Morgunblaðið - 02.10.2001, Qupperneq 54
FÓLK Í FRÉTTUM
54 ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Stóri Quelle-listinn
er kominn!
• Ótrúlegt vöruval
• Nýjasta tíska
• Þýsk gæði
• Þægileg þjónusta
• Stærðir og snið fyrir alla
• Verslaðu heima í ró og næði
Listinn kostar 600 kr. og nú
fylgja þessir sérlistar með eftir
eigin vali á meðan birgðir endast.
Sérlistar fylgja stóra Quelle listanum ókeypis
Meine Grösse
Fallegur og nýtísku-
legur kvenfatnaður,
undirfatnaður,
sundfatnaður ofl. í
stærð að nr. 60
Mode
Listi með klassískum
og vönduðum fatnaði.
Fatnaður sem mikið er
lagt í fyrir dömur og
herra
Euro-Kids
Skemmtilegur
barnalisti með fatnaði,
rúmfatnaði og ýmsu
öðru. Vandaður og
góður fatnaður sem
endist
Haushalt
Allt í eldhúsið og
borðstofuna.
Búsáhöld í ótrúlegu
úrvali og falleg gjafa-
og heimilisvara
Ve r s l u n D a l v e g i 2 • K ó p a v o g i
P ö n t u n a r s í m i 5 6 4 2 0 0 0
fæddist í sárri fátækt árið 1904 í
borginni Bristol. Var eina barn for-
eldra sinna, vandfýsinnar móður
sem ofverndaði drenginn sinn og
EKKI alls fyrir löngu sæmdi
Bandaríska kvikmyndastofnunin
(AFI) leikarann Cary Grant nafn-
bótinni næststærsta goðsögn kvik-
myndaheimsins á eftir Humphrey
Bogart. Vissulega má lengi deila
um réttmæti slíkra nafngifta en um
hæfileika og vinsældir Grants efast
þó enginn kvikmyndaáhugamaður
og óhætt er að telja hann einkar
vel að sæmdinni kominn. Margir
minnast þessa breskættaða stór-
leikara sem einstaks glæsimennis
og vafamál hvort kvikmyndaheim-
urinn hefur átt, eða á eftir að eign-
ast, annan eins sjarmör.
Erfið æska í Bristol
Engu að síður var Grant af-
burðaleikari, ekki síst gamanleik-
ari, með eftirminnilega tímasetn-
ingu og raddbeitingin í hárréttri
samhljóman við heillandi fram-
komu, hrífandi útlit og vallarsýn.
Framburðurinn einstakur, gárung-
arnir kölluðu hann „Mið-Atlants-
hafshreiminn“, hvergi staðsetjan-
legur annars staðar en á úthafinu,
miðja vegu milli Bretlands og
Bandaríkjanna. Ekki fráleit sam-
líking þar sem Grant, fæddur inn í
cockney-mállýsku verkamanna-
stéttarinnar á Suður-Englandi, tók
sig taki og menntaði sig sjálfur í
framburði og siðvenjum heldri
manna eftir landtökuna í Vestur-
heimi. Reis á örskömmum tíma úr
öskunni í efstu hæðir. Slíkt afreka
ekki aðrir en miklir hæfileikamenn.
Archibald Alexander Leach
drykkjusjúks föður, fatapressara,
þá sjaldan rann af honum. Æsku-
árin voru erfið, fjölskyldan á barmi
flækings og allsleysis. Leach var
aðeins níu ára barnaskólanemandi
er kennari færði honum þau tíðindi
að móðir hans væri horfin á braut, í
frí. Sannleikurinn var hins vegar sá
að faðir hans stóð fyrir að hún var
vistuð á geðveikrahæli. Drengur-
inn fékk ekkert um það að vita fyrr
en á dánarbeði föður síns, 1935.
Eftir það heimsótti hann móður
sína árlega, uns hún lést í hárri elli.
