Morgunblaðið - 17.10.2001, Page 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
kona af völdum lungnakrabbameins
og megi segja að hér sé um heima-
tilbúinn faraldur að ræða því dauðs-
föllin megi rekja til reykinga á 20.
öldinni.
„Reykingar virðast hafa aukist
mjög hratt hjá íslenskum konum um
og eftir stríðsárin og jukust bæði
nýgengi og dánartíðni frá árinu
1960,“ segir Laufey. „Fyrir þann
tíma létust ein til tvær konur árlega
af völdum lungnakrabbameins en
eftir 1960 hefur hvort tveggja farið
vaxandi á hverju fimm ára tímabili
þar til árin 1996 til 2000. Nýgengi
lungnakrabbameins hjá konum var
32 á 100.000 árin 1991 til 1995 en á
síðasta fimm ára tímabili 27.“ Dán-
artíðnin hefur aukist jafnt og þétt
þennan tíma og var 25 á hverjar
100.000 konur árin 1991 til 1995 en
ekki liggja fyrir tölur um síðustu
fimm árin.
Laufey segir að skýringa á ný-
gengi lungnakrabbameins í dag
NÝJAR tölur frá Krabbameinsskrá
Krabbameinsfélags Íslands benda
til þess að farið sé að draga úr tíðni
lungnakrabbameins á Íslandi bæði
hjá körlum og konum. Hér á landi er
nýgengi lungnakrabbameins hjá
konum með því hæsta sem þekkist
en hefur lækkað úr 32 á hverjar 100
þúsund konur í 27.
Ísland er í flokki með Bandaríkj-
unum, Danmörku, Kanada og Skot-
landi þar sem nýgengið er hæst í
heiminum, eða á bilinu 21 til 40 af
hverjum 100.000 konum en í mörg-
um löndum heims er nýgengið mun
lægra eða á bilinu 1 til 15.
Laufey Tryggvadóttir, faralds-
fræðingur hjá Krabbameinsfélagi
Íslands, segir að lungnakrabbamein
megi í langflestum tilvikum rekja til
reykinga. Hún segir nýlegar rann-
sóknir benda til að konur geti verið
enn næmari en karlar fyrir skaðleg-
um áhrifum reykinga.
Laufey segir að árlega deyi 51
megi leita nokkra áratugi aftur í
tímann þar sem það taki 10 til 20 ár
að myndast. „Reykingar virðast
hafa orðið almennar meðal íslenskra
kvenna nokkru fyrr en hjá stall-
systrum þeirra í öðrum löndum.
Elstu tölur um samanburð á reyk-
ingum milli Norðurlanda eru frá
árinu 1965 og þar kemur fram að ís-
lenskar konur voru í efsta sæti, 45%
þeirra reyktu. Í Danmörku reyktu
42% kvenna en 23% á hinum Norð-
urlöndunum,“ segir Laufey og segir
nýgengi lungnakrabbameins 25 ár-
um síðar í samræmi við hlutfall
reykinga meðal kvenna. Á Íslandi og
í Danmörku sé nýgengið hæst.
15% krabbameina kvenna
orsakast af reykingum
Laufey segir 15% allra krabba-
meina hjá konum orsakast af reyk-
ingum. Vísar hún þar til umfangs-
mikilla rannsókna sem sýnt hafi
óyggjandi fram á sterkt samband
reykinga og krabbameina. „Þarna
vegur lungnakrabbamein þyngst en
85% þeirra tilfella má rekja beint til
reykinga. Reykingar virðast einnig
valda stærstum hluta krabbameina í
barka, vélinda, koki og munni og
þær valda krabbameinum í þvag-
blöðru, brisi og nýrum,“ segir Lauf-
ey og bendir einnig á að reykingar
geti tengst krabbameini í leghálsi.
Dregur úr tíðni
lungnakrabbameins
%&A
% A
A
A
A
! "
# "
B CAD
0-,
3
11111 E
$%&' (
%"!)*
+
!!
Minni reykingar kvenna farnar að hafa áhrif á heilsufar þeirra
FIMMTI hver framhaldsskólanemi
á aldrinum 18–19 ára hefur neytt
neftóbaks 20 sinnum eða oftar og 8%
munntóbaks. Þetta þýðir að notkun á
munn- og neftóbaki er samanlagt
orðin algengari en dagleg neysla
reyktóbaks. Í könnuninni Ungt fólk í
framhaldsskólum sem gerð var í öll-
um framhaldsskólum landsins árið
2000 og sem kynnt var í gær kemur
fram að tæplega 19% nemenda á
aldrinum 16–19 ára reyktu á hverj-
um degi. Í sambærilegri könnun sem
gerð var árið 1992 sagðist 21% nem-
enda reykja daglega.
Tíundi hver hefur notað
svefntöflur
Neysla ólöglegra fíkniefna hefur
aukist talsvert, sérstaklega hass-
neysla. Árið 2000 höfðu 12% nem-
enda reykt hass þrisvar sinnum eða
oftar, en 7% árið 1992. Einnig hefur
neysla á amfetamíni og kókaíni auk-
ist, en 5% nemenda í könnuninni
2000 höfðu notað kókaín. Þá kemur á
óvart að tíundi hver nemandi hefur
notað svefntöflur eða róandi lyf og
3% hafa tekið E-töflur einu sinni eða
oftar um ævina, sem er lægra hlut-
fall en aðstandendur könnunarinnar
bjuggust við miðað við þá umræðu
sem verið hefur í þjóðfélaginu um E-
töflur.
Verulega dregur úr ölvun meðal
framhaldsskólanema milli kannana.
