Suðvestur-Atl- antshafi og Suðaustur-Kyrrahafi. Síðdegis í gær hófst vísindahluti ráðstefnunnar. Hann skiptist í þrjá hluta. Í þeim fyrsta var rætt um samspilið í vistkerfi hafsins, í næsta er horft á hlutverk mannsins í vist- kerfi hafsins út frá mismunandi sjónarhornum og þriðji hluti fjallar um hvernig hægt er að flétta vistkerfisnálgun inn í fiskveiði- stjórnun. Þriðji meginhluti ráð- stefnunnar er alþjóðleg ráðstefna þar sem sendinefndir ríkja ræða áherslur sínar hvað varðar vistkerf- isnálgun. Ráðstefnunni lýkur á fimmtudag. hófst í Reykjavík í gær ip elt- fiska“ Forseti Íslands, Ólafur Ragn- ar Grímsson, var viðstaddur setningu ráðstefnunnar í gær og er hér ásamt dr. Jacques Diouf, aðalframkvæmda- stjóra FAO. tanrík- stefnu eiðar. Morgunblaðið/Þorkell um ábyrgar fiskveiðar sem hófst í Reykjavík Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra og son, deildarstjóri fiskideildar FAO. ALLS hafa um 380 sjúkra-liðar lagt niður störfvegna verkfalls sjúkra-liða hjá um tuttugu rík- isstofnunum víða um land og tveim- ur sjálfseignarstofnunum – elli- og hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík og dvalarheimilinu Ási í Hveragerði. Verkfallið nær til um rúmlega átta hundruð sjúkraliða en vegna öryggislista sem samkomulag hefur náðst um milli Sjúkraliðafélags Ís- lands og Landspítalans-háskóla- sjúkrahúss annars vegar og Sjúkra- liðafélagsins og Grundar hins vegar starfa samtals um 380 sjúkraliðar hjá viðkomandi stofnunum í verk- fallinu. Verkfallið hófst aðfaranótt mánudags en þá gengu auk þess í gildi uppsagnir 96 sjúkraliða hjá Landspítalanum-háskólasjúkra- húsi. Samtals létu því um 470 sjúkraliðar af störfum aðfaranótt mánudags. Verkfallið á að standa yf- ir í þrjá daga en auk þess hafa verið boðuð tvö önnur þriggja daga verk- föll; hið fyrra á að hefjast 15. októ- ber nk. og hið síðara 29. október nk. Ekkert þokaðist í samkomulags- átt á fundi deiluaðila, sjúkraliða og viðsemjenda þeirra, um helgina en formaður Sjúkraliðafélags Íslands, Kristín Á. Guðmundsdóttir, sagði við Morgunblaðið í gær að staðan í viðræðunum væri í reynd „stál í stál“. Undir þau orð tók Gunnar Björnsson, formaður samninga- nefndar ríkisins. Nýr samninga- fundur hefur ekki verið boðaður. Verkfallið kemur hvað verst niður á starfsemi Landspítalans – há- skólasjúkrahúss en þar hafa samtals um 130 sjúkraliðar lagt niður störf auk hinna 96 sem sagt hafa störfum sínum lausum. Alls hafa um 550 sjúkraliðar starfað hjá sjúkrahús- inu. Loka þurfti fimm deildum; þrem- ur skurðlækningadeildum, einni barnadeild og einni lyflækninga- deild, á Landspítala-háskólasjúkra- húsi vegna verkfallsins og uppsagn- anna og draga hefur þurft úr starfsemi einnar deildar til viðbótar. Auglýst eftir starfsfólki á næstu dögum Anna Stefánsdóttir, hjúkrunar- forstjóri á Landspítalanum-háskóla- sjúkrahúsi, segir að uppsagnir sjúkraliðanna 96 hafi í raun meiri áhrif á starfsemi sjúkrahússins en verkfall hinna 130 ekki síst þegar til lengri tíma væri litið. „Við lokuðum fimm deildum á sjúkrahúsinu [að kvöldi sunnudagsins] og fluttum þá sjúklinga sem þar voru inn á aðrar deildir. Auk þess þurftum við að fresta fyrirhuguðum aðgerðum í gær [mánudag]. Á