Morgunblaðið - 17.10.2001, Blaðsíða 12
FRÉTTIR
12 MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝVERIÐ fóru nemendur í Lauga-
lækjarskóla og nýbúadeild Austur-
bæjarskóla í ferð norður í land í
þeim tilgangi að kynnast krökkum
frá ólíkum menningarheimum, læra
að virða þá og nota adrenalínið sem
vopn í baráttunni gegn kynþátta-
fordómum.
Séra Bjarni Karlsson, sókn-
arprestur í Laugarneskirkju, hefur
tekið þátt í samstarfsverkefninu
„Adrenalín gegn rasisma“, en
helstu styrktaraðilar eru Reykja-
víkurborg, ÍTR og Skjár 1. Að verk-
efninu standa einnig Laug-
arneskirkja, félagsmiðstöðin
Þróttheimar, nýbúadeild Austur-
bæjarskóla, Laugalækjarskóli, Hall-
grímskirkja og Kvikmyndaskóli Ís-
lands. Auk séra Bjarna voru
fararstjórar Ægir Þór Eysteinsson
frá Þróttheimum, Margrét Rós
Harðardóttir frá Hallgrímskirkju
og Páll Erlendsson frá nýbúadeild
Austurbæjarskóla.
Lagt var af stað í Skagafjörð síð-
degis á föstudegi og komið til baka
undir miðnætti á sunnudag. Fyrri
nóttina var gist í félagsheimilinu
Ásgarði eftir kvöldvöku þar sem
krakkarnir fræddust m.a. um ólíka
menningarheima. Á laugardag var
ekið að Skatastöðum, þar sem
fulltrúar Ævintýraferða ehf. í
Skagafirði tóku á móti hópnum, en
þeir skipulögðu ferðina í samvinnu
við aðstandendur hennar. Þeir ferj-
uðu hópinn í kláfferju yfir Eystri-
Jökulsá og síðan var gengið norður
að Merkigili, þar sem gist var seinni
nóttina. Morguninn eftir var gengið
yfir Merkigil að bænum Gilsbakka
og eftir hamborgaraveislu í Varma-
hlíð var farið í flúðasiglingu.
„Markmið þessarar ferðar 14 sí-
búa og 16 nýbúa úr 8., 9. og 10. bekk
ásamt fararstjórum var að gefa
ungum nýbúum stökkpall inn í ís-
lenskt unglingasamfélag og gefa
ungum síbúum tækifæri til að auka
víðsýni sína og kynnast nýjum
menningarheimi,“ segir séra
Bjarni. Í þessu sambandi nefnir
hann til dæmis að stúlka frá Ghana
hafi eldað kjúkling að hætti Ghana-
búa og Pólverji hafi útbúið salat
með en þetta hafi verið kvöldmat-
urinn á laugardag.
Þetta er fyrsta ferð sinnar teg-
undar og segir séra Bjarni að orðið
nýbúar sé yfir þá sem nýfluttir séu
til landsins, síbúar um Íslendinga
sem hafa alltaf búið á Íslandi og svo
megi nota snúbúa um Íslendinga
sem hafa búið erlendis en komið aft-
ur til Íslands eftir einhver ár.
Fullkomin ferð
„Þetta var fullkomin ferð,“ segir
Íris Stefanía Skúladóttir, 15 ára
nemandi í 10. bekk í Laugalækj-
arskóla, og bætir við að þetta hafi
verið mjög gaman, en það sé mjög
vægt til orða tekið. „Ferðin var vel
skipulögð og það var gaman hvað
allir tóku mikinn þátt í þessu.
Gleðin fólst ekki síst í því hvað það
er sjálfsagður hlutur að vera með
krökkum, burtséð frá hvaða landi
þeir eru, og það er ekkert vanda-
mál.“
Marly Simon frá Grænhöfðaeyj-
um, 13 ára nemandi í 8. bekk Aust-
urbæjarskóla, tekur í sama streng.
„Það er góð hugmynd að vera með
svona adrenalínferð og þetta var
gott tækifæri til að eignast nýja
vini,“ segir hún á góðri íslensku,
þrátt fyrir að hafa aðeins búið á Ís-
landi í eitt ár. Hún segir að flestum
ef ekki öllum hafi þótt frekar slæmt
að þurfa að skipta um sæti í rútunni
en eftir á að hyggja
hafi það verið besta
mál. „Það varð til þess
að við kynntumst fleir-
um, fræddumst um
fleiri og fengum gott
tækifæri til að skiptast
á símanúmerum.“
Flúðasiglingin er of-
arlega í huga þeirra
og þær segja að það að
stökkva af kletti út í
iðandi ána sé ógleym-
anlegt. „Það vildu allir
fara aftur og því feng-
um við að fara tvisvar
sinnum,“ segir Íris
Stefanía og bætir við
að fyrst hafi farið
fram góð öryggis-
kennsla og allir hafi
verið í þurrgalla,
björgunarvesti og með
hjálm, en menn hafi
verið til taks með
björgunargræjur ef
eitthvað hefði farið úr-
skeiðis. „Þetta var
rosalega spennandi,
en ég var svolítið
hrædd einu sinni,“
segir Marly.
