Morgunblaðið - 12.10.2001, Blaðsíða 1
233. TBL. 89. ÁRG. FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 12. OKTÓBER 2001
BANDARÍSKAR flugvélar gerðu í
gærkvöldi harðar árásir á höfuðborg
Afganistans, Kabúl, en nokkrum
stundum fyrr höfðu verið gerðar
fyrstu árásirnar í dagsbirtu, áður
hafði eingöngu verið lagt til atlögu að
næturlagi. Sjónarvottar sögðu að
miklar sprengingar hefðu heyrst í
Kabúl, einnig var ráðist að höfuðvígi
talibana, Kandahar. Voru árásirnar
hinar öflugustu sem gerðar hafa ver-
ið síðan aðgerðir vesturveldanna hóf-
ust sl. sunnudag. Forseti herráðs
Bretlands, Michael Joyce flotafor-
ingi, sagði í gær að árásirnar á talib-
ana og stöðvar Osamas bin Ladens
gætu staðið langt fram á næsta ár.
Rumsfeld harmar
mannfall
„Þetta gæti orðið mjög stutt en við
verðum að búa okkur undir að það
geti varað út veturinn og fram á
næsta sumar að minnsta kosti,“ sagði
Boyce. Fréttavefur BBC hafði eftir
honum að ef gripið yrði til þess að
senda landher á vettvang myndi það
aðeins verða í skamman tíma og til að
sinna afmörkuðum verkefnum.
Talibanar sögðu að 100 manns
hefðu fallið í þorpi skammt frá Jalala-
bad í fyrrinótt og 15 manns er flug-
skeyti hafi lent á mosku í norðaust-
urhluta landsins en engir hlutlausir
aðilar hafa staðfest tölurnar. „Eng-
inn skyldi vera í vafa um að ég og
aðrir sem hlut eiga að máli harma
mannfall sem ekki er stefnt að,“
sagði Donald Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna.
Alls hafa nú 36 ríki sagst vera
reiðubúin að leggja til hermenn eða
annað hernaðarlegt framlag til árás-
anna á talibana. Pakistanar leyfðu í
gær Bandaríkjamönnum að nota tvo
herflugvelli. Búist er við hörðum
mótmælum gegn stuðningnum við
vesturveldin í dag en þá er bænadag-
ur múslíma. Öryggislögregla hefur
aukið mjög viðbúnað sinn og innan-
ríkisráðherra Pakistans, Moinuddin
Haider, sagði í yfirlýsingu í gær að
stjórnvöld myndu ekki líða ofbeldis-
full mótmæli gegn loftárásunum. Ef
afganskir flóttamenn tækju þátt í
mótmælum yrðu þeir reknir burt.
Herþotur yfir
Washington
Fimm AWACS-ratsjárflugvélar
Atlantshafsbandalagsins, sem hafa
haft aðsetur í Þýskalandi, munu í dag
verða sendar til Bandaríkjanna til að
annast þar eftirlit en menn hafa enn
mikinn vara á sér þar í landi vegna
flugumferðar. Bandaríska alríkislög-
reglan, FBI, sagðist í gær hafa undir
höndum upplýsingar sem bentu til
þess að mikil hætta væri á hryðju-
verkum gegn Bandaríkjamönnum,
annaðhvort í landinu sjálfu eða utan-
lands, á næstu dögum. Ráðherra
bandaríska flughersins sagði í viðtali
við CNN-sjónvarpsstöðina í gær að
herþotur héldu nú að staðaldri uppi
eftirliti yfir höfuðborginni, Wash-
ington, á nóttunni.
Bílalest með mat og aðrar nauð-
synjar á vegum Sameinuðu þjóðanna
var í gær stöðvuð á leið sinni frá Pak-
istan til Herat í vesturhluta Afganist-
an. Talibanahermenn kröfðust þess
að greiddur yrði hár „vegatollur“ og
var málið enn í hnút er síðast fréttist.
Bretar segja átökin geta
staðið fram á sumar
Kabúl, Washington, London. AP, AFP.
FBI varar við
hryðjuverkum á
næstu dögum
AP
Liðsmenn skriðdrekasveitar Norðurbandalagsins, sem berst gegn talibönum, biðjast fyrir í gær í Dasht- I-Qala,
um tíu kílómetra frá landamærunum að Tadjikistan. Skýrt var frá hörðum bardögum víða í landinu.
Hörðustu/24
ÞINGNEFND í Danmörku
samþykkti í gær sem samsvar-
ar rúmlega 400 milljónum ísl.
króna framlag á þessu ári til
meiri viðbúnaðar vegna hættu
á hryðjuverkum, að sögn Berl-
ingske Tidende. Eftirlit í Krist-
jánsborgarhöll, þinghúsi Dana,
hefur þegar verið hert og sett
öryggisgler í fimm metra háa
aðalgluggana.