venjulegum virkum degi gerum við um sextíu skurðaðgerðir en í gær voru þær tuttugu og tvær. Þetta er mikil fækkun. En hún kem- ur fyrst og fremst til vegna þess að 96 sjúkraliðar hafa sagt upp störf- um. Þeir störfuðu aðallega á lyf- lækninga- og skurðlækningadeild- um,“ segir Anna en bætir því við að verkfall sjúkraliðanna 130 hafi „auð- vitað heilmikil áhrif á starfsemina“. Aðspurð hvort auglýst verði á næstunni eftir starfsmönnum í þau störf sem losnað hafi um mánaða- mótin segir hún svo vera. „Við mun- um auglýsa eftir starfsfólki; sjúkra- liðum og öðrum á allra næstu dögum,“ segir hún. Meira álag Meira álag en ella er á starfsfólki deilda Landspítalans – háskóla- sjúkrahúss sem fengið hafa til sín sjúklinga af öðrum deildum vegna lokana að sögn Önnu og í sama streng tekur Cecilie B. Björgvins- dóttir deildarstjóri á almennri skurðlækningadeild á spítalanum í Fossvogi. „Ég rek 27 rúma skurð- lækningadeild en þar starfa þeir sjúkraliðar sem ekki hafa sagt upp eða lagt niður störf vegna undan- þágna,“ segir hún og heldur áfram: „Ég þurfti að taka til mín fimm sjúklinga af háls-, nef- og eyrna- skurðlækningadeild þannig að það er meira álag á deildinni en venju- lega.“ Hún segir að í gærmorgun hafi einn sjúklinganna þurft að dvelja frammi á gangi vegna sam- einingar deildanna en síðar um dag- inn hafi tekist að leysa hans mál og hann fengið pláss inni á deildinni. Hins vegar þurftu nokkrir sjúkling- ar annarra deilda spítalans að dvelja frammi á gangi í gær vegna samein- ingar deilda. Cecilie tekur einnig fram eins og Anna Stefánsdóttir að vegna upp- sagnanna og verkfallsins hafi þó þurft að stöðva alla rannsóknar- vinnu og hætta við aðgerðir á fólki sem væri á biðlistum eftir slíku. „Eins og staðan er núna erum við eingöngu að þjóna þeim sjúklingum sem koma inn vegna bráðatilfella,“ útskýrir hún. Margrét R. Hafsteinsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri Grundar, sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að verkfall sjúkraliða hefði ekki teljandi áhrif á starfsemi hjúkrunarheimilisins og sömu sögu er af segja af dvalarheimilinu Ási. Af þeim fjórtán sjúkraliðum sem starfa á Grund hafa þrír til fjórir lagt niður vinnu í verkfallinu. Hinir starfa áfram þar sem störf þeirra eru á svokölluðum öryggislistum sem Sjúkraliðafélagið og Grund hafa náð samkomulagi um. Allir þeir sjúkraliðar sem starfa á Ási, alls tíu manns, hafa hins vegar lagt niður störf. „Verkfallið hefur þrátt fyrir það ekki mikil áhrif á starfsemina,“ sagði Gísli Páll Páls- son framkvæmdastjóri Áss. Gísli Páll kveðst reyndar ekki sjá tilgang með verkfalli sjúkraliðanna hjá sjálfseignarstofnunum tveimur því þær muni ekki semja við sjúkraliða fyrr en ríkið sé búið að ganga frá samningum sínum við Sjúkraliða- félagið. Þá segja stjórnendur Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri (FSA) að verkfallið muni ekki hafa mikil áhrif á starfsemina þar sökum þess að flestir sjúkraliðanna sem þar starfi séu ekki í Sjúkraliðafélagi Íslands heldur Starfsmannafélagi Akureyr- arbæjar. Þungt hljóð var í forsvarsmönn- um sjúkraliða í gær og sagði Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélagsins að ekkert hefði