Morgunblaðið - 12.10.2001, Blaðsíða 20
Neskaupstaður
ÁRSFUNDUR Hafnarsambands
sveitarfélaga hófst í Neskaupstað,
Fjarðabyggð sl. föstudag og er það í
fyrsta sinn í átta ár sem þingið er
haldið í Austurlandskjördæmi.
Um 100 fulltrúar víðs vegar að af
landinu sátu fundinn, sem nú er
haldinn í 32. sinn.
Meðal gesta sem ávörpuðu fund-
inn við setningu hans voru Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra og
Wollert Krohn-Hansen, hafnar-
stjóri, Þrándheimi, Noregi.
Meðal efnis sem tekið var fyrir á
fundinum er tillaga að nýju hafnar-
lagafrumvarpi sem áætlað er að tek-
ið verið fyrir á þingi í vetur, gjald-
skrá og fjárhagur hafna. Einnig var
kynnt úttekt á samkeppnisstöðu sjó-
flutninga gagnvart landflutningum
sem Hagfræðistofnun Háskóla Ís-
lands hefur unnið fyrir Hafnarsam-
band sveitarfélaga.
Fram kom í setningarræðu Árna
Þórs Sigurðssonar, formanns stjórn-
ar Hafnarsambands sveitarfélaga,
að sambandið telur samkeppnis-
stöðu flutninga á sjó gagnvart flutn-
ingum á landi skekkta vegna niður-
greiðslu landflutninga, enlandflutn-
ingar hafa aukist verulega á
undaförnum árum á kostnað sjó-
flutninga.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra og Guðmundur
Bjarnason, bæjarstjóri Fjarða-
byggðar, sátu fundinn.
32. ársfundur Hafnarsambands
sveitarfélaga haldinn í Fjarðabyggð
Skekkt samkeppn-
isstaða flutninga
á sjó og landi
SUÐURNES
20 FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
FULLORÐIN ær
náðist nýlega við
bæinn Eyri á Flat-
eyjardal eftir rúm-
lega þriggja ára
útigöngu í svoköll-
uðum Hágöngum
norðan Víkna-
fjalla, en þar er
snarbratt í sjó
fram og má teljast
furðulegt kindin
skyldi lifa af þrjá
vetur á þessu
svæði.
Hún fór sem lamb frá eiganda
sínum Tryggva Stefánssyni á Hall-
gilsstöðum á afrétt sumarið 1998
og hefur ekki náðst fyrr en nú þar
sem aldrei hefur verið hægt að
nálgast hana áður.
Hún hafðist mikið við í tveimur
torfum sem nefnast Stapatorfa og
Bríkurtorfa auk þess að beita sér í
aðliggjandi bjargi þar sem nokk-
urn gróður er að finna. Að sögn
Þórðar Péturssonar á Húsavík sem
fylgst hefur með
henni af sjó í þrjá
vetur má telja lík-
legt að þarna
gangi hellisskútar
inn í bergið þar
sem hægt er að
hafast við í vond-
um veðrum.
Ærin hefur ver-
ið mikið ein og
hefur ekki átt
lamb en hrútur
sem var á móti
henni sumarið 1998 fórst í klett-
unum og fannst dauður í fjörunni.
Móðir hennar fannst á Eyrarfjöru
sumarið 1999 og þá löngu dauð. Að
sögn Tryggva sem nú er búinn að
fá kindina heim, kann hún ekki átið
og vill því ekki hey. Hún var 90 kíló
þegar hún var vigtuð og hefur því
þrifist vel og segir Tryggvi þessa
kind dæmi um fádæma hreysti og
dugnað íslensku sauðkindarinnar.
Kind náðist eftir þriggja
ára útigöngu í Hágöngum
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Útigönguærin við fjárhúsin
á Hallgilsstöðum ásamt
lambi annarrar kindar.
Laxamýri
NÚ í haust var hafin bygging á fisk-
verkunarhúsi hér á Stöðvarfirði. Það
er fyrirtækið Skútklöpp ehf. Fá-
skrúðsfirði sem reisir þetta hús, en
það er um 300 fermetrar að flatar-
máli. Í húsinu verður starfrækt að-
gerðarþjónusta og saltfiskverkun en
fyrirtækið rekur slíka starfsemi á
Fáskúðsfirði.
Fyrirhugað er að starfsemi fyrir-
tækisins á Fáskrúðsfirði verði að
öllu óbreyttu hætt og flutt í þetta
nýja hús hér á Stöðvarfirði. Áætlað
er að húsið verði tekið í notkun í des-
ember næstkomandi. Í fiskvinnsl-
unni mun starfa 6-8 starfsmenn en
talið er að 1.000-1.200 tonn af hráefni
fari í vinnslu á ári. Húsið er stál-
grindarhús, járnklætt að utan og
innan. Í húsinu verður vinnslusalur
og starfsmannaðstaða og einnig sér
rými fyrir lyftara. Byggingarverk-
taki er Þorsteinn Bjarnason, húsa-
smíðameistari á Fáskrúðsfirði.
Nýtt fiskverkunar-
hús í byggingu
Stöðvarfjörður
VERIÐ er að skoða hvað best sé að
gera til að minnka slysahættu í
grjóthaugunum við gömlu grjót-
námuna norðan við Keflavík. Ljóst
er þó að grjótið verður fjarlægt.
Alvarlegt slys varð um helgina
þegar grjót féll ofan á sjö ára gaml-
an dreng sem þar var að leik.
Að sögn Viðars Más Aðalsteins-
sonar, bæjarverkfræðings Reykja-
nesbæjar, hefur grjótnáman verið
ófrágengin í fjölda ára. Seinni árin
hafi verktakar ekið á svæðið grjóti
sem fallið hafi til við ýmis verk,
meðal annars fyrir bæjarfélagið.
