Morgunblaðið - 12.10.2001, Side 68

Morgunblaðið - 12.10.2001, Side 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í setningarræðu sinni á landsfundi flokksins í gær, að báðir stjórnarflokkarnir væru því fylgjandi að í næsta áfanga umbóta í skattamálum verði eignarskatt- ar á fólk og fyrirtæki algjörlega afnumdir. Davíð fjallaði m.a. í ræðu sinni um þær skattalækkanir sem ákveðnar hafa verið og sagði: ,,Við erum ekki hættir. Báðir stjórnar- flokkarnir eru því fylgjandi að í næsta áfanga verði eignarskattar á fólk og fyrirtæki algjör- lega afnumdir. Þeir skattar ættu því að heyra sögunni til innan fárra ára. Og ef áhrifa okkar sjálfstæðismanna gætir áfram í landsstjórninni mun áfram verða haldið á þessari braut í fram- tíðinni,“ sagði hann. Forsætisráðherra sagði einnig fullvíst að rík- issjóður muni vel þola breytingar í skattamálum vegna góðrar stöðu og sífellt minnkandi vaxta- byrði. Fram kom í ræðu hans að markviss nið- urgreiðsla á skuldum ríkissjóðs á undanförnum árum þýddi að nú væri 20 milljörðum meira úr að spila á heilu kjörtímabili. Davíð fjallaði einnig um deilurnar um fisk- veiðistjórnkerfið í ræðu sinni og sagði mál hafa þokast nær sæmilegu samkomulagi en áður var. ,,Þar mun þó lengi deilt og kannski svo lengi sem land byggist. Allstór hópur flokksmanna hefur verið hlynntur svonefndu veiðileyfagjaldi á sjávarútveginn og talið það eitt mesta réttlæt- ismál samtímans. En engu fámennari hópur hef- ur verið því andsnúinn og talið það skaða sjáv- arútveginn og landsbyggðina. Ég hef skipað mér í síðari hópinn. Nú finnst sumum ekki nógu langt gengið í tillögum nefndar sem skilaði miklu áliti um framtíðarskipan sjávarútvegs, hvað þetta atriði varðar. Og um það má auðvitað deila eins og annað. En um hitt er ekki hægt að deila, hvor framangreindra hópa hefur gefið meira eftir þegar að grundvallaratriðinu sjálfu kemur og það eiga menn að muna og meta. Við skulum endilega takast á um sjávarútvegsmálin hér á fundinum, en við skulum gera það þannig að flokkurinn hafi af því bærilegan sóma,“ sagði Davíð. Davíð Oddsson fjallaði um skattalækkanir á landsfundi Sjálfstæðisflokksins Eignarskattar á fólk og fyrir- tæki afnumdir í næsta áfanga Morgunblaðið/Golli Ástríður Thorarensen fagnaði eiginmanni sínum, Davíð Oddssyni forsætisráðherra, að lokinni setningarræðu hans á landsfundinum. Davíð á vinstri hönd er Sólveig Pétursdóttir en við hlið Ástríðar sitja Geir H. Haarde, Inga Jóna Þórðardóttir og Árni M. Mathiesen.  Landsfundur/34–35 Stjórnfyrirkomulag/2 FULLTRÚAR Íslands, Írlands, Bretlands og Danmerkur fyrir hönd Færeyinga hittust í gær í Reykjavík á óformlegum fundi um nýtingu Hatton-Rockall-svæðisins en þessi ríki gera öll tilkall til landgrunnsins á svæðinu. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra seg- ir þetta fyrstu fjórhliða viðræður þessara ríkja og að þær marki því nokkur tímamót í sögu málsins. Unnið hefur verið að því í utan- ríkisráðuneytinu undanfarin ár að koma á þessum fundi. Segir utan- ríkisráðherra að skriður hafi kom- ist á málið er hann átti fund með fyrrverandi utanríkisráðherra Bretlands, Robin Cook. „Þessi fundur nú var mjög jákvæður og gagnlegur og var ákveðið að halda annan fjórhliða fund á næstu