Morgunblaðið - 24.11.2001, Síða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
UMHVERFISNEFND Hafn-
arfjarðar hefur lagt til við
bæjarstjórn að hafist verði
handa við uppbyggingu gesta-
stofu við Ástjörn. Áður hafa
bæjaryfirvöld úthlutað 40
milljónum til verkefnisins á
næstu fimm árum.
Að sögn Guðrúnar Hjör-
leifsdóttur, formanns um-
hverfisnefndar Hafnarfjarð-
ar, er hugmyndin um gesta-
stofu ekki ný af nálinni. Fyrir
rúmum þremur árum hafi
bæjarfélagið sótt um að nátt-
úrufræðasetri yrði komið á fót
við Ástjörn en eitt slíkt er í
hverju kjördæmi á vegum um-
hverfisráðuneytisins. Niður-
staðan varð sú að fræðasetri
Reykjaneskjördæmis var
komið á fót í Sandgerði. „En
við héldum áfram að vinna að
þessari hugmynd um að
byggja upp nokkurs konar
bland af fræðasetri eða gesta-
stofu við Ástjörn, þar sem
áherslan yrði lögð á lífríkið í
kring um Hafnarfjörð og upp-
lýsingar þar að lútandi,“ segir
Guðrún og leggur áherslu á að
um „lifandi og hreyfanlegt“
fræðasetur verði að ræða.
Hún segir að þegar hafi verið
úthlutað 40 milljónum á næstu
fimm árum í rammafjárhags-
áætlun bæjarins til verkefnis-
ins.
Þrjár skýrslur hafa verið
unnar fyrir umhverfisnefnd-
ina um málið. Í þeirri fyrstu
eru reifaðar hugmyndir um
gestastofuna, markmið henn-
ar, staðsetningu og starfsemi
svo eitthvað sé nefnt. Segir
þar að markmiðin með gesta-
stofu séu að stuðla að aukinni
náttúruvernd, að stuðla að
aukinni fræðslu um nátt-
úrufar og umhverfismál, að
bæta aðgang að upplýsingum
um náttúrufar og menningar-
sögu Hafnarfjarðar og ná-
grennis með Ástjörn sem út-
gangspunkt og loks að vernda
fjölbreytta náttúru í nágrenni
þéttbýlis.
Ástjörn og umhverfi hennar
hefur verið friðlýst frá árinu
1978 en í samþykktu deili-
skipulagi fyrir svæðið er gert
ráð fyrir náttúrustofu eða
fólkvangsmiðstöð og er heim-
ilt að reisa hús á 1-2 hæðum
innan byggingarreitsins. Í
annarri skýrslunni kemur
fram að gestastofan yrði ná-
lægt þeim stað sem áður stóð
bærinn Stekkur. „Vegna þess
hvers eðlis starfsemi gesta-
stofu er, verður að teljast
brýnt að vistvænn byggingar-
máti sé í heiðri hafður, sér-
staklega þegar kemur að efn-
isvali, og að unnið verði í
samræmi við þær hugmyndir
sem settar eru fram í Staðar-
dagskrá 21 um sjálfbæra
framtíð,“ segir í skýrslunni.
Kostnaðarmat tæpar
87 milljónir króna
Þá segir að starfsemi gesta-
stofu yrði tvíþætt; annars veg-
ar væri um að ræða fræðslu-
miðstöð, sem samanstæði af
gestamóttöku, sýningaað-
stöðu, fyrirlestrarsal og að-
stöðu starfsmanna, en hins
vegar væri veitingaaðstaða
sem væntanlega yrði rekin
sem sjálfstæð eining. Aðkoma
tengdist göngustíganeti um-
hverfis Ástjörn og yrði gesta-
stofan upphafspunktur skoð-
anaferða um svæðið. Æskilegt
sé að koma fyrir upplýsinga-
skiltum, borðum og bekkjum
utandyra og tryggja þurfi að-
gengi að snyrtingum þegar
stofan er lokuð.
