Morgunblaðið - 12.10.2001, Page 55
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2001 55
LOFTFÉLAGIÐ, áhugafólk um
öndun, hefur afhent Heilsugæslu-
stöðinni í Lágmúla nýjan lungna-
mæli til eignar. Jón Kristjánsson,
heilbrigðis- og tryggingaráð-
herra, var viðstaddur afhend-
inguna og notaði tækifærið og lét
mæla hversu „andríkur“ hann er.
Niðurstaða mælingarinnar var að
hann væri með góð og sterk
lungu.
Loftfélagið er heiti samstarfs-
verkefnis sem landlæknir, Tób-
aksvarnarnefnd og GlaxoSmit-
hKline koma að, auk sérfræðinga
á sviði lungnalækninga. Markmið
félagsins er að styrkja heilsu-
gæsluna í baráttu gegn vaxandi
tíðni lungnasjúkdóma, sér í lagi
langvinnra lungateppusjúkdóma,
sem eru „þöglir“ í þeim skilningi
að þeir greinast yfirleitt ekki
fyrr en á lokastigi sínu. Talið er
að 16-18 þúsund Íslendingar þjá-
ist af langvinnum lungnateppu-
sjúkdómum, en algengasta orsök
þeirra eru tóbaksreykingar.
Loftfélagið áformar að afhenda
26 lungnamæla jafnmörgum
heilsugæslustöðvum á næstunni.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ráðherrann reyndist
vera með góð lungu
Í TENGSLUM við alþjóðageðheil-
brigðisdaginn verður efnt til fjöl-
skylduhátíðar og tónleika á morgun,
laugardag. Yfirskrift hátíðarinnar er
„Vertu með að rækta þitt geð!“.
Hátíðin hefst með göngu frá
Hlemmtorgi niður Laugaveg og að
Ingólfstorgi. Gangan hefst frá
Hlemmtorgi kl. 14. Gert er ráð fyrir
að þátttakendur verði komnir niður
á Ingólfstorg kl. 14.30, en þar verður
fjölskylduhátíð þar sem m.a. fer
fram kynning á starfsemi geðfélaga,
klúbba og iðjuþjálfa. Gestir spreyta
sig í málaralist, en þar verða enn-
fremur sjónhverfingar, harmonikku-
leikur og trúður mætir á svæðið.
Frá kl. 15–20 verður tónlistarhátíð
á Gauki á Stöng. Meðal þeirra sem
koma fram eru Páll Óskar og Monika
Abendroth hörpuleikari, unglinga-
kór Snælandsskóla, Gospelsystur,
Andrea Gylfa og hljómsveitirnar
Jagúar, Úlpa og Í svörtum fötum.
Þar flytur Illugi Jökulsson ræðu
dagsins klukkan 16.15. Kynnir verð-
ur Ólafur Páll Gunnarsson, rokk-
landsstjóri á Rás 2.
Fjölskylduhátíð
í tengslum
við geðheil-
brigðisdag
„Það er óhætt að segja að María
Guðsmóðir sé sú kona sem mest
áhrif hefur haft í vestrænni sögu,"
segir í fréttatilkynningu.
Leikmannaskóli Þjóðkirkjunnar
býður nú upp á námskeið um
hvernig María birtist í Biblíunni,
sögunni, listinni og lífinu. Fjórir
sérfræðingar á sviði guðfræði, tón-
listar og myndlistar fjalla um Mar-
íu á fjögurra kvölda námskeiði í
Háskóla Íslands sem hefst þann
16. október n.k.
Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir
mun fjalla um Maríu, hvernig
henni er lýst í guðspjöllum Nýja
testamentisins og hvernig saga
hennar hefur verið túlkuð í krist-
inni hefð. Prófessor Einar Sigur-
björnsson fjallar um Maríu eins og
hún birtist í kenningu kirkjunnar
og sem ágreiningsatriði milli
kirkjudeilda. Þóra Kristjánsdóttir
sérfræðingur á Þjóðminjasafni Ís-
lands tekur fyrir Maríu í íslenskri
myndlist. Að síðustu mun Margrét
Bóasdóttir söngkona leiða okkur
inn í heim tónlistarinnar með
hlustun og umræðum um tónlist
með textum um Maríu Guðsmóður.
Skráning á námskeiðið fer fram
á vef Leikmannaskólans,
www.kirkjurad.is/leikmannaskóli
eða á skrifstofunni.
Námskeið
á vegum
Leikmannaskólans
BORGFIRÐINGAFÉLAGIÐ verð-
ur með félagsvist á Hallveigarstöð-
um Túngötumegin, laugardaginn 13.
október kl. 14. Allir velkomnir.
Borgfirðingafélagið
með félagsvist
Í TILEFNI af Evrópuviku gegn
krabbameini undir kjörorðinu
„konur og reykingar“ hefur verið
gefið út veggspjald með mynd af
ofurfyrirsætunni Christy Turling-
ton. Herferðinni er sérstaklega
beint að konum á aldrinum 20–35
ára.