miðað á samningfundum deiluaðila á fundum þeirra um helgina. „Hvað varðar launalið samningsins er stað- an í raun stál í stál,“ segir hún en sjúkraliðar hafa m.a. farið fram á að byrjunarlaun þeirra verði við lok samningstímabilsins – árið 2004 eða 2005 – um 150 þúsund krónur á mánuði. Nú séu þessi byrjunarlaun um 89 þúsund krónur á mánuði. Kristín gagnrýnir einnig fjár- málaráðherra, Geir H. Haarde, og segir hann hafa sýnt samningavið- ræðunum lítinn áhuga. „Hann kom heim til landsins úr fríi á sunnudag og hefur á ögurstundu ekki haft eina einustu skoðun á málinu,“ segir hún. Gunnar Björnsson, formaður samninganefndar ríkisins, staðfestir að viðræður við sjúkraliða hafi ekki borið neinn árangur um helgina en óvíst er hvenær næsti fundur deilu- aðila verður boðaður. „Ríkissátta- semjari æltar að vera í sambandi við okkur og sjá til hvort hann boði fund á föstudag eða mánudag,“ segir hann. Þegar Gunnar er inntur eftir því hvort viðræðurnar hafi strandað á launalið samninganna segir hann það rétt. „En þetta er bara spurning um hvað hlutirnir mega kosta,“ seg- ir hann og minnir á að samninga- nefnd ríkisins hafi lagt fram tilboð til sjúkraliða 23. ágúst sl. Það tilboð standi enn. „Auk þess höfum við gert tillögur um að fara út í ákveðin kaup, þ.e. við höfum verið tilbúin til að borga fyrir það að sjúkraliðar láti eftir ákveðin atriði í þeirra samningum. Þeir hafa hins vegar ekki verið tilbúnir til þess að gangast við því.“ Aðspurður kveðst Gunnar ekki geta skýrt frá tilboðinu sem samninganefndin lagði fram 23. ágúst sl. Anna Stefánsdóttir hjúkrunar- framkvæmdastjóri Landspítalans- háskólasjúkrahúss ítrekar að drög að stofnanasamningi milli sjúkraliða og sjúkrahússins liggi fyrir sam- þykktur af báðum aðilum en segist jafnframt hafa orðið fyrir vonbrigð- um með að sá samningur hafi ekki liðkað fyrir lausn kjaradeilunnar. „Við höfum verið í viðræðum við Sjúkraliðafélagið um stofnanasamn- ing undanfarnar vikur og hafa þær viðræður gengið vel. Að okkar mati er í drögunum um að ræða mjög breyttar áherslur í störfum sjúkra- liða sem felast m.a. í meiri ábyrgð þeim til handa sem og vandasamari störf en áður. Jafnframt er í þessum drögum viðleitni til þess að gera sjúkraliðum kleift að sækja um hærri laun innan stofnunarinnar með því að taka á sig meiri ábyrgð. Við urðum því fyrir miklum vonbrigðum með að þessi drög skyldu ekki vega þyngra í þessu samningaferli samninga- nefnda sjúkraliða og ríkisins en raun ber vitni,“ segir hún og bætir við: „Við teljum að með þessum drögum hafi sjúkrahúsið komið mjög mikið til móts við kröfur Sjúkraliðafélagsins um endurskipu- lagningu á störfum sjúkraliða.“ Mikil röskun vegna uppsagna og verkfalls sjúkraliða „Staða samninga- viðræðna stál í stál“ Loka þurfti fimm deildum á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi vegna verkfalls og uppsagna sjúkraliða sem þar starfa en hið fyrsta af þremur þriggja daga verkföllum sjúkraliða víða um land hófst á miðnætti aðfaranótt mánudags. Arna Schram kannaði stöðu mála. Morgunblaðið/Þorkell Tómar stofur og sjúklingar frammi á gangi blöstu við gestum á Landspítala – háskólasjúkrahúsi í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.