Morgunblaðið - 17.10.2001, Page 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
18 MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ
hefur gert breytingar á reglugerð
um veiðar í atvinnuskyni fiskveiði-
árið 2001/2002 í því skyni að sam-
ræma reglur um úthlutun, nýtingu
og framsal krókaaflahlutdeildar og
krókaaflamarks þeim reglum sem
gilda um almenna aflahlutdeild og
aflamark. Reglugerðinni er breytt á
þann veg að Fiskistofa skuli tilkynna
útgerðum krókaaflamarksbáta, að
hverjum báti sé heimilt á yfirstand-
andi fiskveiðiári að veiða löngu, keilu
og karfa sem meðafla við krókaveið-
ar. Skal leyfilegur meðafli hvers báts
í hverri tegund nema 80% af því sem
í hans hlut kæmi miðað við úthlutun
aflahlutdeildar í þessum tegundum,
byggða á veiðireynslu hvers króka-
aflamarksbáts á tímabilinu 1. júní
1998 til 31. maí 2001. Þessar breyt-
ingar eru liður í því að koma til móts
við útgerðarmenn krókabáta, að því
er segir í fréttatilkynningu.
Krókabátar
fá keilu- og
löngukvóta
PHILIPS, stærsti framleiðandi
heimilisraftækja í Evrópu, hefur til-
kynnt að tap félagsins á þriðja árs-
fjórðungi nemi 799 milljónum evra,
sem samsvarar um 73,5 milljörðum
íslenskra króna.
Til samanburðar má geta þess að
hagnaður varð af sama tímabili í
fyrra sem nam 2,1 milljarði evra eða
um 193 milljörðum íslenskra króna.
Umskiptin nema því ríflega 266 millj-
örðum króna til hins verra en veltan
mun hafa minnkað um 23%.
Tap félagsins er sagt skýrast af
miklum samdrætti í sölu á heimilis-
tölvum og fjarskiptatækjum en Phil-
ips varaði í júlí sl. við að tap yrði af
rekstrinum þetta árið í fyrsta skipti í
níu ár. Philips hefur einnig varað við
afkomu á síðasta ársfjórðungi og
áætlar að tap félagsins þá muni nema
200-250 milljónum evra, sem svarar
til 18-23 milljarða íslenskra króna.
Mikið tap
af rekstri
Philips
BRESKA fjarskiptafyrirtækið Brit-
ish Telecommunications, BT, til-
kynnti í gær að rekstri fyrirtækisins
Concert sem rekið hefur verið í sam-
vinnu við fjarskiptafyrirtækið
AT&T verði hætt fyrir árslok árið
2002.
Concert er í jafnri eigu BT og
AT&T, tveggja af stærstu fyrirtækj-
um á sviði fjarskipta í heiminum, og
veitir reikiaðgang að fjarskiptanet-
um fyrirtækjanna tveggja. BT hefur
tilkynnt að BT og AT&T hafi náð
samkomulagi um að Concert verði
leyst upp og eigur þess muni renna
til móðurfélaganna tveggja en tap
hefur verið af rekstri fyrirtækisins.
Ákvörðunin verður til þess að allt að
2.300 af 6.300 starfsmönnum Con-
cert verður sagt upp.
Engin áhrif á
Íslandssíma
Íslandssími gerði reikisamning
við Concert fyrir rúmu ári fyrir fjar-
skiptakerfi sitt. Pétur Pétursson,
upplýsinga- og kynningarstjóri Ís-
landssíma, segir þetta engin áhrif
hafa á þá þjónustu sem Íslandssími
hafi veitt í gegnum samning sinn við
Concert. Hann segir að samkvæmt
bréfi sem Íslandssíma barst í gær-
morgun hafi BT Cellnet og AT&T
lýst því yfir að fyrirtækin yfirtaki
skyldur Concert við Íslandssíma.