Í fyrra höfðu 63% framhaldsskóla-
nema orðið ölvuð síðustu 30 daga áð-
ur en könnunin var gerð, en átta ár-
um áður var þetta hlutfall 81%.
Fleiri neyta
munn- og
neftóbaks
en reykja
daglega
Dregið hefur/26
LÍBÝUMAÐUR sem tollgæslan á
Keflavíkurflugvelli stöðvaði í síð-
ustu viku með reiðufé að jafnvirði
um eina milljón íslenskra króna og
skartgripi að verðmæti um 200–300
þúsund krónur er grunaður um að
hafa ætlað að nota íslenskar fjár-
málastofnanir til að stunda pen-
ingaþvætti. Efnahagsbrotadeild
ríkislögreglustjóra fer með rann-
sókn málsins.
Maðurinn var stöðvaður í grænu
hliði á Keflavíkurflugvelli sl.
fimmtudag. Á honum fannst reiðu-
féð sem var í þremur erlendum
gjaldmiðlum auk skartgripanna.
Ástæða þótti til að óska skýringar
á þessum fjármunum og var lagt
hald á bæði reiðuféð og skartgrip-
ina.
Við rannsókn efnahagsbrota-
deildar ríkislögreglustjóra kom í
ljós að maðurinn hafði áður komið
hingað til lands og þá stofnað
bankareikninga. Við eftirgrennslan
kom í ljós að hann hafði ekki gefið
réttar upplýsingar um þjóðerni en
hann er líbýskur ríkisborgari. Í
framhaldi af því var lagt hald á
innistæðu tveggja bankareikninga
en samtals nam upphæðin um 1,6–
1,7 milljónum króna.
Samkvæmt upplýsingum frá
efnahagsbrotadeild ríkislögreglu-
stjóra leikur grunur á að þeir fjár-
munir sem hann flutti til landsins
séu ávinningur af glæpastarfsemi í
útlöndum.
Maðurinn var í haldi lögreglu í
tæplega sólarhring á meðan yfir-
heyrslur og eftirgrennslan um upp-
runa hans fóru fram en ekki var
talin þörf á gæsluvarðhaldi yfir
honum. Maðurinn yfirgaf landið
eftir að honum var sleppt úr haldi.
Maður grunaður um peningaþvætti hérlendis
Var með skartgripi
og milljón í reiðufé
SJÖ ára stúlka slasaðist nokkuð
þegar ekið var á hana á Digranes-
vegi í Kópavogi í gær. Hún var flutt
á slysadeild Landspítalans í Foss-
vogi og lögð inn á barnadeild spít-
alans til eftirlits. Hún hlaut bein-
brot en var ekki lífshættulega
slösuð að sögn læknis á slysadeild.Morgunblaðið/Júlíus
Barn varð
fyrir bíl
TVEIR þeirra þriggja flokka sem
áforma að standa að sameiginlegu
framboði R-listans fyrir komandi
borgarstjórnarkosningar, Fram-
sóknarflokkurinn og Vinstrihreyf-
ingin – grænt framboð, hafa lýst sig
mótfallna sameiginlegu opnu próf-
kjöri flokkanna. Anna Kristinsdóttir,
formaður Framsóknarfélags Reykja-
víkur, segir fulltrúa Framsóknar-
flokksins í framboðsnefnd flokkanna
ekki fylgjandi opnu prófkjöri og telur
að flokkarnir eigi frekar að velja sína
fulltrúa sjálfir. Að sögn Önnu hafa
Vinstri grænir einnig aftekið þá leið
að hafa opið prófkjör en Samfylking-
in frekar mælt með þeirri leið.
Aðalfundur Vinstrihreyfingarinn-
ar – græns framboðs í Reykjavík
samþykkti í gærkvöld að veita samn-
inganefnd félagsins áframhaldandi
umboð til viðræðna við Framsóknar-
flokk og Samfylkingu um sameigin-
legt framboð fyrir næstu borgar-
stjórnarkosningar. Þetta staðfesti
Sigríður Stefánsdóttir, formaður fé-
lags VG í Reykjavík, í samtali við
Morgunblaðið. Sagði hún að þetta
hefði verið samþykkt með öllum at-
kvæðum aðalfundarins gegn einu.
Umboðið gildir að sögn Sigríðar til
nóvemberloka.
Framsókn
og VG mót-
fallin opnu
prófkjöri
ÓVENJU heitt hefur verið á
landinu að undanförnu. Í fyrra-
kvöld mældist hiti í Reykjavík
15,3 gráður. Veðurstofan hefur
ekki áður skráð svo mikinn hita
svo seint á árinu að sögn
Trausta Jónssonar veðurfræð-
ings.
1. október árið 1958 var hiti í
Reykjavík 15,7 gráður. Trausti
sagði að hitinn þennan dag
hefði að nokkru leyti verið af-
leiðing hitans deginum áður, en
þá fór hitinn í 16,8 stig.
Hann sagði að útlit væri fyrir
áframhaldandi hlýindi á land-
inu á næstunni.
Hitamet
var sett í
Reykjavík
♦ ♦ ♦
GRÍMUKLÆDDUR maður rændi
myndbandaleigu við Holtsgötu um
klukkan 16 í gær. Að sögn lögregl-
unnar í Reykjavík réðst maðurinn,
sem er lýst sem ungum og grönnum,
inn á myndbandaleiguna Videospól-
una með kylfu í hendi og hótaði af-
greiðslumanni líkamsmeiðingum.
Maðurinn komst á brott með eitt-
hvað af peningum en afgreiðslumað-
urinn slapp ómeiddur. Maðurinn
fannst ekki í gær.
Rændi mynd-
bandaleigu
♦ ♦ ♦