Morgunblaðið - 12.10.2001, Blaðsíða 62
FÓLK Í FRÉTTUM
62 FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
JARÐVEGURINN fyrir Starsail-
or er bæði vondur og góður, eftir
því hvernig á það er litið. Vondur
því hver einasta unga sveit sem
leikur tilfinningaþrungið, melód-
ískt popprokk,
leidd af söngvara
sem getur sungið í
falsettu, er nú
sögð apa eftir
Coldplay, sem
sögð var apa eftir
Travis, sem sögð var apa eftir Rad-
iohead. Góður vegna þess að þökk
sé ofannefndum sveitum að hluta,
þá er vönduð og vel samin tónlist,
leikin af hæfileikaríkum hljóðfæra-
leikurum, í tísku. Plötukaupendur
eru ginnkeyptir fyrir dramatískum
og háfleygum lagasmíðum, sömd-
um og fluttum af tónlistarmönnum
sem skammast sín ekkert fyrir að
vera með brennandi metnað fyrir
því sem þeir eru að gera. Slíkt er
náttúrlega alveg ferlega pirrandi
ástand í augum þeirra sem telja hið
eina sanna rokk og ról vera flutt af
kærulausum, groddaralegum, rétt
svo spilandi föntum sem gefa skít í
allt og alla og mata blaðamenn af
fúkyrðum í garð starfsbræðra
sinna. Þeim sem segja að rokkið
snúist um rétt hugarástand fyrst
og fremst - réttu stellingarnar.
Starsailor pirrar vafalítið þennan
síðarnefnda hóp því sveitin er skip-
uð hæfileikaríkum ungum og ein-
lægum drengjum sem leggja metn-
að sinn í að semja góða tónlist,
mikinn metnað. Sem sagt, eftirlæti
tengdamæðra.
Það er skemmst frá því að segja
að Love is Here stendur fyllilega
undir þeim væntingum sem gerðar
voru til sveitarinnar í kjölfar smá-
skífunnar frábæru „Good Souls“,
þar sem komið var fram besta
Echo and The Bunnymen-lagið síð-
an „Killing Moon“. Til mikillar
blessunar er þetta kanínubergmál
einstakt tilfelli og áhrif Liverpool-
sveitarinnar svo gott sem ógreini-
leg hinum tíu lögunum á plötunni.
Ennfremur er samlíkingin við
Coldplay og Travis ósanngjörn því
eina sem þessar þrjár sveitir eiga
sameiginlegt er að samanstanda af
breskum, enskum og skoskum,
prúðmennum sem leika aðgengi-
lega og dægilega rokktónlist.
Helsti galli annars heilsteyptrar
plötu er að þrátt fyrir að dramatík-
in virki oftast á réttan veg á hún til
að fara á stundum yfir strikið og
verða hvimleið, einkum þegar
söngvarinn James Walsh dembir
barka sínum dýrmæta út í full
strembnar leikfimisæfingar.
Að öðru leyti eru þessir efnilegu
stjörnusjóarar færir í flestan sjó
og ættu í réttlátum heimi að verða
aflakóngar hinir mestu.
Tónlist
Færir
í flestan
sjó
Starsailor
Love is Here
Chrysalis/Skífan
Fyrsta breiðskífa björtustu vonar Breta.
Þola ekki að vera kallaðir nýju Coldplay,
hvað þá nýju Travis.
Skarphéðinn Guðmundsson
Lykillög: „Way to Fall“, „Talk Her
Down“, „Poor Misguided Fool“.
SÝN þeirra kringlóttu á góða
skemmtan hefur ávallt verið öðrum
lögmálum bundin en hins venjulega
teitisgosa, ef hann er þá einhvers
staðar til. Hér hljómar sveitin líkt og
brúðkaupsband á tunglinu; kl. 4 að
nóttu, og allir farnir heim nema
stöku rauðeygð partídýr. Eða þá ein
tékknesk teiknimyndagrúppa úr
Klaufabárðaþátt-
unum; skipuð létt-
kenndum sígaun-
um. Eða það sem
ég er að reyna
fálma eftir: Hunda-
diskó hljómar eins
og ein skemmtilegasta og um leið
súrrealískasta plata sem ég hefi
heyrt á árinu.
Þeir hundvísu félagar; Hörður,
Kristinn og Kormákur hafa lengi
eldað eldrautt gleði- og stuðsilfur
saman. Sveit þeirra, Hringir, er orð-
in meira en áratugs gömul og byrjaði
víst sem afleggjari úr hinni alís-
lensku karnival- og heimstónlistar-
sveit Júpíters og hafa þeir verið vin-
sælir á mannamótum ýmiss konar í
gegnum tíðina.
En ekki búast við „Long train
running“ eða „Autumn leaves“ frá
þessari sjálfskipuðu sýrupolkasveit.
Nei, Hringirnir spila ókennilega
blöndu af kokkteilmúsík, sirkustón-
list, gamaldag rokki og róli og létt-
hlustunartónlist og bregða fyrir sig
alls kyns hundakúnstum á meðan
þeir eru að því. Þessi skekkta og
skemmtilega sýn sveitarinnar gerir
að verkum að einatt er eitthvað
óvænt og nýtt í vændum; einatt er líf
og fjör. Undir niðri liggur svo sterk-
ur og kæruleysislegur „mér er alveg
sama“ pönktónn, viðhorf sem er
þessari karnival-krossferð mikill
styrkur.
