Morgunblaðið - 12.10.2001, Blaðsíða 58
DAGBÓK
58 FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Há-
kon, Yasu Maru og
Laugarnes koma í dag.
Vigri, Koei Mau og
Mánafoss fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Tönnes og Svanur fóru í
gær. Yasu Maru kemur
í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9.
vinnustofa og leikfimi,
kl. 12.45 dans hjá Sig-
valda, kl. 13 bókband,
kl. 14 bingó, ath. komum
fleirum að í bókbandi,
nýtt námskeið í jóga
byrjar miðvikudaginn
17. október ef næg þátt-
taka fæst, skránig í af-
greiðslu síma 562-2571.
Árskógar 4. Bingó kl.
13. 30. Kl. 13–16.30 opin
smíðastofan. Allar upp-
lýsingar í síma 535-2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30 böð-
un, kl. 9–12 bókband, kl.
9–16 handavinna og
fótaaðgerð, kl.13 spilað í
sal og glerlist.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðjudögum og fimmtu-
dögum kl. 13–16.30, spil
og föndur. Jóga á föstu-
dögum kl. 13.30. Kóræf-
ingar hjá Vorboðum,
kór eldri borgara í Mos-
fellsbæ á Hlaðhömrum á
fimmtudaga kl. 17–19.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586-8014 kl. 13–16.
Tímapöntun í fót-, hand-
og andlitssnyrtingu,
hárgreiðslu og fót-
anudd, s. 566-8060 kl. 8–
16.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9–
12 aðstoð við böðun, kl.
9–16.45 hárgreiðslu-
stofan opin, kl. 9 opin
handavinnustofan.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl. 10–12 verslunin opin,
kl. 13. „Opið hús“, spilað
á spil.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Nýtt nám-
skeið. Trésmíði. Gert við
gamla hluti og smíðaðir
nýir á miðvikudögum kl
15.30. Innritun í síma
565-6622 eftir hádegi.
Föstudagur: Japanskur
pennasaumur – nokkur
pláss laus. Fótaaðgerða-
stofa opin mánudag og
fimmtudag kl. 9–14.
Upplýsingar 565-6622 e.
hádegi sjá www.fag.is
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Myndlist kl. 13, brids kl.
1330 og pútt á vellinum
hjá Hrafnistu kl. 14. Á
morgun ganga kl. 10.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi – blöðin og
matur í hádegi. Fé-
lagsvist 4ra daga keppni
annan hvern sunnudag,
hefst sunnudaginn 14.
október kl. 13.30. Bald-
vin Tryggvason verður
til viðtals um fjármál og
leiðbeiningar um þau
mál á skrifstofu FEB
25. október nk. kl.
10.30–11.30, panta þarf
tíma. Silfurlínan er opin
á mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10–12
fyrir hádegi. Skrifstofa
félagsins er flutt að
Faxafeni 12 sama síma-
númer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði, Glæsibæ. Upp-
lýsingar á skrifstofu
FEB kl. 10–16 í síma
588-2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
myndlist og rósamálun á
tré, kl. 9–13 hárgreiðsla,
kl. 9.30 gönguhópur, kl.
14. brids. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–16
blöðin og kaffi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 9.30 boccia,
frá hádegi spilasalur op-
inn, kl. 13. bókband, kl.
14 kóræfing, veitingar í
veitingabúð Gerðu-
bergs. „Kátir dagar,
kátt fólk“: Föstudaginn
12. okt. kl. 19 haustfagn-
aður á Hótel Sögu, mið-
ar til sölu hjá fé-
lagsstarfinu. Allar
upplýsingar á staðnum
og í síma 757-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 13 bókband,
kl. 9.15 rammavefnaður.
Fjölskyldudagur í Gjá-
bakka laugardaginn 13.
okt. kl. 14. Á dagskrá
verður m.a. Söngur kórs
Hjallaskóla, einsöngur
Hafdísar Gunn-
arsdóttur, danssýning
frá Dansskóla Sigurðar
Hákonarsonar, Ágústa
Ágústsdóttir syngur
dægurlög, óvæntar
uppákomur og söng-
sveitin Drangey undir
stjórn Snæbjargar Snæ-
bjarnardóttur, vöfflu-
kaffi. Allir velkomnir og
er eftirlaunafólk hvatt
til að bjóða niðjum sín-
um að njóta þessarar
menningarstundar.
