Morgunblaðið - 17.10.2001, Síða 42
DAGBÓK
42 MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
eru væntanleg Lag-
arfoss og Selfoss sem
fer aftur út ásamt Goða-
fossi og Tjaldi.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
gær kom Venus og í dag
er Selfoss væntanlegt til
Straumsvíkur.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48. Skrifstofa
sími 5514349, flóamark-
aður, fataúthlutun og
fatamóttaka sími 552-
5277 eru opin miðvikud.
kl. 14-17.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa og postulín,
kl. 13 vinnustofa og
postulín. Námskeið í
jóga byrjar í dag kl. 17.
Árskógar 4. Kl. 9-12
baðþjónusta og opin
handavinnustofan, kl. 13
spilað, kl. 13-16.30 opin
smíðastofan, kl. 10 pútt-
völlurinn opinn. Allar
uppl. í síma 535-2700.
Aldraðir í Bústaða-
kirkju. Kl. 11 f.h. helgi-
stund í kirkju. Súpa og
brauð í hádeginu. Kl. 13-
16.30 handavinna, spil-
að, föndrað og gam-
anmál. Þeir sem vilja
láta sækja sig láti
kirkjuverði vita í síma
553-8500 eða Sigrúnu í
síma 864-1448.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8-
12.30 böðun, kl. 9-12
vefnaður, kl. 9-16
handavinna, kl. 9-17
fótaaðgerð, kl. 10 banki,
kl. 13 spiladagur, kl. 13-
16 vefnaður.
Hallgrímskirkja, eldri
borgarar. Opið hús í
dag kl. 14-16. Gestur sr.
Kristján Valur Ingólfs-
son. Bílferð fyrir þá sem
þess óska. Uppl. veitir
Dagbjört í síma 510-
1034 og 510-1000.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud. kl.
13-16.30, spil og föndur.
Jóga á föstud. kl. 13.30.
Kóræfingar hjá Vorboð-
um, kór eldri borgara í
Mosfellsbæ, á Hlað-
hömrum á fimmtud. kl.
17-19. Uppl. hjá Svan-
hildi í s. 5868014 kl. 13-
16. Tímapöntun í fót-,
hand- og andlitssnyrt-
ingu, hárgreiðslu og fót-
anudd, s. 566 8060 kl. 8-
16.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Í dag kl. 11.15
leikfimi, kl. 13 leikfimi,
kl. 15 leshringur í Bóka-
safni Álftanes, (24. okt.,
7. nóv., 21. nóv., 5. des.)
kl. 15.30 tölvunámskeið í
Garðaskóla og trésmíði
nýtt og gamalt kl. 16,
bútasaumur í Garða-
skóla.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18-20. Kl. 9-12
aðstoð við böðun, kl. 9-
16.45 hárgreiðslustofan
og handavinnustofan
opnar, kl. 10-10.45 leik-
fimi, kl. 14.30 banki.
Félag eldri borgara,
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15-16.
Skrifstofan í Gullsmára
9 opin í dag kl 16.30-18.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl. 10-12 verslunin opin,
kl. 13 föndur og handa-
vinna,
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli.
Línudans með Sigvalda
danskennara kl. 11.
Myndlist kl. 13, pílukast
kl. 13.30. Á morgun
verður pútt í Bæj-
arútgerðinni kl. 10 og
glerskurður kl. 13.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
opin frá kl. 10.00-13.00.
Kaffi, blöðin og matur í
hádegi. Miðvikudag,
Göngu-Hrólfar fara í
létta göngu frá Ásgarði
Glæsibæ kl. 10. Söng-
félag FEB kóræfing kl
17. Línudanskennsla
Sigvalda kl. 19.15.
Bridsnámskeið kl. 19.30.
Fimmtudag, brids kl.
13. Námskeið í fram-
sögn kl. 16.15. Baldvin
Tryggvason verður til
viðtals um fjármál og
leiðbeiningar um þau
mál á skrifstofu FEB
25. okt. nk. kl. 10.30-
11.30, panta þarf tíma.
Silfurlínan er opin á
mánud.og miðvikud. frá
kl. 10-12 fh. í síma 588-
2111. Skrifstofa félags-
ins er flutt að Faxafeni
12, sama símanúmer og
áður. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði
Glæsibæ. Uppl. á skrif-
stofu FEB kl. 10-16 í
síma 588-2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9-16.30
fótaaðgerð og opin
vinnustofa, postulín,
mósaik og gifsafsteipur,
kl. 9-13 hárgreiðsla, kl.