Lögin hér eru frumsamin; bæði
hröð og ærslafull en líka hæg og þá
næsta stórskrýtin („LSD“ t.d.).
Lagatitill eins og „Lygn streymir
Rangá“, titill plötunnar, setninga-
brot eins og „megi maurar naga burt
mitt hold“ og hin stórfenglega útgáfa
af „Pop Corn“ ættu að gefa einhverja
hugmynd um hið oft og tíðum sér-
kennilega en ávallt stórskemmtilega
innihald. Gítarleikur Kristins er
hugmyndaríkur; orgelleikur Harðar
er einfaldlega yndislegur og öllu
þessu er haldið örugglega saman af
trymblinum knáa, honum Kormáki.
Og laglaus og raulkenndur söngur
þeirra félaga er punkturinn yfir hið
undursamlega i.
Hundadiskó er langt í frá eitthvert
hundafæði heldur miklu fremur helj-
argott og grasserandi æði. Já – bara
algert hundaæði!
Tónlist
Heljar-
gott
hundaæði
Hringir
Hundadiskó
Edda – miðlun og útgáfa
Hundadiskó, geisladiskur Hringja eða
sýrupolkasveitarinnar Hr. ingi-R. Sveitina
skipa Hörður Bragason (farfísa orgel,
bassagítar, söngur, saxófónn, róds píanó
og A.R.P. könnuður), Kormákur Geir-
harðsson (trommur, slagverk, söngur,
básúna og júmbóhrista) og Kristinn H.
Árnason (gítar, þeremín, söngur og síló-
fónn). Lög og textar eftir Hr. ingi-R, Stein-
grím, Þorgeir, Eirík Stephensen, Paul Co-
caine og Kingsley. Eitt lagið, „Jenka“, er
þjóðlag. Valgeir Sigurðsson tók upp og
hljóðblandaði. 45.41 mínútur.
Arnar Eggert Thoroddsen
Morgunblaðið/Ásdís
„Sýn þeirra kringlóttu á góða skemmtan hefur ávallt verið öðrum lög-
málum bundin en hins venjulega teitisgosa,“ segir Arnar Eggert m.a.
um nýja plötu Hringja, Hundadiskó.
ÞEIM fjölgar æ sem
leggja í útgáfu á tónsmíð-
um sínum upp á sitt ein-
dæmi. Greiðari og um
margt einfaldari aðgangur
að nýjustu tækni og vís-
indum í upptöku- og út-
gáfumálum hefur m.a.
stuðlað að þessu og reglu-
lega líta dagsins ljós eft-
irtektarverðar einyrkjaút-
gáfur.
Gissur Björn Eiríksson
er einn þessara manna en
fyrir stuttu gaf hann út
sinn fyrsta geisladisk, sem
ber hið hæfandi nafn The
Beginning. Athygli vekur
að ljóðin sem prýða lögin
voru samin fyrir tuttugu
og sex árum en lagasmíð-
arnar sjálfar eru frá þessu
ári.
Gissur leitaði til Axels
Einarssonar tónlistar-
manns, sem rekur hljóð-
stúdíóið og útgáfufyrir-
tækið Stúdíó Stöðin, og
var platan tekin upp þar.
„Hann birtist bara
hérna einn daginn,“ segir
Axel Einarsson,
„Og það sem hann syng-
ur á plötunni er iðulega gert í einni
töku,“ rifjar hann upp með nokkurri
aðdáun í röddinni. Var það Gissur
sem stjórnaði upptökum en Axel að-
stoðaði við hljóðfæraleik og slíkt.
Í stuttu spjalli við Morgunblaðið
sagðist Gissur, sem fæddur er í
Skaftafelli, hafa unnið diskinn ásamt
áðurnefndum Axeli Einarssyni, í
Stöðinni.
„Ég hafði aldrei komið í stúdíó áð-
ur og þetta er frumraun mín.“
Hann segir að Axel hafi sannar-
lega reynst betri en enginn við upp-
tökurnar sem hafi tekið þetta einn til
tvo mánuði.
„Þær gengu alveg prýðilega fyrir
sig,“ segir Gissur og er ekkert um
það að stæra sig of mikið af útgáf-
unni.
Þess má að lokum geta að Gissur
er með myndband í bígerð við eitt
laganna, sem unnið verður í sam-
vinnu við Axel.
Gissur Björn Eiríksson gefur út geisladisk
Tónlistar-
æfingar
Ljósmynd/Jim Smart
Gissur Björn Eiríksson er höfundur hljóm-
disksins The Beginning.
arnart@mbl.is
SÍMI 564 0000 - www.smarabio.is
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40.
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
Sýnd kl. 4 og 6.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 8 og 10.10.
Frá leikstjóra
Romeo & Juliet.
Stórkostleg mynd
með mögnuðum
leikurum og
frábærum lögum
Moulin Rouge er án efa
besta mynd ársins hingað til...
E.P.Ó. Kvikmyndir.com
Empire
FRUMSÝNING
FRUMSÝNING
FRUMSÝNING
Ótrúlegar tæknibrellur,
brjáluð spenna og veisla fyrir augu og eyru.
Þú hefur aldrei séð annað eins.
Nýjasta sýnishornið úr
Lord of the Rings er sýnt á undan
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40.
MOULIN
ROUGE!