BT og AT&T
Rekstri
Concert
hætt
VERÐ á þorski í beinum viðskipt-
um hækkar um 15% og verð á karfa
um 13% samkvæmt úrskurði úr-
skurðarnefndar sjómanna og út-
vegsmanna. Úrskurðurinn byggist
á ákvæðum kjarasamnings Vél-
stjórafélags Íslands og Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna frá 9.
maí sl. um markaðstengingu fisk-
verðs. Verðlagsstofa skiptaverðs
hefur þegar sent útgerðum 26 skipa
tilmæli um að hækka fiskverð til
samræmis úrskurðinum.
Farmanna- og fiskimannasam-
band Íslands óskaði eftir því 15.
ágúst sl. fyrir hönd ísfisktogarans
Ásbjarnar RE að úrskurðarnefnd
sjómanna og útvegsmanna tæki til
úrskurðar deilu milli áhafnarinnar
og útgerðarfélagsins Granda hf. um
verð á botnfiski. Úrskurðarnefnd
leitaði til Verðlagsstofu skiptaverðs
(VSS) eftir upplýsingum um með-
alverð þorsks og karfa í beinni sölu
og einnig upplýsinga um hvaða
breytingum verð það þyrfti að taka
sem Grandi hf. bauð áhöfn Ásbjarn-
ar RE til að ná fram markmiðum
gerðardóms frá 30. júní sl.
Samkvæmt upplýsingum VSS
var meðalverð á þorski veiddum í
botnvörpu á tímabilinu janúar til
júní þessa árs í beinum viðskiptum
miðað við landið allt 89,38 krónur á
kíló en grunnverð það sem áhöfn
Ásbjarnar RE stóð til boða var 89
krónur. Að mati VSS þyrfti grunn-
verð til áhafnar Ásbjarnar RE á
fjögurra kílóa þorski að hækka úr
89 krónum í 102 krónur, að viðbættu
15% álagi, miðað við októbermánuð
þessa árs, til að uppfylla skilyrði
gerðardómsins.
Meðalverð á karfa í beinum við-
skiptum nam, samkvæmt upplýs-
ingum VSS, aftur á móti 39,86 krón-
um á kíló á landsvísu á tímabilinu
frá janúar til júlí þessa árs. Með-
alverð til áhafnar Ásbjarnar RE
nam 40 krónum á tímabilinu júlí–
ágúst þessa árs. Í úrskurðinum seg-
ir að æskilegt viðmiðunarverð karfa
í beinni sölu miðað við sett markmið
ætti að vera 45 krónur eftir reikni-
reglu VSS.
Fulltrúar bæði sjómanna og
útvegsmanna skrifuðu undir
Niðurstaða úrskurðarnefndar var
því að Grandi hf. skyldi við uppgjör
til áhafnar Ásbjarnar RE greiða
51,2 krónur fyrir kílóið af karfa yfir
700 grömmum en 42,8 krónur fyrir
karfa undir 700 grömmum. Þá skal
Grandi samkvæmt úrskurðinum
greiða 102 krónur fyrir kílóið af
þorski ef í 100 kílóum eru 25 fiskar.
Fyrir fisk sem ekki er með los og er
blóðlaus greiðist 15% gæðaálag. Það
jafngildir því að fyrir tveggja kílóa
fisk eru greiddar 95 krónur fyrir
kílóið, 110 krónur fyrir þriggja kílóa
fisk, 115 krónur fyrir fjögurra kílóa
fisk og 120 krónur fyrir kílóið af
fimm kílóa fiski.
Fulltrúar bæði sjómanna og út-
vegsmanna skrifuðu undir úrskurð-
inn. Vélstjórafélag Íslands hefur
skorað á þá sjómenn sem fá uppgert
miðað við lægra verð en úrskurð-
urinn gerir ráð fyrir að vísa sínum
málum til úrskurðarnefndarinnar.
