Morgunblaðið - 17.10.2001, Síða 45
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2001 45
TAKTU ÞÁTT MEÐ ÞVÍ AÐ FYLLA ÚT MEÐFYLGJANDI ATKVÆÐASEÐIL EÐA FARÐU Á NETIÐ: www.mbl.is
BESTI EVRÓPSKI LEIKSTJÓRINN 2001: FYRIR HVAÐA MYND:
BESTI EVRÓPSKI LEIKARINN 2001: Í HVAÐA MYND:
BESTA EVRÓPSKA LEIKKONAN 2001: Í HVAÐA MYND:
NAFN (NAME):
HEIMILISFANG (ADDRESS): PÓSTNÚMER (POSTCODE):
STAÐUR (CITY): SÍMI (DAYTIME PHONE):
SENDIÐ ATKVÆÐASEÐILINN FYRIR 31. OKTÓBER Á EFTIRFARANDI HEIMILISFANG
THE PEOPLE’S CHOICE AWARDS 2001, C/O ANDERSEN, WIRTSCHAFTSPRÜFUNGSGESELLSCHAFT,
STEUERBERATUNGSGESELLSCHAFT MBH, P.O. BOX 08 01, 1000 BERLIN, GERMANY
GREIDDU ATKVÆÐI UM:
BESTA EVRÓPSKA LEIKSTJÓRANN 2001
JEAN-JACQUES ANNAUD - ENEMY AT THE GATES
PATRICE CHEREAU - INTIMACY
ALEX DE LA IGLESIA - LA COMUNIDAD
CHRISTOPHE GANS - LE PACTE DES LOUPS
LASSE HALLSTROM - CHOCOLAT
MICHAEL HANEKE - LA PIANISTE
OLIVER HIRSCHBIEGEL - DAS EXPERIMENT
JEAN-PIERRE JEUNET - LE FABULEUX DESTIN D’AMELIE POULAIN
MATHIEU KASSOVITZ - LES RIVIERES POURPRES
SHARON MAGUIRE - BRIDGET JONES’ DIARY
NANNI MORETTI - LA STANZA DEL FIGLIO
LONE SCHERFIG - ITALIENSK FOR BEGYNDERE
RIDLEY SCOTT - HANNIBAL
SANTIAGO SEGURA - TORRENTE 2: MISION EN MARBELLA
GIUSEPPE TORNATORE - MALENA
TOM TYKWER - DER KRIEGER UND DIE KAISERIN
BESTA EVRÓPSKA LEIKARANN 2001
STEFANO ACCORSI - LE FATE IGNORANTI
MORITZ BLEIBTREU - DAS EXPERIMENT
VINCENT CASSEL - LES RIVIERES POURPRES
COLIN FIRTH - BRIDGET JONES’ DIARY
BENNO FUERMANN - DER KRIEGER UND DIE KAISERIN
HUGH GRANT - BRIDGET JONES’ DIARY
MATHIEU KASSOVITZ - LE FABULEUX DESTIN D’AMELIE POULAIN
JUDE LAW - ENEMY AT THE GATES
BENOIT MAGIMEL - LA PIANISTE
NANNI MORETTI - LA STANZA DEL FIGLIO
JEAN RENO - LES RIVIERES POURPRES
MARK RYLANCE - INTIMACY
SANTIAGO SEGURA - TORRENTE 2: MISION EN MARBELLA
ONDREJ VETCHY - DARK BLUE WORLD
RAY WINSTONE - SEXY BEAST
BESTU EVRÓPSKU LEIKKONUNA 2001
MONICA BELLUCCI - MALENA
JULIETTE BINOCHE - CHOCOLAT
MARGHERITA BUY - LE FATE IGNORANTI
PENELOPE CRUZ - CAPTAIN CORELLI’S MANDOLIN
ISABELLE HUPPERT - LA PIANISTE
HEIKE MAKATSCH - GRIPSHOLM
CARMEN MAURA - LA COMUNIDAD
LAURA MORANTE - LA STANZA DEL FIGLIO
LENA OLIN - CHOCOLAT
FRANKA POTENTE - DER KRIEGER UND DIE KAISERIN
CHARLOTTE RAMPLING - SOUS LE SABLE
ROSA MARIA SARDA - ANITA NO PERD EL TREN
AUDREY TAUTOU - LE FABULEUX DESTIN D’AMELIE POULAIN
RACHEL WEISZ - ENEMY AT THE GATES
VAL FÓLKSINS 2001 - ATKVÆÐASEÐILL
TAKTU ÞÁTT Í VALI FÓLKSINS!
„THE PEOPLE’S CHOICE AWARDS“
Greiddu atkvæði um:
Besta evrópska leikstjórann árið 2001
Besta evrópska leikarann 2001
Bestu evrópsku leikkonuna 2001
mbl.is og Evrópska kvikmyndaakademían
bjóða Íslendingum að taka þátt
í atkvæðagreiðslunni í þremur
eftirsóttustu verðlaunaflokkum
Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2001.
Greiðir þú atkvæði á mbl.is eða fyllir út
neðangreindan atkvæðaseðil
áttu möguleika á að vera við verðlauna-
afhendinguna sem fer fram
í Berlín 1. desember nk.
Myndir sem koma til greina verða að hafa verið
frumsýndar á tímabilinu
1. nóvember 2000 til 31. október 2001.
mbl.is
Septemberdagur
(One Day in September)
Heimildarmynd
Höfundur Kevin McDonald. Þulur Michael
Douglas. (94 mín.) Bandaríkin 2000.
Myndform VHS. Bönnuð innan 16 ára.