9-16 böðun. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14-16
blöðin og kaffi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9-16.30 vinnustofur
opnar, kl. 10.30 gamlir
leikir og dansar, frá há-
degi spilasalur opinn,
myndlistarsýning Val-
garðs Jörgensen stend-
ur yfir. Mánudag 22.
okt. kl. 13.30 „Hittumst
heil“ Ágústa Sigrún
Ágústsdóttir kemur í
heimsókn og syngur lög
af nýjum geisladiski eft-
ir föður sinn, Ágúst Pét-
ursson. Veitingar í veit-
ingabúð. Uppl. á
staðnum og í síma 575-
7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
frá kl. 10-17, kl. 10.30
boccia, kl. 13 félagsvist,
kl. 16 hringdansar, kl.
17 bobb. Söngfuglarnir
taka lagið kl. 15.15. Guð-
rún Lilja með gítarinn.
Gullsmári Gullsmára 13.
Vefnaður kl. 9, leikfimi
kl. 9.05, keramikmálun
k. 13, Búnaðarbankinn
með þjónustu í Gull-
smára kl. 10 boccia kl.
14.
Hraunbær 105. Kl. 9 op-
in vinnustofa, handa-
vinna, bútasaumur, kl.
9-12 útskurður, kl. 9-17
hárgreiðsla, kl. 11 banki,
kl. 11 pútt, kl. 13 brids.
Hvassaleiti 58-60. Kl. 9
böðun, föndur/
klippimyndir, kl. 14
danskennsla, kl. 15
frjáls dans og 15 teiknun
og málun. Fótsnyrting,
hársnyrting. Sviðaveisla
verður föstud. 19. okt.
Húsið opnað kl. 18.30.
Karlakórinn Kátir karl-
ar koma og Ólafur
Ólafsson spilar á harm-
onikku. Miðaverð kr.
2.000. Pantanir í fé-
lagsþjónustunni
Hvassaleiti og í síma
588-9335. Miða þarf að
greiða og sækja í dag
fyrir kl. 16.30.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 9-16 fótaaðgerðir, kl.
9-12 tréskurður, kl. 10
sögustund, kl. 13 banki,
kl. 14 félagsvist, kaffi,
verðlaun.
Vesturgata 7. Kl. 8.25
sund, kl. 9-16 fótaaðgerð
og hárgreiðsla, kl. 9.15-
16 postulínsmálun og
myndmennt, kl. 13-14
spurt og spjallað, kl. 13-
16 tréskurður. Fimmtu-
dagur 18. október kl.
10.30 er fyrirbænastund
í umsjón séra Hjálmars
Jónssonar dóm-
kirkjuprests. Leirmótun
hefst fimmtud. 18 okt.
kl. 17-20. Uppl. og
skráning í
síma 562-7077.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 10 fóta-
aðgerðir, morgunstund,
bókband og bútasaum-
ur, kl. 12.30 versl-
unarferð, kl. 13 hand-
mennt og kóræfing, kl.
13.30 bókband, kl. 15.30
kóræfing. Haustfagn-
aður verður 18. okt. kl.
19. Skráning og uppl. í
síma 561-0300.
Kvenfélag Kópavogs.
Fundur á morgun,
fimmtudag, kl. 20.30 í
Hamraborg 10. Anna
Guðmundsdóttir kynnir
íslenskar húðvernd-
arvörur fyrir fjölskyld-
una.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi,
ætla að hittast á morg-
un, fimmtudag 18. okt.
kl. 10 í keilu í Mjódd.
Spiluð verður keila,
spjallað og heitt á könn-
unni. Allir velkomnir.
Nánari uppl. veitir Þrá-
inn Hafsteinsson í síma
545-4500.
Úrvalsfólk. Haustfagn-
aður verður á Hótel
Sögu Súlnasal föstudag-
inn 19. okt. kl. 19. Mat-
ur, tískusýning, fjöl-
breytt skemmtiatriði,
aðgöngumiðar seldir hjá
Rebekku og Valdís 585-
4000.
Kvenfélagið Aldan. Að-
alfundur verður haldinn
í kvöld miðvikudag 17.
okt. kl. 20.30 í Borg-
artúni 18, 3. hæð.
Stjórnin.
Álftanes. For-
eldramorgnar í Hauks-
húsum kl. 10-12 í dag.
Heitt á könnunni.
Í dag er miðvikudagur 17. október,
290. dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Jesús rétti út höndina, snart hann
og mælti: „Ég vil, verð þú hreinn!“
Jafnskjótt varð hann hreinn
af líkþránni.
