Morgunblaðið - 17.10.2001, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.10.2001, Blaðsíða 1
BANDARÍKJAMENN og Pakistan- ar eru sammála um að ekki beri að útiloka „hófsama“ liðsmenn talibana- hreyfingarinnar í Afganistan frá nýrri ríkisstjórn. Kom þetta fram í viðræðum Colins Powells, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, og pakist- anskra ráðamanna í Islamabad í gær. Powell hét því einnig að Bandaríkin myndu ekki styðja nýja stjórn Afgan- istan nema hún yrði vinsamleg í garð „allra nágrannaríkja, þar á meðal Pakistans“. Ráðherrrann ræðir í dag við Atal Behari Vajpayee, forsætis- ráðherra Indlands. Gerðar voru áfram miklar loftárás- ir á Afganistan í gær og farnar meira en 100 árásarferðir. Talibanar og hermenn Norðurbandalagsins börð- ust ákaft um flugvöll við borgina Mazar-e-Sharif í norðurhluta lands- ins. Fullyrt var að einn af leiðtogum talibana hefði beðið um að hlé yrði gert á loftárásunum til að hægt yrði að telja Mohammad Omar, voldug- asta mann talibana, á að framselja Osama bin Laden. Óskinni var hafn- að og Ari Fleischer, talsmaður George W. Bush Bandaríkjaforseta, sagði að talibanar vissu vel að þeir yrðu að framselja bin Laden. Powell hvatti til þess að mynduð yrði stjórn á breiðum grundvelli í Afganistan. „Hugtakið taliban er not- að um núverandi stjórn en það á einn- ig við um hóp einstaklinga eða þjóð og ef stjórnin verður brotin á bak aft- ur geta enn verið til staðar menn sem eftir sem áður telja að kenningar og trú hreyfingarinnar séu mjög mikil- væg,“ sagði Powell áður en hann hélt frá Pakistan. Hann sagði að vildu þeir taka þátt í að byggja upp nýtt Afgan- „Hófsamir“ talibanar verði með í nýrri stjórn Nýju-Delhí, Kabúl, Islamabad, London, Jerú- salem. AP, AFP. AP Slökkviliðsmaður í Kabúl dælir vatni á eld í birgðageymslu Rauða krossins í gær. Talið er að bandarísk sprengja hafi lent á húsinu. istan yrði einnig að hlýða á raddir þeirra. Talibanar eru flestir úr röðum stærsta þjóðarbrotsins, pashtúna. Pervez Musharraf Pakistansfor- seti hét því á blaðamannafundi með Powell að hvika hvergi í stuðningi sínum við Bandaríkin þrátt fyrir hörð mótmæli múslímaleiðtoga landsins. „Við munum halda þessu samstarfi áfram meðan aðgerðirnar standa yf- ir,“ sagði hann. En aðeins yrði hægt að koma á endanlegum friði í Afgan- istan ef þar næðist breið samstaða. Musharraf sagði marga hófsama menn vera í hópi ráðamanna talibana. Powell sagði að Bandaríkjamenn álitu brýnt að hafnar yrðu viðræður um deiluna milli Pakistana og Ind- verja um Kasmír en Indverjar líta svo á að um innanlandsmál sé að ræða. Pakistanar styðja múslima- hópa sem berjast gegn indverskum yfirráðum í héraðinu með hryðju- verkum. Samþykkir Palestínuríki með skilyrðum Ein helsta ástæða gagnrýni margra múslíma á vesturveldin er deilan um hlutskipti Palestínumanna. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísr- aels, sagðist í gær myndu samþykkja að Palestínumenn fengju að stofna sjálfstætt ríki á svæðum sínum en með því skilyrði að þar yrði ekki her. Ísraelar myndu hafa eftirlit með landamærum ríkisins og ráða áfram yfir Jerúsalem, helgum stöðum borg- arinnar og umdeildum hverfum Pal- estínumanna. Bæði Bush forseti og Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, hafa lýst ákveðnum stuðningi við sjálfstætt ríki Palestínumanna. Powell hvetur til viðræðna Ind- verja og Pakist- ana um Kasmír  Lágflugsárásir/19 237. TBL. 89. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 17. OKTÓBER 2001 TALSMENN tollgæslunnar í Rúss- landi segja að gripið hafi verið til sérstakra ráðstafana til að hindra að send séu bréf með miltisbrands- sýklum til landsins. Ritstjórar dag- blaðsins Komsomolskaja Pravda sögðust í gær hafa fengið tortryggi- legan pakka frá Ástralíu, í honum fannst flaska með vökva sem lög- regla ákvað að rannsaka. Rússar hafa mikla reynslu í að fást við sjúk- dóminn og er talið að þeir geti gefið Bandaríkjamönnum góð ráð. Hugs- anlegt er talið að miltisbrands- afbrigðið sem greinst hefur vestra hafi upprunalega komið frá rann- sóknastöðvum Sovétríkjanna gömlu. „Rússneskir sérfræðingar eru reiðubúnir að veita þegar í stað öðr- um þjóðum aðstoð í þessum mál- um,“ sagði Alexander Ívanov, sem situr í opinberri nefnd er annast farsóttaeftirlit. Rússar gerðu í nokkra áratugi tilraunir með af- brigði af miltisbrandi með sýkla- hernað í huga og árið 1979 varð slys í leynilegri rannsóknastofu hersins skammt frá Sverdlovsk í Úralfjöll- um. Duft með óvenju hættulegu af- brigði af sýklinum slapp út í and- rúmsloftið og að sögn stjórnvalda fórust 68 manns, aðrir telja að fórn- arlömbin hafi verið margfalt fleiri. Líffræðingurinn Alexei Jablokov, sem var formaður umhverfisnefnd- ar rússneska öryggisráðsins 1992– 1996, segir að Rússar hafi af þess- um sökum ræktað fjölmörg afbrigði miltisbrandsspora í miklu magni til að geta framleitt nægt bóluefni ef nauðsyn krefði. Jablokov telur lík- legast að hafi hryðjuverkamenn komist yfir spora sé um að ræða efni úr rannsóknastofum í Kazakst- an eða öðrum fyrrverandi sovétlýð- veldum í Mið-Asíu. Vitað er að Írak- ar hafa gert tilraunir með sýklavopn en ekki eru neinar vís- bendingar um að þeir eigi aðild að sýklahernaðinum í Bandaríkjunum. Enn berst fjöldi tilkynninga um grunsamleg bréf til yfirvalda í Bandaríkjunum en staðfest hefur verið að fjórir hafi fengið miltis- brand. Oft er um að ræða gabb og fordæmdi John Ashcroft dómsmála- ráðherra í gær þá sem stæðu fyrir sendingunum. „Falskar hótanir um hryðjuverk valda álagi á lögreglu- stofnanir sem þegar hafa of mikið að gera og einnig heilbrigðisstofn- anir,“ sagði ráðherrann. Bjóða aðstoð gegn sýkla- vopnum Moskvu, Washington. AFP, AP. Reuters Portúgalskir hermenn í Lissabon rannsaka kassa sem þótti grunsamlegur. Víða um heim er mikill viðbúnaður vegna ótta við sýklavopnaárásir hryðjuverkamanna sem ljóst er að gerðar voru í Bandaríkjunum.  Sjö mánaða/20 Rússar þjálfaðir í að eiga við miltisbrand og sagðir eiga miklar birgðir af bóluefni FJÁRMÁLARÁÐHERRAR Evr- ópusambandsríkjanna samþykktu í gær á fundi í Lúxemborg að grípa til mjög víðtækra aðgerða gegn pen- ingaþvætti og aðferðum til að hafa áhrif á markaðinn í því skyni að fjár- magna hryðjuverkastarfsemi. Núgildandi lög um peningaþvætti ná aðeins til afbrota, sem tengjast eiturlyfjasölu, en nú hefur verið lagður fram langur listi yfir alls kon- ar starfsemi og starfsgreinar, sem hætta er talin á að verði misnotaðar. Öllum fasteignasölum, lögbókend- um, lögfræðingum, seljendum dýrra steina og málma, listaverkasölum, uppboðshöldurum, þeim sem annast yfirfærslur, og spilavítum, svo nokkrir séu nefndir, verður nú skylt að skýra frá öllum grunsamlegum fjármagnshreyfingum. Frits Bolkestein, sem fer með málefni innri markaðarins í Evrópu, sagði, að með samþykktinni hefði verið stigið stórt skref í baráttunni gegn hryðjuverkamönnum og skipu- lögðum glæpasamtökum. Bönkum verður skylt að gefa upp- lýsingar um grunsamlega viðskipta- vini sína og fjármagnsfærslur þeirra og muni þeir ella verða beittir hörð- um refsiaðgerðum. Alþjóðleg stofn- un, sem berst gegn peningaþvætti, FATF, hefur raunar þegar lagt til, að eyríkið Nauru í Kyrrahafi verði beitt refsiaðgerðum nema það hafi bætt ráð sitt fyrir nóvemberlok. Banka- leynd afnumin? Lúxemborg. AFP. ESB gegn peningaþvætti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.