Morgunblaðið - 17.10.2001, Page 16
SUÐURNES
16 MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ráðstefnan
Varnir gegn vinnuslysum
Ráðstefna um vinnuslysavarnir verður haldin í tilefni
Evrópsku vinnuverndarvikunnar á Grand Hóteli við Sigtún
fimmtudaginn 18. október 2001 kl. 12:50 til 17:00.
Þátttaka er ókeypis.
12:50 Fyrirtækjakynning - Öryggistæki á vinnustöðum - heilsuvernd starfsmanna.
13:15 Setning. Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins.
13:20 Vinnuslys í 20 ár. Kristinn Tómasson, yfirlæknir Vinnueftirlitsins.
13:35 Gott vinnuumhverfi er hluti af lífsstíl. Þorbjörn Guðmundsson, Samiðn.
13:50 Öryggisstjórnun og slysavarnir. Gestur Pétursson, sérfræðingur í áhættustýringu, ÍSAL.
14:05 Umræður.
14:15 Heilsuvernd fundarmanna - hléæfing.
14:20 Vinnuslys og varnir - mikilvægi fyrir heilsu þjóðarinnar. Sigurður Guðmundsson, landlæknir.
14:35 Vinnuslys. Brynjólfur Mogensen, sviðstjóri, Landspítala-Háskólasjúkrahúsi.
14:50 Umferðin sem vinnustaður. Sigurður Helgason, upplýsingafulltrúi Umferðarráðs.
15:05 Umræður.
15:15 Kaffi og kynningar: Öryggistæki á vinnustöðum - heilsuvernd starfsmanna.
15:45 Slysatrygging almannatrygginga. Sigurður Thorlacius, yfirlæknir Tryggingastofnunar ríkisins.
16:00 Vinnuslys og vátryggingar. Jón Ólafsson, rekstrarfræðingur,
Sambandi íslenskra tryggingafélaga
16:15 Nær reglugerð um vinnu barna og unglinga yfir öll störf barna á Íslandi?
Er úrbóta þörf? Herdís Storgaard, framkvæmdastjóri Árvekni.
16:30 Umræður.
16:40 Samantekt. Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins.
16:50 Ráðstefnuslit.
Eftirtalin fyrirtæki verða með sýningarbás á ráðstefnunni:
Dynjandi ehf., Eski ehf. - verkfræðistofa, Fossberg ehf., Gáski-vinnuvernd,
IMG, Línuhönnun, Saga-Spa og Vinnueftirlitið.
EIGENDUR Leiðarenda ehf. stefna að því að
byggja upp verslunar- og þjónustumiðstöð á lóð
sinni á nýja miðbæjarsvæðinu á mörkum Keflavík-
ur og Njarðvíkur.
Á lóðinni Brekkustígur 45 í Njarðvík er hús sem
tilheyrði loðnuverksmiðju Fiskiðjunnar hf. en hef-
ur síðustu árin verið notað sem vörugeymsla fyrir
Eimskipafélagið. Lóðin nær einnig yfir Hafnar-
götu 91 í Keflavík og er því bæði í Keflavík og
Njarðvík.
Of verðmætt svæði fyrir vörugeymslur
Leiðarendi ehf., félag sem Sigurður Ragnarsson
og Böðvar Jónsson fasteignasalar á Eignamiðlun
Suðurnesja eiga, keypti húsið og lóðina í haust eft-
ir hálfs annars árs viðræður við fyrri eigendur.
„Við höfum fylgst með þessu húsi í mörg ár og haft
augastað á því enda vitað að stórfyrirtæki hafa
haft áhuga á að koma sér fyrir á þessu svæði,“ seg-
ir Sigurður. Lóðin er 15 þúsund fermetrar að
stærð, við aðalgötuna um Njarðvík og Keflavík,
skammt frá stórmarkaði Samkaups og á horni
Flugvallarvegar sem gert er ráð fyrir að verði not-
aður í framtíðinni sem aðalinnkeyrsla í Reykja-
nesbæ. Aðkoma að svæðinu er því og verður góð
og þar er hægt að koma fyrir fjölda bílastæða.
Á lóðinni er 1.500 fermetra hús auk 1.300 fer-
metra viðbyggingar sem byrjað var á fyrir ári en
ekki lokið við. Böðvar segir að lóðin bjóði upp á
3.500-4.000 fermetra byggingar til viðbótar.
Húsnæðið er nú tómt en þar til fyrir skömmu
var Eimskip með vörugeymslur sínar í því. Böðvar
og Sigurður segja að staðurinn sé allt of verðmæt-
ur til að vera með vörugeymslur þar. Hugmynd
þeirra er að byggja upp aðstöðu fyrir stóra verslun
eða verslunarmiðstöð á lóðinni í samvinnu við fyr-
irtæki á því sviði. Hafa þeir þegar byrjað þreif-
ingar um slíkt.
Spennandi verkefni
Þeir segjast gera sér grein fyrir því að það geti
tekið nokkurn tíma að finna samstarfsaðila og
semja við þá. Ekki sé skynsamlegt að hanna breyt-
ingar á húsnæðinu eða nýbyggingu fyrr en ljóst sé
hverjar þarfirnar verða. „
Það er spennandi verkefni að vinna að uppbygg-
ingu í heimabæ sínum. Draumur okkar er að þarna
verði í framtíðinni blómleg starfsemi í glæsilegum
húsum,“ segir Sigurður.