Kostanaðarmat vegna
gestastofunnar og búnaðar er
tæpar 87 milljónir en taka ber
fram að skýrslan var unnin í
ágúst í fyrra.
Nýjasta skýrslan, sem var
lögð fram á síðasta fundi um-
hverfisnefndar, tekur fyrir
eignar- og rekstrarfyrirkomu-
lag gestastofu og fjármögnun.
Kemur þar fram að landbún-
aðarráðuneytið hafi afsalað
Hafnarfjarðarbæ jörðinni
Stekk undir gestastofuna.
Talið er að rekstrarkostnaður
yrði um 11 milljónir árlega en
mögulegir tekjustofnar væru
t.d. stofnun „vinafélags
Ástjarnar“, sem ynni að fjár-
öflun, minjagripasölu, útleigu
á sal hússins og hugsanlega
veitingastofu. Þó kemur fram
í skýrslunni að með því að
sleppa veitingastofu væri lík-
lega hægt að lækka stofn-
kostnað um 20 prósent.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Við Ástjörn er friðland og fólkvangur og þar er eini varpstaður flórgoðans á suðvesturhorni landsins.
Gestastofa rísi við Stekk
Hafnarfjörður
Þegar búið að
úthluta 40
milljónum til
verkefnisins
NÁLÆGT 40 hugmyndir bár-
ust í hugmyndasamkeppni um
skipulag Faxaskálasvæðisins
þar sem fyrirhugað er að reisa
tónlistar- og ráðstefnuhús og
hótel. Búist er við niðurstöðu í
samkeppninni í janúar næst-
komandi.
Árni Þór Sigurðsson, for-
maður skipulags- og bygginga-
nefndar Reykjavíkur, segir
þetta vera mjög góða þátttöku
en ekki sé hægt að segja til um
hvaðan tillögurnar koma. „Það
voru skilmálar í því að það yrði
að skila greinargerð bæði á ís-
lensku og ensku og menn
gerðu það þannig að við vitum
ekki hvaðan þær koma. Við vit-
um hins vegar að það er eitt-
hvað erlendis frá en hvað það
er stór hluti veit ég ekki.“
Fyrst og fremst er um hug-
myndir að ræða en í þeim er
ekki sett fram hönnun á húsum
eða fullkomið skipulag. „Þetta
er hugmyndasamkeppni sem
sýnir í megindráttum fyrir-
komulag lóða, húsa, umferðar-
tenginga og annað slíkt en á
grundvelli svona hugmyndatil-
lögu þarf að vinna nýtt deili-
skipulag. Hins vegar segir hún
í megindráttum hvernig skipu-
lagið er hugsað þó að ekki séu
allir hlutir leystir,“ segir Árni.
Hann segir dómnefndina nú
að störfum við að skoða tillög-
urnar og sú vinna muni standa
framyfir áramót. Vonast sé til
að hægt verði að kynna niður-
stöður í janúar.
40 hug-
myndir
bárust
Miðborg
Hugmyndasamkeppni
um skipulag svæðis
fyrir tónlistarhús
BYGGT verður við leikskólann
Hlíð næsta sumar en bæjarráð
Mosfellsbæjar hefur vísað fram-
kvæmdinni til fjárhagsáætlunar
2002. Leikskólastjóri Hlíðar segir
starfsaðstöðu í leikskólanum
enga.
Í bréfi sem Jóhanna S. Her-
mannsdóttir leikskólastjóri sendi
bæjarstjóra er minnt á viðbygg-
ingu við Hlíð og óskað eftir því að
það verði tryggt að hún rísi næsta
sumar. Segir í bréfinu að hús-
næðið sé löngu búið að sprengja
starfsemina utan af sér enda sé
skólinn orðinn 16 ára gamall.