(Matt. 8, 3.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 gæði, 4 dý, 7 endar, 8
fim, 9 væl, 11 duglegu, 13
ósköp, 14 byr, 15 galdra-
tilraunir, 17 bjartur, 20
viðvarandi, 22 stílvopn,
23 aflöng, 24 þvaðra, 25
reyna sig við.
LÓÐRÉTT:
1 brekka, 2 fárviðri, 3
harmur, 4 hróp, 5 látni, 6
skynfærin, 10 guð, 12
reyfi, 13 ögn, 15 málmur,
16 þekktu, 18 flatur klett-
ur, 19 bölva, 20 hlífa, 21
föst á fé.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 tjaldferð, 8 rófan, 9 róðan, 10 dóm, 11 skata, 13
asnar, 15 svans, 18 eldur, 21 ker, 22 riðla, 23 titra, 24
ruglingur.
Lóðrétt: 2 jafna, 3 lenda, 4 ferma, 5 ræðin, 6 hrós, 7
knár, 12 tin, 14 sól, 15 sárt, 16 auðnu, 17 skafl, 18 ertan,
19 duttu, 20 róar.
Fyrirspurn
HVAÐA reglur þarf að
uppfylla til að fá atvinnu-
leyfi til aksturs leigubíls í
Reykjavík?
Hvaða reglur gilda þegar
leigubílstjóri utan af landi
flytur til Reykjavíkur og
vill fá leyfi hér í Reykjavík?
Hver er það sem sér um
þessar veitingar?
Helgi.
Dýrahald
Högni í óskilum
í Lindarsmára
GRÁBRÖNDÓTTUR
rúmlega eins árs högni hef-
ur verið í óskilum í Lind-
arsmára í Kópavogi í ca. 6
vikur. Hann er ákaflega
kelinn og vel vaninn. Eig-
andi hringi í síma 554-6666.
Þrílitur skógar-
köttur týndist
TVEGGJA ára læða, þrílit,
svört, ljósbrún og hvít,
norskur skógarköttur,
týndist 12. okt. Þeir sem
hafa orðið hennar varir hafi
samband í síma 692-8083.
Tapað/fundið
Leikfimitaska týndist
LEIKFIMITASKA týnd-
ist í sundlaug Kópavogs
föstudaginn 5. okt. milli kl.
13-14. Taskan er grá og
brún og hægt að smella á
skólatösku. Taskan er
merk. Vinsamlega hafið
samband í síma 554 1010
eða 864 0110.
Kvenmannsúr
týndist
SILFUR kvenmannsúr,
Fossil, týndist á Laugavegi
13. október. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
865 4145.
Leðurhanskar týndust
LEÐURHANSKAR týnd-
ust á leiðinni niður Vitastíg
á stuttri leið á Laugavegi.
Uppl. í síma 568 7215.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
MIKIÐ er rætt um skipulagsmálhöfuðborgarinnar um þessar
mundir og ekki síst út frá miðborg-
inni og flugvellinum í Vatnsmýri og
hvað gera skuli við þessi svæði.
Þetta eru hálfgerð eilífðarmál enda
verið að horfa áratugi fram í tímann
og umræðunni lýkur því trúlega
aldrei. Alltaf þarf að endurskoða
skipulag jafnharðan og það er sam-
þykkt. Þetta eru líka of flókin mál
fyrir Víkverja og hann hættir sér því
ekki út í að fjalla um þau.
Eitt atriði leyfir hann sér þó að
nefna sem tengist þessu óbeint en
það er hugmynd um tónlistarhús
sem virðist eiga að finna stað í mið-
borginni. Mikið er búið að ræða og
rita um réttmæti slíks húss, hvar
það geti verið og hvað þar eigi ná-
kvæmlega að fara fram í tónlist, t.d.
ópera eða ekki ópera. Ekki ætlar
Víkverji heldur að hætta sér í þá
umræðu en leyfir sér að benda á
hvort ekki megi nýta hús sem þegar
er til í þessu skyni. Kom þetta fram í
viðræðum sem hann átti við mætan
borgarbúa nýverið sem átti erindi í
Glæsibæ. Fannst honum sem húsið
hefði mátt muna sinn fífil fegurri og
virtist sem það væri nú illa nýtt og
spurning hvort bæta mætti úr.
