Morgunblaðið - 12.10.2001, Side 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2001 33
Samfylkingarfólk Hafnarfirði
Takið þátt í skoðanakönnuninni í Alþýðuhúsinu:
Í dag, föstudag, kl. 14-18,
á morgun, laugardag, kl. 10-18,
og á sunnudag kl. 14-18.
Samfylkingin Hafnarfirði.
SIGURBJÖRN Jónsson sýnir ná-
kvæmlega þrjátíu verk í öllum söl-
um Hafnarborgar. Obbinn er stór
verk, nær tveggja metra á hvora
vegu, en í Kaffístofunni eru hátt í tíu
smáverk sem vega upp á móti risa-
flekunum í aðalsalnum. Það er
merkilegt að bera saman þessar
tvær stærðir, svo gjörólík er virknin.
Myndir Sigurbjörns eru flestar
óhlutbundnar þótt víða megi sjá þar
leifar hlutbundins myndefnis. Lá-
deyða inni á fjörðum, með þoku-
slæðingi og hömrum sem speglast í
haffletinum. Hér er að vísu djarflega
getið í eyðurnar, því varla er okkur
ætlað að standa frammi fyrir verk-
unum og spá í hugsanlegar fyrir-
myndir. Einungis á einum vegg
kaffistofunnar er myndröð með auð-
læsu myndefni; knattspyrnumönn-
um mitt í hita leiks.
Tækni Sigurbjörns byggist á
þunnu vaski út frá ákveðnum af-
mörkuðum formum neðarlega á
myndfletinum. Áhorfandanum verð-
ur þegar hugsað til þýsk-bandaríska
abstraktmálarans Hans Hofmanns
og hins rússnesk-franska starfs-
bróður hans Nicolas de Stäel, en
báðir fengust þeir við togstreitu
frjálsrar og bundinnar tjáningar í
verkum sínum þar sem geómetrísk
form rekast saman við loftkennda
heild.
Ýmislegt er ágætlega gert í
myndum Sigurbjörns, en stærð flat-
arins ber þó tæknina alltof oft of-
urliði. Breiðar pensilstrokurnar
breytast í þunna slikju og losara-
bragur læðist inn í heildina með
þeim afleiðingum að samhengið
verður alltof veikt í ljósi stærðar
myndanna. Minni flötur myndi þétta
betur samhengið og styrkja. Það
sannast á minni myndunum. Þar
verður ákveðin þykkt í litnum sem
gefur til kynna að málarinn ráði vel
við viðfangsefnið.
Það hlýtur því að vera spurning
hvort Sigurbjörn ætti ekki að
minnka snarlega myndir sínar og
dvelja lengur við hverja þeirra.
Sennilega myndi það gera gæfu-
muninn og færa verkum hans þann
nauðsynlega þunga sem stóru verk-
in skortir.
Málverk, stór og smá
MYNDLIST
H a f n a r b o r g
Til 15. október. Opið miðvikudaga
til mánudaga frá kl. 11–17.
MÁLVERK
SIGURBJÖRN JÓNSSON
Morgunblaðið/Þorkell
Eitt efnilegasta verkið á sýningu Sigurbjörns Jónssonar í Hafnarborg.
Halldór Björn Runólfsson
ÁRNI Ingólfsson var meðal eft-
irtektarverðustu listamanna ungu
kynslóðarinnar á níunda áratugnum
þegar hann tók allt í einu upp á því
að hverfa af sjónarsviðinu. Síðan hef-
ur lítið farið fyrir honum þar til fyrir
skömmu að hann fór aftur að segja
til sín. Með þessari sýningu hjá Sæv-
ari Karli er von til þess að Árni
blandi sér í reykvískt listalíf með
varanlegum hætti því hann á þar
ótvírætt erindi.
Það var helsta gildi Árna sem
listamanns á árum áður að hann
kunni að fanga augnablik tíðarand-
ans með mjög nærtækum hætti. Það
var engu líkara en það að nema birt-
ingarmyndir tilverunnar hér og nú
væri hin brennandi krafa allra list-
rænna kvaða. Þannig geislaði fram-
lag Árna ætíð af þeirri áhvílandi af-
stöðu hans að hvorki þar né þá, né
þegar tímar koma, tryggði listaverki
brautargengi ef það væri ekki í
stundlegum takti við áhorfendur
sína.
Sama tilfinningin fyrir tíðarand-
anum svífur yfir vötnum í Galleríi
Sævars Karls, þar sem Árni sýnir
fjölda smárra og hrárra höggmynda
úr gipsi og leir. Hvílandi á stöplum
mynda þessar smáveraldir skipan
sem gengur upp með lunknum og
drepfyndnum hætti. Á veggnum í
gryfju gallerísins er ljósmynd full af
sauðslegri sveitarómantík en eilítið á
sveig við höggmyndirnar. Öll hafa
verkin sína sérstæðu titla sem
sprottnir eru úr frásagnaumhverfi
sveitamannsins, auk nokkurra heita
sem lesa má sem hláturpillur sendar
inngrónu lista- og athafnasamfélagi
okkar mörlandans.
Ef til vill eru það þessir titlar sem
eru veikasti hlekkurinn í sýningunni.
Þeir eru of nærri tungutaki Magn-
úsar Pálssonar til að Árni geti leyft
sér að brúka þá umyrðalaust. Þessir
hnökrar breyta þó ekki þeirri stað-
reynd að litlu leiksviðshöggmyndirn-
ar á stöplunum bera sprengikrafti
listamannsins órækt vitni og sýna að
hann hefur fáu gleymt í útlegðinni
frá listalífinu.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Frá sýningu Árna Ingólfssonar í Galleríi Sævars Karls.
Fáu gleymt
í útlegðinni
MYNDLIST
G a l l e r í S æ v a r s K a r l s
Til 18. október.
Opið á verslunartíma.
BLÖNDUÐ TÆKNI
ÁRNI INGÓLFSSON
Halldór Björn Runólfsson
MENNTAMÁLARÁÐHERRA hefur
ákveðið að bjóða myndlistarmann-
inum Rúrí að verða fulltrúi Íslands
á tvíæringnum í Feneyjum árið
2003, á grundvelli tillögu frá mynd-
listarnefnd ráðuneytisins.
Formleg þátttaka Íslands í Fen-
eyja-tvíæringnum hófst árið 1984
og hafa íslenskir myndlistarmenn
sýnt í skála sem Alvar Aalto teikn-
aði. Finnar hafa leigt Íslendingum
þennan skála. Finnbogi Pétursson
var fulltrúi Íslands í Feneyja-
tvíæringnum í ár.
Rúrí á
Feneyja-
tvíæringinn
Morgunblaðið/Golli
Myndlistarmaðurinn Rúrí.