HÉR greinir frá svartasta degi í
sögu Ólympíuleikanna er átta pal-
estínskir hryðjuverkamenn myrtu
tvo liðsmenn úr ísraelska ólympíu-
liðinu og hnepptu níu aðra í gíslingu
á Ólympíuleikunum í München
1972. Hryðjuverkamennirnir vildu
fá 200 palestínska fanga lausa úr
ísraelskri prísund, kröfur sem ísr-
aelsk yfirvöld höfnuðu alfarið. Eftir
árangurslausar til-
raunir þýskra lög-
gæsluliða til að yf-
irbuga gíslatöku-
menn lyktaði mál-
inu á versta veg,
allir gíslarnir létu
lífið og þrír eftirlif-
andi hryðjuverka-
menn voru hand-
samaðir en fram-
seldir nokkru síðar í hendur
palestínskra hryðjuverkamanna
sem rændu Lufthansa-flugvél.
Mörgum spurningum hefur verið
ósvarað varðandi þetta hrotta-
fengna mál sem var eins og köld
vatnsgusa framan í hinn vestræna
heim.
Það verður ekki annað sagt en að
hér sé á ferð hin magnaðasta kvik-
myndagerð. Höfundurinn, McDon-
ald, sem fékk Óskarverðlaunin fyrir
myndina árið 2000, byggir hana upp
sem spennumynd væri. Sumpartinn
umdeilanleg ákvörðun en áhrifin
eru hreint rosaleg.
Hann hefur og sér til varnar að
heimildarvinnan og myndöflun er
afar yfirgripsmikil. Frumheimildir
margar og ómetanlegar og úrvinnsl-
an aðgengileg jafnt fræðimönnum
sem og almenningi.
Viðtölin eru opinská og einkar
upplýsandi en viðmælendur eru að-
standendur gíslanna, þátttakendur í
sjálfri gíslatökunni, þýska lögreglu-
menn, ísraelska leyniþjónustumenn
og síðast en ekki síst einstakt viðtal
við eina núlifandi gíslatökumanninn,
Jamal Al Gashey, sem nú er í felum
í svörtustu Afríku, vegna þess að
hinir eftirlifandi hryðjuverkamenn-
irnir tveir voru myrtir af ísraelsku
leyniþjónustunni.
Gashey var 18 ára gamall árið
1972, heitbundinn málstaðnum, bar-
áttu Palestínumanna fyrir frelsi og
viðurkenningu. Það er sláandi að
heyra manninn segja í dag að hann
sjái ekki eftir neinu, að hann sé
stoltur af því sem hann átti hlut að
vegna þess að heimsbyggðin hafi þá
fyrst farið að gefa málstað Palest-
ínumanna gaum.
Sumar af uppgötvunum McDon-
ald eru ögrandi og virkilega athygl-
isverðar. Eins og að flugránið á
Lufthansa-vélinni, sem leiddi til
þess að eftirlifandi gíslatökumenn-
irnir þrír voru framseldir til Palest-
ínumanna, hafi verið sviðsett. Að
það hafi verið þáttur í samninga-
viðræðum Þjóðverja og Palestínu-
manna og stafað af ótta hinna fyrr-
nefndu við frekari hryðjuverk
síðarnefndu. Ennfremur leggur
McDonald fram sláandi en sannfær-
andi röksemdir fyrir vanhæfni
þýsku leyniþjónustunnar og lög-
gæslu í málinu, sem margir af hlut-
aðeigandi aðilum taka undir og
styðja í dag.
Á heildina litið er hér því á ferð
alveg einstaklega fróðleg og fag-
mannlega gerð heimildarmynd um
hörmungaratburð í samtímasögu
okkar. Atburð sem verulega óþægi-
legt er að rifja upp – sérstaklega í
ljósi ástandsins í Mið-Austurlönd-
um í dag sem lítið sem ekkert hefur
batnað, tæpum þremur áratugum
síðar. Myndbönd
Ólympíu-
martröð
Skarphéðinn Guðmundsson
ÁSTRALSKI leikarinn Eric Bana
hefur verið ráðinn til að fara með
hið eftirsótta hlutverk hins ótrúlega
Hulks í mynd sem taívanski leik-
stjórinn Ang Lee er nú að undirbúa.
Myndin um þetta græna stolt
Marvel-myndasagnarisans fer í tök-
ur í mars á næsta ári og ætti að
verða tilbúin árið 2003.
Það kannast væntanlega fæstir
við Bana en hann varð skyndilega
heitasta heitt eftir að Hollywood-
gengið sá til hans í áströlsku smá-
myndinni Chopper sem frumsýnd
var á Toronto-hátíðinni í síðasta
mánuði. Mógúllinn Jerry Bruckhei-
mer og leikstjórinn Ridley Scott
ruku þá til og völdu hann í aðal-
hlutverk væntanlegrar stórmyndar
sem þeir ætla að framleiða saman
og kallast Black Hawk Down en
mótleikarar Bana verða Ewan
McGregor og Josh Harnett.
Bana er kunnastur í Ástralíu sem
sjónvarpsþáttastjórnandi en
frammistaða hans í Chopper hefur
aukið hróður hans enn frekar. Í
myndinni leikur Bana einhvern
grimmasta fjöldamorðingja Ástr-
ala, Mark Brandon „Chopper“
Read, náunga sem lagt hefur morð-
vopnin á hilluna og segist vera full-
komlega sáttur við sannfærandi
túlkun Bana.
Ástralskur Hulk
Reuters
Nýi Hulk, Eric Bana, í hlutverki
fjöldamorðingjans Mark „Chopper“
Read, sem myrt hefur 19 manns.
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
Ungbarnafatnaður
Komdu í bæinn og skoðaðu úrvalið og
verðið. Allt fyrir mömmu.
Þumalína, Pósthússtr. 13, s. 551 2136.