Staðhæft er að aðstaða fyrir
starfsfólk sé slæm og fari versn-
andi. Börnin í leikskólanum séu
75 í stað 60 áður og einnig hafi
starfsfólki fjölgað. Fatahengi
vanti og kaffistofan rúmi ekki allt
starfsfólk. Þar sé t.d. frystir þar
sem búrið hafi verið tekið undir
vinnu- og viðtalsherbergi, sem sé
mjög lítið og gluggalaust. Salur-
inn rúmi ekki starfsfólk og börn
og nauðsynlega vanti undirbún-
ings-, viðtals- og stuðningsher-
bergi, listaskála og stærri sal.
Gunnhildur Sæmundsdóttir,
leikskólafulltrúi í Mosfellsbæ,
tekur undir það sjónarmið Jó-
hönnu að starfsaðstaðan í Hlíð sé
alls ekki nægilega góð.
„Þessi leikskóli er barn síns
tíma en það stendur til að byggja
við hann á næsta ári og bæta
þessa starfsaðstöðu. Trúlega
verður líka byggð ein deild og
skólinn stækkaður. Reyndar var
laus kennslustofa sett upp við
skólann í haust og það gengur
mjög vel en það stendur til að
koma þessu öllu í varanlegt horf
næsta sumar.“
Hún segir að búið sé að end-
urnýja leikskólana Hlaðhamra og
Reykjakot og Hlíð sé næst í röð-
inni. Í fyrra hafi verið boðað til
fundar þar sem farið var yfir mál-
efni Hlíðar og Reykjakots. „Þá
var ákveðið að byrja á Reykjakoti
þetta árið og bíða með Hlíð í eitt
ár í viðbót en nú er komið að
henni.“
BÆJARRÁÐ hefur samþykkt
að tengibygging Kópavogs-
hallar, fjölnota íþrótta- og sýn-
ingarhúss sem verið er að hanna
í Kópavogsdal, verði byggð um
225 fermetrum stærri en upp-
haflega var ráðgert. Áætlaður
kostnaður við þessa stækkun er
um 9 – 10 milljónir króna.
Í bréfi bæjarverkfræðings til
bæjarráðs kemur fram að tengi-
byggingin, sem er úr nýbygging-
unni yfir í íþróttahús Smárans,
átti að vera u.þ.b. 260 fermetrar
að stærð samkvæmt alútboðs-
gögnum og þannig útfærð að
hægt væri að stækka hana síðar
yrði talin þörf á því. Í tillögu
verktaka hafi verið gert ráð fyrir
273 fermetra tengibyggingu.
„Þegar farið var að hanna
tengibyggingu endanlega var
talið rétt að stækka hana sér-
staklega vegna sýningarhalds
ofl. Tengibygging er 372 m²
samkvæmt þeim teikningum
sem nú liggja fyrir. Beðið er um
112 m² stækkun til viðbótar til
þess að hægt verði að komast
beint úr búningsklefagangi inn í
knatthúsið án þess að fara í gegn
um anddyri,“ segir í bréfinu.
Þá segir að stækkunin muni
nýtast mannvirkinu ágætleg
vegna sýninga ofl. og að kostn-
aður við þessa stækkun sé áætl-
aður um 9 -10 milljónir króna.
Framkvæmdir við húsið hóf-
ust í júlí síðastliðnum og er ráð-
gert að byggingu þess verði lok-
ið snemma næsta vor. Hönnuður
byggingarinnar er Stefán Halls-
son en Ólafur og Gunnar ehf. eru
verktakar.
Kópavogur
Áætlað er að byggingu Kópavogshallar verði lokið snemma næsta vor.
Íþróttahús stækkar
Byggt við Hlíð næsta sumar
Mosfellsbær
Morgunblaðið/Ásdís
Aðstaðan fyrir þessa kátu krakka á leikskólanum Hlíð batnar vænt-
anlega næsta sumar en þá er ráðgert að viðbygging rísi.