Stelpurnar telja að svona ferð sé
tilvalin til að krakkar frá ólíkum
menningarheimum kynnist og
sennilega besta leiðin til þess.
„Þetta var svo gaman að ekki
hvarflaði að neinum að vilja fara
heim,“ segir Íris Stefanía og Marly
er því sammála. „Þetta er fyrsta
ferðalagið mitt hérna, það var mjög
gaman og mig langar til að fara aft-
ur,“ segir hún.
Frábært fólk
Helgina 19. til 21. október verður
hópurinn aftur saman á æskulýðs-
móti kirkjunnar á Hvammstanga.
Þar verða sýnd drög að væntanlegri
kvikmynd og krakkarnir gera grein
fyrir ferðinni. Séra Bjarni segir að
með ferðinni og mótinu sé verið að
reyna að stuðla að því að unglingur-
inn fái það staðfest úr umhverfinu
að hann sé dýrmætur og að honum
sé sýndur sómi. Það geri það að
verkum að fólk læri að umgangast
annað fólk með virðingu og sóma og
sjálft sig um leið. „„Frábært fólk“
er yfirskrift mótsins og markmiðið
er hliðstætt því sem var í ferðinni,
að staðfesta það í vitund og huga
unglinganna að þeir séu sjálfir frá-
bærir og óendanlega dýrmætir sem
manneskjur,“ segir séra Bjarni.
Hann bætir við að hugmyndin sé
að ferðahópurinn hittist síðan aftur
en eftir eigi að móta hvernig og
með hvaða fyrirkomulagi það verði.
„Ég held að hópurinn fái heitið adr-
enalínhópur ungra Íslendinga og
það er markmiðið,“ segir séra
Bjarni. „Það er von mín að þetta sé
upphafið að áframhaldandi starfi
allra sem hlut eiga að máli í þeim
tilgangi að koma í veg fyrir það að
íslenskt þjóðfélag lendi í sama fúla
pyttinum og mörg önnur stór þjóð-
félög úti í heimi, þar sem innflytj-
endur hafa orðið vandamál. Okkar
þjóðfélag er svo yfirsjáanlegt, svo
smátt, það er svo mikil gagnkvæm
þekking og stéttarmunur er svo
hverfandi við hliðina á því sem ann-
ars staðar þekkist, að við eigum að
hafa manndóm og möguleika til
þess að vera til fyrirmyndar í þess-
um efnum þannig að fólk, sem kem-
ur hingað utan úr heimi og sest hér
að og gerist Íslendingar, finni sig
velkomið.“
Hann segir ennfremur að með
grasrótarstarfi sem jafnframt fái
umfjöllun sé hægt að hafa mikil
áhrif. „Það er von mín að mynd-
efnið sem er í smíðum geti orðið
kennsluefni í forvarnastarfinu,“
segir séra Bjarni.
Ungir nýbúar og síbúar ræddu ólíka menningarheima og kynþáttafordóma
Ferðalag gegn fordómum
Ljósmynd/Bjarni Karlsson
Unglingarnir höfðu nóg að gera í ferðinni en stilltu sér upp fyrir myndatöku í Merkigili.
Krakkarnir fengu fiðring í magann þegar þeir
voru ferjaðir í kláfferju yfir Eystri-Jökulsá.
BROTIST var inn í Borgar-
apótek í Álftamýri í fyrrinótt og
þaðan stolið morfínlyfjum. Þetta
var annað innbrotið í apótekið
um nóttina en á mánudagskvöld
og í fyrrinótt voru gerðar til-
raunir til að brjótast inn í þrjú
apótek í Reykjavík til viðbótar.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni í Reykjavík barst
fyrsta tilkynning um klukkan
ellefu og sú síðasta klukkan
rúmlega tvö um nóttina.
Fyrsta tilkynning barst frá
Lyfjum og heilsu í Melhaga. Þar
var rúða í útihurð brotin en
engu var stolið. Um miðnætti
var reynt að brjótast inn í Borg-
arapótek, tæpri klukkustund
síðar inn í Pharma við Hring-
braut og skömmu síðar inn í
Garðsapótek við Sogaveg. Loks
var gerð önnur tilraun til inn-
brots í Borgarapótek og að
þessu sinni tókst hún. Hurð var
spennt upp á lyfjaskáp og
morfínlyfjum stolið. Málið er í
rannsókn.
Lyfin fundust skammt frá
Brotist var inn í apótekið Lyf
og heilsu í Þorlákshöfn í fyrri-
nótt. Vægum bólgueyðandi og
verkjastillandi lyfjum var stolið
en þau fundust skammt frá apó-
tekinu og hafði lítið verið hreyft
við þeim.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Selfossi fundust
nokkrar töflur við Olísbúðina í
Þorlákshöfn í gærmorgun. Rúða
hafði verið brotin í búðinni og í
nýbyggingu í bænum um nótt-
ina og var lögreglan að rann-
saka skemmdarverkin. Í fram-
haldinu kom í ljós að brotist
hafði verið inn í apótekið. Auk
lyfjanna var skiptimynt tekin úr
afgreiðslukassa.
