Morgunblaðið - 12.10.2001, Page 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í FRÉTT á heimasíðu Neytenda-
samtakanna er þess krafist að olíu-
félögin lækki verð á bensíni taf-
arlaust þar sem verð á
heimsmarkaði hafi farið lækkandi
allt frá 11. september sl. Segir að
samtökin geti ekki fallist á að beðið
verði með lækkun til næstu mán-
aðamóta.
Bjarni Bjarnason, aðstoðarfor-
stjóri Olíufélagsins hf., tjáði Morg-
unblaðinu að ekki stæði til nú frek-
ar en áður að reikna út nýtt verð á
eldsneyti fyrir en um næstu mán-
aðamót. Útsöluverð væri reiknað
út frá meðalverði allra innkaupa
mánaðarins og þar sem enn væri
ekki lokið öllum innkaupum í þess-
um mánuði lægju útreikningar
ekki fyrir fyrr en í mánaðarlok.
Kvaðst hann engu geta spáð um
hugsanlegar verðbreytingar þá.
Á heimasíðu Neytendasamtak-
anna segir að eldsneytisverð hafi
lækkað verulega á heimsmarkaði
um síðustu mánaðamót en ekkert
íslensku olíufélaganna hafi þá séð
ástæðu til að lækka smásöluverð
sitt. „Neytendasamtökin geta ekki
fallist á að beðið verði til næstu
mánaðamóta, eins og olíufélög virð-
ast vilja, enda dæmi um verðbreyt-
ingar á öðrum dögum ef olíufélög-
unum hefur hentað svo,“ segir m.a.
í frétt Neytendasamtakanna.
MEIRA en 100 manns á Vest-
fjörðum eru í fjarnámi við Háskóla
Íslands, Háskólann á Akureyri og
Kennaraháskóla Íslands, sam-
kvæmt tölum frá Fræðslumiðstöð
Vestfjarða. Fjarnemendur fyrir
vestan hafa aldrei verið fleiri en
flestir þeirra eru í Ísafjarðarbæ og
konur eru í meirihluta.
Flestir þessara nemenda eru í
rekstrarfræði við Háskólann á Ak-
ureyri eða 46, þar af 35 úr Ísa-
fjarðarbæ og Bolungarvík og 11
frá Vesturbyggð, þ.e. frá Patreks-
firði, Bíldudal og Tálknafirði. Auk
þess eru níu nemendur frá Ísafirði
í hjúkrunarfræði við HA. 32 nem-
endur eru við Kennaraháskólann
og flestir frá Ísafjarðarbæ. 23 eru
í grunnskólakennaranámi, tveir í
íþróttakennaranámi, þrír í leik-
skólakennaranámi og fjórir í
þroskaþjálfanámi. Við Háskóla Ís-
lands eru átta nemendur frá Ísa-
firði í íslensku, þrír í náms- og
starfsráðgjöf, tveir frá Patreks-
firði í ferðamálafræði og tveir Ís-
firðingar í stærðfræði.
Smári Haraldsson, forstöðumað-
ur Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða,
segir að aldrei hafi verið eins
margir í fjarnámi á háskólastigi á
Vestfjörðum. Hann segir að Kenn-
araháskólinn hafi byrjað fjar-
kennslu á Vestfjörðum fyrir um
áratug og margir kennarar á Vest-
fjörðum hafi fengið sín réttindi í
gegnum fjarnám. 1998 hafi fjar-
nám í hjúkrunarfræði hafist og þá
hafi fjarnámið lyfst á hærra stig
með notkun fjarkennslubúnaðar.
Auk þess segir hann að tölvuforrit
og tölvupóstur séu notuð við
kennsluna.
Les- og vinnuaðstaða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða hef-
ur komið upp les- og vinnuaðstöðu
fyrir fjarnemendur í heimavist
Menntaskólans á Ísafirði og í Fé-
lagsheimilinu á Patreksfirði. MÍ
hefur reyndar séð fjarnemum í
hjúkrunarfræði fyrir aðstöðu und-
anfarin þrjú ár en vegna mikillar
fjölgunar fjarnema var viðkomandi
húsnæði of lítið og hefur skólinn
því bætt um betur.
Aðstaðan er fyrir alla í fjarnámi
og mikið notuð, en Smári segir að
nemendur séu að vinna að stofnun
félags fjarnemenda á Ísafirði til að
efla hópinn enn frekar.
Allt nám fyrir alla
Að sögn Smára má gera því
skóna að þennan mikla áhuga á
fjarnámi á Vestfjörðum megi rekja
til þess hve námið fór vel af stað.