Christy hefur verið á auglýs-
ingum hjá Calvin Klein og fjölda
annarra fyrirtækja og hafa myndir
af henni birst í frægustu tímarit-
um heims. Hún greindist með
lungnaþembu á byrjunarstigi að-
eins 31 árs gömul. Christy hætti
að reykja fyrir fimm árum, en þá
hafði hún reykt í mörg ár. Hún
ákvað að gerast talsmaður fyrir
reyklausan lífsstíl þegar hún
missti föður sinn úr lungnakrabba-
meini fyrir þremur árum.
Í átaksvikunni eru konur sér-
staklega minntar á að hafa í huga
að nikótín er bæði örvandi og slak-
andi og veldur ójafnvægi, en með
síauknum kröfum samfélagsins
þurfa konur að vera í góðu jafn-
vægi til þess að takast á við annir
dagsins, segir í fréttatilkynningu.
Því verður ekki á móti mælt að
reykingar eru stórskaðlegar heils-
unni en þær hafa jafnframt slæm
áhrif á útlitið.
Christy Turlington berst
gegn reykingum
OLE Feldbæk, prófessor í sagn-
fræði við Kaupmannahafnarháskóla,
heldur fyrirlestur á vegum Sagn-
fræðistofnunar Háskóla Íslands
laugardaginn 13. október kl. 14, í
Odda, stofu 101.
Fyrirlesturinn nefnist: Kongens
København. Handelens hovedstad
1720–1814. Ole Feldbæk fjallar um
stöðu Kaupmannahafnar sem höfuð-
borgar Danaveldis á 18. öld frá ýms-
um hliðum.
Fyrirlestur um
sögu Dana
VINSTRIHREYFINGIN – grænt
framboð í Fjarðabyggð heldur op-
inn fræðslufund á Reyðarfirði,
laugardaginn 13. október kl. 14, í
Verkalýðshúsinu.
Fjallað verður um hóflega og
vistvæna nýtingu fiskistofna. Berg-
ur Sigurðsson umhverfisefnafræð-
ingur og Hjörleifur Guttormsson
náttúrufræðingur hafa framsögu.
VG með fund
á Reyðarfirði
STÖÐVIÐ stríðið gegn afgönsku
þjóðinni og verjum réttindi vinnandi
fólks, er yfirskrift málfundar sem
Ungir sósíalistar og aðstandendur
sósíalíska vikublaðsins Militant
halda í Pathfinder bóksölunni,
Skólavörðustíg 6 b (bakvið), laugar-
daginn 13. október kl. 14, segir í
fréttatilkynningu.
Málfundur ungra
sósíalista
GENGIÐ verður á Ármannsfell,
Hrafnabjörg og Tintron, á vegum
Ferðafélags Íslands, laugardaginn
13. október. Brottför er frá BSÍ kl.
10 með viðkomu í Mörkinni 6.
Ekið verður með rútum austur til
Þingvalla og að Ármannsfelli þar
sem gangan hefst. Þetta er 13–15 km
gönguleið og á að vera flestum fær
sem eru í þokkalegu formi. Göngu-
tími er um 6 klst. Fararstjóri verður
Eiríkur Þormóðsson. Verð fyrir
rútu, sund og kvöldverð er kr. 3.500.
Skráning er á skrifstofu FÍ.
Gönguferð
á vegum FÍ
BÆNDUR sem stundað hafa
ræktun á kanínum hafa áhuga á að
endurvekja félagsskap kanínu-
bænda. Slíkt félag var starfandi en
lognaðist út af samhliða því að
kanínurækt lagðist nánast af hér á
landi. Nú hafa nokkrir bændur
hafið rækun á feldkanínum að nýju
og nokkrir eiga holdakanínur. Þeir
sem áhuga hafa á að taka þátt í
stofnun félags kanínubænda geta
haft samband við Loft Eiríksson á
Sandalæk í Gnúpverjahreppi.
Hyggjast stofna
félag kanínubænda
MANNRÉTTINDASAMTÖKIN
hafa sett fram kröfu um að rannsókn
fari fram á dauða almennra borgara í
Afganistan í kjölfar árása Banda-
ríkjamanna og Breta á landið.
„Samtökin hvetja stríðandi aðila
til að virða að fullu Genfarsáttmál-
ann og viðauka við hann frá 1977, þar
sem skýrt er greint frá reglum um
vernd fyrir almenna borgara og
bann við árásum á almenning,“ segir
í fréttatilkynningu frá samtökunum.
Amnesty hafa einnig sent for-
sætisráðherra, utanríkisráðherra og
dómsmálaráðherra bréf þar sem
árásin á Bandaríkin 11. september
er fordæmd. Farið er fram á að þeir
sem ábyrgir eru fyrir árásinni verði
sóttir til saka. Samtökin leggja jafn-
framt áherslu á að öll viðbrögð við
árásinni tryggi að ekki verði grafið
undan mannréttindum. Samtökin
vekja sérstaka athygli á skýrslu um
ástand mannréttindamála í Afgan-
istan, stöðu flóttamanna og fólks á
vergangi í landinu.