Í millitíðinni hafði
Leach verið vikið úr
grunnskóla fyrir grip-
deildir. Á fríkvöldum
vísaði hann til sætis í
kvikmyndahúsi í
hverfinu. Jafnskjótt og
Leach var fær um að
falsa rithönd föður
sins, eða 13 ára, hvarf
hann á braut með hópi
fjöllistamanna. Til að
byrja með sem stultu-
göngumaður, síðan tók
eitt við af öðru og
ílengdist hann í ýms-
um hlutverkum í fjöl-
leikahúsi Bobs nokk-
urs Pender. Í þeim
félagsskap tók hann
land í Vesturheimi,
1921. Eftir að hafa tamið sér siði
og tungutak aðalsins, fór Archibald
Leach að líta í kringum sig og var
kominn til Hollywood á öndverð-
um, fjórða áratugnum. Átti að baki
nokkra reynslu sem Broadway-
leikari, einkum í söngleikjum.
Knúði dyra hjá Paramount 1932,
þar var honum umsvifalaust skipað
að fá sér nýtt nafn áður en lengra
væri haldið. Cary Grant varð til
1933, Paramount-menn tóku fyrstu
stafi Garys Cooper, vinsælustu
stjörnu kvikmyndaversins, sneru
þeim við, og skeyttu við þá. Það var
allur galdurinn. Mikið var rætt um
þennan nýja persónuleika, Cary
Grant, uppfinningu Leachs sem
hann sagðist byggja á Jack Buc-
hanan, Noel Coward og Rex Harr-
ison. „Ég reyndi að verða einhver
sem ég vildi vera, að lokum varð ég
þessi persóna. Eða hann varð ég.“
Sjálfið var því skáldskapur, e.k.
ævintýrapersóna. Sú staðreynd
setti svip sinn á ævi og afstsöðu
leikarans. Einhverju sinni var
hann spurður hver væri í rauninni
Cary Grant; „Ef þú kemst að því,
láttu mig vita,“ var svarið. Í annað
sinn lét blaðamaður svo ummælt í
viðtali að allir vildu verða Cary
Grant. „Sömuleiðis ég,“ sagði
stjarnan.
Frægðin knýr dyra
Grant tók við því sem að honum
var rétt, sem flest var heldur auð-
virðilegt, uns kyntröllið Mae West
valdi hann úr hópi ungra glæsi-
menna til að leika á móti sér í She
Done Him Wrong (’33), og I’m No
Angel, ári síðar. Grant þótti nokk-
uð stirður en óneitanlega hrífandi
og kynþokkafullur, borinn til
frægðar – þótt Paramount bæri
ekki gæfu til annars en að setja
hann í B-myndamusl.
Hlutirnir fóru ekki að gerast
fyrr en hann losnaði undan Para-
mount. Sylvia Scarlett (’35), var
fyrsta myndin þar sem ríkulegir
gamanleikhæfileikar Grants fengu
notið sín. Þeir áttu eftir að
blómstra og bera enn ríkulegri
ávöxt næstu árin .
Fagmaður mikill
Mikið orð fór af fagmennsku
Grants og óvenjulegum samstarfs-
vilja gagnvart meðleikurum sínum
og stjórnendum. Ekki síst var hann
lofaður og prísaður af meistara
Hitchcock sem nýtti hæfileika hans
í nokkrum af sínum bestu verkum;
Suspicion (’41) Notorius (’46), To
Catch a Thief (’55) og North By
Northwest (’59). George Cukor
valdi hann í aðalkarlhlutverkið í
The Philadelphia Story (’41), How-
ard Hawks treysti honum fyrir
sama hlutskipti í Bringing Up
Baby (’38), og enn frekar í I Was a
Male War Bride (’49). Svo mætti
lengi telja. Kubrick vildi fá hann í
Lolitu, gengið var á eftir honum að
holdi klæða James Bond, enda
hafði Ian Fleming leikarann í huga
er hann bjó til þennan sjálfsagt
frægasta spæjara bókmenntanna
og síðar kvikmyndanna.
Eftirlætismynd Grants var None
But the Lonely Heart (’47), sem
hann átti þátt í að semja og byggði
að nokkru leyti á eigin lífsreynslu.
Fyrir hlutverkið var Grant til-
nefndur til Óskarsverðlauna, en
akademían sá að sér og veitti stór-
stjörnunni heiðursóskar, árið 1970,
fyrir ómetanlegt framlag hans til
kvikmyndanna
Snemma í
helgan stein
Aldurinn fór einkar
mjúkum höndum um
Grant, sem varð jafn-
vel enn meira
heillandi með árunum
og hlutverk í úrvals-
myndum á móti fræg-
ustu kvenstjörnum
samtímans, streymdu
inn allt til þess dags
sem hann ákvað að
hætta, þá aðeins 62
ára að aldri. Tilefnið
var að hann varð faðir
í fyrsta skipti, eign-
aðist dótturina Jenni-
fer með leikkonunni
Dyan Cannon. Hjóna-
band þeirra stóð stutt, frá ’65–’68,
Grant fékk forræðið yfir barninu.