Verðlagsstofa skiptaverðs hefur
ennfremur sent útgerðum 26 skipa
tilmæli um að hækka fiskverð í bein-
um viðskiptum til samræmis við úr-
skurðinn. Bregðist þær ekki við
þessum tilmælum verður málum
þeirra sjálfkrafa skotið til úrskurð-
arnefndar.
Helgi Laxdal, formaður Vél-
stjórafélags Íslands, segir að í
samningi VFSÍ og LÍÚ frá því í vor
hafi verið kveðið á um markmið til
að nálgast markaðstengingu á fisk-
verði í ákveðnum skrefum. Úr-
skurður úrskurðarnefndar sé fyrsta
skrefið af fjórum til að nálgast þessi
markmið.
Mikilvægt skref í átt að
markaðstengingu fiskverðs
„Samningurinn kveður á um að
þegar þessum markmiðum er náð á
verð á slægðum þorski í beinum við-
skiptum að hafa náð 80% af verði á
fiskmörkuðum. Munurinn er í dag
um 60% og það hefur heldur dregið í
sundur með verði í beinum viðskipt-
um og markaðsverði, aðallega
vegna gengisbreytinga því þá
hækkar verð á mörkuðum. Með úr-
skurðinum dregur saman að nýju og
að mínu mati er niðurstaða nefnd-
arinnar mjög mikilvægt skref í átt
að markaðstengingu fiskverðs. Það
er auk þess ánægjulegt til þess að
vita að úrskurðarnefndin vinnur nú
saman að því að ná ákveðnum mark-
miðum,“ segir Helgi.
Ákvæði kjarasamnings Vélstjórafélags Íslands og LÍÚ um markaðstengingu
Úrskurðarnefnd hækkar
verð í beinum viðskiptum
Útgerðum 26 skipa sagt að hækka
fiskverð til samræmis úrskurðinum
ÍSLENSKT vatn undir merkinu Ice-
land Spring, vann til fernra Aqua
Awards-verðlauna fyrir markaðs-
setningu á ársfundi alþjóðlegra
samtaka vatnsframleiðenda í
síðustu viku.
Þórir Kjartansson, fram-
kvæmdastjóri Þórsbrunns sem
framleiðir vatnið, segir þessi
verðlaun eina mestu við-
urkenningu sem fyrirtæki
sem starfa við sölu á
átöppuðu vatni geti fengið
og þau muni hafa mikla
þýðingu. „Þetta eru mjög
þekkt verðlaun í Banda-
ríkjunum og að hafa fengið
þau gerir það auðveldara
að fá dreifingu á Iceland
Spring. Þetta snýst allt um
að auka dreifinguna.“
Þórir segir að á vissum
svæðum í Bandaríkjunum
sé ekki langt eftir því að
bíða að Iceland Spring
verði jafnþekkt og t.d.
Evian-vatnið. Þessi svæði
í Bandaríkjunum eru t.d.
Kalifornía og miðríkin. Að
hans sögn er þó langt í
land að því sé svo farið víð-
ar. „Evian hefur sextíu til sjötíu ára
forskot á okkur hvað dreifingu
varðar og það tekur tíma að vinna
það upp.“
Iceland Spring er flutt út til Sví-
þjóðar, Bretlands, Singapúr, Hong
Kong, Bandaríkjanna og til stendur
að hefja útflutning til Japans og
Ástralíu á þessu ári.
Samtökin International Bottled
Water Association héldu sinn 43.
ársfund í síðustu viku og þar voru
Aqua Awards-verðlaunin veitt. Að
því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu frá Þórsbrunni eru IBWA stór
og virt samtök fyrirtækja á sviði
átappaðs vatns. Samtökin voru
stofnuð árið 1958, þau vinna með
heilbrigðisyfirvöldum við að setja
gæðareglur og sjá til þess að fyr-
irtækin sem eru aðilar að samtök-
unum fylgi gæðastöðlum. Þórs-
brunnur hefur verið aðili að
IBWA í a.m.k. sjö ár, að sögn
Þóris.
