Morgunblaðið - 24.11.2001, Síða 19
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 19
Íslandsfugl hafði áður gert kaup-
tilboð í húseign bæjarins við Hafnar-
braut 7. Þetta kemur fram á heima-
síðu fyrirtækisins. Þar segir enn-
fremur að í bókun bæjarráðs komi
fram að Dalvíkurbyggð hafa átt þess
kost að auka hlutafé sitt í Íslandsfugli
í hlutafjárútboðinu um allt að fimm
milljónir króna til að halda sínum
hlut. Bæjarráð samþykkti að nýta
ekki forkaupsrétt sinn en samþykkti
að auka hlutafé sveitarfélagsins í fyr-
irtækinu um 6 milljónir króna á geng-
inu 1 og að greiðsla verði innt af hendi
með sölu á Hafnarbraut 7 samkvæmt
kauptilboði frá Íslandsfugli.
Fullvinnsla sett upp í húsnæðinu
Auðbjörn Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Íslandsfugls, segist á
heimasíðunni vera mjög sáttur við
þessa afgreiðslu bæjaryfirvalda í Dal-
víkurbyggð. Mikilvægt sé fyrir Ís-
landsfugl, þegar til lengri tíma sé litið,
að fá umrætt 595 fermetra húsnæði á
jarðhæð Hafnarbrautar 7, enda sé
bara einn veggur á milli þess og nú-
verandi húsnæðis Íslandsfugls. Eim-
skip hefur umrætt húsnæði á leigu til
vors og þá fyrst fær Íslandsfugl það
til ráðstöfunar. Auðbjörn segist fast-
lega búast við að í þessu húsnæði
verði sett upp fullvinnsla fyrirtækis-
ins, en upphaflega var gert ráð fyrir
að henni yrði komið upp á efri hæð
nýbyggingar Íslandsfugls við Hafnar-
braut.
Dalvíkurbyggð eykur hlut sinn í Íslandsfugli
Leggur hús-
eign sína inn
sem hlutafé
BÆJARYFIRVÖLD í Dalvíkurbyggð hafa ákveðið að leggja húseign sína að
Hafnarbraut 7 á Dalvík sem hlutafé inn í Íslandsfugl og þannig heldur sveit-
arfélagið sínum hlut í hlutafjárútboði fyrirtækisins. Fyrir nokkru var sam-
þykkt að auka hlutafé í Íslandsfugli um 100 milljónir króna.
TÆPLEGA fertugur síbrotamaður
hefur verið dæmdur í Héraðsdómi
Norðurlands eystra í tveggja mán-
aða fangelsi vegna þjófnaðar.
Maðurinn var ákærður fyrir að
hafa stolið ýmsum munum, m.a.
myndbandsupptökuvél, myndavél,
ljósmyndabúnaði og fleiri úr íbúð í
Kópavogi í maí á þessu ári, en verð-
mæti þýfisins var áætlað um 236
þúsund krónur.
Skömmu eftir þjófanaðinn hand-
tók lögregla í Reykjavík manninn en
hann hafði þá myndavél í fórum sín-
um. Játaði maðurinn þjófnaðarbrot-
ið við yfirheyrslur, en kvaðst hafa
selt þýfið að frátalinni myndavélinni.
Maðurinn hefur margoft hlotið
refsidóma, einkum vegna auðgunar-
brota, en einnig vegna ölvunarakst-
urs, ráns og líkamsárásar.
Tveggja mánaða
fangelsi vegna
þjófnaðar
EINN gæsluvöllur er opinn á Ak-
ureyri í vetur, Eyrarvöllur við Eiðs-
völl, og er hann opinn alla virka daga
frá kl. 13 til 16. Skólanefnd sam-
þykkti á síðasta ári að rekinn yrði
einn gæsluvöllur allt árið og annar
einnig yfir sumarmánuðina, svo
fremi að aðsókn væri viðunandi.
Aðsóknin síðasta sumar var í slak-
asta lagi, en að meðaltali voru skráð-
ar 17 heimsóknir á dag á Eyrarvöll
og 11 á Bugðuvöll. Síðan í haust hef-
ur svo enn dregið úr aðsókninni, en í
september voru skráðar alls 146
heimsóknir á Eyrarvöll eða tæplega
7 börn á dag að meðaltali. Í október
fækkaði þeim enn fremar og urðu 85
talsins sem gerir tæpilega 4 börn á
dag að meðaltali. Sömu mánuði í
fyrra voru heimsóknir nokkru fleiri,
eða 16 í september og 13 á dag í októ-
ber.
Alls hafa á þessu ári 2.360 heim-
sóknir verið skráðar á Eyrarvöll, en
voru 3.613 á liðnu ári.
Heimsóknum
fækkar á
gæsluvelli
♦ ♦ ♦
Handmálaðir
englar
sími 462 2900
Blómin
í bænum