Það hafi vakið athygli og áhuga og
verið merki um eitthvað sem
mætti gera á Vestfjörðum. Nú
væru Vestfirðingar að ganga í
gegnum miklar breytingar, til
dæmis í atvinnulífinu, og sér kæmi
ekki á óvart að fólk teldi að það
þyrfti að ná sér í aukna menntun
til að takast á við nýja veröld.
Smári segir að almennt sé fólk í
fjarnámi sem hefur verið fram-
arlega í atvinnulífi, félagslífi og
menningarlífi. „Þetta er kröftugt
fólk,“ segir hann og bætir við að
það ryðji brautina en draumurinn
sé að allir geti stundað allt nám í
fjarnámi óháð búsetu.
Yfir hundrað manns í
fjarnámi á Vestfjörðum
UM HELGINA taka KFUM og
KFUK tveggja hæða strætisvagn
formlega í notkun í tengslum við
æskulýðsstarfið en vagninn er
hugsaður sem starfsstöð á hjólum
með leiktækjum og fund-
araðstöðu.
Ragnar Schram, sem sér um
vagninn og starfsemina í honum,
segir að í fyrstu sé gert ráð fyrir
fimm fundum í vagninum viku-
lega fyrir elstu krakkana í
grunnskóla. Þrisvar í viku verða
fundir í Grafarvogi, einu sinni í
Grafarholti og einu sinni í Hafn-
arfirði. Hann segir að í Graf-
arvogi sé um gott samstarf við
Borgaskóla að ræða og þurfi t.d.
mikið gólfpláss á einhverjum
fundi eða mæting verði óvenju-
mikil verði viðkomandi fundur
fluttur í skólann. Sambærilegt
samstarf sé við Hauka á Ásvöll-
um í Hafnarfirði.
Dagskráin er hugsuð þannig að
á hverju kvöldi fer vagninn
ákveðinn hring í ákveðnu hverfi
til að ná í unglingana. Þegar
komið er á fundarstað fá krakk-
arnir ákveðinn tíma til að vera í
leiktækjunum á neðri hæð vagns-
ins en þar verða leikjatölvur,
pílukast, þythokkí og fleira. Síð-
an verður hefðbundinn fundur að
hætti félaganna og að honum
loknum gefst tími til að fara aft-
ur í leiktækin áður en ekið verð-
ur með krakkana heim.
Kjartan Jónsson, fram-
kvæmdastjóri KFUM og KFUK í
Reykjavík, segir að hugmyndin
hafi verið að gerjast hjá fé-
lagsmönnum í nokkur ár og
ákveðið hafi verið að láta reyna á
hana núna. Evrópusambandið
veitti frumkvöðlastyrk til kaupa á
vagninum, sem kostar hingað
kominn um 1,7 milljónir, að sögn
Kjartans, en hann segir að bilið
verði brúað með auglýsingum og
styrkjum velviljaðra manna og
fyrirtækja og sama eigi við um
rekstrarkostnaðinn. „Við hugsum
þetta sem starfsstöð á hjólum,“
segir hann og bætir við að vagn-
inn verði m.a. notaður í miðbæj-
arstarfinu um helgar.
Vagninn verður tekinn form-
lega í notkun við aðalstöðvar
KFUM og KFUK á Holtavegi 28 í
Reykjavík kl. 20.30 nk. laug-
ardag.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Breski tveggja hæða strætisvagninn er kominn til landsins og verður
formlega tekinn í notkun hjá KFUM og KFUK á laugardag, en gera þarf
nokkrar breytingar á honum vegna starfseminnar.
KFUM og K með
tveggja hæða
starfsstöð á hjólum
Krefjast
lækkunar
á bensín-
verði
„ÞETTA samkomulag ætti að sýna
svo ekki verður um villst að við hlut-
hafarnir höfum mikla trú á Leikfélagi
Íslands og erum tilbúnir til að leggja
mikið á okkur til að framtíð þess sé
tryggð,“ sagði Hallur Helgason,
stjórnarformaður félagsins, í samtali
við Morgunblaðið í gær en þá ákvað
stór hópur hluthafa félagsins að auka
hlutafé þess um nær 40 milljónir. „Við
höfum einnig fengið vilyrði aðila úr
atvinnulífinu um stuðning eða hluta-
fjárkaup upp á um 20 milljónir,“ segir
hann.
Hallur segir að hlutafjáraukningin
sé þeim skilyrðum háð að samningur
náist við Reykjavíkurborg og
menntamálaráðuneytið til fimm ára
þar sem ríki og borg myndu leggja
Leikfélagi Íslands til 10 milljónir
hvort á næsta ári er stighækki síðan
árlega í 20 milljónir frá hvoru í lok
samningstímans. Samningurinn er
forsenda áframhaldandi leikhús-
rekstrar félagsins.