Erik Dalgaard, talsmaður al-
mannavarna í Kaupmannahöfn,
segir að daglega berist nokkrar
fyrirspurnir frá skólum og
fyrirtækjum sem vilji vita
hvernig bregðast skuli við hót-
unum um sýklavopna- eða efna-
vopnaárásir.
Rangt að leggja
áherslu á gasgrímur
Sjálfur segist Dalgaard ekki
ráðleggja fólki að kaupa gas-
grímur. „Ég segi nei. Kostnað-
urinn við grímurnar er meiri en
svo að hann svari til hættunnar
á að þeirra verði þörf,“ segir
Dalgaard. Hann segist telja að
landsmenn séu almennt vel
búnir til að verjast gasárás og
bendir auk þess á að landið sé
vindasamt og gasið muni því
fljótt fjúka burt.
Þegar hefur verið gefin skip-
un um að bréf og pakkar til
þingmanna í Kristjánsborg
skuli afhentir við innganginn en
ekki beint til þeirra. Forsætis-
nefnd þingsins ræðir nú tillög-
ur lögreglunnar um að allir sem
koma inn í húsið skuli fara um
málmleitarhlið, ganga með skil-
ríki í barminum og skrá sig.
Danmörk
Öryggis-
gler í
þinghúsið
BJÖRGUNARMENN sem unnið
hafa í rústum World Trade Center-
skýjakljúfanna í New York sjást
hér virða einnar mínútu þögn til
minningar um fórnarlömb hryðju-
verkanna.
Þess var minnst víða um heim í
gær að mánuður var liðinn frá
hryðjuverkaárásunum á New York
og Washington.
Við minningarathöfn í New York
sagði borgarstjórinn, Rudolph
Giuliani, að enduruppbygging á
Manhattan yrði tileinkuð minningu
þeirra 5.000 manna, sem talið er að
hafi farist í árásunum á World
Trade Center-skýjakljúfana. Björg-
unarmenn sem unnið hafa að
hreinsun í rústum bygginganna
gerðu hlé á störfum sínum í eina
mínútu kl. 8.48 í gærmorgun en á
þeim tíma skall fyrri flugvélin á
öðrum turninum 11. september.
George W. Bush Bandaríkja-
forseti var viðstaddur athöfn í
Washington þar sem um 20.000
manns minntust þeirra sem féllu í
árásinni á varnarmálaráðuneytið,
Pentagon. 125 starfsmenn í bygg-
ingunni biðu bana, auk þeirra 64
sem voru um borð í flugvélinni sem
flaug á hana. Jóhannes Páll II páfi
stýrði bænastund í Róm í gær til
minningar um fórnarlömbin og
víða um heim var flaggað í hálfa
stöng við opinberar byggingar.
Fórnar-
lamba
minnst
Reuters
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, hélt í gær heimleiðis úr ferð
sinni til Mið-Austurlanda sem farin
var til að efla baráttuna gegn stjórn
talibana. Er hann var í Óman ræddi
hann símleiðis við Yasser Arafat,
leiðtoga Palestínumanna. „Það er
brýnt að við komum friðarviðræðum
aftur af stað svo að ekki verði til hver
kynslóðin á fætur annarri sem mis-
notar málstað Palestínumanna til að
fremja hermdarverk,“ sagði Blair.
Borgarstjórinn í New York, Rud-
olph Giuliani, neitaði í gær að taka
við tíu milljóna dollara gjöf til hjálp-
arstarfsins frá sádi-arabískum
prinsi, Alwaleed Bin Talal. Prinsinn
lýsti harmi sínum yfir árásunum en
sagði jafnframt að Bandaríkin yrðu
að endurskoða stefnu sína gagnvart
deilum Ísraela og Palestínumanna.
„Á tímum sem þessum verður að
taka á ákveðnum málum sem ollu
þessari glæpsamlegu árás,“ sagði í
yfirlýsingu Talal. The New York
Times fullyrti að í Washington væri
mikil óánægja með að Sádi-Arabar
neituðu enn að frysta eignir samtaka
Osamas bin Ladens, al-Qaeda.
Síðast ræddi Blair við Hosni Mub-
arak Egyptalandsforseta í Kaíró og
tók þá undir hugmynd Mubaraks um
alþjóðlega ráðstefnu til að ræða um
hryðjuverk og orsakir þeirra. For-
setinn sagði að ekki yrði hægt að
tryggja öryggi fyrr en búið væri að
finna heildarlausn á deilunum í Mið-
Austurlöndum. Ný skoðanakönnun á
vegum Bir Zeit-háskólans á Vestur-
bakkanum gefur til kynna að um
90% Palestínumanna séu andvíg
árásum á Afganistan og 26% telji að
árásirnar á Bandaríkin hafi verið í
samræmi við lög íslams.
Friðarsamn-
ingar skilyrði
fyrir öryggi
Kaíró, Washington. AFP, AP.