Amnesty vill
rannsókn á árásum
á Afganistan
TAFLFÉLAG Reykjavíkur heldur
unglingameistaramót TR í húsa-
kynnum sínum í Faxafeni 12 laug-
ardaginn 13. október kl. 14–18. Mót-
ið er opið öllum börnum og
unglingum 14 ára og yngri.
Tefldar eru sjö skákir með 15 mín-
útna umhugsunartíma. Þátttöku-
gjald er 500 kr., nema fyrir fé-
lagsmenn í Taflfélagi Reykjavíkur
sem þurfa ekkert að borga.
Veitt eru verðlaun fyrir fimm
efstu sætin, en sigurvegarinn fær að
auki farandbikar.
Unglinga-
meistaramót TR
GLEÐIGJAFARNIR með Guð-
mund Magnússon við píanóið taka
lagið í félagsheimilinu Gullsmára,
Gullsmára 13 í Kópavogi, í dag,
föstudag, kl. 14.
Einnig munu Björg Jóhannesdótt-
ir og Gunnar Jóhannsson syngja við
undirleik Agnesar Löve.
Kaffiveitingar á vægu verði. Allir
velkomnir.
Haustkaffi
í Gullsmára
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Halldóri
V. Kristjánssyni, deildarstjóra af-
notadeildar Ríkisútvarpsins.
„Í tilefni fréttar í Mbl. í dag á bls. 2
um flutning Rásar 2 til Akureyrar til
að sporna við fjárhagsvanda Ríkisút-
varpsins vil ég koma eftirfarandi
leiðréttingu á framfæri vegna um-
mæla formanns menntamálanefnd-
ar, Sigríðar Önnu Þórðardóttur.
Afnotagjöld Ríkisútvarpsins voru
á síðasta ári 1.811.787.541 króna, auk
þess var virðisaukaskattur
253.650.255 krónur sem greitt er til
ríkissjóðs.
Hækkun afnotagjalds 1. janúar sl.
um 7% mun leiða til tæplega 127
milljóna króna hækkunar, auk
hækkunar á virðisaukaskatti um
tæpar 18 milljónir króna sem greitt
er til ríkissjóðs, en ekki 280 milljónir
króna eins og formaður mennta-
málanefndar heldur fram.“
Hækkun
afnotagjalda
skilar 127
milljónum
Athugasemd frá
afnotadeild RÚV
Rangar tölur um
kynbundinn launamun
Morgunblaðinu hefur borist eftir-
farandi leiðrétting frá Ingólfi V.
Gíslasyni.
„Í Morgunblaðinu miðvikudaginn
10. október birtist á bls. 4 frásögn af
blaðamannafundi Jafnréttisráðs þar
sem m.a. var kynnt samantekt mín á
könnunum á kynbundnum launamun.
Nú hefur athygli mín verið vakin á að
ein af þeim tölum sem birtar eru í
töflunni um kynbundinn launamun sé
villandi. Hér er átt við könnun
Reykjavíkurborgar frá 1996. Sú
könnun var gerð tvisvar a.v. í mars og
síðan í október. Launamunurinn
mældist 15,5% í mars eins og fram
kemur í töflunni. Aftur var mælt í
október og þá mældist munurinn
14%. Á milli höfðu verið gerðir nýir
kjarasamningar þar sem sérstök
áhersla var lögð á að hækka þá hópa
þar sem konur eru í miklum meiri-
hluta. Þá er líka til þess að taka að
þessar kannanir voru gerðar áður en
grunnskólar fluttust til sveitarfélaga
og ætti þessi tala því heima dálki neð-
ar þar sem kennarar eru ekki með.
Samanburðurinn er því réttur þannig
að kynbundinn launamunur hjá
Reykjavíkurborg í október árið 1996
var 14% eftir aðhvarfsgreiningu svip-
aða þeirri sem sýndi 12% kynbundinn
launamun hjá Akureyri 1998, Mos-
fellsbæ 2000 og Hafnarfirði 2001.“
Hreinsun Varmár
forgangsverkefni
Í grein um fráveitumál í Mos-
fellsbæ sem birtist í blaðinu á mið-
vikudag, var sagt að fráveita í Mos-
fellsdal rynni að mestu óhreinsuð í
Suðurá sem er rangt. Hið rétta er, að
sögn Þorsteins Narfasonar, fram-
kvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits
Kjósarsvæðis, að allt skólp í dalnum
er hreinsað með rotþróarkerfi. Þá vill
hann ítreka það sem fram kom í
greininni að búið sé að finna lausn á
fráveitumálum Mosfellsbæjar og að
umtalsverðum fjármunum verði var-
ið til þess verkefnis á næstu árum.
Hreinsun Varmár er þar forgangs-
verkefni.
LEIÐRÉTT
Á AÐALSÍÐU NetDoktor.is hefur
verið bætt tveimur nýjum efnis-
flokkum sem eru Geðheilsa og For-
varnir. Þar má finna greinar, pistla
o.fl. um þunglyndi, geðröskun og
annað sem að geðheilsu snýr.
Í tveggja ára sögu NetDoktor.is
hefur byggst upp gagnabanki með
þúsundum greina um heilsu og heil-
brigðismál, segir í fréttatilkynningu.
Nýir þjónustuflokkar
á NetDoktor.is