Leiðarendi ehf. eignast lóð loðnuverksmiðjunnar í miðbæ Reykjanesbæjar
Stefnt að uppbyggingu
verslunarmiðstöðvar
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Böðvar Jónsson og Sigurður Ragnarsson fasteignasalar standa að Leiðarenda ehf. Á bak við þá sjást gamall vigt-
arskúr og hús loðnuverksmiðjunnar á lóð þeirra í miðbæ Reykjanesbæjar. Lóðin er alls 15 þúsund fermetrar.
Njarðvík/Keflavík
FÉLAGARNIR fjórir í hljóm-
sveitinni Rými í Keflavík ala
með sér þann draum að
ferðast um heiminn og leika
tónlist.
Hljómsveitin Rými kom
fyrst fram á sjónarsviðið á
„Rokkstokk“, músíktil-
raunum í Keflavík, fyrir um
tveimur árum, en hljóm-
sveitin gekk þá undir nafninu
Jódís. Síðan þá hefur einn yf-
irgefið hljómsveitina auk
þess sem hún hefur breytt um
tónlistarstefnu og leikur nú
nokkurs konar jaðarrokk
með pönkívafi, að sögn
hljómsveitarmeðlima sem
eru Oddur Ingi Þórisson,
Sveinn Helgi Antonsson,
Tómas Viktor Young og Æv-
ar Pétursson.
Ævar, Tómas og Oddur
léku fyrst saman í hljómsveit
fyrir átta árum, þegar þeir
voru í Tónlistarskóla Kefla-
víkur. Hljómsveitin bar nafnið
Strumparnir og lék við ýmis tæki-
færi á Reykjanesi við góðar und-
irtektir og entist í þrjú ár.
Breiðskífa á nýju ári
Rými tók upp lagið Mistrið fyrir
skömmu og hefur það fengið góðar
viðtökur, að sögn félaganna, og var
meðal annars valið lag vikunnar á
pólsku útvarpsstöðinni Radio
Afera. Það hefur einnig verið leikið
nokkuð í Finnlandi og á Rás 2.
Um þessar mundir fer mestur
tími hljómsveitarmeðlima í vinnslu
á nýrri breiðskífu sem þeir hyggjast
gefa út í byrjun næsta árs. Þar að
auki hafa þeir þónokkuð að gera við
tónleikahald og verða m.a. í Frum-
leikhúsinu hinn 15. nóvember nk.
Hljómsveitin hefur verið með
heimasíðu síðastliðin ár, en þar er
meðal annars hægt að fá allar upp-
lýsingar um hljómsveitina, meðlimi
hennar og sögu, ásamt því að ná í
lög hennar á mp3-formi. Þegar hafa
yfir 2.200 manns heimsótt síðuna en
slóðin er www.rymi.ipfox.com.
Tónlistarhimnaríki
á Hróarskelduhátíð
Meðlimir Rýmis hafa tvívegis far-
ið saman á Hróarskelduhátíð í Dan-
mörku og segja hátíðina algjört
tónlistarhimnaríki þar sem 170
hljómsveitir koma fram á fjórum
dögum. Tómas er tengiliður
hátíðarinnar við Ísland.
Draumur hljómsveitarinnar er að
ferðast um heiminn og leika tónlist
en þangað til hann rætist ætla þeir
að halda sig við tónleikahald og
plötuútgáfu hér heima.
Morgunblaðið/Sigríður Hjálmarsdóttir
Fjórir ungir menn skipa hljómsveitina
Rými. Tómas Viktor Young, til vinstri,
og Oddur Ingi Þórisson sitja fyrir fram-
an þá Ævar Pétursson (t.v.) og Svein
Helga Antonsson.
Draumurinn
að leika erlendis
Keflavík
STEFNT er að opnu próf-
kjöri hjá Samfylkingunni
vegna uppstillingar á fram-
boðslista fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar í Reykjanesbæ
næsta vor. Er það fyrirkomu-
lag í samræmi við niðurstöður
skoðanakönnunar meðal fé-
lagsmanna sem fram hefur
farið á undanförnum vikum.
Í skoðanakönnuninni var
fólk beðið um að velja á milli
sex möguleika, frá opnu próf-
kjöri til uppstillingarnefndar,
og samkvæmt upplýsingum
Svandísar Valdimarsdóttur,
formanns félagsins, var af-
gerandi meirihluti þeirra fé-
lagsmanna sem þátt tóku í
könnuninni fylgjandi opnu
prófkjöri.
Nefnd vinnur að reglum
Á opnum félagsfundi sem
Samfylkingin í Reykjanesbæ
stóð fyrir síðastliðið mánu-
dagskvöld voru niðurstöður
könnunarinnar kynntar og
samþykkt ályktun þess efnis
að stefnt skyldi að opnu próf-
kjöri. Kosin var nefnd til
vinna að prófkjörsreglum.
Félagsfundur verður haldinn
aftur innan skamms þar sem
endanleg ákvörðun verður
tekin og nefndin skilar til-
lögum.
Samfylk-
ingin
stefnir að
prófkjöri
Reykjanesbær