Gullsmári Gullsmára 13.
Glerlistarhópur kl. 10.
Gleðigjafarnir syngja í
Gullsmára kl. 14. Föstu-
daginn 12. október
syngja Gleðigjafarnir
inn í haustið frá kl. 14–
15. Björg Jóhann-
esdóttir og Gunnar Jó-
hannsson syngja undir
stjórn Agnesar Löve.
Kaffihlaðborð, heitt
súkkulaði með þeyttum
rjóma. Handverksmark-
aður verður frá kl. 13.
Margt góðra muna. Allir
velkomnir.
Hraunbær 105. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 9 handa-
vinna, bútasaumur, kl.
10 pútt, kl. 11 leikfimi og
spurt og spjallað.
Fræðsla, í dag, föstu-
daginn 12. okt., kl. 14
kemur Smári Pálsson
sálfræðingur og fræðir
um minnistap og hvern-
ig hægt er að finna byrj-
unareinkenni á Alzheim-
ersjúkdómnum og
minnistapi. Smári svar-
ar spurningum frá
áheyrendum. Allir vel-
komnir, kaffiveitingar.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, leikfimi og
postulín, kl. 12.30 postu-
lín. Fótsnyrting og hár-
snyrting.
Norðurbrún 1. Kl. 9–13
tréskurður, kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 10 boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 10 kántrí-
dans, kl. 11 stepp, kl.
9.15 handavinna, kl.
13.30 sungið við flyg-
ilinn, kl. 14.30 kaffi og
dansað í aðalsal. Söng-
fuglar, kór félagsstarfs
aldraðra, Reykjavík,
verða með söng-
skemmtun í tilefni 15
ára afmæli kórsins
sunnudaginn 14. októ-
ber kl. 15.30 í Ráðhús-
inu. Allir velkomnir.
Föstudaginn 12. okt. kl.
15 verður ferðakynning
á Kanaríeyjum. Leir-
mótun hefst fimmtudag-
inn 18. október kl. 17–
20, leiðbeinandi Hafdís
Benediktsdóttir, fullt er
í námskeiðið 18. októ-
ber, næsta námskeið
hefst fimmtudaginn 29.
nóvember. Upplýsingar
og skráning í síma 562-
7077. Þjónustumiðstöðin
er opin öllum Reykvík-
ingum óháð aldri.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 9.30
bókband og morg-
unstund, kl. 10 leikfimi
og fótaaðgerðir, kl.
12.30 leirmótun, kl.
13.30 bingó. Haustfagn-
aður verður 18. október
kl. 19. Framborinn létt-
ur kvöldverður: Haust-
kabarett, berjaterta,
kaffi. Fjölbreytt dag-
skrá, söngur, gamanmál
og gleði. Lukkuvinn-
ingur. Skráning og upp-
lýsingar í síma 561-0300.
Háteigskirkja, aldraðir.
Samvera í Setrinu kl.
13–15. Söngur með
Jónu, vöfflur með
kaffinu.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8 kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára 13
kl. 10 á laugardögum.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum (um
16–25 ára) að mæta með
börnin sín á laug-
ardögum kl. 15–17 á
Geysi, kakóbar, Að-
alstræti 2. (Gengið inn
Vesturgötumegin). Opið
hús og kaffi á könnunni,
djús, leikföng og dýnur
fyrir börnin.
Borgfirðingafélagið í
Reykjavík. Spiluð fé-
lagsvist á morgun 13.
október kl. 14 á Hall-
veigarstöðum. Allir vel-
komnir.
Minningarkort
Minningarkort Sam-
taka sykursjúkra fást á
skrifstofu samtakanna
Tryggvagötu 26,
Reykjavík. Opið virka
daga frá kl. 9–13, s.
562-5605, bréfsími 562-
5715.
Í dag er föstudagur 12. október,
285. dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Og hann tók þau sér í faðm, lagði
hendur yfir þau og blessaði þau.
(Mark. 10, 16.)
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
LÁRÉTT:
1 vísa frá, 4 karldýr, 7
bakteríu, 8 nákominn, 9
elska, 11 væskill, 13 á
höfði, 14 elur afkvæmi,
15 verkfæri, 17 fíngerð,
20 málmur, 22 smástrák-
ur, 23 fuglar, 24 rás, 25
híma.