Glæsibær var glæsilegt hús á sín-
um tíma og þar voru þróttmiklar
verslanir og vinsælar. Víkverji er
ekki frá því að vinsældirnar hafi
eitthvað dvínað og kannski ekkert
skrýtið þótt 20-30 ára gömul versl-
unarmiðstöð verði að láta undan
síga fyrir Kringlum og Smárum eða
Fenjum. En er ekki nógu hátt til
lofts og vítt til veggja í Glæsibæ fyr-
ir tónleikasali? Ef ekki ætti að vera
næsta auðvelt að hækka húsið eins
og nauðsynlegt er. Víkverji trúir
eiginlega ekki öðru en þessi mögu-
leiki hafi verið skoðaður og víst er
Glæsibær ágætlega í sveit settur
fyrir starfsemi tónleikahúss.
Ef ekki verðum við bara að vona
að eigendur Glæsibæjar taki sig til
og hressi húsið og starfsemina þar
við. Víkverji veit vel að þar er ým-
islegt gott og gagnlegt að finna og
verður áreiðanlega hægt að gera ráð
fyrir því lengi enn – með eða án tón-
listar.
x x x
ÚR því verið er að fjalla um versl-unarmiðstöðvar er ekki úr vegi
að koma með ábendingu til forráða-
manna Smáralindar. Væri ekki
hægt að koma fyrir bekkjum á hin-
um víðu göngum hússins? Þar gætu
menn tyllt sér og horft á mannlífið
eða beðið meðan aðrir versla.
Á svona stað er alveg nauðsynlegt
að geta áð hér og þar í húsinu og
ekki er alltaf víst að menn geti gert
það inni í verslunum (þótt þar sé
kannski að finna sæti í einstökum
búðum) og ekki varð Víkverji var við
slík sæti á göngunum. Hann verður
þó að viðurkenna að hann hefur ekki
farið vandlega um allt húsið.
x x x
DAPURLEGT er að hryðjuverk,sem kannski eru unnin af til-
tölulega fámennum hópi, skuli geta
gert svo mikinn usla sem raun ber
vitni varðandi voðaverkin í Banda-
ríkjunum í síðasta mánuði. Afleið-
ingarnar eru hrikalegar fyrir utan
þann harmleik sem þeir hafa orðið
fyrir sem misstu sína nánustu. Þær
koma m.a. fram í minnkandi við-
skiptum á öllum sviðum sem koma
ekki síst fram í minni ferðalögum
fólks. Þess vegna breyttist svo
margt 11. september og langt í að
heimurinn verði samur.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
VEGNA umræðunnar um
afnám einkasölu Á.T.V.R.
á áfengi var ég að velta
fyrir mér áhrifunum sem
þessar breytingar kynnu
að hafa fyrir neytendur
og samfélagið.
Verð á áfengi mun
hækka. Í fyrsta lagi munu
innflytjendur þurfa að
hækka sín verð til að
mæta kostnaði vegna
breyttra greiðsluskil-
mála. Á.T.V.R. greiðir
hálfsmánaðarlega fyrir
sín vörukaup á meðan
smásöluverslanir taka sér
a.m.k. 45 daga. Þess utan
er ólíklegt að versl-
anirnar sætti sig við jafn-
lága álagningu og
Á.T.V.R. eða 7-13%.
Vöruúrval í verslunum
myndi minnka og stór-
markaðirnir fleyta
rjómann af magnsölunni,
þ.e. bjór, brúsavodka og
ódýr vín á kössum, sem
þýðir að fólk sem vill
njóta fjölbreyttra vína
eins og standa nú til boða
í verslunum Á.T.V.R.
þyrfti að leita í sérversl-
anir og borga mun hærra
verð en í dag, einmitt
vegna þess að stórmark-
aðirnir væru búnir að
taka til sín magnsöluna.
Einnig þarf að líta til
aðgengis ungmenna að
veigunum, en smá-
söluverslanir hafa ekki
staðið sig of vel í að fram-
fylgja tóbakslögunum,
svo af hverju skyldum við
ætla að betra eftirlit yrði
með áfengissölu? Afleið-
ingin er að fólk sem vill
njóta góðra veiga þarf að
hafa mun meira fyrir að
nálgast þær og greiða
fyrir þær mun hærra
verð, á meðan aðgengi
ógæfufólks og ungmenna
batnar til muna.
Í ljósi þessa vil ég skora
á stjórnvöld að fara sér
hægt í að breyta núver-
andi fyrirkomulagi og
styðja fremur við bakið á
Á.T.V.R. sem á hrós skilið
fyrir vöruframboð og
þjónustu við neytendur.
Daníel Helgason.
Smásala áfengis
Morgunblaðið/Billi