Áður hafði hann verið í þremur,
mislukkuðum hjónaböndum, m.a.
með milljarðamæringnum, erfingja
Woolworth-auðsins, Barböru Hut-
ton (’42–’45), sem endaði líf sitt
blásnauð. Aukinheldur bjó hann
með vestrastjörnunni Randolph
Scott, fyrstu árin í Hollywood og
spunnust margar gróusögur um
þann ráðahag.
Á lokakaflanum lék Grant í
hverju kassastykkinu á eftir öðru,
sem allar breyttu Hafnarbíós-
bragganum í glæsihöll, sælla minn-
inga. Að loknum leik í gamanmynd-
inni Walk Don’t Run (’66), ákvað
þessi stórsjarmör að nú væri nóg
komið og stóð við það. Grant settist
þó ekki í helgan stein heldur gerð-
ist stjórnarformaður snyrtivöru-
fyrirtækisins Fabergé og á áttræð-
isaldri ákvað goðsögnin að halda
fyrirlestra um Bandaríkin þver og
endilöng. Hafði eingöngu viðkomu í
smábæjum þar sem íbúarnir höfðu
enga möguleika til að líta stór-
stjörnur kvikmyndanna eigin aug-
um. Á einni slíkri uppákomu, á út-
nára í Iowa, hneig þessi
heiðursmaður niður, þá leikurinn
stóð hæst, og var allur, áður en
dagur rann, árið 1986.
THE PHILADELPHIA STORY (1940) Sögufræg, sígild óskarsverðlaunamynd um fráskil-
inn broddborgara (Katherine Hepburn), sem leitar að
nýjum bónda á meðal almúgans. Stjörnurnar Hep-
burn, James Stewart og Cary Grant, skína skært, eru
hver annarri betri. Stewart hlaut Óskarsverðlaun sem
vonbiðill með „venjulegan“ bakgrunn, og Cary Grant,
sem eiginmaður Hepburn, heillar alla uppúr skónum
enda geislar af honum sjarminn. Bráðhnyttið og mál-
glatt handrit Philips Barry, vann til Óskarsverðlauna.
I WAS A MALE WAR BRIDE (1949) Ósvikinn, víðfrægur farsi þar sem Cary Grant fer á
kostum sem Fransmaður sem giftist Bandaríkjakonu
(Ann Sheridan), í herþjónustunni í Þýskalandi eftir
stríðið. Þegar hún er send heim beitir Grant öllum
brögðum til að fylgja henni eftir í einum fyndnasta
kafla kvikmyndanna. Grant er hinn föngulegasti í
kvenmannsklæðum. Gott dæmi um einstaka töfra
Grants sem gamanleikara í fremstu röð.
NORTH BY NORTHWEST (1960) Cary Grant leikur kaupsýslumann sem er hundelt-
ur með vopnaskaki, vítt um Bandaríkin, án þess að
hafa minnstu hugmynd um hvaðan á sig stendur veðr-
ið. Enn einn Hitchcock-sakleysinginn er lendir í
kringumstæðum sem hann ræður engan veginn við
sjálfur. Leggur á einhvern skemmtilegasta flótta
kvikmyndanna með mörgum sígildum atriðum eins og
því er flugvélin ræðst á Grant úti á akrinum og há-
punktinum á Rushmore-fjalli, innan um forsetahöf-
uðin. Stjarnan er sannarlega í essinu sínu og það er
leikstjórinn líka, sem blandar saman gríni og spennu í
unaðslegan kokteil. James Mason firnagóður í hlut-
verki illmennisins.
CARY GRANT
Með Deborah Kerr í An Affair to Remember. Með góðvini sínum Alfred Hitchcock árið 1979.
Stjörnurkvikmyndanna
eftir Sæbjörn Valdimarsson
Cary Grant þótti
ómótstæðilegur
hjartaknúsari.