Alls var keppt til Aqua
Awards verðlauna í 16 flokk-
um. Keppnin var þrískipt: Lít-
il fyrirtæki, meðalstór og
stór. Þekktustu merkin
eins og Evian og Perrier
keppa í hópi stærstu fyr-
irtækjanna. Iceland
Spring keppti í hópi með-
alstórra fyrirtækja í fjór-
um flokkum og vann
fyrstu verðlaun í þeim öll-
um: Fyrir bestu hönnun
miða, blaðaauglýsingar,
auglýsingar í búðum og
herferð í almanna-
tengslum. Aðspurður seg-
ir Þórir að á bilinu 500–
600 fyrirtæki í vatnsfram-
leiðslu teljist til
meðalstórra fyrirtækja
en óljóst er hve mörg af
þeim tóku þátt í keppn-
inni.
Markaðs- og auglýsinga-
herferð Iceland Spring hefur vakið
nokkra athygli í Bandaríkjunum en
hún var í höndum auglýsingastof-
unnar Sloan Group. Íslenska vatnið
hefur t.a.m. sést í þekktum banda-
rískum sjónvarpsþáttum á borð við
Ally McBeal, Friends, E.R. og West
Wing.
Fyrirtækið Þórsbrunnur var
stofnað árið 1990 af Hofi, Orku-
veitu Reykjavíkur og Vífilfelli. Nú
eru hluthafar fyrirtækisins 27 tals-
ins og þeir helstu Kaupþing, Víf-
ilfell, Orkuveitan, Nýsköp-
unarsjóður atvinnulífsins,
Fjárfestingarfélagið Straumur,
fjárfestingarfélögin Háahlíð og
Uppspretta og Ingibjörg og Lilja
Pálmadætur.
Iceland Spring vann fern verðlaun
fyrir markaðssetningu
Mun auðvelda
dreifingu erlendis
SÉRLEYFISBÍLAR Helga Péturs-
sonar ehf. sem sinnt hafa almenn-
ingssamgöngum á Snæfellsnesi og í
Dölum á undanförnum árum hafa
selt þann hluta rekstrar síns til Sæ-
mundar Sigmundssonar sérleyfis-
hafa í Borgarnesi. Breytingin varð
15. okóber síðastliðinn. Frá og með
sama tíma munu Sérleyfisbílar
Helga Péturssonar einbeita sér að
hópferðaakstri eingöngu.
Afar erfitt rekstrarumhverfi
og hagræðing nauðsynleg
Sérleyfisbílar Helga Péturssonar
hafa haft þessa þjónustu með hönd-
um frá því að sérleyfi voru fyrst veitt
árið 1935. Í fréttatilkynningu frá
Sérleyfisbílum Helga Péturssonar
kemur fram að ástæður þessarar
sölu séu fyrst og fremst að rekstr-
arumhverfi atvinnugreinarinnar er
afar erfitt um þessar mundir og hag-
ræðing á þessu sviði nauðsynleg.
„Félagið þakkar þeim fjölmörgu
aðilum á Snæfellsnesi og í Dölum
sem við höfum haft viðskipti við á
undanförnum árum fyrir áralöng
samskipti og vonast til að hagræð-
ingin sem nú á sér stað verði al-
menningssamgöngum á Snæfells-
nesi og í Dölum og íbúum svæðisins
til framdráttar,“ segir í tilkynning-
unni.
Morgunblaðið/Hrefna
Sigfús Almarsson færir Halldóri Jónssyni, bílstjóra hjá Helga Péturssyni,
blóm. Með á myndinni eru Drífa Skúladóttir og Skúli Alexandersson.
Sérleyfisbílar Helga Péturssonar
hætta akstri á Snæfellsnes og í Dali
Almenningssam-
göngur breytast
Hellissandi. Morgunblaðið.
♦ ♦ ♦