LÓÐRÉTT:
1 vel verki farinn, 2 slóð,
3 fiska, 4 fornafn, 5
ósköp, 6 dreg í efa, 10
sparsemi, 12 þræta, 13
sprækur, 15 knappur, 16
athugasemdin, 18 bál, 19
kaka, 20 eimyrja, 21 úr.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 agnarsmár, 8 felds, 9 orkar, 10 ask, 11 Iðunn,
13 kelda, 15 skúti, 18 sleif, 21 lóm, 22 gjall, 23 Ingvi, 24
saurgaðir.
Lóðrétt: 2 guldu, 3 assan, 4 stokk, 5 Áskel, 6 efli, 7 trúa,
12 nýt, 14 ell, 15 saga, 16 útata, 17 illur, 18 smita, 19
engli, 20 feit.
K r o s s g á t a
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI finnur yfirleitt til-gang með tilverunni með því að
vera óttalegur nöldrari. Stundum er
þó vert að geta þess, sem vel er gert.
Víkverji brá sér nýlega út úr bænum
í tilefni svolítilla tímamóta í sögu
fjölskyldunnar. Stefnan var tekin á
heilsubæinn Hveragerði og gist á
gistiheimilinu Frosti og funa. Þetta
er nýlegt gistiheimili á fallegum stað
ofarlega í bænum, með góðum her-
bergjum og frábærri aðstöðu, m.a.
sundlaug og heitum potti. Það sem
gerði gæfumuninn og gistinóttina
einkar ánægjulega voru þó ýmis
smáatriði, t.d. listaverk eftir ýmsa af
þekktustu og beztu listamönnum síð-
ustu aldar á veggjum (í herbergi
Víkverja voru t.d. verk eftir Þorvald
Skúlason og Svavar Guðnason, ef
rétt er munað) auk verka eftir yngri
listamenn. Við morgunverðarborðið
var drukkið úr bollastelli eftir Mar-
gréti Jónsdóttur leirlistakonu og
Víkverji er ekki frá því að teið hafi
bragðazt betur en venjulega úr bláu
og gylltu bollunum hennar. Viðmót
húsráðenda var hið elskulegasta og
andrúmsloftið heimilislegt og af-
slappað. Víkverji mælir eindregið
með gistingu á þessum fallega stað.
x x x
EKKI er annað en morgunmatur íboði á Frosti og funa, þannig að
Víkverji og hans fólk óku niður á
Eyrarbakka til að fá sér kvöldmat.
Eyrarbakki er dæmalaust krúttlegt
þorp, þar sem gömul bárujárnshús
hafa mörg hver gengið í endurnýjun
lífdaga. Í einu þessara húsa, þar sem
Café Lefolii var áður til húsa, er nú
rekinn veitingastaðurinn Rauða hús-
ið. Staðurinn er skemmtilega inn-
réttaður og hlýlegri en forverinn.
Víkverji vill nú ekki taka fram fyrir
hendurnar á sprenglærðum matar-
skríbentum blaðsins, en með sínum
leikmannsbragðlaukum komst hann
að þeirri niðurstöðu að óvíða hefði
hann fengið betri saltfisk en í Rauða
húsinu. Kvöldið var vel heppnað og
auðvitað ekki nema skottúr að aka
frá Hveragerði til Eyrarbakka að fá
sér að borða – sennilega fljótlegra en
að fara úr Grafarvoginum niður í
miðbæ í Reykjavík og alveg áreiðan-
lega auðveldara að fá bílastæði.
NÚ munaði engu, úr því Víkverjiminntist á bílastæði, að hann
hrykki aftur í nöldurgírinn og færi
að skamma Bílastæðasjóð. En Vík-
verji ætlar að enda á jákvæðu nót-
unum og hrósa því framtaki Ríkis-
sjónvarpsins að taka á dagskrá
matreiðsluþætti Nigellu Lawson.
Þetta er gott svar RÚV við sýning-
um Stöðvar 2 á þáttum landa Law-
son, Jamie Oliver, Kokkur án klæða.