Hugmyndin hafi verið að geyma
grjótið þarna og nota það síðar við
hafnarframkvæmdir eða aðrar
framkvæmdir þar sem nota þyrfti
grjót, enda væri það dýrt efni.
Hins vegar viðurkennir Viðar Már
að frágangur sé ekki til fyrirmynd-
ar.
Lausir steinar
Hann segir að á vegum bæjarins
sé verið að kanna hvernig best sé
að bregðast við slysinu um helgina,
til að minnka slysahættu. Telur
hann einsýnt að fjarlægja verði
grjótið og loka námunni í samræmi
við almennar kröfur sem uppi eru í
dag. „Við viljum gera allt sem hægt
er til að koma í veg fyrir að svona
gerist,“ segir Viðar Már.
Grjótinu hefur verið sturtað í
hauga á svæðinu og eru stórir og
smáir steinar lausir ofan á hrúg-
unum. Litli drengurinn varð undir
300-400 kílóa steini, að mati lög-
reglu, og þurfti hjálp til að losna
undan honum. Drengurinn liggur
enn á sjúkrahúsi í Reykjavík.
Grjóthaugarnir eru skammt frá
barnmörgu hverfi, til dæmis rétt
hjá blokkunum við Heiðarholt.
Börn hafa eitthvað sótt í að leika
sér þarna. Viðar Már segist ekki
hafa orðið mikið var við óánægju
íbúa vegna þessa, ekki fyrr en nú
eftir slysið.
Aðspurður segir bæjarverkfræð-
ingur að leiksvæði hefði verið útbú-
ið fyrir börnin í þessu hverfi og til
standi að bæta það.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Slysagildrur eru í grjóthaugunum við Heiðarholts-blokkirnar. Þar valt stór steinn ofan á dreng um helgina.
Ráðgera að fjar-
lægja grjóthaugana
Keflavík
SIGRÍÐUR Rósinkarsdóttir opnar
sýningu á vatnslitamyndum í Gall-
erý Hringlist í Keflavík, næstkom-
andi laugardag, 13. október. Sýn-
ingin verður opnuð klukkan 14.
Sigríður er fædd að Snæfjöllum
við Ísafjarðardjúp. Hún stundaði
nám hjá Eiríki Smith við myndlist-
ardeild Baðstofunnar í Keflavík.
Sigríður hefur haldið margar
einkasýningar, meðal annars á Suð-
urnesjum, í Hveragerði og á Hrafns-
eyri við Arnarfjörð. Síðasta einka-
sýning Sigríðar var í Stöðlakoti í
Reykjavík um síðastliðna páska. Sig-
ríður hefur einnig tekið þátt í
nokkrum samsýningum bæði hér
heima og erlendis, að því er fram
kemur í fréttatilkynnngu. Hún sýndi
til dæmis í boði International art
exchanging í Gallery Newform í
Sparreholm 1997 og í Frölunda kult-
urhus í Gautaborg 1998. Sigríður er
félagi í Norræna vatnslitafélaginu.
Gallerý Hringlist er að Hafn-
argötu 29 í Keflavík. Sýningin
stendur til 27. október og er opin
alla virka daga frá klukkan 13 til 18
og laugardaga frá 10 til 16.
Sigríður Rósinkarsdóttir opnar
á morgun sýningu í Hringlist.
Sigríður
sýnir í
Hringlist
Keflavík
SAMÞYKKT hefur verið að
taka tilboði Íslenskra aðalverk-
taka hf. í lagningu 400 m kafla á
Stafnesvegi úr Sandgerði. Fyr-
irtækið var með þriðja lægsta
tilboðið.
Sjö tilboð bárust í útboði
Sandgerðisbæjar á lagningu
Stafnesvegar, úr Sandgerði og í
áttina að Hvalnesi. Þegar til-
boðin voru opnuð í síðustu viku
kom í ljós að Toppurinn var
með lægsta tilboðið, rétt rúmar
23 milljónir kr. sem er 68,5% af
kostnaðaráætlun verkkaupa.
Ellert Skúlason bauð tæpar
23,7 milljónir sem er 70,3% af
áætlun og Íslenskir aðalverkt-
ar buðu rúmar 23,9 milljónir,
71% af kostnaðaráætlun.
Bæjarráð Sandgerðisbæjar
samþykki á fundi sínum í fyrra-
kvöld að taka tilboði Íslenskra
aðalverktaka og bæjarstjóra
var falið að ganga frá samningi
sem fyrst. Bókað er að við
ákvörðunina hafi verið tekið til-
lit til skuldastöðu [verktaka]
við ríkissjóð, mannafla og
tækjakosts.
Þriðja
lægsta
tilboði
tekið
Sandgerði
LÆGRA tilboðið í dýpkun Sand-
gerðishafnar reyndist 34 milljónir
undir kostnaðaráætlun Siglinga-
stofnunar.
Dýpka á Sandgerðishöfn í vetur
og sprengja fyrir stálþili vegna lag-
færinga og lengingar á Norðurgarði
um 25 metra. Er það gert til að bæta
aðstöðu fyrir loðnu- og síldarskipin.
Tvö tilboð bárust í útboði Siglinga-
stofnunar og Hafnarráðs Sandgerð-
is. Ístak hf. bauð tæpar 59,7 milljónir
og Hagtak hf. bauð tæpar 24,4 millj-
ónir. Kostnaðaráætlun Siglinga-
stofnunar hljóðaði upp á 58 milljónir.
Er tilboð Hagtaks því 42% af áætlun
og tæpum 34 milljónum undir kostn-
aðaráætlun Siglingastofnunar.
34 milljónir undir áætlun
Sandgerði