Morgunblaðið - 24.11.2001, Síða 18
AKUREYRI
18 LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FJÓRIR frystitogarar Samherja hf.
hafa komið til hafnar á síðustu dög-
um með góðan afla og er aflaverð-
mæti þeirra samtals á fimmta
hundrað milljónir króna. Þá gerðu
skipverjar á fjölveiðiskipi félagsins,
Vilhelm Þorsteinssyni EA, sér daga-
mun í vikunni í tilefni þess að afla-
verðmæti skipsins er komið yfir einn
milljarð króna á árinu.
Verður því að teljast líklegt að Vil-
hem Þorsteinsson EA verði í efsta
sæti yfir aflaverðmæti íslenskra
fiskiskipa á árinu. Tveir af frystitog-
urum Samherja komu til hafnar á
Akureyri í gær. Baldvin Þorsteins-
son EA, sem var með aflaverðmæti
upp á um 100 milljónir króna eftir 23
daga veiðiferð og Víðir EA sem var
með um 103 milljónir króna í afla-
verðmæti eftir 25 daga. Fyrir síð-
ustu helgi kom Akureyrin EA til
hafnar á Akureyri eftir 34 daga
veiðiferð og var aflaverðmæti skips-
ins um 114 milljónir króna. Þessi
þrjú skip voru á veiðum á Íslands-
miðum, á Norður- og Vestfjarðamið-
um.
Björgvin EA í Barentshafinu
Þá kom Björgvin EA til hafnar á
Dalvík sl. þriðjudag eftir ágætis tíma
í Barentshafinu. Skipið var 34 daga í
síðustu veiðiferð sinni og var afla-
verðmætið um 104 milljónir króna.
Að sögn Kristjáns Vilhelmssonar út-
gerðarstjóra Samherja hefur veiðin
verið alveg þokkaleg að undanförnu
en skipin eiga eftir að fara einn túr
til viðbótar fyrir áramót.
Vilhelm Þorsteinsson EA hefur
stundað veiðar á síld, loðnu og kol-
munna á árinu en uppistaðan er þó
síld og er aflinn unninn um borð.
Skip Samherja til hafnar með mikið aflaverðmæti
Vilhelm Þorsteins-
son EA yfir milljarð
Morgunblaðið/Kristján
Ungir og hraustir menn vinna við löndun úr Baldvini Þorsteinssyni EA.
Haukar - Þór
sunnudag 25. nóv. kl. 17.00 á Ásvöllum.
Komið og hvetjið ykkar menn.
Kveðja frá Akureyri.
Akureyringar sunnan heiða!
AKUREYRARKIRKJA: Fjölskyldumessa kl.
11 á morgun, sunnudag. Barnakór Ak-
ureyrarkirkju syngur. Gunnar Gunnarsson
og Sigurður Flosason flytja tónlist og fé-
lagar úr Æskulýðsfélagi kirkjunnar að-
stoða í messunni. Guðsþjónusta á Seli
kl. 14.30. Guðsþjónusta á Hlíð kl. 16.
Fundur í Æskulýðsfélagi Akureyrarkirkju
kl. 17 í kapellu.
Æðruleysismessa kl. 20.30 um kvöldið.
Sjálfshjálparhópur foreldra kl. 20.30 á
mánudagskvöld.
Morgunsöngur kl. 9. á þriðjudag.
Mömmumorgunn kl. 10–12 á miðviku-
dag. TTT-starf kl. 17–18 í Safnaðarheim-
ili. Biblíulestur kl. 20.30. um kvöldið.
Kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 12 á
fimmtudag. Bænaefnum má koma til
prestanna. Eftir stundina er hægt er að
kaupa léttan hádegisverð sem Kvenfélag
kirkjunnar annast í Safnaðarheimili.
Opið hús fyrir eldri borgara kl. 15.
GLERÁRKIRKJA: Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11 á morgun, sunnudag. Barnakór
kirkjunnar syngur. Ósk og Ásta spjalla viö
börnin. Kyrrðar- og tilbeiðslustund kl.
18.10 á þriðjudag. Hádegissamvera kl.
12 til 13 á miðvikudag, orgelleikur, helgi-
stund, fyrirbænir og sakramenti. Léttar
veitingar á vægu verði í safnaðarsal að
helgistund lokinni. Opið hús fyrir foreldra
og börn kl. 10 til 12 á fimmtudag. Æfing
barnakórsins kl. 17.30 á fimmtudag.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagaskóli
kl. 11 á morgun, bænastund kl. 19.30 og
almenn samkoma kl. 20. Heimilasam-
band kl. 15 á mánudag. Örkin fyrir 6–7
ára kl. 17 sama dag. Biblíufræðsla, súpa
og brauð kl. 19 á þriðjudag. Mannakorn
fyrir 10 til 12 ára kl. 17.30 á miðvikudag.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Bænastund kl.
20 í kvöld. Sunnudagaskóli fjölskyldunn-
ar kl. 11.30 á morgun, kennsla fyrir alla
aldurshópa, Pétur Reynisson sér um
kennslu fullorðinna. Vakningasamkoma
kl. 16.30 sama dag, Yngvi Rafn Yngva-
son predikar, fjölbreytt lofgjörðartónlist,
fyrirbænaþjónusta og barnapössun.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í dag, laug-
ardag kl. 18 og á morgun, sunnudag kl.
11 í Péturskirkju við Hrafnagilsstræti 2.
KFUM og K: Biblíu- og bænastund kl. 17
á morgun. Fundur í yngri deild kl. 17 á
mánudag fyrir drengi og stúlkur 10 til 12
ára.
SJÓNARHÆÐ: Fótsporið, fyrir 6 til 12 ára
kl. 13.30 á morgun í Lundarskóla. Sam-
koma kl. 17 á Sjónarhæð. Fótsporið kl.
17 næsta þriðjudag á Sjónarhæð. Ástirn-
ingar sérstaklega velkomnir.
Kirkjustarf
SÉRKENNILEG
birta var yfir
Ólafsfirði í gær-
morgun og gátu
bæjarbúar notið
hennar í um það
bil klukkustund.
Svo eins og hendi
væri veifað var
rauðleit birta
morgunsins horf-
in.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Roða-
gylltur
himinn
ÞRJÚ tilboð bárust í eignir
þrotabús Kexsmiðjunnar en þær
voru auglýstar til sölu fyrir
nokkru.
Hreinn Pálsson skiptastjóri
sagði að farið yrði yfir tilboðin og
ákvörðun tekin um hverju þeirra
yrði tekið áður en langt um liði.
Bakstur ehf. leigir reksturinn af
þrotabúinu fram til áramóta.
Þrjú tilboð
Þrotabú Kexsmiðjunnar