Víkverji hefur árum saman lesið
pistla eftir Lawson í brezku blöðun-
um og finnst einkar skemmtilegt að
fylgjast með henni á skjánum. RÚV
þjónustar líka áhorfendur sína vel
með því að birta uppskriftirnar á vef
sínum. Á heimili Víkverja hafa verið
eldaðir tveir réttir samkvæmt upp-
skriftum upp úr fyrsta þættinum af
Nigella Bites og ríkir almennur
fögnuður meðal heimilismanna með
útkomuna. Ætli samnefnd mat-
reiðslubók Lawson, þar sem öllum
uppskriftunum úr þáttunum er safn-
að saman, verði gefin út á íslenzku
líkt og bók Olivers? Það myndi óneit-
anlega gera það enn skemmtilegra
að fylgjast með þeim.
Athugasemd
ER ekki tímabært að fara
að spá í að hafa sjúkrahús-
málin í góðu lagi vegna
ástandsins í heimsmálum?
Það vill enginn vinna þar
vegna launamála. En hvað
ef eitthvað stórt gerist,
stórslys eða náttúruham-
farir? Er ekki tímabært að
fara að taka á þessu og
hætta að spá í launamálin?
Steina.
Ljóða leitað
BERGÞÓRA sem auglýsti
eftir ljóðum sem hún var að
leita að í Velvakanda sl.
miðvikudag biður fólk sem
hringdi í hana á vinnustað
að hringja aftur í síma 568-
1330 milli kl. 10 og 11 og
spyrja eftir henni með
nafni.
Góð þjónusta
ÞANNIG er mál með vexti
að ég fór í 11-11 búðina við
Hlemm og lenti í því að
kaupa þar skemmda mat-
vöru. Þegar ég lét vita fékk
ég það tífalt endurgreitt því
það var komið með mat-
vöru heim til mín, marg-
falda að verðmæti. Vil
þakka fyrir svona góða
þjónustu.
Viðskiptavinur
í Breiðagerði.
Vantar fyrri-
og seinnipart
HEILIR og sælir, hagyrð-
ingar.
Mig langar að spyrja
fróða menn, hvort þið ekki
þekkið seinnipartinn við
þessa miklu rímþraut:
Seint munu fyllast Són
og Boðn,/ seint munu Danir
vinna Hveðn.
Ég man ekki hvar ég sá
þetta. Annar helmingur:
Þegar Heimsbók-
menntasaga Kristmanns
Guðmundssonar birtist,
fékk hún misjafna dóma. Á
einhverri opinberri hagyrð-
ingasamkomu kom Svein-
björn Beinteinsson, held
ég, með eftirfarandi botn,
en hvernig var fyrri hlutinn
og hver orti?
Best mun henta heimsk-
um lýð/Heimsbókmennta-
saga.
Örn Ólafsson,
Nörrebrogade 21, 2
Dk-2400 Kbh. N.
orn.olafsson@
humanites.dk
Góð
þjónusta
ÉG fór af forvitni og með
væntingar um bata í kín-
verskt nudd og nálastung-
ur í Hamraborg 20a. Ár-
angurinn var alveg frábær
og ekki aðeins losnaði ég
við bak- og höfuðverki
heldur var allur líkaminn
tekinn í gegn, því allt vinn-
ur þetta saman. Þarna er 1.
flokks þjónusta og mikil
fagmennska.
Árný Þ.
Hallvarðsdóttir.
Dýrahald
Kanarífugl eða dís-
arpáfagaukur óskast
ÓSKA eftir gefins kanarí-
fugli eða dísarpáfagauk. Er
með gott heimili. Upplýs-
ingar í síma 555-3041.
Kassavanir kettlingar
fást gefins
ÞRÍR gullfallegir kassa-
vanir kettingar fást gefins.
Upplýsingar í síma 698-
6691 eftir kl. 18.
Norsk skógarlæða
fæst gefins
MJÖG falleg 5 ára norsk
skógarlæða, mjög gæf og
búið að taka úr sambandi,
fæst gefins vegna breyttra
aðstæðna.
Upplýsingar í síma 587-
3757 og 899-2637.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
SENDI þetta í tilefni opnunar Smáralindar.
Lag: Við Reykjavíkurtjörn.
Í Kópavogsins borg á rölti eftir Smára
á húsið leit, þar vinnusveit
með hjálma vinkaði mér.
Í hljómi vélanna sem sungu dag’ og nætur.
Því opnun Smáralindar var
rétt innan seilingar.
Í bárujárnshöll nú bisnessinn lifa skal
búðirnar með vöruúrvali.
Í gleði og trú, bjartsýni lifa í
kaupendur á neyslufyllerí.
Kveðja,
Þórður Vilberg Oddsson.
Í Kópavogsins borg