„Þessi samningur er sambærilegur
þeim sem er í gildi milli Hafnar-
fjarðarbæjar, Hafnarfjarðarleikhúss-
ins og menntamálaráðuneytisins.
Reykjavíkurborg hefur þegar fallist á
þetta fyrirkomulag til ársloka 2003 og
við vonumst til að menntamálaráðu-
neytið mæti því. Á móti mun Leik-
félag Íslands halda áfram starfrækslu
kraftmikils leikhúss. Við höfum lagt
til að félagið skuldbindi sig til að setja
upp árlega að minnsta kosti eitt ís-
lenskt verk, eitt erlent og eitt barna-
leikrit auk annarra verkefna að eigin
vali,“ segir Hallur.
Hann lagði áherslu á að fjárhags-
vandi Leikfélags Íslands væri að
miklu leyti til kominn vegna kostn-
aðarhækkana við rekstur leikhúsa á
Íslandi á sama tíma og miðaverð í
leikhús hefði nánast staðið í stað und-
anfarin sjö ár.
„Nánast allar okkar tekjur koma af
miðasölu og þrátt fyrir góða aðsókn
að sýningum hefur okkur ekki tekist
að standa undir launa- og kostnaðar-
hækkunum undanfarinna ára upp á
yfir 100%. Við megum ekki gleyma
því að Leikfélag Íslands hefur staðið
fyrir leiksýningum sem hafa fengið
aðsókn 12–25% af heildarfjölda leik-
húsgesta á landinu ár hvert. Sam-
starfssamningurinn sem við leggjum
til nú nemur innan við 2% af þeim
fjármunum sem opinberir aðilar verja
til greinarinnar,“ sagði Hallur Helga-
son.
Boða 40 milljóna króna
aukningu hlutafjár
Morgunblaðið/Golli
Þeir stofnuðu Leikfélag Íslands: Á bekknum sitja f.v. Stefán Hjörleifs-
son, Hallur Helgason og Magnús Geir Þórðarson og að baki þeim
standa Sæmundur Norðfjörð, Baltasar Kormákur, Örn Árnason, Sig-
urður Sigurjónsson, Breki Karlsson og Karl Pétur Jónsson.
MINNIHÁTTAR tafir urðu á
flugi Flugleiða frá Kaupmanna-
höfn í gærmorgun auk þess
sem farangur vélarinnar var
skilinn eftir þar til síðar um
daginn. Ástæða þessa voru að-
gerðir sem gripið var til á
Kastrup-flugvelli vegna gruns
um að sprengja leyndist í einni
af þremur byggingum flug-
stöðvarinnar.
Flugstöðvarbyggingin var
rýmd eftir að gegnumlýsing á
farangri farþega leiddi í ljós að
í ferðatösku var grunsamlegur
hlutur með vírum, sem hugsan-
lega gat verið sprengja.
Sprengjusérfræðingar voru
kallaðir til en síðar kom í ljós að
um vekjaraklukku var að ræða.
Að sögn Guðjóns Arngríms-
sonar, upplýsingafulltrúa Flug-
leiða, hafði þetta ekki mikil
áhrif á starfsemi þeirra. „Þarna
var flugvél frá okkur á leiðinni
til Íslands sem tafðist um hálf-
tíma en farþegarnir, rúmlega
100 manns, fóru með henni
heim.
Hann segir að þó hafi 4–5
farþegar misst af vélinni vegna
þess að flugstöðvarbygging-
unni var lokað um tíma. „Sömu-
leiðis varð farangurinn strand.
Hann fór ekki með þessari vél
heim heldur með vélinni seinni-
partinn.“
Umrædd ferðataska var, að
sögn Guðjóns, ekki hluti af
þeim farangri sem átti að fara
með vél Flugleiða til Íslands.
Farangur
varð eftir
á Kastrup-
flugvelli
ÞREMUR golfbílum var stolið
úr golfskálanum við Korpúlfs-
staði á miðvikudagskvöld en
vegfarandi tilkynnti til lögreglu
að verið væri að aka golfbifreið
á göngustíg við Strandveg í
Grafarvogi um klukkan hálftólf
um kvöldið. Í ljós kom að búið
var að stela þremur golfbílum
úr skálanum en farið var inn
um ólæstar dyr.
Bílarnir fundust allir en einn
bílanna var skilinn eftir við
Vættaborgir, annar í Geldinga-
nesi og sá þriðji niðri í fjörunni.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu voru fimm 17 ára piltar
viðriðnir málið.
Golfbíl-
um stolið