Lögreglan á Selfossi telur víst
að innbrotið hafi verið framið
fyrripart nætur.
Hrina
innbrots-
tilrauna
í apótek
Í DAG kl. 15 verður opnaður í
Smáralind barnaskemmtistað-
urinn Veröldin okkar. Sérstök
opnunarhátíð verður milli kl. 15
og 17 og má búast við gestum á
borð við Klóa kókómjólkurkött,
Lóu ókurteisu og Ástu í Stund-
inni okkar.
Í Veröldina okkar geta börn
komið í heimsókn með foreldr-
um sínum eða forráðamönnum
eða þau geta verið þar í gæslu á
meðan foreldrarnir eða for-
ráðamennirnir sinna öðru.
Í Veröldinni okkar er auk
þess hægt að halda afmæli og
aðrar veislur. Hún er opin frá
kl. 11 til 20 virka daga, frá kl. 10
til 20 laugardaga og frá kl. 12 til
18 sunnudaga.
Veröldin
okkar í
Smáralind
FIMM ferðatölvum og prent-
ara var stolið úr verslun Penn-
ans við Hallarmúla í fyrrinótt.
Að sögn lögreglunnar í
Reykjavík spenntu þjófarnir
upp útihurð í fyrirtækinu. Þeg-
ar lögreglan kom að verslun-
inni var öryggisvörður á staðn-
um en þjófarnir voru hins vegar
á bak og burt. Málið er í rann-
sókn.
Fimm ferða-
tölvum stolið
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
leggst gegn skólagjöldum við Há-
skóla Íslands, að sögn Hjálmars
Árnasonar, þingmanns Framsóknar-
flokks, en hann segir hækkun innrit-
unargjalda aftur á móti vera flókið
mál. Hann segist hafa kallað eftir
skýringu háskólans á hvað innritun-
argjöldin standa fyrir og segir mikil-
vægt að menn átti sig á hvar mörkin
liggja á milli innritunargjalda annars
vegar og skólagjalda hins vegar.
Þetta kom fram í erindi Hjálmars á
opnum fundi sem Röskva boðaði til
með yfirskriftinni „Viljum við skóla-
gjöld við Háskóla Íslands?“ Á fund-
inum héldu erindi, auk Hjálmars, þau
Bryndís Hlöðversdóttir, formaður
þingflokks Samfylkingar, Sigríður
Anna Þórðardóttir, formaður þing-
flokks sjálfstæðismanna, Steingrím-
ur J. Sigfússon, formaður vinstri
grænna, og Þorvarður Tjörvi Ólafs-
son, formaður Stúdentaráðs.
Andstaða við skólagjöld
Í máli þingmannanna kom fram að
allir flokkarnir eru á móti skólagjöld-
um en Hjálmar og Sigríður Anna
sögðust ekki líta á skráningar- eða
innritunargjöld við HÍ sem skóla-
gjöld. Sigríður Anna sagði ekkert til-
efni til að ætla að heimild til hækk-
unar skráningargjalda væri skref í
átt til þess að tekin verði upp skóla-
gjöld við Háskóla Íslands og sagðist
ekki vita um að nein áform væru uppi
innan Sjálfstæðisflokksins um slíkt.
Að sögn Hjálmars er grundvallar-
munur á innritunargjöldum og skóla-
gjöldum. Innritunargjöld hafa verið
við lýði við HÍ í langan tíma og voru
lögfest árið 1992. Hækkun þeirra má
m.a. rekja til aukinnar þjónustu við
nemendur, t.d. með því að setja á
stofn tungumálastöð og alþjóðaskrif-
stofu, og auk þess er eðlilegt að slík
gjöld fylgi almennri verðlagsþróun.
Innritunargjöld hafa ekki verið
hækkuð í langan tíma og því þykir
stökkið nokkuð mikið nú þegar kem-
ur til hækkunar. Þá sagði Hjálmar
það vera mistök í framsetningu á
heimild til hækkunar innritunar-
gjalda að tengja gjöldin við kennslu-
magn og að Framsóknarflokkurinn
hefði óskað skýringa á hvort þar gæti
verið um skólagjöld að ræða.
Að sögn þingmanna stjórnarand-
stöðuflokkanna eru þeir alfarið á
móti skólagjöldum og sagði Bryndís
að slík gjöld kynnu ekki góðri lukku
að stýra. Steingrímur sagði skil-
greiningar á gjöldum varasamar,
lengi væri hægt að telja upp kostnað
við skólann sem skilgreina mætti
sem þjónustu við nemendur og upp-
hæðin skipti öllu máli. Það væri
grundvallaratriði að engin skólagjöld
yrðu innheimt af nemendum, til þess
að stuðla að jafnrétti til náms á há-
skólastigi.
Þingmenn ræða innritunargjöld á fundi Röskvu í Háskóla Íslands
Andstaða við skólagjöld í HÍ
INNLENT