mán- uðum,“ sagði Halldór Ásgrímsson. Hann sagði að til að lausn feng- ist á afmörkun landgrunnsins á Hatton-Rockall-svæðinu þyrfti tvennt að koma til, annars vegar samkomulag milli aðila um skipt- ingu svæðisins á milli þeirra eða það yrði nýtt sameiginlega og hins vegar yrði að nást niðurstaða um ytri mörk landgrunnsins gagnvart alþjóðlegum hafsbotni með hlið- sjón af tillögum hafsbotnsnefndar Sameinuðu þjóðanna. Utanríkisráðherra rifjaði upp tillögu sína og iðnaðarráðherra um að lagt yrði í ítarlegar rannsóknir á landgrunninu sem standa myndu í allmörg ár til að vinna tillögur af hálfu Íslands og sagði hann því mikið verk fyrir höndum. „Þótt engin niðurstaða hafi fengist af fundinum nú var það ekki tilgang- ur hans heldur var ætlunin að koma málinu áfram og hafa þjóð- irnar ákveðið að halda þreifingum sínum áfram,“ sagði ráðherra. Hann kvað það vera áfanga að fá fulltrúa þjóðanna fjögurra til að þiggja boð um fund á Íslandi. Formaður íslensku viðræðu- nefndarinnar var Tómas H. Heið- ar, þjóðréttarfræðingur utanríkis- ráðuneytisins, en einnig voru í nefndinni Helga Hauksdóttir sendiráðsritari, Steinar Þór Guð- laugsson og Karl Gunnarsson, jarðeðlisfræðingar hjá Orkustofn- un. Fyrstu fjórhliða viðræð- urnar um Hatton-Rockall Tímamót að mati utanríkisráðherra SIGURÐUR Þorsteinsson iðnhönn- uður átti bókað far með flugvélinni sem fórst í Mílanó á mánudag, en hann ákvað að fljúga degi fyrr en ella eftir að honum var boðið að halda fyrirlestur á Íslandi. Allir um borð í vélinni létust, einn þeirra samstarfsmaður hans. Sigurður vinnur hjá verkfræði- fyrirtæki sem heitir ABB og þurfti að mæta á fund í Kaupmannahöfn á mánudagsmorgninum. Því hafði hann bókað far með vélinni sem fórst. Viku áður en slysið varð breytti hann ferðaáætlun sinni eftir að hann var beðinn að halda fyr- irlestur við Háskóla Íslands. Eig- inkona hans, Carol Tayar, vinnur fyrir fyrirtækið 66°N og þurfti hún að vera komin hingað til lands á mánudagsmorgni. Sigurður ákvað því að vera samferða henni til Dan- merkur á sunnudeginum. Samstarfsmaður Sigurðar til margra ára, Renato Dosmo, fórst í slysinu. Sigurður segir að það hafi verið sérkennileg tilfinning að fá fréttir af slysinu og allir á fund- inum hafi verið slegnir. „Það sló okkur óhugur. Ég fattaði ekki strax að ég hefði átt að vera í vélinni. Þetta er óþægileg tilfinning, maður sér hvað er stutt á milli og hvað til- viljanir ráða miklu,“ segir hann. „Við vorum heppin, maður veit aldrei hvað bíður manns í lífinu,“ segir Carol. Þau segja að ættingjar þeirra og vinir hafi óttast að þau hafi verið í vélinni, því þeir hafi vit- að að þau þyrftu að fara í gegnum Danmörku á leiðinni hingað. Átti bókað far með vélinni sem fórst í Mílanó Óþægileg tilfinning Morgunblaðið/Golli Sigurður Þorsteinsson og Carol Tayar, eiginkona hans. EINU sinni þekktist varla að karlmenn tækju þátt í eldhús- störfum. Sagt er að eftir að úti- grillin komu til sögunnar hafi sjálfstraustið vaxið og þeir fljót- lega haldið innreið sína í eldhús- ið með alla sína fylgihluti. Um leið stækkuðu eldhúsin. Í Daglegu lífi er fjallað um það nýjasta í eldhúsinnréttingum.  Hjarta heimilisins/B2 Stærri eldhús fyrir karla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.