Morgunblaðið - 02.10.2001, Blaðsíða 53
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTÓBER 2001 53
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4543-3700-0027-8278
4507-4500-0030-3021
4543-3700-0015-5815
4507-2800-0001-4801
!"
!#$ %&
'(' (###
Leikjaplánetan
Fullt af leikjum!
Ormurinn
Minnisleikur
Tetris
Bolti
PacMan
...og meira til
f
í
t
o
n
/
s
í
a
F
I
0
0
3
3
5
8
www.krakkabanki.is
Latóplánetan
Allir íbúar Latabæjar
Lita og púsla
Tölvupóstkort
Póstkort og umslög
Skjámyndir
Tölvupóstfang, @krakkabanki.is
Fréttir
Fróðleikur
Netklúbbur Æskulínunnar
Æskulínuplánetan
Claroderm þvottapokinn hreinsar óhreinindi og
fitu, jafnvel úr fínustu svitaholum, gefur húðinni
hreint og ferskt útlit. Húðhreinsun án allra
kemiskra hreinsiefna.
Húðvandamál og bólur?
Claroderm
Apótek Lyfja
Lyf & heilsa
APÓTEK
ÍSLENSKA síðrokkssenan er á
góðri siglingu um þessar mundir.
Fjöldi sveita er um hituna og í kvöld
á Stefnumóti ætla þrjár þeirra að
hittast; þær Lúna, Kaktus og Man-
hattan. Geiri þessi er farinn að dýfa
tám í útgáfutjarnir og gaf Lúna út
fallega plötu á dögunum, Leyfðu
mér að þegja þögn þinni, og í haust
eru svo væntanlegar plötur með
fleiri sveitum. Síðrokkssérfræð-
ingur Morgunblaðsins náði tali af
rokkstjörnu í nærbuxum, honum
Gylfa Blöndal, gítarleikara Kaktuss.
„Við erum frekar latir við spila-
mennsku,“ viðurkennir Gylfi syfju-
lega. „Okkur finnst óþarfi að vera að
þreyta fólk með sama efninu æ ofan
í æ. Við viljum frekar spila þegar við
höfum upp á eitthvað nýtt að bjóða.“
Kaktus er tveggja ára gamalt
band og kom Gylfi inn í það í maí á
þessu ári.
„Þá fóru áherslur nokkuð að
breytast. Áhrif
sveitarinnar
koma þó víða að
þar sem við
hlustum allir
hver á sína tón-
listina.“
Hvað útgáfu
varðar segir
Gylfi það eins
vera hugsanlegt.
„Við erum
svona byrjaðir
að hallast að því
en okkur langar
að fara varlega í
sakirnar. Gefa út
plötu þegar
stefnan er orðin
skýr.“ Síðrokkið seiðandi hefst upp
úr kl. 21 og aðgangur að því er 500
kr. Aldurstakmark er 18 ár.
Íslenskt
síðrokk
Lúna á útgáfutónleikum í Tjarnarbíói fyrir stuttu.
Morgunblaðið/Sverrir
Stefnumót á Gauknum
Hægri hönd forsetans
(The President’s Man)
Spennumynd
Leikstjóri: Michael Preece. Handrit Rob
Gookin. Aðalhlutverk: Chuck Norris og
Dylan Neal. Bergvík (95 mín.) Bönnuð
innan 16 ára.
ÞESSI tveggja ára gamla hasar-
mynd með gömlu kempunni Chuck
Norris hefur ekki upp á margt að
bjóða. Fyrir tíu til fimmtán árum var
Norris einn aðal-
harðjaxlinn í
bransanum en eftir
að aldurinn tók að
færast yfir og vin-
sældir að dala hef-
ur hann fundið sér
samastað í sjón-
varpinu. Hægri
hönd forsetans er
ein af kvikmyndum
bardagahetjunnar gömlu sem gerð-
ar eru fyrir bíó, en þeim fer sífellt
fækkandi. Það er þó kaldranaleg
staðreynd að myndin er sennilega
áhugaverðari nú en þegar hún kom
út fyrir tveimur árum og er það
vegna atburðanna hryllilegu í
Bandaríkjunum. Hér er nefnilega
sagt frá hryðjuverkamönnum sem
hafa bandaríska lifnaðarhætti og
lífsgildi að skotmarki. Ekki má þó
skilja þetta sem svo að verið sé að
mæla með verkinu, þvert á móti, en
maður horfir ef til vill á myndina nú
með öðrum augum en áður. Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Harðjaxlinn
snýr aftur